Morgunblaðið - 02.10.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vænst er að Runólfur SH, togskip
sem bættist í flota GRUN hf. fyrir
skemmstu og kom í fyrsta sinn til
nýrrar heimahafnar í Grundarfirði í
gær, fari strax til veiða í kvöld. Við
hátíðlega athöfn tók fjölmenni á
móti skipinu en strax að henni lok-
inni var hafist handa um að koma
veiðarfærum um borð, kosti og öðr-
um varningi. „Við keyptum skipið
ekki upp á punt, heldur til að skapa
verðmæti. Við létum mála skipið í
okkar bláu litum en þurftum engu
öðru að breyta. Sendum strákana
því strax á miðin og fyrsta löndun er
áformuð á mánudagsmorgun,“ segir
Guðmundur Smári Guðmundsson,
framkvæmdastjóri GRUN, í samtali
við Morgunblaðið.
Hluti af fléttu
Togskipið Runólfur SH er 290
brúttótonn, smíðaður í Póllandi árið
2006. Var áður sem Bergey VE í
eigu og útgerð Bergs-Hugins/
Síldarvinnslunnar í Vestmanna-
eyjum. Þessi viðskipti með skipið
eru hluti af stórri fléttu í íslenskri
útgerð sem tekin hefur verið að
undanförnu; það er að sjö pólsk ný-
smíðaskip koma til landsins sem er
skipt út fyrir eldri skip sem önnur
sjávarútvegsfyrirtæki kaupa. Þann-
ig fékk FISH Seafood / Soffanías
Cecilsson í Grundarfirði tvö skip,
Farsæl SH og Sigurborgu SH, sem
áður voru í eigu Gjögurs hf. um síð-
ustu helgi. Þegar svo bætast við
kaupin á Runólfi SH, sem skipt er út
fyrir togbátinn Helga SH, má í raun
segja að skipastóll bæjarins sé gjör-
breyttur.
Vestfirðir og norðurmið
Tíu manns verða í áhöfn Runólfs
SH og undir skipstjórn Arnars
Kristjánssonar verður í þorsk, ýsu,
ufsa, karfa og flatfisk. „Við erum
með tvö skip í útgerð, Hring SH og
núna Runólf, og þau eru gjarnan á
fiskislóðinni hér á Breiðafirði, úti af
Vestfjörðum og norðan landið. Það
eru okkar heimamið,“ segir Smári
og bætir við að með kaupunum á
Runólfi SH sé ætlunin að styrkja
hráefnisöflun fyrir nýtt og fullkomið
fiskvinnsluhús GRUN. Starfsemi í
því hófst snemma á þessu ári og í
gegnum vinnsluna þar fara um 500
tonn á mánuði; fiskur sem að stærst-
um hluta er fluttur ferskur til kaup-
enda í Evrópu.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Glæsiskip Togskipið Runólfur SH í Grundarfirði í gær. Skipið er er 290 brt., smíðað 2006. Var áður Bergey VE.
Runólfur fer strax á miðin
GRUN endurnýjar skip Runólfur kominn í Grundar-
fjörð Engu þarf að breyta Styrkir hráefnisöflun
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Skipstjóri Arnar Kristjánsson er
karlinn í brúnni á Runólfi.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fjölmenni fagnaði því í gær í
Menntaskólanum í Sund að rétt 50
ár – hálf öld – eru frá því starf skól-
ans hófst. Af því tilefni var hátíðar-
samkoma á sal skólans, þar sem Már
Vilhjálmsson rektor rakti í grófum
dráttum sögu og starf skólans. Einn-
ig tóku til máls Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra og Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra, sem
þarna var komin sem fyrrverandi
nemandi skólans og fyrrverandi for-
maður nemendafélags skólans.
Í dag, miðvikudag, verður haldið
upp á 50 ára afmæli skólans með
nemendum. Síðar á skólaárinu verð-
ur svo opið hús þar sem starfið verð-
ur kynnt gestum og gangandi. Þá
voru í gær opnaðar tvær litlar sýn-
ingar um sögu skólans og eru þær á
göngum skólahússins við Gnoðarvog
í Reykjavík.
Skammur aðdragandi
Í ávarpi við afmælishátíðina í gær
sagði Már Vilhjálmsson, rektor MS,
að stofnun skólans á sínum tíma
hefði átt sér skamman aðdraganda.
Síðsumars 1969 hefðu stjórnvöld
uppgötvað að 300 ungmenni þyrftu
skólapláss sem ekki voru til. Við þær
aðstæður hefði Miðbæjarskólinn
verið nánast hertekinn og látið
skeika að sköpuðu með framhaldið.
Býsna fljótt hefði þó myndast menn-
ing og bragur í starfi skólans, hvaðan
fyrstu nemendurnir voru útskrifaðir
árið 1973. Það var svo fáum árum
síðar sem aðsetur skólans var flutt í
Vogahverfið og núverandi nafn tekið
upp.
Í dag starfa um 60 manns við
Menntaskólann við Sund og eru
kennararnir nærri 50. Nemendur
eru yfirleitt á bilinu 740-780 og eru
þeir í námi til stúdentsprófs sem tek-
ur þrjú ár. Már Vilhjálmsson segir
skólastarfið vera í hraðri þróun og sé
í raun suðupottur hugmynda, sköp-
unar og nýjunga. Samfélag nútímans
breytist hratt og skólar verði að taka
mið af því.
Hvetja nemendur áfram
„Skólar geta ekki leyft sér að vera
hlutlausir, “ segir Már. „Það er okk-
ar hlutverk að hvetja nemendur
áfram, að vekja með þeim áhuga, að
ýta undir gagnrýna hugsun og sam-
kennd. Að kenna þeim að efast og
efla með þeim þor til að takast á við
breyttan heim og getu til þess að
móta sjálf breytingarnar og ekki síst
að gefast ekki upp við mótlætið. Lýð-
ræðisvitund, umhverfismál, listir og
sköpun eru grunnþættir í starfi skól-
ans og námskráin býr yfir sveigjan-
leika sem gerir skólanum og nem-
endum kleift að takast á við
breytingar. Námskráin er skrifuð
fyrir nemendur.“
Stytting náms til stúdentsprófs
segir Már Vilhjálmsson að hafi gefið
MS eins og öðrum skólum frelsi og
tækifæri til að setja sér eigin skóla-
námskrá. Þannig hafi í raun verið
skapað nýtt kerfi utan um skóla-
starfið, stjórnun skipulögð, nýjar
reglur og svo framvegis. Afrakstur-
inn af þessu sé í raun nýr skóli sem
halda muni áfram að breytst. Í þessu
ferli hafi starfsfólk skólans stigið út
fyrir þægindarammann, tekist á við
hið óþekkta og gert breytinguna að
sinni.
Skólar geta ekki verið hlutlausir
50 ára starfi Menntaskólans við Sund fagnað Á 8. hundrað nemendur Hraðar breytingar í sam-
félaginu móta starf Lýðræðisvitund, umhverfismál, listir og sköpun eru grunnþættir í starfi skólans
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framtíðin Nokkrir úr stórum nemendahópi Menntaskólans við Sund á 50 ára afmæli skólans sem var í gær.
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
20%
afsláttur
af Guerlain vörum
kynningardagana
Elsa Þórirsd. verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf
Kynning
í Snyrtivöruversluninni
Glæsibæ 02.-04. okt.
Kynnum nýjan og endurbættan farða úr Parure Gold línunni