Morgunblaðið - 02.10.2019, Side 6

Morgunblaðið - 02.10.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019 Skerpa verkferla og merkja starfsfólk  Skóla- og frístundasvið safnar gögnum og undirbýr tillögugerð  „Við viljum að allir séu öruggir“ Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skólastjórnendur við grunnskóla í Reykjavík hafa að undanförnu skerpt á verkferlum í skólunum til að gæta betur að öryggi barnanna og skóla- og frístundasvið Reykja- víkurborgar er þessa dagana að safna gögn- um og undirbúa tillögugerð vegna þessa. Mikil umræða hefur orðið í framhaldi af frétt Morgunblaðsins og mbl.is í seinustu viku um atvik sem átti sér stað í Austurbæj- arskóla í byrjun september. Þá fór karl- maður inn í skólann á miðjum skóladegi og plataði níu ára gamla stúlku afsíðis þar sem hann þuklaði á henni og hafði uppi kynferð- islega tilburði. Stúlkan komst undan og var maðurinn handtekinn. „Skólastjórar hafa almennt tjáð sig á þá lund að þetta hræðilega atvik hafi orðið til eru starfsmenn alltaf í gulum vestum úti og við hnykktum á því að því væri alltaf fylgt.“ Öryggismyndavélar í sumum skólum Aðspurð segir hún að það sé flókið mál ef takmarka eigi frekar aðgang að skólahús- næðinu. Helmingur nemendanna sé ungling- ar sem séu mikið á ferðinni út og inn úr skól- anum meðal annars til að fara í íþróttir í Fylkishöllinni. ,,Það er því hægara sagt en gert að ætla að fara að gera það og ég er ekkert viss um að við viljum það heldur. En við erum með öryggismyndavélar og þær hafa skipt okkur máli í gegnum tíðina við úr- lausn á ýmsum málum,“ segir hún. Örygg- smyndavélar munu ekki vera til staðar í öll- um skólum borgarinnar en Guðlaug telur mikilvægt að hafa myndavélarnar. „Við vilj- um að allir séu öruggir og að krökkunum líði vel hjá okkur. Það er fyrir öllu.“ Starfsmenn fleiri skóla eru merktir á skólatíma. Guðlaug Sturlaugsdóttir, skóla- stjóri Árbæjarskóla, sem er einn af fjöl- mennustu grunnskólum borgarinnar, með um 660 nemendur, segir að í framhaldi af at- vikinu í Austurbæjarskóla hafi þessi mál ver- ið tekin til skoðunar í skólanum og skerpt á því sem þegar hefur verið gert og fylgt hefur verið í starfi skólans. „Við lokuðum engum útgöngum því það er mjög flókið, krakkar eru að koma úr íþróttum og sundi yfir allan daginn og þess vegna er ekki hægt að loka útgöngum en við merktum allt starfsfólk og við ræddum við og brýndum fyrir starfsfólki að gefa sig að öllum sem koma í húsið og at- huga hvaða erindi þeir eiga,“ segir hún. Þá var foreldrum sendur póstur þar sem minnt er á reglur skólans um að hafa sam- band við skrifstofuna eða tala við skólaliðana á staðnum ef þeir eiga erindi í skólann. ,,Svo þess að þeir hafi skerpt á verkferlum og fundað með starfsfólki sínu til að fylgja því eftir,“ segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, í svari til Morgun- blaðsins. Í gulum vestum á skólalóðinni Að hans sögn er núna verið að safna sam- an gögnum varðandi þetta og verða nið- urstöður kynntar á fundi skóla- og frístunda- sviðs á þriðjudag í næstu viku. ,,Við munum svo fylgja gagnasöfnun eftir með beinni til- lögugerð.“ Skólarnir fara hver fyrir sig yfir þessi mál og starfsreglur hjá sér, varðandi aðgengi að skólum, að starfsmenn skólanna séu merktir o.fl. Eins og komið hefur fram hefur í kjölfar atviksins verið endurskoðað eftirlit við inn- ganga Austurbæjarskóla og allir starfsmenn skólans eru nú merktir. „Til okkar koma nemendur og við finnum að fólk er undir miklu álagi, lýsir kvíða og streitu,“ segir Stella Ólafsdóttir, starfs- og námsráðgjafi í Háskólanum í Reykjavík. HR stend- ur fyrir andlegum heilsudegi í skól- anum í dag og er hann opinn nem- endum háskólans og almenningi. Stella segir að tilvalið hafi þótt að kynna fólki hvaða bjargráð eru í boði. „Við viljum vera til staðar fyrir fólk og hjálpa því að finna þá hjálp sem þörf er á,“ segir Stella. Stella segist ekki vita hvort auk- inn kvíði og streita sé meðal nem- enda skólans. „Við finnum fyrir þessu núna. Í haust hafa verið þyngsli, þegar fólk er að hefja aftur nám og störf,“ segir hún. Hún segir að oft séu samverkandi þættir ástæðan fyrir erfiðleikunum. „Oft er undirliggjandi vandi sem brýst fram þegar streita í námi og starfi eykst. Þá getur fólk misst fótanna og leitar til okkar,“ segir Stella. Vegna þess hversu margþættur vandinn er var ákveðið að bjóða sam- tökum, stofnunum og fyrirtækjum sem veita fræðslu og þjónustu á þessu sviði að taka þátt. Sautján samtök höfðu í gær boðað komu sína, meðal annars Litla kvíðameðferðar- stöðin, Vinir í bata, Sorgarmiðstöð og Pieta-samtökin. Opið almenningi Athygli vekur að almenningi er boðið að koma á almennan heilsudag í HR. Stella skýrir það með því að slíkan vettvang vanti. „Þótt við séum háskóli með nemendur viljum við endilega að sem flestir fái að njóta.“ Kynningin er undir heitinu: Láttu þér líða vel og verður í dag frá klukk- an 11 til 14 í Sólinni í HR. helgi@mbl.is Kvíði og streita hjá HR  Hugað að andlegri heilsu í skólanum  Kynna bjargráð Morgunblaðið/Eggert Heilsudagur HR býður upp á þjón- ustu á andlega sviðinu í dag. Lagt er til að erfðafjárskattur verði þrepaskipt- ur í áformuðu frumvarpi Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efna- hagsráðherra, sem kynnt hefur verið á samráðs- gátt stjórnvalda. Lagt til að þrep erfðafjárskattsins, sem er eitt 10% þrep í dag, verð annars vegar 5% af fjárhæð allt að 75 milljónir kr. og hins vegar 10% af því sem er umfram 75 milljónir kr. Fjárhæðarmörk skatt- þrepanna taki svo árlegum breyt- ingum miðað við þróun vísitölu neysluverðs. Þá er jafnframt lagt til að sökum þrepaskiptingar skattsins verði erfðafjárskattur á fyrirfram- greiddum arfi sá sami og í hærra skattþrepinu, þ.e. 10%. Í mati á kostnaðaráhrifum kemur fram að verði skattabreytingarnar að lögum hafi það í för með sér að tekjur ríkis- ins lækki um tvo milljarða kr. á árinu 2020. „Í fjárlagafrumvarpi fyrir kom- andi ár er gert ráð fyrir að tekjur af erfðafjárskatti verði 5,2 [milljarðar kr.] eftir breytingarnar verða þær því um 3,2 [milljarðar kr.]. Samþykkt frumvarpsins hefur aftur á móti já- kvæð áhrif á ráðstöfunartekjur þeirra einstaklinga sem fá úthlutaðan arf úr dánarbúi.“ omfr@mbl.is Þrepaskipt- ur erfða- fjárskattur Bjarni Benediktsson  Lækki í 5% á fjár- hæðir undir 75 millj. Nokkrir fuglaáhugamenn af Norður- og Suður- landi héldu austur um síðustu helgi til að kanna hvað sunnanvindarnir hefðu borið þangað af evrópskum flækingsfuglum dagana á undan. Á Höfn bættust svo tveir þaulreyndir garpar í hóp- inn. Leitað var allt frá Vöðlavík í norðri og að Hofi í Öræfum. Á þremur dögum sáust alls 20 fuglategundir. Þetta voru nánar tiltekið fjöruspói (21), flekkugrípur (3), garðsöngvari (4), glóbrystingur (4), gransöngvari (10+), grá- grípur (2), gráhegri (1), grænsöngvari (2), hauk- söngvari (2), hettusöngvari (13), hnoðrasöngvari (36), hringdúfa (4), landsvala (8), laufsöngvari (6), moldþröstur, sem er amerísk tegund, sára- sjaldgæf (1), netlusöngvari (10), rósafin/ka (2), svartsvanur (1), söngþröstur (2) og vallskvetta (1). Á myndinni til vinstri er garðsöngvari og hettusöngvari til hægri. Þá má geta þess að á föstudag sást förufálki í Keflavík við Látrabjarg og á sunnudag kom næturgali í mistnet á Reykjanesi. sae@sae.is Söngfuglar bárust með sunnanvindum Ljósmyndir/Mikael Sigurðsson Fuglaáhugamenn fjölmenntu austur á land til að skoða flækingsfugla Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Allar almennar bílaviðgerðir TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.