Morgunblaðið - 02.10.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
Gjörningur Á girðingu við þjóðveginn undir Eyjafjöllum hafa ferðalangar tekið upp á því að skilja eftir nærföt af ýmsu tagi, líkt og tíðkast hefur með svonefnda ástarlása í mörgum stórborgum
heims. Hér hefur þó einn séð ástæðu til að skilja líka eftir lúna gönguskó sem standa þarna glaðir og gleiðir fyrir framan nærfötin, greinilega búnir að skila af sér löngu dagsverki.
RAX
Stjórnarskráin er
æðsta réttarheimild Ís-
lands og yfir önnur lög
hafin. Grundvallar-
ritum á ekki að breyta
nema brýna nauðsyn
beri til. Þeim þjóðum
vegnar best sem um-
gangast stjórnarskrá
af virðingu og vinna að
breytingum af yfirveg-
un, þannig að sátt og
almennur stuðningur sé við það sem
gert er.
Sviptivindar, tískusveiflur eða
dægurflugur einstakra stjórnmála-
manna og -flokka geta ekki orðið
undirstaða breytinga á stjórnarskrá
lýðfrjálsra ríkja. Stjórnarskrá legg-
ur grunninn að ríkisstjórn laga en
ekki manna, eins og skoski sagn-
fræðingurinn Niall Ferguson hefur
bent á. Í ríkjum þar sem réttindi
einstaklinga og eignarrétturinn eru
virt að vettugi eru stjórnarskrár
notaðar sem tæki til að grafa undan
lögum og almennum lýðréttindum
borgaranna.
Hugo Chavez (1954-2013), forseti
Venesúela, varð eftirlæti margra
vinstri manna á Vesturlöndum. Hér
á landi voru þeir til sem létu sig
dreyma um að byltingarstjórn-
arskrá hans yrði fyrirmynd nýrrar
stjórnarskrár fyrir Ísland. Þetta er
byltingarstjórnarskráin sem Nicolás
Maduro skýlir sér á bak við sem eft-
irmaður Chavez. Þetta er stjórnar-
skráin sem lagði Venesúela í rúst –
efnahagslega og pólitískt –, sam-
félagslegir innviðir brotnir niður,
mannréttindi fótum troðin og millj-
ónir hafa flúið land. Dómskerfið er
ónýtt. Hæstiréttur er skipaður
strengjabrúðum stjórnvalda og
hafnar hugmyndum um þrískiptingu
ríkisvaldsins og sjálf-
stæði dómstóla. Bylt-
ingarstjórnarskrár
tryggja ríkisstjórn
manna en ekki laga.
Þessum sannindum
hafa milljónir manna
fengið að kynnast í
gegnum söguna.
Lýðveldis-
stjórnarskrá
Stjórnarskrá lýð-
veldisins Íslands er
þriðja stjórnarskrá Ís-
lendinga. Fyrsta stjórnarskráin tók
gildi árið 1874 og sú næsta árið
1920, í kjölfar þess að við urðum
fullvalda ríki árið 1918. Gildandi
stjórnarskrá er frá stofnun lýðveld-
isins árið 1944.
Í eftirleik hruns fjármálakerfisins
hér á landi töldu þeir sem bylta vilja
þjóðskipulaginu á Íslandi að tæki-
færið væri komið. Með linnulausum
áróðri var gefið í skyn að landsmenn
ættu eitthvað sökótt við stjórnar-
skrána vegna falls bankanna og
efnahagslegra þrenginga. Í rúm tíu
ár hefur verið hamrað á nauðsyn
þess að eitthvað sem kallað er nýja
stjórnarskráin taki gildi. „Nýja
stjórnarskráin“ er afrakstur stjórn-
lagaráðs sem skipað var á grunni
kosninga til stjórnlagaþings, sem
Hæstiréttur dæmdi ólögmætar.
Þannig fóru ríkisstjórn og meirihluti
Alþingis á svig við niðurstöðu
Hæstaréttar.
Ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðsla var haldin árið 2012. Innan
við helmingur þjóðarinnar tók þátt í
atkvæðagreiðslunni en meirihlutinn
sem greiddi atkvæði (þriðjungur
þjóðarinnar) vildi að „tillögur stjórn-
lagaráðs verði lagðar til grundvallar
frumvarpi að nýrri stjórnarskrá“.
Þótt gengið væri hart fram í ofsa-
fengnu trúboði fyrir „nýju stjórnar-
skránni“ varð eftirleikurinn ekki sá
sem trúboðarnir létu sig dreyma
um. Margir sáu í gegnum reykinn
og villandi málflutninginn. Gunnar
Helgi Kristinsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, var einn þeirra. Í viðtali við
Fréttablaðið í nóvember 2012 sagði
hann meðal annars um tillögur
stjórnlagaráðs:
„Í fyrsta lagi er plaggið sjálft ekki
traustvekjandi vegna þess hvernig
það er undirbúið. Rökstuðning vant-
ar með mörgum þeim hlutum sem
lagðir eru til og samráðsferlið hefur
verið með eindæmum lélegt. Þvert á
móti virðist ferlið einkennast af til-
raun til að þagga niður umræðu.“
Miklar breytingar
Í þeim átökum sem orðið hafa á
síðustu árum vill það oft gleymast að
stjórnarskráin sem tók gildi við lýð-
veldisstofnun 1944 hefur tekið mikl-
um breytingum. Af 79 efnisgreinum
hefur 45 verið breytt eða þeim bætt
við.
Stjórnarskráin skiptist í sjö kafla:
Í fyrsta kafla eru tvær greinar
um stjórnskipun og þeim hefur aldr-
ei verið breytt.
Í öðrum kafla eru 28 greinar
um forseta og ríkisstjórn. Sex grein-
anna hefur verið breytt.
Í þriðja kafla hefur öllum fjór-
um greinum um skipan Alþingis og
kosningar verið breytt.
Í fjórða kafla um störf Alþingis
eru 24 greinar og hefur 17 verið
breytt.
Í fimmta kafla um skipan
dómsvaldsins eru þrjár greinar og
hefur einni verið breytt.
Í sjötta kafla eru þrjár efnis-
greinar um þjóðkirkju og trúfrelsi.
Tveimur greinum hefur verið
breytt.
Í sjöunda kafla eru 15 greinar
um mannréttindi og stjórnar-
skrárbreytingar. Öllum hefur ann-
aðhvort verið breytt eða þeim bætt
við.
Það er því rangt sem haldið hefur
verið fram eða gefið í skyn að
stjórnarskráin hafi ekki þróast og
tekið breytingum á þeim 75 árum
sem liðin eru frá stofnun lýðveld-
isins. En það á að vera erfitt að
breyta stjórnarskrá frjálsrar þjóðar.
Grundvallarriti, sem stjórnskipan
og öll lög byggjast á, þar sem mann-
réttindi og réttindi borgaranna
gagnvart ríkisvaldinu eru tryggð,
má ekki henda út í hafsauga til að
þjónka duttlungafullum og hávær-
um hópi. Stjórnmálaþras hversdags-
ins getur aldrei orðið leiðarvísir við
farsælar breytingar á stjórnarskrá.
Almenn ánægja
Eftir linnulausar árásir og til-
raunir í meira en áratug til að grafa
undan stjórnarskránni er niðurstaða
viðamikillar rannsóknar á viðhorfi
almennings til æðstu réttarheim-
ildar landsins merkileg. Könnun Fé-
lagsvísindastofnunar HÍ leiðir í ljós
að aðeins 8% landsmanna eru mjög
óánægð með stjórnarskrána. Um
19% eru frekar óánægð. Hins vegar
eru 37% ánægð eða mjög ánægð og
36% eru hvorki né. Alls svöruðu
2.165 könnuninni.
Könnun Félagsvísindastofnunar
leiðir einnig í ljós að almennur
stuðningur er við að endurskoða
ákvæðin um dómstóla, mannrétt-
indi, kjördæmaskipan og at-
kvæðavægi. Að sama skapi er ríkur
vilji til að setja ný efnisatriði í
stjórnarskrána um auðlindir og
náttúruvernd.
Frá ársbyrjun 2018 hafa formenn
þeirra stjórnmálaflokka sem eiga
sæti á Alþingi unnið að tillögum um
breytingar á stjórnarskránni. Þegar
hafa tvö frumvörp til nýrra efnis-
greina – náttúruvernd og auðlindir –
verið kynntar í samráðsgátt stjórn-
valda. Verið er að vinna úr umsögn-
um og athugasemdum sem bárust.
Það kemur svo til kasta Alþingis.
Eitt af því sem þingmenn hljóta að
ræða er hvort skynsamlegt sé og
nauðsynlegt (í samhengi við ákvæði
um þjóðareign náttúruauðlinda sem
ekki eru háð einkaeignarrétti) að
setja inn ákvæði um bann við að
yfirráð og stjórnun á nýtingu auð-
linda verði með beinum eða óbeinum
hætti framseld til annarra ríkja eða
alþjóðlegra stofnana.
Vinna formanna stjórnmálaflokk-
anna gefur vonir um að meiri ró og
yfirvegun ríki við endurskoðun
stjórnarskrárinnar en síðasta ára-
tug. Þeir hafa gefið fyrirheit um að
vinna að breytingartillögum í
„breiðri sátt að undangengnu víð-
tæku samráði“. Verkefnið er áfanga-
skipt og ætlunin að því ljúki á næsta
kjörtímabili.
Stjórnarskráin leggur þær skyld-
ur á þingmenn að standa að þeim
breytingum sem talið er nauðsyn-
legt að gera. Þeirri vinnu og ábyrgð
verður ekki útvistað til annarra líkt
og reynt var. Alþingi ávinnur sér
hvorki virðingu né traust með því að
skjóta sér undan með beinum eða
óbeinum hætti að móta tillögur til
breytinga á stjórnarskrá.
Eftir Óla Björn
Kárason »Eftir tilraunir í ára-
tug til að grafa und-
an stjórnarskránni er
niðurstaða rannsóknar á
viðhorfi almennings til
æðstu réttarheimildar
landsins merkileg
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Ríkisstjórn laga – ekki manna