Morgunblaðið - 02.10.2019, Síða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
✝ ÞorsteinnAndrésson
fæddist 15. júní
1962. Hann lést 22.
september 2019.
Foreldrar Þor-
steins: Sigríður
Ágústsdóttir og
Andrés Jóhann-
esson, látinn.
Eftirlifandi eig-
inkona Þorsteins
er Ingibjörg Magn-
úsdóttir, foreldrar hennar eru
Laufey Jörgensdóttir og Magn-
ús Ólafsson, látinn.
Börn Ingibjargar: 1) Magnús
Hrafn Hafliðason, maki Aníta
Björk Bóasdóttir. 2) Hafþór
Hafliðason, maki Auður Jóns-
dóttir, sonur hennar er Daníel
Darri Andrason. 3) Hafrún Haf-
liðadóttir, maki Þrándur Gísla-
son Roth, synir þeirra eru Þor-
Kamban. Þau eiga samtals átta
börn.
Þorsteinn, eða Steini eins og
hann var alltaf kallaður, ólst
upp á Stóra-Kroppi en fluttist
með foreldrum sínum til
Reykjavíkur 1977. Steini lærði
rennismíði við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti og öðlaðist síð-
an meistararéttindi í þeirri
grein. Steini dvaldi einnig í
Danmörku um níu ára skeið við
nám og störf.
Megnið af starfsævinni vann
Steini hjá Landvélum. Steini
kenndi einnig um tíma við
Borgarholtsskóla.
Steini var sístarfandi, í frí-
stundum aðstoðaði hann fjöl-
skyldu og vini. Þau Inga höfðu
komið sér upp unaðsreit þar
sem þau eyddu öllum lausum
stundum, byggðu hús, ræktuðu
og Steini gróf og ýtti með sí-
stækkandi safni aldinna vinnu-
véla.
Steini var í Karlakór Reykja-
víkur.
Útförin fer fram frá Grensás-
kirkju í dag, 2. október 2019,
klukkan 15.
bergur og Hafþór.
Bróðir Ingi-
bjargar: Jörgen
Hrafn Magnússon,
maki Hjördís Ólöf
Jóhannsdóttir.
Börn þeirra Jó-
hann Ólafur og
Laufey.
Systkini Þor-
steins: Katrín
Andrésdóttir, maki
Sveinn Ingvarsson.
Börn þeirra: 1) Sigríður Sóley,
maki Guðjón Helgason. 2) Ingv-
ar Hersir, maki Melissa Böhme,
þau eiga eitt barn. Kristleifur
Andrésson, maki Hanna Málm-
fríður Harðardóttir. Börn
þeirra eru: 1) Ágúst. 2) Andrés,
maki Brynja Björk Þórsdóttir.
3) Hörður. Sóley Andrésdóttir,
maki Björgvin Njáll Ingólfsson.
Barn: Andrea, maki Þorleifur
Elsku Steini minn.
Takk fyrir yndisleg tíu ár,
vildi að þau hefðu orðið fleiri.
Þú varst mér allt í öllu og
börnin mín, tengdabörn og
barnabörnin okkar áttu alltaf að-
gang að stóra hlýja faðminum
þínum. Einnig græddum við öll
stóra fjölskyldu með honum
Steina sem okkur þykir óendan-
lega vænt um.
Þín er sárt saknað.
Þangað til næst.
Þín
Ingibjörg.
Ég fór að velta því fyrir mér
eftir að þú fórst hversu vel Sig-
ríður móðir þín og Andrés faðir
þinn hafa valið þér nafn. Nafn
þetta gefur afskaplega góða
mynd af því hver þú varst og
hvað þú stóðst fyrir. Þor skorti
þig aldrei til að gera nokkurn
skapaðan hlut.
Engu máli skipti hvort þú
vissir upp á hár hvernig ætti að
standa að framkvæmdinni eða
hvort þú hefðir enga hugmynd
um út í hvað þú værir að fara,
aldrei skorti þig þor til að leggja
af stað, þreifa þig áfram og beita
þínu einstaka hugviti og verklagi
til að leysa gátuna. Þá skiptir
engu hvort um ræddi að skipta
um glussaslöngur í heimsins
stærsta krana, syngja bæði hátt
og snjallt fyrir fullu húsi, smíða
lyftuhringssnúningssvið í leik-
hús, flytja inn með ástkonu, hálf-
uppkomnum börnum hennar
þremur og þremur mökum eða
reisa timburhús einn þíns liðs.
Það var þó gert með smá aðstoð
frá gamla zetornum, sem fékk
smá klapp að launum og að sjálf-
sögðu undir styrkri andlegri leið-
sögn Ingibjargar vinkonu þinnar
og eiginkonu.
Þorið sem þú hafðir hefur ver-
ið mér hvatning í daglegu amstri
og ekki síst þorið sem þú hafðir
til að segja þína meiningu í hví-
vetna sama við hvern var rætt og
um hvað. Ég dreg samt ekkert af
því að þú varst bölvaður „bes-
serwisser“ og gast verið alveg
óþolandi, sér í lagi af því að þeg-
ar öllu var á botninn hvolft hafðir
þú í flestum tilfellum rétt fyrir
þér.
Steinn eða Steini eins og þú
varst gjarnan kallaður gefur
einnig skýra mynd af því hversu
traustur þú varst. Hvílíkur klett-
ur af manni er vandfundinn
hvort sem um ræðir líkamlegt at-
gervi eða andlegan styrk. Hvern-
ig þú reyndist samferðafólki þínu
á ögurstundum, komst sláttuvél-
um í gang, dráttarvélum af stað
og togurum á flot. Og það sem þú
ert ekki búinn að gera fyrir okk-
ur gemlingana sem fylgdum í
pakkanum þegar þú og Inga gift-
uð ykkur.
Maður hefur jafnvel notið
góðs af greiðvikni þinni víðsveg-
ar um landið þar sem úir og grúir
af fólki í hverju einasta krumma-
skuði sem er búið að leita þess
leiða í mörg ár að launa greiða
sem þú hefur innt af hendi. Það
segi ég fullum fetum að ég hef
aldrei kynnst nokkrum manni
sem er jafn skilyrðislaust greið-
vikinn og þú.
Það voru virkileg forréttindi
að fá að kynnast þér vinur minn
og vera þér samferða undanfarin
níu ár. Við fengum að reyna ým-
islegt á þessum tíma og vorum
við ekki búnir að þekkjast mjög
lengi þegar við vorum komnir í
sambúð ... ásamt restinni af fjöl-
skyldunni. Ég get ekki annað en
tekið ofan fyrir okkur að halda út
átakalaust í tæp tvö ár. Það segir
ótrúlega margt um það umburð-
arlyndi og manngæsku sem þú
varst haldinn (svo ekki sé minnst
á tengdamóður mína og aðra
ábúendur í kommúnunni). Það
voru forréttindi að fá að vera
þátttakandi í þeirri fjölskyldu
sem við vorum búin að skapa í
sameiningu og verð ég ævinlega
þakklátur fyrir það tækifæri að
geta ásamt Hafrúnu fært þér tvo
litla afastráka sem þú reyndist
svo afskaplega vel. Lífi þínu og
ljósi verður haldið á lofti um
ókomin ár og veit ég það að hinn
sári söknuður mun víkja fyrir
ómetanlegum og hlýjum minn-
ingum um okkur saman, um þig
og allt það sem þú stóðst fyrir,
Þorsteinn Andrésson.
Þinn vinur og tengdasonur,
Þrándur Gíslason Roth.
Elsku Steinibró sem fæddist
með olíu á höndunum.
Fyrst hélt ég utan um hann,
breiðleitan og kátan kút.
Svo hélt hann utan um mig og
aðrar mikilvægar eldri konur í
lífi hans, kannski sérstaklega
Kötu, hver sér fyrir sér ungan
mann með þykkar hendur klippa
neglurnar á aldraðri ömmusyst-
ur.
Svo kom Inga, konan sem við
vildum líka halda utan um því
hún hélt utan um okkur með
honum. Lánið í lífi okkar allra,
með henni komu börn og svo
tengdabörn og barnabörn. Steini
var einstaklega barngóður og
barnabörnin veittu lífi hans nýj-
an tilgang.
Börnin mín sem Steini hélt ut-
an um frá upphafi. Sigga Sóley
sem hann bar alltaf á höndum
sér, hún flutti svo til Reykjavíkur
þar sem hann og Inga björguðu
henni úr öllum mögulegum og
ómögulegum aðstæðum.
Ingvar Hersir sem fylgdi
Steina sem lamb, svaf löngum
stundum í traktornum hjá hon-
um. Steini kenndi Ingvari Hersi
að smyrja og sjóða og rífa í sund-
ur og setja rétt saman aftur. Að
stjórna stórum vélum, ég gleymi
ekki stundinni þegar Ingvar
Hersir rúllaði sjálfur úti í Heiði –
veit ekki hvor þeirra var stoltari.
Heiðin var uppáhaldsstaður
Steina. Ófáar vinnustundir átti
hann þar í jarðvinnu og upp-
skeru og svo gæsaveiðin, það
voru hvíldarstundirnar snemma
morguns úti í náttúrunni sem
skiptu meira máli en fjöldi fugla.
Steini gat komið öllum vélum í
gang og haldið þeim gangandi,
sérgrein hans var glussi og
glussadælur. Það voru samt stífl-
urnar í hans eigin dælu sem
stöðvuðu gangverkið þennan fal-
lega haustmorgun í Heiðinni.
Katrín.
Elsku Steini frændi.
Steini var með stærsta hjart-
að. Meira að segja stóru olíukám-
ugu hendurnar bliknuðu í sam-
anburði.
Mikið var lánið þegar þau
Inga tóku saman, þar hittust
hjörtu af svipaðri stærð. Greið-
vikni hans jafna fáir. Enginn
greiði of stór og ekkert vildi
hann fá í staðinn – nema kannski
í mesta lagi pönnukökur með
kaffinu, sem hann vafði upp tvö-
faldar með sykri. Hann var okk-
ur systkinunum óendanlega góð-
ur og alltaf tilbúinn að miðla af
visku sinni, allt frá kennslu á
stórar vélar til leiðbeininga í
gegnum síma um hvernig maður
stillir á höggið á borvélinni – og
hvílík þolinmæði sem hann hefur
haft! Aldrei lét hann okkur líða
öðruvísi en að við gætum leitað
til hans nótt sem nýtan dag, allt-
af jafn sjálfsagt.
Svo var það viðhaldið á vél-
unum. Það var ekki að ástæðu-
lausu að hann Steini var alltaf
með svartkámuga lófa, hans
mottó var að allt væri hægt að
gera við með töng, skrúfjárni og
hamri (helst sleggju) og muna
svo að smyrja!
„Þú manst það bara næst...“
sagði hann oft. Sama þótt maður
hefði óvart keyrt tætluna utan í
girðingu og dregið upp tugi
metra, prjónað Massanum upp á
dekk á næsta traktor eða bara
fengið lélega einkunn í prófi þá
datt honum aldrei í hug að
skamma okkur eða láta okkur
líða illa yfir því. „Þú manst það
bara næst Sigga mín að beygja
bara aðeins fyrr þegar þú ert
með tætluna aftan í.“ Nálgunin
var þannig að það væri alltaf
hægt að læra af mistökunum –
allt væri hægt að laga svo lengi
sem allir væru óslasaðir.
Við erum afskaplega þakklát
fyrir að hafa alist upp við þau
forréttindi að hafa Steina alltaf á
hliðarlínunni.
Sigríður Sóley
og Ingvar Hersir.
Steini frændi er farinn.
Skyndilega og óvænt er
frænda okkar og góðum vini
kippt í burt. Steini var við gæsa-
veiðar að morgni en skilaði sér
svo ekki í hádegisgrautinn til
Deddu systur sinnar. Hann var
farinn í annan heim.
Það er margs að minnast úr
samleið okkar Steina í gegnum
lífið og það er skrítið að hugsa til
þess að sjá hann ekki framar.
Það var mikil gæfa fyrir
Steina að kynnast henni Ingu
sinni og eignast með henni þá
yndislegu fjölskyldu sem hefur
umlukið þau og ekki minnst gefið
honum afanafnbótina. Inga og
Steini voru mjög samhent og
samhuga og Inga náði að virkja
það besta sem Steini hafði að
geyma.
Minningarbrotin eru mörg.
Við systkinin nutum þess að
alast að hluta til upp á Stóra-
Kroppi þar sem við vorum í sveit
í mörg sumur, Þórhallur frá fjög-
urra ára aldri. Þar var ýmislegt
brallað og við lærðum að vinna
og umgangast skepnur og tæki.
Steini og Þórhallur oftast skít-
ugir upp fyrir haus en varla sást
blettur á Kristleifi og Sigurði
þótt þeir kæmu úr sömu verkum.
Steini heimsótti okkur oft í
Kópavoginn þar sem við fórum á
smíðavöll, í siglingaklúbb, í stutt
ferðalög m.a. austur á „Stokks-
Eyrarbakka“, ungmennafélags-
mót í Kópavog þar sem Katrín
og Steini kepptu fyrir hönd UM-
SB.
Sumarið ’79 var Katrín ráðs-
kona hjá Steina og Kötu á Stóra-
Kroppi. Sama sumar tóku Sig-
urður og Steini bílprófið í Borg-
arnesi, en það var afgreitt á alls
sjö tímum fyrir þá báða.
Stuttu seinna kenndi Steini
Áslaugu að fara á hestbak og
skjóta af byssu.
Allar þessar minningar eru
samofnar í þéttum frændsystk-
inahópi sem haldið hefur saman
undir verndarvæng „ættmæðra-
veldis SigguSoffíuSvövu“.
Þegar Sóley systir hans eign-
aðist Andreu kom í ljós hve mikil
barnagæla Steini var og hefur
hann verið uppáhaldsfrændi
margra barna.
Hlýja, dugnaður, traust, smá
stríðni – glettni, stundum þrjósk-
ur, traust, þétt, öruggt en mjúkt
handaband og stórt faðmlag eru
orð og hugsanir sem við tengjum
við Steina. Þegar við lokum aug-
unum og hugsum til hans sjáum
við hann brosandi, og brosið
hans Steina var innilegt og náði
svo skemmtilega til augna hans.
Líttu sérhvert sólarlag
sem hið hinsta væri það
því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Elsku fjölskylda, minning
Steina lifir og það eru aðeins
góðar minningar.
Lífið er núna.
Þórhallur, Sigurður,
Katrín og fjölskyldur.
Steini vinur minn er farinn.
Ég er þeirrar skoðunar að Steini
hafi verið fallegasti maður Ís-
lands, allavega er það ávallt í
huga mínum frá því ég kynntist
honum í lok 8. áratugarins. Ég
mætti honum fyrst þegar hann
kom hreint og beint svífandi á
ævintýralegu fallegu brokki á
Kviðu sinni í hesthúsahverfinu í
Reykjavík. Hann stoppaði og
kynnti sig mjög kurteislega og
frá og með þeim degi urðum við
góðir vinir. Steini og hans ynd-
islega fallega fjölskylda voru ný-
flutt úr sveitinni þegar við
kynntumst og ég er svo þakk-
látur því að vegir okkar lágu
saman. Steini var mjög ríkur
maður af mannkostum og hafði
hann mikil áhrif á mig strax frá
byrjun. Ég tók hann til fyrir-
myndar í svo mörgu. Oft töluðum
við illa um aðra en enduðum allt-
af á þeirri skoðun að allir reyndu
að gera sitt besta. Steini var
óspar í að hrósa öðrum sem ekki
voru á staðnum. Steini gat á
augnabliki sett sig í aðstæður
annarra og sýnt samkennd, oft
til þeirra sem minna máttu sín.
Bros og hlýja: Steini var óspar á
brosmildi, hvort sem það var til
vina, vandamanna, viðskiptavina,
ungra sem aldinna. Steini sagði
að brosið væri ókeypis og ekki
væri hægt að skattleggja það,
þess vegna ætti að dreifa því út
um allt og til allra. Æfðu þig að
brosa á hverjum degi, maður
hressist á því, sagði hann.
Reiður: Steini gat stundum
orðið reiður út af einhverju sem
honum fannst óhjákvæmilegt, en
oftast var reiðin farinn eftir 2 til
3 mínútur.
Steini var heljarinnar sterkur
að afli, handlaginn og útsjónar-
samur þegar að vinnu kom og
óhræddur að gangast í stór verk.
Auðviðtað var Steini ekki
gallalaus en ég bara sá ekki gall-
ana vegna þess að mannkostirnir
voru svo yfirgnæfandi.
Þegar ég skrifa þessar hugs-
anir mínar er ég sorgbitinn, en
þegar ég hugsa til baka koma
upp í huga mínum alveg ótal
mörg skemmtileg atvik sem ég
get ekki annað en brosað yfir.
Hér kemur eitt frá gömlum tíma:
Á einhverju tímabili fórum við að
fikta við að reykja. Við vorum
ekkert með venjulegar sígarett-
ur heldur fórum við að reykja, að
okkar áliti, alveg „bráðholla“
vindla af bestu gerð. Við fórum
að rífast um hvor vindlategundin
væri „hollari“ þegar við reyktum
hvor sína tegundina. Svo hlógum
við bara.Við náðum að rækta vin-
áttu í 40 ár. Um tíma liðu þó sex
ár og við heyrðum ekkert hvor í
öðrum. Báðir vorum við upp-
teknir af einhverju öðru í lífinu
en svo þegar við hittumst á ný
var eins og við hefðum engu
gleymt.
Steini, ég hefði alveg viljað sjá
þig sem forseta, forsætisráð-
herra eða einhvern valdamann á
Íslandi vegna þess að þá hefði ís-
lenska ríkinu gengið vel, er ég
viss um. Allir hefðu virt þig, elsk-
að og dáð og þú hefðir stýrt með
þínu fallega hjarta og klóku hug-
myndum.
Takk, Steini, fyrir að vilja vera
vinur minn. Takk fyrir hvað þú
varst yndislegur, einlægur og
fallegur. Takk fyrir allt sem þú
gafst mér.
Inga, Sigríður, systkini og
ættingjar. Ég vill votta ykkur
samúð mína og vona að þið finnið
kraft að takast á við sársaukann í
fallegum minningum um Steina.
Kærleikur og friður.
Hafliði Stefán Gíslason.
Þorsteinn
Andrésson
Fleiri minningargreinar
um Þorstein Andrésson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÖRN GUNNARSSON
Gónhól 16, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 26. september.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 11. október klukkan 14.
Erna Þórdís Guðmundsdóttir
Jóhannes Már Arnarson Óskar Þór Óskarsson
Sigríður Pálína Arnardóttir Ólafur Sævar Elísson
Helgi Arnarson Ragna Peta Hámundardóttir
Kristinn Arnarson Arna Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og bróðir,
EINAR ÁRMANNSSON
Básahrauni 3, Þorlákshöfn,
varð bráðkvaddur 17. september.
Útför hans fer fram frá Þorlákskirkju
föstudaginn 4. október klukkan 13.
Ásdís Garðarsdóttir
Una Björg Einarsdóttir Hallgrímur Stefánsson
Ármann Einarsson Þórhalla Sólveig Jónsdóttir
Emil Karel Einarsson
barnabörn
Laufey Ármannsdóttir
Freydís Ármannsdóttir Helgi Sigurjónsson
St. Ómar Guðmundsson Jóhanna Jónsdóttir