Morgunblaðið - 02.10.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.10.2019, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019 ✝ Jófríður Guð-mundsdóttir, Fríða, fæddist í Reykjavík 3. sept- ember 1966. Hún lést á blóðsjúk- dómadeild Land- spítalans á Hring- braut 19. septem- ber 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guð- mundur Óskar Jónsson, f. 23. september 1929, d. 25. maí 2013, og Margrét Júl- íusdóttir, f. 17. apríl 1935, d. 29. júní 2010, bændur á Bjarnastöð- um í Hvítársíðu. Systur Fríðu eru Hrefna Hall- dórsdóttir, f. 25. september 1955, búsett í Reykjavík. Arndís, f. 6. september 1968, gift Sig- Fríða ólst upp á Bjarnastöð- um og stundaði grunnskólanám í Varmalandsskóla þar sem hún var í heimavist. Hún fór til náms við Fjölbrautaskóla Vesturlands og lauk útskrift þaðan vorið 1986. Árið 1987 hóf hún nám við hótelskóla, IHTTI School of Management, í Sviss þar sem hún dvaldi frá árinu 1987 til árs- ins 1990 og útskrifaðist þaðan með gráðu í hótelstjórnun. Á námsárunum starfaði hún m.a. í Austurríki og Noregi við hin ýmsu hótelstörf. Eftir náms- árin í Sviss starfaði Fríða við hótelstörf í Abú Dabí þar til stríðsátök hófust í Írak 1990 en fór þá til Íslands og hóf störf sem hótelstýra í Reykjavík. Síð- ar hóf hún störf hjá P. Samúels- syni, umboðsaðila Toyota á Ís- landi. Eftir það starfaði hún hjá Eimskip til ársins 2003 en þá varð hún að hætta vinnu vegna veikinda. Úför Fríðu fer fram frá Vídal- ínskirkju í dag, 2. október 2019, klukkan 11. urði Rúnari Gunn- arssyni, búsett á Bjarnastöðum. Hrafnhildur, f. 29. september 1972, gift Jóhannesi Kristleifssyni bú- sett á Sturlu- reykjum. Hinn 3. maí 2013 gekk Fríða í hjóna- band með Davíð Guðmundi Sverris- syni Röed, f. 19. janúar 1965, en þau hófu sambúð 6. apríl 1991. Foreldrar Davíðs voru Sverrir Kjartansson, f. 8. maí 1924, d. 28. ágúst 2013, og Ragnhild Jo- hanne Röed, f. 26. júlí 1924, d. 27. mars 2015. Dóttir Jófríðar og Davíðs er Hulda Rún, f. 7. mars 1997. Fríðu frænku fylgdi birta. Hún var glaðlynd, jákvæð, skipulögð, röggsöm og hafði afskaplega góða nærveru. Það var snemma sem ég sótti fast að Bjarnastöðum því þar var nóg að gera, nóg um að vera og ég örverpið sótti í félagsskap systr- anna. Fríða var 7 árum eldri en ég og því var það ekki fyrr en hún kom heim með skírteinið úr hót- elskólanum að við fórum að nálg- ast hvor aðra í aldri. Það var gott að sækja Fríðu heim og vera í fé- lagsskap hennar og voru það ófá- ir dagarnir sem við eyddum sam- an þann tíma sem ég stundaði framhaldsnám í Reykjavík og ár- in þar á eftir. Við bjuggum sam- an, unnum saman, ferðuðumst saman og við vorum svona frænku-vinkonu-systur, ólýsan- lega sterk taug þó svo að lengst og styst hafi í henni til og frá í gegnum árin þegar lífið þýtur hjá. Þegar Fríða kynntist Davíð sínum og þau fóru að búa var ég heimagangur hjá þeim. Kom gjarnan eftir vinnu eða skóla, snarlaði með þeim og oftar en ekki náði ég blundi því hjá þeim leið mér vel og næstum því eins og að vera heima í foreldrahús- um. Davíð fylgdi fjölmennur vinahópur, einvala lið, og þegar allir voru mættir á Bræðraborg- arstíginn var iðulega stuð og gaman. Ef eitthvað stóð til og þá sérstaklega í matargerð eða þess háttar þá talaði maður við Fríðu frænku og iðulega kom hún að veisluhöldum mínum á einn eða annan hátt. Ef það var ekki und- irbúningur þá voru það upp- skriftir, útlit, nýtni, samsetning og allt það. Þarna var hún svo sannarlega á heimavelli. Og svo var hún bara svo traust. Fríða hugsaði svo vel um alla í kringum sig, vildi ekki að neinum liði illa og vildi allt fyrir alla gera svo framarlega sem hún gat. Í 16 ár var Fríða með leiðinleg- an farþega, krabbaskrattann. Hún tók bardaga við hann og ætl- aði aldrei að láta hann sigra. Það var ekki í hennar orðabók að gef- ast upp eða að tala mikið um hann og láta vorkenna sér. Síðasta bar- áttan fór af stað í vor, þegar hún tókst á við sína aðra stofnfrumu- meðferð. Hún ætlaði sko að klára hana bara í maí/júní og nota svo restina af sumrinu til að byggja sig upp, njóta í sveitinni með „hvítt“ og bara pakka þessu dýri saman … en hér erum við í dag. Síðasta spjallið okkar var gott og ég var glöð að fá að kveðja þig en við upphaf þeirrar heimsóknar spyr Fríða mig: „Ertu komin til að kveðja mig?“ og við lok þeirrar heimsóknar þökkuðum við hvor annarri fyrir allt. Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa fengið að ferðast í gegnum lífið með Fríðu. Að hafa fengið að njóta samverustunda, visku, jákvæðni, gleði og stuðn- ings þegar á þurfti að halda og þakklát fyrir að hafa fengið tæki- færi til að stytta henni stundirnar í veikindunum nú í sumar og fengið að sitja með henni síðustu stundirnar hérna megin með hennar nánustu. Takk fyrir allt, mín kæra. Sigríður Guðbjörg Bjarnadóttir (Sigga frænka í Borgarnesi). Fríða mágkona mín var ein af þessum hvunndagshetjum sem sjaldan er skrifað um í fjölmiðl- um. Þegar hún greindist með al- varlegan sjúkdóm ung að árum var það mikið áfall fyrir hana og alla fjölskylduna. Við tóku mörg ár læknismeðferða og aðgerða sem tóku sinn toll. Aðspurð sagð- ist Fríða þó alltaf hafa það gott, hún vildi lítið tala um veikindi sín en lagði áherslu á að njóta hverr- ar stundar og skapa góðar minn- ingar með ástvinum sínum. Fríða hafði ávallt eitthvað fyr- ir stafni. Hún fór í kór sem veitti henni mikla gleði og þar eignaðist hún góða vini. Hún prjónaði og saumaði og bjó til bakstra og augnhvílur og seldi. Fríða hafði m.a. lokið námi í hótel- og veit- ingaskóla í Sviss og hafði áhuga á matargerð. Þau hjón höfðu yndi af því að bjóða fólki heim og var þá gjarnan eitthvað nýstárlegt borið fram. Ef það var afmæli eða boð í fjölskyldunni var hún alltaf fyrst til að bjóðast til að koma með eitthvað. Þetta eitthvað var síðan ávallt glæsilegt og ekki skorið við nögl. En viðkvæðið hjá Fríðu var að þetta væri nú ekkert mál. Bara gaman. Hún elskaði sveitina sína og naut þess að fara í bústaðinn í Hvítársíðu og taka þátt í viðburð- um í sveitinni. Fríða var ákveðin, sterk og eftirminnileg kona. Hún var alltaf svo jákvæð og ávann sér mikla virðingu allra sem henni kynntust fyrir það hvernig hún tókst á við lífið. Þannig vil ég muna Fríðu, blessuð sé minning hennar. Hildur Sverrisdóttir. Jófríður, Fríða, Frieda. Hvað er hægt að segja um þessa konu? Lífsglöð, skapandi, jákvæð, hláturmild, ósérhlífin, drífandi og þrautseig en kannski fyrst og fremst algjör hetja. Luzern-hópurinn sem telur um hundrað manns hefur syrgt undanfarna daga og það hafa bor- ist kveðjur og bænir úr öllum heimshornum á samfélagsmiðl- um. Þó að þrír áratugir séu liðnir frá Royal árunum þá er vináttan og hlýjan enn sem fyrr í þessum hópi. Öll minnumst við einstakrar konu, góðs félaga og vinar. Við fylgdumst með baráttunni í gegn- um árin, vonuðum og báðum fyrir hinu besta en óttuðumst það versta. Lífið getur verið svo ósanngjarnt og dauðinn tilgangs- laus. Við minnumst góðu stundanna í Sviss þar sem lífið snerist að mestu um næsta partí og djamm – helst með skólatöskurnar. En líka lærdóm og stundum þræl- dóm, próflestur, langar eldhús- vaktir, veislur með tilheyrandi flissi og gríni að því steinrunna þjóðfélagi og hefðum sem er að finna í hjarta Evrópu. Við fórum í ferðalög um meginlandið í leit að nýjum ævintýrum. Við tókum þátt í öllu, gerðum allt, vildum vera eins og Svisslendingarnir á páskaföstu og Fríða sneið og saumaði að sjálfsögðu grímu- búninga á okkur öll. Hún gat allt, þessi kona. Við vorum spennt fyrir fram- tíðinni, öll nýorðin tvítug og við vildum sjá heiminn og læra og breyta. Fríða fór til Mið-Austur- landa, óttaðist ekkert en sjálf- stæð kona þreifst ekki þar. Ís- land var hennar land. Hún hafði alltaf skoðanir, hún Fríða og þá eins og nú var hún alltaf að velta fyrir sér möguleik- um og breytingum, hvort sem það voru matseðlar og fram- reiðsla á fínustu hótelum í Sviss eða matseðlar hjá mötuneyti Landspítalans sem hún öðlaðist yfirburða þekkingu á. Að leiðarlokum kveðjum við hana með Feuerküss og þökkum fyrir að hafa átt Fríðu að sam- ferðakonu og vinkonu. Blessuð sé minning hennar og Guð geymi ykkur, elsku Davíð og Hulda Rún. Árni S., Gunnar Valur, Kristín, Pétur, Magnea Þórey og Sigrún Björk. Eftir hetjulega, áralanga bar- áttu hefur mín kæra vinkona þurft að láta í minni pokann. Mér er orða vant andspænis þeirri staðreynd að hún Fríða er farin frá okkur sem hérna megin er- um og höfðum vonast til að hafa meiri tíma með henni. Kynni okkar hófust þegar tvær sveitastelpur sín úr hvorri áttinni settust hlið við hlið í skólastofu í Fjölbrautaskólanum á Akranesi. Verkefnið var framhalds- skólalíf næstu fjögur árin sem vonandi lyki með stúdentsprófi. Við vorum að hefja nýjan kafla í lífinu á leiðinni til fullorðinsár- anna. Í ljós kom að við vorum samferða í ansi mörgum fögum og við toguðum hvor aðra í gegn- um misskemmtileg fög. Úr varð mikil og góð vinátta. Við vorum líka samferða í áhugamálunum og utan skóla- stofunnar var gaman að vera til, voru þessi ár nýtt til að kanna hvað skemmtanalífið hafði upp á að bjóða, með kínverskt rauðvín í æðunum og UB40 í huganum vor- um við færar í flestan sjó. Þegar stúdentsprófinu lauk breyttist samband okkar aðeins. Eins og stundum vill verða lágu leiðir okkar sín í hvora áttina, m.a.s. sín í hvora heimsálfuna, menntuðum við okkur meira, eignuðumst börn og buru og vorum í önnum að lifa lífinu. Hvað svo sem sagt verður um samfélagsmiðla nú- tímans, þá var það Facebook sem tengdi okkur saman að nýju. Þó við höfum alltaf vitað hvor af ann- arri höfðu samskiptin ekki verið mikil né tíð. Það breytti þó engu að þegar við létum verða af því að hittast var um svo margt að spjalla og mörg málefni að kryfja og rifja upp að við sólbrunnum báðar á vörunum, malandi á pall- inum við bústaðinn í Hvítársíð- unni. Þannig var okkar vinátta, þráðurinn slitnaði aldrei og eftir að styttra varð á milli okkar í vegalengdum urðu samskiptin meiri og tíðari. Fríða var alltaf þessi jákvæða bjartsýna manneskja sem gott var að vera návistum við. Þó lífið hafi úthlutað henni stórum og erfiðum verkefnum skein alltaf í gegn hennar góða lund, óþrjót- andi bjartsýni og glettni. Nýtti minnkandi starfsorku til að skapa sér verkefni sem hún gat sinnt heima, Fríðu fínerí, sem gott er að hafa nálægt sér nú sem áður. Hún nýtti tímann sinn vel, vissi sem var að hann gæti verið naumt skammtaður. Þegar við hittumst síðast var hún búin að ganga í gegnum stranga meðferð, orðin miklu betri eins og hún orð- aði það sjálf, samt ekki alveg komin fyrir vind. Hún var samt engan veginn af baki dottin, sýndi mér stolt verkefni sem hún var að vinna að og fylla á lager- inn, einnig ný verkefni sem hún var spennt að hanna og þróa áfram. Hver veit nema hún sé enn að störfum. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku vinkona, söknuðurinn er mikill hjá okkur sem eftir stönd- um, mestur þó hjá þeim feðginum Davíð og Huldu Rún. Þeim og að- standendum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Þrautum og þján- ingum elsku Fríðu er lokið og hún á góðum stað þar sem verkir og þrautir eru úr sögunni. Þakk- læti fyrir samfylgdina, elsku vin- kona, blessuð sé minning þín. Guðný Rún Sigurðardóttir. Jófríður Guðmundsdóttir  Fleiri minningargreinar um Jófríði Guðmunds- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, JÓNAS KLEMENS JÓNASSON, Hömrum, Mosfellsbæ, lést mánudaginn 30. september. Útför hans fer fram frá Landakotskirkju fimmtudaginn 3. október klukkan 13. Eva Elísabet Jónasdóttir Þorsteinn Sverrisson Sóley Alexandra Þorsteinsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA RAGNHEIÐUR GUÐNADÓTTIR Norðurbakka 17c, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum 27. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 4. október klukkan 15. Birgir Eyjólfsson Margrét Alice Birgisdóttir Kristrún Birgisdóttir Guðni Birgisson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, LOFTS ÞORSTEINSSONAR Haukholtum. Hanna Lára Bjarnadóttir Edvin Kristinsson Ólafur Bjarni Sigursveinsson Marlín Aldís Stefánsdóttir Þorsteinn Loftsson Steinunn Lilja Heiðarsdóttir Magnús Helgi Loftsson Alina Elena Balusanu Berglind Ósk Loftsdóttir og barnabörn Móðir mín, amma og langamma, BIRNA ÁSGERÐUR BJÖRNSDÓTTIR Ásholti 12, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir síðastliðinn sunnudag. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. október klukkan 15. Ingibjörg Pétursdóttir B. Börkur Eiríksson Fura Barkardóttir Ösp Barkardóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR JÓN EINARSSON læknir, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 29. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 9. október klukkan 15. Lísa Ólafsdóttir Þórunn Ólafsdóttir Arna Ólafsdóttir tengdasynir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, NANNA GUÐRÚN ZOËGA guðfræðingur og djákni, andaðist mánudaginn 30. september. Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 4. október klukkan 15. Lárus J. Atlason börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.