Morgunblaðið - 02.10.2019, Page 18

Morgunblaðið - 02.10.2019, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019 ✝ ÞorsteinnAndrésson fæddist 15. júní 1962. Hann lést 22. september 2019. Foreldrar Þor- steins: Sigríður Ágústsdóttir og Andrés Jóhann- esson, látinn. Eftirlifandi eig- inkona Þorsteins er Ingibjörg Magn- úsdóttir, foreldrar hennar eru Laufey Jörgensdóttir og Magn- ús Ólafsson, látinn. Börn Ingibjargar: 1) Magnús Hrafn Hafliðason, maki Aníta Björk Bóasdóttir. 2) Hafþór Hafliðason, maki Auður Jóns- dóttir, sonur hennar er Daníel Darri Andrason. 3) Hafrún Haf- liðadóttir, maki Þrándur Gísla- son Roth, synir þeirra eru Þor- Kamban. Þau eiga samtals átta börn. Þorsteinn, eða Steini eins og hann var alltaf kallaður, ólst upp á Stóra-Kroppi en fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur 1977. Steini lærði rennismíði við Fjölbrautaskól- ann í Breiðholti og öðlaðist síð- an meistararéttindi í þeirri grein. Steini dvaldi einnig í Danmörku um níu ára skeið við nám og störf. Megnið af starfsævinni vann Steini hjá Landvélum. Steini kenndi einnig um tíma við Borgarholtsskóla. Steini var sístarfandi, í frí- stundum aðstoðaði hann fjöl- skyldu og vini. Þau Inga höfðu komið sér upp unaðsreit þar sem þau eyddu öllum lausum stundum, byggðu hús, ræktuðu og Steini gróf og ýtti með sí- stækkandi safni aldinna vinnu- véla. Steini var í Karlakór Reykja- víkur. Útförin fer fram frá Grensás- kirkju í dag, 2. október 2019, klukkan 15. bergur og Hafþór. Bróðir Ingi- bjargar: Jörgen Hrafn Magnússon, maki Hjördís Ólöf Jóhannsdóttir. Börn þeirra Jó- hann Ólafur og Laufey. Systkini Þor- steins: Katrín Andrésdóttir, maki Sveinn Ingvarsson. Börn þeirra: 1) Sigríður Sóley, maki Guðjón Helgason. 2) Ingv- ar Hersir, maki Melissa Böhme, þau eiga eitt barn. Kristleifur Andrésson, maki Hanna Málm- fríður Harðardóttir. Börn þeirra eru: 1) Ágúst. 2) Andrés, maki Brynja Björk Þórsdóttir. 3) Hörður. Sóley Andrésdóttir, maki Björgvin Njáll Ingólfsson. Barn: Andrea, maki Þorleifur Elsku Steini minn. Takk fyrir yndisleg tíu ár, vildi að þau hefðu orðið fleiri. Þú varst mér allt í öllu og börnin mín, tengdabörn og barnabörnin okkar áttu alltaf að- gang að stóra hlýja faðminum þínum. Einnig græddum við öll stóra fjölskyldu með honum Steina sem okkur þykir óendan- lega vænt um. Þín er sárt saknað. Þangað til næst. Þín Ingibjörg. Ég fór að velta því fyrir mér eftir að þú fórst hversu vel Sig- ríður móðir þín og Andrés faðir þinn hafa valið þér nafn. Nafn þetta gefur afskaplega góða mynd af því hver þú varst og hvað þú stóðst fyrir. Þor skorti þig aldrei til að gera nokkurn skapaðan hlut. Engu máli skipti hvort þú vissir upp á hár hvernig ætti að standa að framkvæmdinni eða hvort þú hefðir enga hugmynd um út í hvað þú værir að fara, aldrei skorti þig þor til að leggja af stað, þreifa þig áfram og beita þínu einstaka hugviti og verklagi til að leysa gátuna. Þá skiptir engu hvort um ræddi að skipta um glussaslöngur í heimsins stærsta krana, syngja bæði hátt og snjallt fyrir fullu húsi, smíða lyftuhringssnúningssvið í leik- hús, flytja inn með ástkonu, hálf- uppkomnum börnum hennar þremur og þremur mökum eða reisa timburhús einn þíns liðs. Það var þó gert með smá aðstoð frá gamla zetornum, sem fékk smá klapp að launum og að sjálf- sögðu undir styrkri andlegri leið- sögn Ingibjargar vinkonu þinnar og eiginkonu. Þorið sem þú hafðir hefur ver- ið mér hvatning í daglegu amstri og ekki síst þorið sem þú hafðir til að segja þína meiningu í hví- vetna sama við hvern var rætt og um hvað. Ég dreg samt ekkert af því að þú varst bölvaður „bes- serwisser“ og gast verið alveg óþolandi, sér í lagi af því að þeg- ar öllu var á botninn hvolft hafðir þú í flestum tilfellum rétt fyrir þér. Steinn eða Steini eins og þú varst gjarnan kallaður gefur einnig skýra mynd af því hversu traustur þú varst. Hvílíkur klett- ur af manni er vandfundinn hvort sem um ræðir líkamlegt at- gervi eða andlegan styrk. Hvern- ig þú reyndist samferðafólki þínu á ögurstundum, komst sláttuvél- um í gang, dráttarvélum af stað og togurum á flot. Og það sem þú ert ekki búinn að gera fyrir okk- ur gemlingana sem fylgdum í pakkanum þegar þú og Inga gift- uð ykkur. Maður hefur jafnvel notið góðs af greiðvikni þinni víðsveg- ar um landið þar sem úir og grúir af fólki í hverju einasta krumma- skuði sem er búið að leita þess leiða í mörg ár að launa greiða sem þú hefur innt af hendi. Það segi ég fullum fetum að ég hef aldrei kynnst nokkrum manni sem er jafn skilyrðislaust greið- vikinn og þú. Það voru virkileg forréttindi að fá að kynnast þér vinur minn og vera þér samferða undanfarin níu ár. Við fengum að reyna ým- islegt á þessum tíma og vorum við ekki búnir að þekkjast mjög lengi þegar við vorum komnir í sambúð ... ásamt restinni af fjöl- skyldunni. Ég get ekki annað en tekið ofan fyrir okkur að halda út átakalaust í tæp tvö ár. Það segir ótrúlega margt um það umburð- arlyndi og manngæsku sem þú varst haldinn (svo ekki sé minnst á tengdamóður mína og aðra ábúendur í kommúnunni). Það voru forréttindi að fá að vera þátttakandi í þeirri fjölskyldu sem við vorum búin að skapa í sameiningu og verð ég ævinlega þakklátur fyrir það tækifæri að geta ásamt Hafrúnu fært þér tvo litla afastráka sem þú reyndist svo afskaplega vel. Lífi þínu og ljósi verður haldið á lofti um ókomin ár og veit ég það að hinn sári söknuður mun víkja fyrir ómetanlegum og hlýjum minn- ingum um okkur saman, um þig og allt það sem þú stóðst fyrir, Þorsteinn Andrésson. Þinn vinur og tengdasonur, Þrándur Gíslason Roth. Elsku Steinibró sem fæddist með olíu á höndunum. Fyrst hélt ég utan um hann, breiðleitan og kátan kút. Svo hélt hann utan um mig og aðrar mikilvægar eldri konur í lífi hans, kannski sérstaklega Kötu, hver sér fyrir sér ungan mann með þykkar hendur klippa neglurnar á aldraðri ömmusyst- ur. Svo kom Inga, konan sem við vildum líka halda utan um því hún hélt utan um okkur með honum. Lánið í lífi okkar allra, með henni komu börn og svo tengdabörn og barnabörn. Steini var einstaklega barngóður og barnabörnin veittu lífi hans nýj- an tilgang. Börnin mín sem Steini hélt ut- an um frá upphafi. Sigga Sóley sem hann bar alltaf á höndum sér, hún flutti svo til Reykjavíkur þar sem hann og Inga björguðu henni úr öllum mögulegum og ómögulegum aðstæðum. Ingvar Hersir sem fylgdi Steina sem lamb, svaf löngum stundum í traktornum hjá hon- um. Steini kenndi Ingvari Hersi að smyrja og sjóða og rífa í sund- ur og setja rétt saman aftur. Að stjórna stórum vélum, ég gleymi ekki stundinni þegar Ingvar Hersir rúllaði sjálfur úti í Heiði – veit ekki hvor þeirra var stoltari. Heiðin var uppáhaldsstaður Steina. Ófáar vinnustundir átti hann þar í jarðvinnu og upp- skeru og svo gæsaveiðin, það voru hvíldarstundirnar snemma morguns úti í náttúrunni sem skiptu meira máli en fjöldi fugla. Steini gat komið öllum vélum í gang og haldið þeim gangandi, sérgrein hans var glussi og glussadælur. Það voru samt stífl- urnar í hans eigin dælu sem stöðvuðu gangverkið þennan fal- lega haustmorgun í Heiðinni. Katrín. Elsku Steini frændi. Steini var með stærsta hjart- að. Meira að segja stóru olíukám- ugu hendurnar bliknuðu í sam- anburði. Mikið var lánið þegar þau Inga tóku saman, þar hittust hjörtu af svipaðri stærð. Greið- vikni hans jafna fáir. Enginn greiði of stór og ekkert vildi hann fá í staðinn – nema kannski í mesta lagi pönnukökur með kaffinu, sem hann vafði upp tvö- faldar með sykri. Hann var okk- ur systkinunum óendanlega góð- ur og alltaf tilbúinn að miðla af visku sinni, allt frá kennslu á stórar vélar til leiðbeininga í gegnum síma um hvernig maður stillir á höggið á borvélinni – og hvílík þolinmæði sem hann hefur haft! Aldrei lét hann okkur líða öðruvísi en að við gætum leitað til hans nótt sem nýtan dag, allt- af jafn sjálfsagt. Svo var það viðhaldið á vél- unum. Það var ekki að ástæðu- lausu að hann Steini var alltaf með svartkámuga lófa, hans mottó var að allt væri hægt að gera við með töng, skrúfjárni og hamri (helst sleggju) og muna svo að smyrja! „Þú manst það bara næst...“ sagði hann oft. Sama þótt maður hefði óvart keyrt tætluna utan í girðingu og dregið upp tugi metra, prjónað Massanum upp á dekk á næsta traktor eða bara fengið lélega einkunn í prófi þá datt honum aldrei í hug að skamma okkur eða láta okkur líða illa yfir því. „Þú manst það bara næst Sigga mín að beygja bara aðeins fyrr þegar þú ert með tætluna aftan í.“ Nálgunin var þannig að það væri alltaf hægt að læra af mistökunum – allt væri hægt að laga svo lengi sem allir væru óslasaðir. Við erum afskaplega þakklát fyrir að hafa alist upp við þau forréttindi að hafa Steina alltaf á hliðarlínunni. Sigríður Sóley og Ingvar Hersir. Steini frændi er farinn. Skyndilega og óvænt er frænda okkar og góðum vini kippt í burt. Steini var við gæsa- veiðar að morgni en skilaði sér svo ekki í hádegisgrautinn til Deddu systur sinnar. Hann var farinn í annan heim. Það er margs að minnast úr samleið okkar Steina í gegnum lífið og það er skrítið að hugsa til þess að sjá hann ekki framar. Það var mikil gæfa fyrir Steina að kynnast henni Ingu sinni og eignast með henni þá yndislegu fjölskyldu sem hefur umlukið þau og ekki minnst gefið honum afanafnbótina. Inga og Steini voru mjög samhent og samhuga og Inga náði að virkja það besta sem Steini hafði að geyma. Minningarbrotin eru mörg. Við systkinin nutum þess að alast að hluta til upp á Stóra- Kroppi þar sem við vorum í sveit í mörg sumur, Þórhallur frá fjög- urra ára aldri. Þar var ýmislegt brallað og við lærðum að vinna og umgangast skepnur og tæki. Steini og Þórhallur oftast skít- ugir upp fyrir haus en varla sást blettur á Kristleifi og Sigurði þótt þeir kæmu úr sömu verkum. Steini heimsótti okkur oft í Kópavoginn þar sem við fórum á smíðavöll, í siglingaklúbb, í stutt ferðalög m.a. austur á „Stokks- Eyrarbakka“, ungmennafélags- mót í Kópavog þar sem Katrín og Steini kepptu fyrir hönd UM- SB. Sumarið ’79 var Katrín ráðs- kona hjá Steina og Kötu á Stóra- Kroppi. Sama sumar tóku Sig- urður og Steini bílprófið í Borg- arnesi, en það var afgreitt á alls sjö tímum fyrir þá báða. Stuttu seinna kenndi Steini Áslaugu að fara á hestbak og skjóta af byssu. Allar þessar minningar eru samofnar í þéttum frændsystk- inahópi sem haldið hefur saman undir verndarvæng „ættmæðra- veldis SigguSoffíuSvövu“. Þegar Sóley systir hans eign- aðist Andreu kom í ljós hve mikil barnagæla Steini var og hefur hann verið uppáhaldsfrændi margra barna. Hlýja, dugnaður, traust, smá stríðni – glettni, stundum þrjósk- ur, traust, þétt, öruggt en mjúkt handaband og stórt faðmlag eru orð og hugsanir sem við tengjum við Steina. Þegar við lokum aug- unum og hugsum til hans sjáum við hann brosandi, og brosið hans Steina var innilegt og náði svo skemmtilega til augna hans. Líttu sérhvert sólarlag sem hið hinsta væri það því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. (Bragi Valdimar Skúlason) Elsku fjölskylda, minning Steina lifir og það eru aðeins góðar minningar. Lífið er núna. Þórhallur, Sigurður, Katrín og fjölskyldur. Steini vinur minn er farinn. Ég er þeirrar skoðunar að Steini hafi verið fallegasti maður Ís- lands, allavega er það ávallt í huga mínum frá því ég kynntist honum í lok 8. áratugarins. Ég mætti honum fyrst þegar hann kom hreint og beint svífandi á ævintýralegu fallegu brokki á Kviðu sinni í hesthúsahverfinu í Reykjavík. Hann stoppaði og kynnti sig mjög kurteislega og frá og með þeim degi urðum við góðir vinir. Steini og hans ynd- islega fallega fjölskylda voru ný- flutt úr sveitinni þegar við kynntumst og ég er svo þakk- látur því að vegir okkar lágu saman. Steini var mjög ríkur maður af mannkostum og hafði hann mikil áhrif á mig strax frá byrjun. Ég tók hann til fyrir- myndar í svo mörgu. Oft töluðum við illa um aðra en enduðum allt- af á þeirri skoðun að allir reyndu að gera sitt besta. Steini var óspar í að hrósa öðrum sem ekki voru á staðnum. Steini gat á augnabliki sett sig í aðstæður annarra og sýnt samkennd, oft til þeirra sem minna máttu sín. Bros og hlýja: Steini var óspar á brosmildi, hvort sem það var til vina, vandamanna, viðskiptavina, ungra sem aldinna. Steini sagði að brosið væri ókeypis og ekki væri hægt að skattleggja það, þess vegna ætti að dreifa því út um allt og til allra. Æfðu þig að brosa á hverjum degi, maður hressist á því, sagði hann. Reiður: Steini gat stundum orðið reiður út af einhverju sem honum fannst óhjákvæmilegt, en oftast var reiðin farinn eftir 2 til 3 mínútur. Steini var heljarinnar sterkur að afli, handlaginn og útsjónar- samur þegar að vinnu kom og óhræddur að gangast í stór verk. Auðviðtað var Steini ekki gallalaus en ég bara sá ekki gall- ana vegna þess að mannkostirnir voru svo yfirgnæfandi. Þegar ég skrifa þessar hugs- anir mínar er ég sorgbitinn, en þegar ég hugsa til baka koma upp í huga mínum alveg ótal mörg skemmtileg atvik sem ég get ekki annað en brosað yfir. Hér kemur eitt frá gömlum tíma: Á einhverju tímabili fórum við að fikta við að reykja. Við vorum ekkert með venjulegar sígarett- ur heldur fórum við að reykja, að okkar áliti, alveg „bráðholla“ vindla af bestu gerð. Við fórum að rífast um hvor vindlategundin væri „hollari“ þegar við reyktum hvor sína tegundina. Svo hlógum við bara.Við náðum að rækta vin- áttu í 40 ár. Um tíma liðu þó sex ár og við heyrðum ekkert hvor í öðrum. Báðir vorum við upp- teknir af einhverju öðru í lífinu en svo þegar við hittumst á ný var eins og við hefðum engu gleymt. Steini, ég hefði alveg viljað sjá þig sem forseta, forsætisráð- herra eða einhvern valdamann á Íslandi vegna þess að þá hefði ís- lenska ríkinu gengið vel, er ég viss um. Allir hefðu virt þig, elsk- að og dáð og þú hefðir stýrt með þínu fallega hjarta og klóku hug- myndum. Takk, Steini, fyrir að vilja vera vinur minn. Takk fyrir hvað þú varst yndislegur, einlægur og fallegur. Takk fyrir allt sem þú gafst mér. Inga, Sigríður, systkini og ættingjar. Ég vill votta ykkur samúð mína og vona að þið finnið kraft að takast á við sársaukann í fallegum minningum um Steina. Kærleikur og friður. Hafliði Stefán Gíslason. Þorsteinn Andrésson  Fleiri minningargreinar um Þorstein Andrésson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR ÖRN GUNNARSSON Gónhól 16, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 26. september. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 11. október klukkan 14. Erna Þórdís Guðmundsdóttir Jóhannes Már Arnarson Óskar Þór Óskarsson Sigríður Pálína Arnardóttir Ólafur Sævar Elísson Helgi Arnarson Ragna Peta Hámundardóttir Kristinn Arnarson Arna Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, EINAR ÁRMANNSSON Básahrauni 3, Þorlákshöfn, varð bráðkvaddur 17. september. Útför hans fer fram frá Þorlákskirkju föstudaginn 4. október klukkan 13. Ásdís Garðarsdóttir Una Björg Einarsdóttir Hallgrímur Stefánsson Ármann Einarsson Þórhalla Sólveig Jónsdóttir Emil Karel Einarsson barnabörn Laufey Ármannsdóttir Freydís Ármannsdóttir Helgi Sigurjónsson St. Ómar Guðmundsson Jóhanna Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.