Morgunblaðið - 02.10.2019, Page 14

Morgunblaðið - 02.10.2019, Page 14
SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Það ætti að vera kappsmálEFTA-ríkjanna þriggjasem standa að Evrópskaefnahagssvæðinu að styrkja tveggja stoða kerfið og standa vörð um trúverðugleika stofnana þess. Þá þarf að leggja grunn að meiri festu í allri stjórn og meðferð EES-mála hérlendis. Þetta er á meðal þess, sem starfshópur um EES-samstarfið leggur til, en skýrsla hópsins var kynnt í utanríkisráðuneytinu í gær. Í hópnum, sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra skipaði í lok ágúst 2018, sátu þau Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, og lögfræðingarnir Kristrún Heimis- dóttir og Bergþóra Halldórsdóttir. Leggur hópurinn meðal annars til að komið verði á fót sérstakri stjórn- stöð EES-mála innan stjórnsýsl- unnar með föstu starfsliði, sem geti fylgst með öllu er varðar samstarfið á mótunar- og framkvæmdastigi. Guðlaugur Þór segir að hann vonist til þess að skýrslan geti orðið grunnur að málefnalegri umræðu um þátttöku Íslands í EES- samstarfinu, en til þessa hafi um- ræða um samninginn snúist um of um lagatæknileg atriði. „Ég er al- gjörlega sammála niðurstöðu skýrsl- unnar og hef lagt á það áherslu að við erum okkar eigin gæfu smiðir þegar kemur að samningnum,“ segir utanríkisráðherra. „Það er alfarið undir okkur komið hvernig við gæt- um okkar hagsmuna, hvernig hann nýtist okkur og okkar fólki.“ Þörf áminning um vægi EES Guðlaugur segir skýrsluna sömuleiðis veita þarfa áminningu um það hversu mikið EES-samning- urinn hafi gefið þjóðinni. Það sé sama hvort horft sé á þau áhrif sem hann hafi haft fyrir til dæmis þá 40.000 námsmenn sem hafi nýtt sér ERASMUS+-samstarfið eða bara þau réttindi sem þyki sjálfsögð í dag, að geta lifað og starfað hvar sem er innan svæðisins. „Og þeir sem komu honum í gegnum þingið á sínum tíma, sem var mjög erfitt, mega hafa mikla þökk fyrir,“ segir Guðlaugur. Hann ítrekar að enginn muni gæta hagsmuna Íslands nema við sjálf og því hafi eitt af fyrstu verkum hans sem utanríkisráðherra verið að setja af stað vinnu til þess að efla hagsmunagæslu þjóðarinnar á vett- vangi EES-samningsins. Í niður- stöðum skýrslunnar komi hins vegar fram góðar ábendingar til frekari úrbóta sem þing og þjóð þurfi að fara vel yfir. „Okkar sterkasta vopn í þeirri hagsmunagæslu er þekking og við þurfum að efla sérfræðiþekk- ingu okkar og langtímaminni í stjórnarráðinu til að geta beitt því með sem bestum hætti.“ Norrænt samstarf virkjað Í skýrslunni er meðal annars vikið að þeim möguleika að norrænt lagasamstarf verði virkjað til meiri áhrifa við mótun ESB-löggjafar. Guðlaugur Þór segir að aðstæður í heiminum í dag kalli á það að sam- starf norrænu ríkjanna sé eflt. „Mér finnst það því mjög góð og þörf ábending að styrkja samstarfið enn frekar og kannski formgera með ein- hverjum hætti.“ Guðlaugur bætir við að auðvitað höfum við til þessa notið norrænu fjölskyldunnar okkar í þessu sam- starfi. „Og þær eru fyrstu þjóðirnar sem við leitum til, til dæmis í hags- munagæslu okkar, hvort sem það er á vettvangi EES eða gagnvart ESB.“ Brýnt að efla hags- munagæslu Íslands Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið EES-samstarfið Skýrsla starfshópsins var kynnt í gær. Frá vinstri: Berg- þóra Halldórsdóttir, Kristrún Heimisdóttir og Björn Bjarnason. Nánari umfjöllun um vinnu starfshópsins er á mbl.is. mbl.is 14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það bar til tíð-inda í liðinniviku að Imr- an Khan, forsætis- ráðherra Pakist- ans, ákvað að nýta tækifærið í ræðu sinni á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóð- anna til að vara við því, að framferði Indverja í Kasmír- héraði á undanförnum mán- uðum gæti leitt til stríðs á milli Indverja og Pakistana. Herlög hafa ríkt í héraðinu, sem löngum hefur verið bitbein nágrannaríkjanna tveggja, frá því í ágúst síðastliðnum, þegar Narendra Modi, forsætisráð- herra Indlands, lét nema sjálf- stjórn héraðsins úr gildi. Pak- istanar saka að auki Indverja um að hafa staðið að alls kyns kúgun gagnvart Kasmír-búum, sem flestir aðhyllast íslamstrú. Á móti hafa Indverjar sakað Pakistana um að styðja við bakið á hryðjuverkaöflum inn- an Kasmír-héraðs, og í febrúar brutust út skærur á landamær- um ríkjanna þegar Indverjar hugðust refsa fyrir þann meinta stuðning. Vert er að hafa í huga að rík- in hafa háð fjórar styrjaldir sín á milli, en einungis ein þeirra var eftir að bæði ríkin víg- væddust kjarnorkuvopnum í óþökk annarra ríkja. Þá mun hafa munað litlu að Pakistanar teldu sig þurfa að beita þeim. Og Khan talaði enga tæpitungu á föstudaginn um það að „allt gæti gerst“ og að Pakistanar myndu verja sig fram í rauðan dauðann ef styrjöld brytist út. Sagði hann að auki beint út, að þegar um kjarnorku- vædd ríki væri að ræða hefðu slík átök afleiðingar langt út fyrir landsteina ríkjanna sem tækjust á. Kjarnorkuhótanir Khan ber því að taka alvarlega. Og víst er, að verði styrjöld um Kasm- ír að veruleika, þurfa ríki heims að huga vandlega að því að hún breytist ekki í eitthvað annað og miklu verra. Og mið- að við þau viðbrögð sem ræðan fékk í héraðinu, þar sem óeirð- ir brutust út sem kölluðu á hörð viðbrögð lögreglu og út- göngubann, virðist sem kveiki- þráðurinn sé orðinn afar stutt- ur. Á sama tíma er ljóst, að hið hörkulega framferði Indverja í Kasmír hefur ekki orðið til þess að auka stöðugleika í hér- aðinu. Og séu þær ásakanir sannar sem borist hafa um að Indverjar hafi látið fangelsa og jafnvel pyntað fjölda fólks í héraðinu, þar á meðal stjórn- málamenn og forkólfa í við- skiptalífi þess, án þess að það hafi nokkuð til saka unnið, er einnig spurning hvernig ríki heims geta beitt sér þannig að sjálfsögð mannréttindi séu virt í fjölmennasta lýðræðisríki heims á sama tíma og reynt er að draga úr þeirri spennu sem nú ríkir. Því miður bendir hins vegar flest til þess að Kasmír- hérað verði bitbein milli þess- ara tveggja kjarnorkuvelda um nána framtíð. Hótanir Pakistana og harka Indverja eru áhyggjuefni} Kasmír í skotlínu Klukkan tifar ogþað nær til alls. En þeir sem fylgjast með breskum miðlum sjá að víða gengur klukkan í mynd og sekúndur verða loks að dögum sem standa sífellt færri eftir fram að út- göngustund. Þetta sjónarspil vekur óneitanlega spennu og fara tilfinningarnar eftir við- horfum hvers og eins til at- burðarins. Kannanir sýna að sífellt fleiri vilja að staðið verði við útgönguna, hvort sem svokall- aður útgöngusamningur verð- ur fyrir hendi eða ekki. Enn reyna sterk öfl sem einskis sví- fast að gera allt sem þau mega til að hindra að þjóðarvilji Breta nái fram að ganga. Enn muna margir að klukkurnar hafa tifað áður á sjónvarps- skjáum sem sýndu hversu langt væri í að þjóðin losnaði úr þeim viðjum sem kosið var um. Theresa May hafði margendur- tekið að „brexit þýddi brexit“ og það yrði staðið við útgöngudagsetn- inguna 29. mars, enda væri hún bundin í lög. Og allir vita hvernig það fór allt saman. Ekki var að marka það sem for- sætisráðherrann hafði sagt og til vinnubragða hennar má rekja þau vandræði sem veiktu stórlega alla samningsstöðu um „útgöngusamning“ sem er þess utan ómerkilegt aukaatriði við hlið útgöngunnar sjálfrar. Síðustu fréttir gefa til kynna að þau tvö ríki sem öllu ráða í Evrópusambandinu telji nú orðið líklegra en áður að Boris Johnson takist að koma Bret- um út „án samnings“ og séu því orðin líklegri til eftirgjafar en þau voru á meðan treyst var á getu 5. herdeildarinnar í bresk- um stjórnmálum. Sé það mat rétt, sem er alls óvíst, eru það nokkur tíðindi. Nokkurrar bjartsýni gætir um að við- semjendur Breta kunni að sýna meiri sanngirni en áður} Enn og aftur tifar klukkan Þ etta hlaut að enda með ósköpum. Ég fór að senda æ fleiri sérfræðinga til Íslands. Þeir skoðuðu höfuðstól og eignarhald bankanna en þeir gátu ekki útskýrt hvaðan þeim bærist fjármagn til þess að halda áfram að vaxa.“ Sænski seðlabankastjórinn árin 2006-7 talar. Hann þekkti vel til Íslands og kom hingað meira að segja sumarið 2006 í veiðiferð í boði seðlabankastjórans og skemmti sér hið besta. Í lok ferðarinnar dró hann þennan íslenska koll- ega sinn til hliðar og sagði við hann: „Það er eitthvað að bönkunum hjá ykkur. Við höfum nokkra reynslu af svona málum. Hringdu hve- nær sem er og þá getum við rætt málið.“ Þessi frásögn kemur úr nýrri bók Sveins Haralds Øygards, Norðmannsins sem var seðlabankastjóri á Íslandi í nokkra mánuði árið 2009. Hann rekur mörg teikn um komandi erfiðleika. Með- al annars segir hann frá því hvernig bankarnir lánuðu hver öðrum í hringtengingu verðlaus skuldabréf, þar sem Landsbanki lánaði Kaupþingi, sem lánaði svo Glitni sem aftur lánaði Landsbanka. Engin verðmæti urðu til, en bankarnir áttu allt í einu allir skuldabréf þar sem skuldu- nauturinn var „traustur“ banki. Skuldabréfin, sem kölluð voru ástarbréf, voru notuð sem trygging í Seðlabanka Ís- lands sem veitti bönkunum glaður lán gegn svona „öruggri“ tryggingu. Lán Seðlabankans til viðskiptabankanna voru lengst af óveruleg, en haustið 2005 fóru þau að aukast og uxu svo um hundruð milljarða á hverju ári fram að hruni. Bankinn sat uppi með innistæðulaus ástarbréfin eins og svikinn elskhugi og þjóðin fékk skellinn. Seðlabanki Evrópu hafði líka tekið granda- laus við þessum tryggu bréfum, en í mars 2008 lokaði Jean Claude Trichet, þáverandi seðla- bankastjóri Evrópu, á viðskiptin. Seðlabanki Íslands hélt áfram sinni starfsemi fram að hruni. Øygard segir: „Annar seðlabankanna tveggja varð ekki fyrir neinu tjóni. Hinn varð að endurfjármagna.“ Í bókinni er vitnað í reyndan norrænan bankamann, Trygve Young: „Seðlabanka- fjármögnun á að nota í neyð og til skamms tíma. Það gengur einfaldlega ekki að nota hana til þess að fjármagna vöxtinn. Bankarnir bera stærstu ábyrgðina, en Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn áttu að vita betur.“ Í Seðlabank- anum vissu auðvitað sumir í hvað stefndi, en óttuðust að valda kreppu með því að benda á það óumflýj- anlega. Á meðan stækkaði bólan. Øygard gerir sér grein fyrir því að barátta aðalleikar- anna snýst núna um að breyta fortíðinni. „Enn þann dag í dag eru margir sem komu við sögu, bankamenn og stjórn- málamenn, að ráða til sín sagnfræðinga til að segja sögur sínar og móta frásögnina af atburðunum. Ýmist greiða þeir þeim sjálfir eða skattgreiðendur eru látnir blæða. Aðrir skrifa bara bækur.“ Sænski seðlabankastjórinn fékk aldrei símtal frá ís- lenskum kollega sínum. Benedikt Jóhannesson Pistill Frásögn um margboðað hrun Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Starfshópurinn kannaði meðal annars fjölda laga sem samþykkt hefðu verið hér á landi sem ættu beinan uppruna í aðild Íslands að EES. Í þeirri samantekt kom fram, að af 3.071 lögum sem samþykkt hefðu verið á tíma- bilinu frá 1993 til 2019, hefðu 485 átt beinan uppruna í aðild- inni að EES-samningnum, eða sem samsvarar um 15,8% af allri lagasetningu. Björn Bjarnason, einn af höf- undum skýrslunnar, bendir á að margt af þeim lögum sem séu tal- in með í þessari tölu sé endur- nýjun á eldri löggjöf þegar hún er uppfærð. Þá sé í mörgum málum mikilvægt að vera með sambæri- lega löggjöf. Björn nefnir sem dæmi nýleg lög um netöryggis- mál, sem erfitt hefði verið fyrir okkur að semja á eigin spýtur og fá viðurkennd þannig. „Þegar þannig lög eru sett sem spanna mörg landamæri, verðum við að taka mið af því og hafa í huga að löggjöfin sé viðurkennd af öllum.“ 16% af allri lagasetningu LAGASETNING VEGNA EES

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.