Morgunblaðið - 02.10.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ram Limited
Litur: Svartur/ Svartur að innan.
Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000
pund! Aisin sjálfskipting, loftpúðafjöðrun, upphitanleg
og loftkæld sæti, hiti í stýri, segl yfir palli, sóllúga, nýr
towing technology pakki. 35” dekk.
VERÐ
10.129.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500 35”
Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal
Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000
pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki.
35” dekk.
VERÐ
11.395.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat
Litur: Perlu hvítur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Band & Olufsen
hátalarakerfi, heithúðaður pallur, hiti í sætum, hiti í
stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6) 10-gíra
375 hestöfl 470 lb-ft of torque
VERÐ
12.590.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat Sport
Litur: Svartur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Sport-pakki, Bakkmyndavél, Band
& Olufsen hátalarakerfi, heithúðaður pallur, hiti í öll
sæti, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6)
10-gíra 375 hestöfl 470 lb-ft of torque
VERÐ
12.670.000 m.vsk
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Átök blossuðu upp milli lögreglu-
manna og mótmælenda í Hong Kong
í gær þegar tugir þúsunda lýðræðis-
sinna tóku þátt í mótmælum í sjálf-
stjórnarhéraðinu á sama tíma og kín-
verski kommúnistaflokkurinn hélt
upp á 70 ára afmæli Alþýðulýðveldis-
ins Kína með mikilli hersýningu og
skrúðgöngu í miðborg Peking. Kín-
versk stjórnvöld notuðu tækifærið til
að leggja áherslu á stöðu landsins
sem vaxandi stórveldis, m.a. með því
að sýna ný kínversk vopn á borð við
langdrægar kjarnorkueldflaugar.
Á sama tíma og 15.000 manna her-
lið heilsaði Xi Jinping, forseta Kína,
að hermannasið í Peking köstuðu
mótmælendur eggjum á mynd af
honum í miðborg Hong Kong. Mót-
mælendurnir virtu að vettugi fyrir-
mæli lögreglunnar um að dreifa sér
og sumir þeirra kveiktu í vegartálm-
um og köstuðu grjóti og bensín-
sprengjum á lögreglumenn sem
beittu táragasi, skutu gúmmíkúlum
og dældu vatni á mótmælendur með
háþrýstivatnsbyssum. Einn lögreglu-
mannanna særði ungan mann með
því að skjóta byssukúlu í bringuna af
stuttu færi. Maðurinn var fluttur á
sjúkrahús eftir að lögreglumenn á
staðnum veittu honum aðhlynningu.
Átökin stóðu í nokkrar klukku-
stundir og vörpuðu skugga á hátíðar-
höldin í Peking í tilefni af því að Maó
Zedong lýsti yfir stofnun alþýðulýð-
veldisins við Hlið hins himneska frið-
ar 1. október 1949.
Ný kjarnavopn sýnd
Xi og aðrir leiðtogar kommúnista-
flokksins fylgdust með hersýning-
unni og skrúðgöngunni á palli við Hlið
hins himneska friðar. Xi var í fatnaði
sem kenndur er við Maó og flutti
ræðu þar sem hann lagði áherslu á
loforð sín um að efla kínversku þjóð-
ina og gera Kína að miklu landi aftur.
„Ekkert afl getur skekið grunn þess-
arar miklu þjóðar,“ sagði hann.
Forsetinn hvatti einnig til „frið-
samlegrar þróunar“ í samskiptunum
við Taívan en áréttaði að kínversk
stjórnvöld stefndu enn að því að sam-
eina eyjuna og Kína, jafnvel með því
að beita hervaldi ef þörf krefði.
Hersýningin var sú mesta í sögu
landsins, að sögn kínverskra fjöl-
miðla. Alls voru 160 flugvélar og 580
aðrar vígvélar sýndar, að sögn frétta-
veitunnar AFP. Á meðal vopnanna
var DF-41, langdræg eldflaug sem
getur borið allt að tíu kjarnaodda og
hægt væri að skjóta á meginland
Bandaríkjanna. Kínverski herinn
sýndi einnig kjarnorkuflaugina JL-2,
sem hægt væri að skjóta úr kafbáti og
gæti dregið um 8.000 kílómetra, að
sögn vestrænna vopnasérfræðinga.
Herinn sýndi ennfremur í fyrsta
skipti nýjan hljóðfráan njósnadróna.
Kínverska fréttastofan Xinhua sagði
að 40% vopnanna á sýningunni væru
ný og þau hefðu öll verið framleidd í
Kína.
Herútgjöldin aukin um 83%
Adam Ni, sérfræðingur í hernaðar-
uppbyggingunni í Kína, segir að her-
sýningin hafi staðfest að kjarnorku-
herafli Kínverja hafi eflst verulega á
síðustu árum. „Kjarnavopn þeirra
eru að verða hreyfanlegri, öflugri,
traustari, nákvæmari og tæknilega
þróaðri,“ hefur fréttaveitan AFP eftir
Ni sem stundar rannsóknir við Mac-
quarie-háskóla í Sydney. Hann segir
að kjarnavopnin sé orðin fjölbreytt-
ari, kínverski herinn reiði sig ekki
lengur aðeins á landskotflaugar held-
ur hafi hann einnig eignast vopn sem
hægt sé að skjóta úr kafbátum og
flugvélum.
Útgjöld Kínverja til hersins hafa
aukist um 83% frá árinu 2009, að því
er fram kom í skýrslu Alþjóðafriðar-
rannsóknastofnunarinnar (IPRI) í
Stokkhólmi í apríl. Kína er nú í öðru
sæti á lista yfir lönd með mestu her-
útgjöld en er samt enn langt á eftir
Bandaríkjunum í þeim efnum.
Um 100.000 manns tóku þátt í
skrúðgöngu í tilefni af afmælinu og 70
skrúðvögnum var ekið um Breið-
stræti hins eilífa friðar. Einn vagn-
anna var tileinkaður herferð Xi Jin-
ping gegn spillingu. Kínversk
yfirvöld hafa refsað rúmri milljón
embættismanna fyrir spillingu en
herferðin hefur verið gagnrýnd
vegna þess að talið er að hún hafi
beinst að pólitískum keppinautum
forsetans og stuðningsmönnum
þeirra. Annar vagn var tileinkaður
innviðaáætluninni Belti og braut, en
samkvæmt henni er stefnt að miklum
fjárfestingum í vegum, járnbrautum,
höfnum, flugvöllum og öðrum mann-
virkjum í tugum landa í Asíu, Evrópu
og Afríku með það fyrir augum að
greiða fyrir viðskiptum og aðgangi
Kínverja að mikilvægum markaðs-
svæðum og hráefnum til iðnaðar.
Aðrir skrúðvagnar voru tileinkaðir
ýmsum atburðum í sögu alþýðulýð-
veldisins en enginn þeirra lýsti hörm-
ungaratburðum á borð við pólitísku
kúgunina og hungursneyðina sem
kostaði tugi milljóna manna lífið á
valdatíma Maós.
AFP
Maó hylltur Stór mynd af Maó Zedong á torginu við Hlið hins himneska friðar í Peking í gær þegar kínversk stjórn-
völd minntust þess að 70 ár eru liðin frá því að kommúnistaleiðtoginn lýsti yfir stofnun Alþýðulýðveldisins Kína.
Átök í Hong Kong
skyggðu á hátíðina
Mesta hersýning í sögu Kína á afmæli alþýðulýðveldisins
AFP
Átök Lögreglumenn handtaka mótmælanda á götu í Hong Kong þegar tug-
ir þúsunda lýðræðissinna tóku þátt í mótmælum í sjálfstjórnarhéraðinu.
Ungur maður, vopnaður sverði,
réðst á nemendur verkmenntaskóla í
austanverðu Finnlandi í gær, varð
einum þeirra að bana og særði tíu,
þeirra á meðal lögreglumann. Lög-
reglumenn skutu
á árásarmanninn
þegar þeir komu
á staðinn, um tíu
mínútum eftir að
þeir voru kallaðir
út. Árásarmaður-
inn særðist alvar-
lega og er á
sjúkrahúsi.
Lögreglan
sagði að ekki væri
enn vitað hvers
vegna maðurinn hóf árásina. Sjónar-
vottar sögðu að hann hefði verið með
sverð í kennslustofu skólans sem er í
sömu byggingu og verslunarmið-
stöðin Herman í borginni Kuopio.
„Hann skar stúlku í hálsinn með
sverði og stakk hana í magann,“
hafði fréttavefur dagblaðsins Kesk-
isuomalainen eftir einum sjónar-
vottanna. Þeir sögðu að hann hefði
einnig beitt „einhvers konar litlum
eldsprengjum“. Mikko Lyytinen, að-
alvarðstjóri lögreglunnar í Austur-
Finnlandi, sagði að maðurinn hefði
ennfremur verið með byssu.
Lyytinen sagði að kvenmaður
hefði beðið bana í árásinni en veitti
ekki frekari upplýsingar um fórnar-
lömbin. Lögreglan sagði að árásar-
maðurinn væri finnskur ríkisborg-
ari, fæddur árið 1994 og hefði
stundað nám í skólanum.
Tveir særðust alvarlega
Einn lögreglumannanna særðist
lítillega þegar maðurinn var hand-
tekinn. Tveir þeirra sem urðu fyrir
árásinni særðust alvarlega og voru á
sjúkrahúsi.
Kona sem starfar í nálægu bíla-
verkstæði kvaðst hafa séð kennslu-
konu flýja út úr byggingunni, með
blóðugar hendur. „Þegar ég hjálpaði
kennaranum heyrði ég aðra kalla á
hjálp. Nemendur hlupu út úr bygg-
ingunni og inn í bílaverkstæðið.“
Tvær mannskæðar árásir voru
gerðar í finnskum skólum fyrir rúm-
um tíu árum. Þær ollu miklum óhug
meðal Finna og urðu til þess að
finnskum lögum um byssueign var
breytt. Í fyrri árásinni varð átján ára
maður sjö nemum og kennara að
bana í menntaskóla í bænum Jokela í
sunnanverðu Finnlandi árið 2007.
Árið eftir létu ellefu manns lífið í
árás 22 ára manns í háskóla í bænum
Kauhajoki í vestanverðu landinu.
Stakk nemend-
ur með sverði
Einn beið bana og tíu særðust
Mikko Lyytinen,
aðalvarðstjóri.