Morgunblaðið - 02.10.2019, Síða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
✝ Jófríður Guð-mundsdóttir,
Fríða, fæddist í
Reykjavík 3. sept-
ember 1966. Hún
lést á blóðsjúk-
dómadeild Land-
spítalans á Hring-
braut 19. septem-
ber 2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Guð-
mundur Óskar
Jónsson, f. 23. september 1929,
d. 25. maí 2013, og Margrét Júl-
íusdóttir, f. 17. apríl 1935, d. 29.
júní 2010, bændur á Bjarnastöð-
um í Hvítársíðu.
Systur Fríðu eru Hrefna Hall-
dórsdóttir, f. 25. september
1955, búsett í Reykjavík. Arndís,
f. 6. september 1968, gift Sig-
Fríða ólst upp á Bjarnastöð-
um og stundaði grunnskólanám
í Varmalandsskóla þar sem hún
var í heimavist. Hún fór til náms
við Fjölbrautaskóla Vesturlands
og lauk útskrift þaðan vorið
1986. Árið 1987 hóf hún nám við
hótelskóla, IHTTI School of
Management, í Sviss þar sem
hún dvaldi frá árinu 1987 til árs-
ins 1990 og útskrifaðist þaðan
með gráðu í hótelstjórnun.
Á námsárunum starfaði hún
m.a. í Austurríki og Noregi við
hin ýmsu hótelstörf. Eftir náms-
árin í Sviss starfaði Fríða við
hótelstörf í Abú Dabí þar til
stríðsátök hófust í Írak 1990 en
fór þá til Íslands og hóf störf
sem hótelstýra í Reykjavík. Síð-
ar hóf hún störf hjá P. Samúels-
syni, umboðsaðila Toyota á Ís-
landi. Eftir það starfaði hún hjá
Eimskip til ársins 2003 en þá
varð hún að hætta vinnu vegna
veikinda.
Úför Fríðu fer fram frá Vídal-
ínskirkju í dag, 2. október 2019,
klukkan 11.
urði Rúnari Gunn-
arssyni, búsett á
Bjarnastöðum.
Hrafnhildur, f. 29.
september 1972,
gift Jóhannesi
Kristleifssyni bú-
sett á Sturlu-
reykjum.
Hinn 3. maí 2013
gekk Fríða í hjóna-
band með Davíð
Guðmundi Sverris-
syni Röed, f. 19. janúar 1965, en
þau hófu sambúð 6. apríl 1991.
Foreldrar Davíðs voru Sverrir
Kjartansson, f. 8. maí 1924, d.
28. ágúst 2013, og Ragnhild Jo-
hanne Röed, f. 26. júlí 1924, d.
27. mars 2015.
Dóttir Jófríðar og Davíðs er
Hulda Rún, f. 7. mars 1997.
Fríðu frænku fylgdi birta. Hún
var glaðlynd, jákvæð, skipulögð,
röggsöm og hafði afskaplega
góða nærveru.
Það var snemma sem ég sótti
fast að Bjarnastöðum því þar var
nóg að gera, nóg um að vera og ég
örverpið sótti í félagsskap systr-
anna. Fríða var 7 árum eldri en
ég og því var það ekki fyrr en hún
kom heim með skírteinið úr hót-
elskólanum að við fórum að nálg-
ast hvor aðra í aldri. Það var gott
að sækja Fríðu heim og vera í fé-
lagsskap hennar og voru það ófá-
ir dagarnir sem við eyddum sam-
an þann tíma sem ég stundaði
framhaldsnám í Reykjavík og ár-
in þar á eftir. Við bjuggum sam-
an, unnum saman, ferðuðumst
saman og við vorum svona
frænku-vinkonu-systur, ólýsan-
lega sterk taug þó svo að lengst
og styst hafi í henni til og frá í
gegnum árin þegar lífið þýtur
hjá. Þegar Fríða kynntist Davíð
sínum og þau fóru að búa var ég
heimagangur hjá þeim. Kom
gjarnan eftir vinnu eða skóla,
snarlaði með þeim og oftar en
ekki náði ég blundi því hjá þeim
leið mér vel og næstum því eins
og að vera heima í foreldrahús-
um. Davíð fylgdi fjölmennur
vinahópur, einvala lið, og þegar
allir voru mættir á Bræðraborg-
arstíginn var iðulega stuð og
gaman. Ef eitthvað stóð til og þá
sérstaklega í matargerð eða þess
háttar þá talaði maður við Fríðu
frænku og iðulega kom hún að
veisluhöldum mínum á einn eða
annan hátt. Ef það var ekki und-
irbúningur þá voru það upp-
skriftir, útlit, nýtni, samsetning
og allt það. Þarna var hún svo
sannarlega á heimavelli. Og svo
var hún bara svo traust. Fríða
hugsaði svo vel um alla í kringum
sig, vildi ekki að neinum liði illa
og vildi allt fyrir alla gera svo
framarlega sem hún gat.
Í 16 ár var Fríða með leiðinleg-
an farþega, krabbaskrattann.
Hún tók bardaga við hann og ætl-
aði aldrei að láta hann sigra. Það
var ekki í hennar orðabók að gef-
ast upp eða að tala mikið um hann
og láta vorkenna sér. Síðasta bar-
áttan fór af stað í vor, þegar hún
tókst á við sína aðra stofnfrumu-
meðferð. Hún ætlaði sko að klára
hana bara í maí/júní og nota svo
restina af sumrinu til að byggja
sig upp, njóta í sveitinni með
„hvítt“ og bara pakka þessu dýri
saman … en hér erum við í dag.
Síðasta spjallið okkar var gott og
ég var glöð að fá að kveðja þig en
við upphaf þeirrar heimsóknar
spyr Fríða mig: „Ertu komin til
að kveðja mig?“ og við lok þeirrar
heimsóknar þökkuðum við hvor
annarri fyrir allt.
Ég er fyrst og fremst þakklát
fyrir að hafa fengið að ferðast í
gegnum lífið með Fríðu. Að hafa
fengið að njóta samverustunda,
visku, jákvæðni, gleði og stuðn-
ings þegar á þurfti að halda og
þakklát fyrir að hafa fengið tæki-
færi til að stytta henni stundirnar
í veikindunum nú í sumar og
fengið að sitja með henni síðustu
stundirnar hérna megin með
hennar nánustu.
Takk fyrir allt, mín kæra.
Sigríður Guðbjörg
Bjarnadóttir
(Sigga frænka í Borgarnesi).
Fríða mágkona mín var ein af
þessum hvunndagshetjum sem
sjaldan er skrifað um í fjölmiðl-
um. Þegar hún greindist með al-
varlegan sjúkdóm ung að árum
var það mikið áfall fyrir hana og
alla fjölskylduna. Við tóku mörg
ár læknismeðferða og aðgerða
sem tóku sinn toll. Aðspurð sagð-
ist Fríða þó alltaf hafa það gott,
hún vildi lítið tala um veikindi sín
en lagði áherslu á að njóta hverr-
ar stundar og skapa góðar minn-
ingar með ástvinum sínum.
Fríða hafði ávallt eitthvað fyr-
ir stafni. Hún fór í kór sem veitti
henni mikla gleði og þar eignaðist
hún góða vini. Hún prjónaði og
saumaði og bjó til bakstra og
augnhvílur og seldi. Fríða hafði
m.a. lokið námi í hótel- og veit-
ingaskóla í Sviss og hafði áhuga á
matargerð. Þau hjón höfðu yndi
af því að bjóða fólki heim og var
þá gjarnan eitthvað nýstárlegt
borið fram. Ef það var afmæli eða
boð í fjölskyldunni var hún alltaf
fyrst til að bjóðast til að koma
með eitthvað. Þetta eitthvað var
síðan ávallt glæsilegt og ekki
skorið við nögl. En viðkvæðið hjá
Fríðu var að þetta væri nú ekkert
mál. Bara gaman.
Hún elskaði sveitina sína og
naut þess að fara í bústaðinn í
Hvítársíðu og taka þátt í viðburð-
um í sveitinni. Fríða var ákveðin,
sterk og eftirminnileg kona. Hún
var alltaf svo jákvæð og ávann
sér mikla virðingu allra sem
henni kynntust fyrir það hvernig
hún tókst á við lífið. Þannig vil ég
muna Fríðu, blessuð sé minning
hennar.
Hildur Sverrisdóttir.
Jófríður, Fríða, Frieda. Hvað
er hægt að segja um þessa konu?
Lífsglöð, skapandi, jákvæð,
hláturmild, ósérhlífin, drífandi og
þrautseig en kannski fyrst og
fremst algjör hetja.
Luzern-hópurinn sem telur
um hundrað manns hefur syrgt
undanfarna daga og það hafa bor-
ist kveðjur og bænir úr öllum
heimshornum á samfélagsmiðl-
um. Þó að þrír áratugir séu liðnir
frá Royal árunum þá er vináttan
og hlýjan enn sem fyrr í þessum
hópi. Öll minnumst við einstakrar
konu, góðs félaga og vinar. Við
fylgdumst með baráttunni í gegn-
um árin, vonuðum og báðum fyrir
hinu besta en óttuðumst það
versta. Lífið getur verið svo
ósanngjarnt og dauðinn tilgangs-
laus.
Við minnumst góðu stundanna
í Sviss þar sem lífið snerist að
mestu um næsta partí og djamm
– helst með skólatöskurnar. En
líka lærdóm og stundum þræl-
dóm, próflestur, langar eldhús-
vaktir, veislur með tilheyrandi
flissi og gríni að því steinrunna
þjóðfélagi og hefðum sem er að
finna í hjarta Evrópu. Við fórum
í ferðalög um meginlandið í leit
að nýjum ævintýrum. Við tókum
þátt í öllu, gerðum allt, vildum
vera eins og Svisslendingarnir á
páskaföstu og Fríða sneið og
saumaði að sjálfsögðu grímu-
búninga á okkur öll. Hún gat allt,
þessi kona.
Við vorum spennt fyrir fram-
tíðinni, öll nýorðin tvítug og við
vildum sjá heiminn og læra og
breyta. Fríða fór til Mið-Austur-
landa, óttaðist ekkert en sjálf-
stæð kona þreifst ekki þar. Ís-
land var hennar land.
Hún hafði alltaf skoðanir, hún
Fríða og þá eins og nú var hún
alltaf að velta fyrir sér möguleik-
um og breytingum, hvort sem
það voru matseðlar og fram-
reiðsla á fínustu hótelum í Sviss
eða matseðlar hjá mötuneyti
Landspítalans sem hún öðlaðist
yfirburða þekkingu á.
Að leiðarlokum kveðjum við
hana með Feuerküss og þökkum
fyrir að hafa átt Fríðu að sam-
ferðakonu og vinkonu.
Blessuð sé minning hennar og
Guð geymi ykkur, elsku Davíð
og Hulda Rún.
Árni S., Gunnar Valur,
Kristín, Pétur, Magnea
Þórey og Sigrún Björk.
Eftir hetjulega, áralanga bar-
áttu hefur mín kæra vinkona
þurft að láta í minni pokann. Mér
er orða vant andspænis þeirri
staðreynd að hún Fríða er farin
frá okkur sem hérna megin er-
um og höfðum vonast til að hafa
meiri tíma með henni.
Kynni okkar hófust þegar
tvær sveitastelpur sín úr hvorri
áttinni settust hlið við hlið í
skólastofu í Fjölbrautaskólanum
á Akranesi.
Verkefnið var framhalds-
skólalíf næstu fjögur árin sem
vonandi lyki með stúdentsprófi.
Við vorum að hefja nýjan kafla í
lífinu á leiðinni til fullorðinsár-
anna. Í ljós kom að við vorum
samferða í ansi mörgum fögum
og við toguðum hvor aðra í gegn-
um misskemmtileg fög. Úr varð
mikil og góð vinátta.
Við vorum líka samferða í
áhugamálunum og utan skóla-
stofunnar var gaman að vera til,
voru þessi ár nýtt til að kanna
hvað skemmtanalífið hafði upp á
að bjóða, með kínverskt rauðvín í
æðunum og UB40 í huganum vor-
um við færar í flestan sjó. Þegar
stúdentsprófinu lauk breyttist
samband okkar aðeins. Eins og
stundum vill verða lágu leiðir
okkar sín í hvora áttina, m.a.s. sín
í hvora heimsálfuna, menntuðum
við okkur meira, eignuðumst
börn og buru og vorum í önnum
að lifa lífinu. Hvað svo sem sagt
verður um samfélagsmiðla nú-
tímans, þá var það Facebook sem
tengdi okkur saman að nýju. Þó
við höfum alltaf vitað hvor af ann-
arri höfðu samskiptin ekki verið
mikil né tíð. Það breytti þó engu
að þegar við létum verða af því að
hittast var um svo margt að
spjalla og mörg málefni að kryfja
og rifja upp að við sólbrunnum
báðar á vörunum, malandi á pall-
inum við bústaðinn í Hvítársíð-
unni. Þannig var okkar vinátta,
þráðurinn slitnaði aldrei og eftir
að styttra varð á milli okkar í
vegalengdum urðu samskiptin
meiri og tíðari.
Fríða var alltaf þessi jákvæða
bjartsýna manneskja sem gott
var að vera návistum við. Þó lífið
hafi úthlutað henni stórum og
erfiðum verkefnum skein alltaf í
gegn hennar góða lund, óþrjót-
andi bjartsýni og glettni. Nýtti
minnkandi starfsorku til að
skapa sér verkefni sem hún gat
sinnt heima, Fríðu fínerí, sem
gott er að hafa nálægt sér nú sem
áður.
Hún nýtti tímann sinn vel,
vissi sem var að hann gæti verið
naumt skammtaður. Þegar við
hittumst síðast var hún búin að
ganga í gegnum stranga meðferð,
orðin miklu betri eins og hún orð-
aði það sjálf, samt ekki alveg
komin fyrir vind. Hún var samt
engan veginn af baki dottin,
sýndi mér stolt verkefni sem hún
var að vinna að og fylla á lager-
inn, einnig ný verkefni sem hún
var spennt að hanna og þróa
áfram. Hver veit nema hún sé
enn að störfum.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku vinkona, söknuðurinn er
mikill hjá okkur sem eftir stönd-
um, mestur þó hjá þeim feðginum
Davíð og Huldu Rún. Þeim og að-
standendum öllum votta ég mína
dýpstu samúð. Þrautum og þján-
ingum elsku Fríðu er lokið og
hún á góðum stað þar sem verkir
og þrautir eru úr sögunni. Þakk-
læti fyrir samfylgdina, elsku vin-
kona, blessuð sé minning þín.
Guðný Rún Sigurðardóttir.
Jófríður
Guðmundsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Jófríði Guðmunds-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
JÓNAS KLEMENS JÓNASSON,
Hömrum, Mosfellsbæ,
lést mánudaginn 30. september.
Útför hans fer fram frá Landakotskirkju
fimmtudaginn 3. október klukkan 13.
Eva Elísabet Jónasdóttir Þorsteinn Sverrisson
Sóley Alexandra Þorsteinsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA RAGNHEIÐUR GUÐNADÓTTIR
Norðurbakka 17c,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum 27. september.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 4. október klukkan 15.
Birgir Eyjólfsson
Margrét Alice Birgisdóttir
Kristrún Birgisdóttir
Guðni Birgisson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður
og afa,
LOFTS ÞORSTEINSSONAR
Haukholtum.
Hanna Lára Bjarnadóttir
Edvin Kristinsson
Ólafur Bjarni Sigursveinsson Marlín Aldís Stefánsdóttir
Þorsteinn Loftsson Steinunn Lilja Heiðarsdóttir
Magnús Helgi Loftsson Alina Elena Balusanu
Berglind Ósk Loftsdóttir
og barnabörn
Móðir mín, amma og langamma,
BIRNA ÁSGERÐUR BJÖRNSDÓTTIR
Ásholti 12, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir síðastliðinn
sunnudag.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 4. október klukkan 15.
Ingibjörg Pétursdóttir
B. Börkur Eiríksson
Fura Barkardóttir
Ösp Barkardóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR JÓN EINARSSON
læknir,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
29. september. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju miðvikudaginn 9. október
klukkan 15.
Lísa Ólafsdóttir
Þórunn Ólafsdóttir
Arna Ólafsdóttir
tengdasynir og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
NANNA GUÐRÚN ZOËGA
guðfræðingur og djákni,
andaðist mánudaginn 30. september.
Útför hennar fer fram frá Vídalínskirkju
föstudaginn 4. október klukkan 15.
Lárus J. Atlason
börn, tengdabörn,
barnabörn og langömmubörn.