Morgunblaðið - 02.10.2019, Page 15

Morgunblaðið - 02.10.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019 Gjörningur Á girðingu við þjóðveginn undir Eyjafjöllum hafa ferðalangar tekið upp á því að skilja eftir nærföt af ýmsu tagi, líkt og tíðkast hefur með svonefnda ástarlása í mörgum stórborgum heims. Hér hefur þó einn séð ástæðu til að skilja líka eftir lúna gönguskó sem standa þarna glaðir og gleiðir fyrir framan nærfötin, greinilega búnir að skila af sér löngu dagsverki. RAX Stjórnarskráin er æðsta réttarheimild Ís- lands og yfir önnur lög hafin. Grundvallar- ritum á ekki að breyta nema brýna nauðsyn beri til. Þeim þjóðum vegnar best sem um- gangast stjórnarskrá af virðingu og vinna að breytingum af yfirveg- un, þannig að sátt og almennur stuðningur sé við það sem gert er. Sviptivindar, tískusveiflur eða dægurflugur einstakra stjórnmála- manna og -flokka geta ekki orðið undirstaða breytinga á stjórnarskrá lýðfrjálsra ríkja. Stjórnarskrá legg- ur grunninn að ríkisstjórn laga en ekki manna, eins og skoski sagn- fræðingurinn Niall Ferguson hefur bent á. Í ríkjum þar sem réttindi einstaklinga og eignarrétturinn eru virt að vettugi eru stjórnarskrár notaðar sem tæki til að grafa undan lögum og almennum lýðréttindum borgaranna. Hugo Chavez (1954-2013), forseti Venesúela, varð eftirlæti margra vinstri manna á Vesturlöndum. Hér á landi voru þeir til sem létu sig dreyma um að byltingarstjórn- arskrá hans yrði fyrirmynd nýrrar stjórnarskrár fyrir Ísland. Þetta er byltingarstjórnarskráin sem Nicolás Maduro skýlir sér á bak við sem eft- irmaður Chavez. Þetta er stjórnar- skráin sem lagði Venesúela í rúst – efnahagslega og pólitískt –, sam- félagslegir innviðir brotnir niður, mannréttindi fótum troðin og millj- ónir hafa flúið land. Dómskerfið er ónýtt. Hæstiréttur er skipaður strengjabrúðum stjórnvalda og hafnar hugmyndum um þrískiptingu ríkisvaldsins og sjálf- stæði dómstóla. Bylt- ingarstjórnarskrár tryggja ríkisstjórn manna en ekki laga. Þessum sannindum hafa milljónir manna fengið að kynnast í gegnum söguna. Lýðveldis- stjórnarskrá Stjórnarskrá lýð- veldisins Íslands er þriðja stjórnarskrá Ís- lendinga. Fyrsta stjórnarskráin tók gildi árið 1874 og sú næsta árið 1920, í kjölfar þess að við urðum fullvalda ríki árið 1918. Gildandi stjórnarskrá er frá stofnun lýðveld- isins árið 1944. Í eftirleik hruns fjármálakerfisins hér á landi töldu þeir sem bylta vilja þjóðskipulaginu á Íslandi að tæki- færið væri komið. Með linnulausum áróðri var gefið í skyn að landsmenn ættu eitthvað sökótt við stjórnar- skrána vegna falls bankanna og efnahagslegra þrenginga. Í rúm tíu ár hefur verið hamrað á nauðsyn þess að eitthvað sem kallað er nýja stjórnarskráin taki gildi. „Nýja stjórnarskráin“ er afrakstur stjórn- lagaráðs sem skipað var á grunni kosninga til stjórnlagaþings, sem Hæstiréttur dæmdi ólögmætar. Þannig fóru ríkisstjórn og meirihluti Alþingis á svig við niðurstöðu Hæstaréttar. Ráðgefandi þjóðaratkvæða- greiðsla var haldin árið 2012. Innan við helmingur þjóðarinnar tók þátt í atkvæðagreiðslunni en meirihlutinn sem greiddi atkvæði (þriðjungur þjóðarinnar) vildi að „tillögur stjórn- lagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá“. Þótt gengið væri hart fram í ofsa- fengnu trúboði fyrir „nýju stjórnar- skránni“ varð eftirleikurinn ekki sá sem trúboðarnir létu sig dreyma um. Margir sáu í gegnum reykinn og villandi málflutninginn. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, var einn þeirra. Í viðtali við Fréttablaðið í nóvember 2012 sagði hann meðal annars um tillögur stjórnlagaráðs: „Í fyrsta lagi er plaggið sjálft ekki traustvekjandi vegna þess hvernig það er undirbúið. Rökstuðning vant- ar með mörgum þeim hlutum sem lagðir eru til og samráðsferlið hefur verið með eindæmum lélegt. Þvert á móti virðist ferlið einkennast af til- raun til að þagga niður umræðu.“ Miklar breytingar Í þeim átökum sem orðið hafa á síðustu árum vill það oft gleymast að stjórnarskráin sem tók gildi við lýð- veldisstofnun 1944 hefur tekið mikl- um breytingum. Af 79 efnisgreinum hefur 45 verið breytt eða þeim bætt við. Stjórnarskráin skiptist í sjö kafla:  Í fyrsta kafla eru tvær greinar um stjórnskipun og þeim hefur aldr- ei verið breytt.  Í öðrum kafla eru 28 greinar um forseta og ríkisstjórn. Sex grein- anna hefur verið breytt.  Í þriðja kafla hefur öllum fjór- um greinum um skipan Alþingis og kosningar verið breytt.  Í fjórða kafla um störf Alþingis eru 24 greinar og hefur 17 verið breytt.  Í fimmta kafla um skipan dómsvaldsins eru þrjár greinar og hefur einni verið breytt.  Í sjötta kafla eru þrjár efnis- greinar um þjóðkirkju og trúfrelsi. Tveimur greinum hefur verið breytt.  Í sjöunda kafla eru 15 greinar um mannréttindi og stjórnar- skrárbreytingar. Öllum hefur ann- aðhvort verið breytt eða þeim bætt við. Það er því rangt sem haldið hefur verið fram eða gefið í skyn að stjórnarskráin hafi ekki þróast og tekið breytingum á þeim 75 árum sem liðin eru frá stofnun lýðveld- isins. En það á að vera erfitt að breyta stjórnarskrá frjálsrar þjóðar. Grundvallarriti, sem stjórnskipan og öll lög byggjast á, þar sem mann- réttindi og réttindi borgaranna gagnvart ríkisvaldinu eru tryggð, má ekki henda út í hafsauga til að þjónka duttlungafullum og hávær- um hópi. Stjórnmálaþras hversdags- ins getur aldrei orðið leiðarvísir við farsælar breytingar á stjórnarskrá. Almenn ánægja Eftir linnulausar árásir og til- raunir í meira en áratug til að grafa undan stjórnarskránni er niðurstaða viðamikillar rannsóknar á viðhorfi almennings til æðstu réttarheim- ildar landsins merkileg. Könnun Fé- lagsvísindastofnunar HÍ leiðir í ljós að aðeins 8% landsmanna eru mjög óánægð með stjórnarskrána. Um 19% eru frekar óánægð. Hins vegar eru 37% ánægð eða mjög ánægð og 36% eru hvorki né. Alls svöruðu 2.165 könnuninni. Könnun Félagsvísindastofnunar leiðir einnig í ljós að almennur stuðningur er við að endurskoða ákvæðin um dómstóla, mannrétt- indi, kjördæmaskipan og at- kvæðavægi. Að sama skapi er ríkur vilji til að setja ný efnisatriði í stjórnarskrána um auðlindir og náttúruvernd. Frá ársbyrjun 2018 hafa formenn þeirra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi unnið að tillögum um breytingar á stjórnarskránni. Þegar hafa tvö frumvörp til nýrra efnis- greina – náttúruvernd og auðlindir – verið kynntar í samráðsgátt stjórn- valda. Verið er að vinna úr umsögn- um og athugasemdum sem bárust. Það kemur svo til kasta Alþingis. Eitt af því sem þingmenn hljóta að ræða er hvort skynsamlegt sé og nauðsynlegt (í samhengi við ákvæði um þjóðareign náttúruauðlinda sem ekki eru háð einkaeignarrétti) að setja inn ákvæði um bann við að yfirráð og stjórnun á nýtingu auð- linda verði með beinum eða óbeinum hætti framseld til annarra ríkja eða alþjóðlegra stofnana. Vinna formanna stjórnmálaflokk- anna gefur vonir um að meiri ró og yfirvegun ríki við endurskoðun stjórnarskrárinnar en síðasta ára- tug. Þeir hafa gefið fyrirheit um að vinna að breytingartillögum í „breiðri sátt að undangengnu víð- tæku samráði“. Verkefnið er áfanga- skipt og ætlunin að því ljúki á næsta kjörtímabili. Stjórnarskráin leggur þær skyld- ur á þingmenn að standa að þeim breytingum sem talið er nauðsyn- legt að gera. Þeirri vinnu og ábyrgð verður ekki útvistað til annarra líkt og reynt var. Alþingi ávinnur sér hvorki virðingu né traust með því að skjóta sér undan með beinum eða óbeinum hætti að móta tillögur til breytinga á stjórnarskrá. Eftir Óla Björn Kárason »Eftir tilraunir í ára- tug til að grafa und- an stjórnarskránni er niðurstaða rannsóknar á viðhorfi almennings til æðstu réttarheimildar landsins merkileg Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Ríkisstjórn laga – ekki manna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.