Morgunblaðið - 02.10.2019, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
✝ Ingibjörg Sig-mundsdóttir
fæddist 23. mars
1942 í Túni í Flóa.
Hún lést á Landspít-
alanum 24. sept-
ember 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Sigmundur
Ámundason, f. 12.3.
1906, d. 8.10. 1976,
bóndi í Túni á Laug-
um og í Hraun-
gerði, Hraungerðishreppi, Ár-
nessýslu, og Guðrún
Guðmundsdóttir, f. 28.12. 1910,
d. 27.4. 1996, húsfreyja í Túni, á
Laugum og í Hraungerði. Systk-
ini Ingibjargar eru Guðmundur
Heiðar, f. 14. júlí 1935, Svavar, f.
7. september 1939, og Ragnheið-
ur, f. 23. apríl 1946.
Ingibjörg ólst upp á Laugum
urjón Margeir, f. 22. júlí 1937,
Laufey Sveinfríður, f. 26. janúar
1940, Jóna Heiðbjört, f. 11. októ-
ber 1943, og Valgerður, f. 24.
mars 1946.
Ingibjörg og Albert bjuggu
fyrstu búskaparárin á stúd-
entagarði í Ósló, þar sem Albert
stundaði háskólanám og Ingi-
björg vann í stúdentamötu-
neytinu. Árið 1968 fluttu þau til
Íslands og settust að í Hafnar-
firði. Eftir heimkomuna aflaði
Ingibjörg sér frekari menntunar
og hóf störf sem læknaritari á
Landspítalanum og starfaði þar
til starfsloka 2009.
Kjörsonur Ingibjargar og
Alberts er Óskar Bergmann
Albertsson, f. 14.10. 1974, starfs-
maður í Ásgarði handverkstæði,
Álafossvegi 22, Mosfellsbæ.
Ingibjörg var lengi virk í starfi
Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju
og var mörg ár í stjórn
Sálarrannsóknarfélagsins í
Hafnarfirði.
Útför Ingibjargar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 2.
október 2019, klukkan 13.
og Hraungerði og
sótti barnaskóla á
Þingborg og svo
framhaldsnám í
Miðskólanum á Sel-
fossi. Veturinn
1961-1962 var hún
nemandi við Hús-
mæðraskóla Suður-
lands að Laugar-
vatni.
Hinn 19. ágúst
1962 giftist Ingi-
björg eftirlifandi eiginmanni sín-
um Albert H.N. Valdimarssyni, f.
15. október 1938 í Hreiðri, Holta-
hreppi, Rangárvallasýslu.
Foreldrar hans voru hjónin
Valdimar Sigurjónsson, f. 12.
ágúst 1900, d. 30. júlí 1986, og
Guðrún Margrét Albertsdóttir, f.
4. desember 1902, d. 29. apríl
1970. Systkini Alberts eru Sig-
Haustið heilsar með veður-
blíðu. Mamma mín kvaddi þetta
líf með sól í hjarta. Hún var
ekki eingöngu mamma mín
heldur líka kletturinn í lífi mínu.
Ég kom inn í líf mömmu og
pabba þegar ég var fimm ára
gamall og þau tóku mig í fóstur.
Mamma var ákveðin í því að
taka þennan veika snáða að sér
sem var alls ekki sjálfgefið. En
mamma og pabbi bjuggu mér
gott og fallegt heimili.
Mamma var stórkostleg í öllu
sem hún tók sér fyrir hendur.
Við vorum dugleg að fara í leik-
hús frá því að ég var átta til níu
ára gamall og að því bý ég enn.
Takk mamma. Við vorum líka
dugleg að ferðast, bæði innan
lands og til útlanda. Mamma var
frábær í eldhúsinu, bakaði og
eldaði góðan mat. Jólakökurnar
hennar voru varla komnar úr
ofninum þegar þær voru búnar.
Ég byrjaði snemma að kíkja í
pottana hjá mömmu og mamma
sagði við mig:
„Ekki detta ofan í pottinn,
Óskar minn!“ Mamma hafði
gaman af því að prjóna og var
eiginlega eins og prjónaverk-
smiðja. Húfur, vettlingar, treflar
og margt fleira rann úr hönd-
unum á henni og margt af því
gaf hún til góðgerðarmála.
Minningabankinn er stór og ég
þakka þér fyrir öll þessi góðu
ár, mamma mín.
Óskar B. Albertsson.
Klukkur tímans tifa
telja ævistundir
ætíð lengi lifa
ljúfir vinafundir.
Drottinn veg þér vísi
vel þig ætíð geymi
ljósið bjart þér lýsi
leið í nýjum heimi.
(Hákon Aðalsteinsson)
Það er margs að minnast er
við nú kveðjum elskulega mág-
konu okkar hana Ingibjörgu.
Hún kom ung stúlka inn í fjöl-
skyldu okkar, broshýr og elsku-
leg. Hún varð strax sem ein af
okkur systrum og foreldrar okk-
ar eignuðust fjórðu dótturina.
Albert og Ingibjörg giftu sig í
Hraungerðiskirkju 19. ágúst
1962. Síðan lá leið þeirra til
Noregs þar sem Albert lagði
stund á nám en Ingibjörg vann í
mötuneyti, en fjárhagur leyfði
ekki að bæði stunduðu nám.
Eftir heimkomuna lærði Ingi-
björg til læknaritara og starfaði
við það allt þar til hún hætti
sökum aldurs.
Þau hjón tóku í fóstur og ætt-
leiddu ungan dreng, Óskar
Bergmann. Strax varð hann
mikill sólargeisli í lífi þeirra og
nú í þessum erfiðu veikindum
hefur hann staðið sem klettur
við hlið móður sinnar og verið
foreldrum sínum mikill stuðn-
ingur.
Við systkinin erum samhent-
ur hópur og hafa Ingibjörg og
Albert verið ómetanlegur hlekk-
ur í keðju afkomendanna frá
Hreiðri. Saman hafa þau ferðast
mikið innanlands sem utan og
ræktað fjölskyldu- og vináttu-
bönd. Oft hefur leið þeirra legið
hingað austur fyrir fjall og á
æskuslóðir Alberts í Hreiðri.
Ingibjörg var félagslynd og
starfaði hún með kvenfélagi
þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði og
sótti félagsstarf eldri borgara,
aðallega spilavistina. Hún hafði
mjög gaman af því að spila og
þegar þau komu í heimsókn var
ætíð gripið í spil.
Okkur er þakklæti efst í huga
nú, fyrir að hafa átt Ingibjörgu
að í öll þessi ár. Við þökkum
henni samfylgdina og allar góð-
ar stundir og óskum henni góðr-
ar heimkomu á ströndinni fyrir
handan þar sem ástvinir bíða í
varpa.
Alberti, Óskari og öðrum ást-
vinum sendum við innilegar
samúðarkveðjur.
Laufey, Sigurjón,
Jóna og Valgerður.
Eftir því sem maður eldist
gerir maður sér betur grein fyr-
ir því hversu mikil forréttindi
eru falin í góðri og samheldinni
fjölskyldu og því að vera um-
kringdur fólki sem þykir vænt
um mann og er tilbúið til að
styðja mann í hvívetna.
Mamma okkar á fjögur systk-
ini og eru þau og fjölskyldur
þeirra öll dýrmætur og mikil-
vægur hluti af okkar lífi. Und-
anfarið hefur fækkað í hópnum
og í dag kveðjum við Ingi-
björgu, eiginkonu Alberts, móð-
urbróður okkar. Þau hjónin og
sonur þeirra hann Óskar hafa
verið hluti af okkar fjölskyldu
alla tíð.
Minningarnar eru margar og
allar góðar um Ingibjörgu, sem
ávallt var brosmild og glöð. Allt-
af ánægð yfir því að hitta okkur
og alltaf fyrst til að heilsa með
þéttu faðmlagi og kossi.
Samverustundirnar voru
margar og ánægjulegar. Það var
ævintýri fyrir okkur að eiga
frændfólk í Hafnarfirði sem
ávallt tók okkur opnum örmum.
Fyrst á Álfaskeiðinu, þar sem
það að búa í blokk var eitt og
sér nóg til að landsbyggðarfólk-
ið fylltist undrun og aðdáun, en
síðar varð umhverfið á Öldugöt-
unni uppspretta leikja og ævin-
týra.
Það ríkti eftirvænting hjá
okkur systkinum þegar þau
hjónin tóku að sér lítinn dreng,
hann Óskar, en hann varð fljótt
mikill gleðigjafi, ekki bara hjá
þeim heldur okkur einnig. Milli
hans og mömmu hans hefur ver-
ið einstakt samband og hefur
verið aðdáunarvert að fylgjast
með því hversu góður hann hef-
ur verið við mömmu sína í veik-
indum hennar.
Alla okkar ævi hafa Ingi-
björg, Albert og svo Óskar verið
hluti af okkar fjölskyldu. Af-
mælisveislur, hátíðisdagar og
venjulegar helgar voru ekki eins
ef þau voru ekki með okkur. Við
vorum þeirra og þau voru okk-
ar.
Að leiðarlokum viljum við
þakka Ingibjörgu einstaka hlýju
í okkar garð og allar ánægju-
stundirnar sem við höfum átt
saman. Alberti og Óskari vott-
um við okkar innilegustu samúð,
þeirra er missirinn mestur.
Aldís, Valdimar, Guðrún,
Sigurbjörg og fjölskyldur,
Hveragerði.
Ingibjörg frænka mín hafði
ekki mörg orð um hlutina en lét
verkin tala.
Við frænkur, sem í grunninn
erum ættaðar frá Kambi í Flóa,
höfum fylgst að gegnum skóla
lífsins með viðkomu í Hús-
mæðraskóla Suðurlands á Laug-
arvatni fyrir margt löngu. Eftir
þann góða vetur 1961-2 varð til
saumaklúbburinn „Húsóskvísur“
sem hefur það að markmiði að
lifa fyrir líðandi stund í gleði og
sorg og auðvitað hafa handa-
vinnuna að leiðarljósi. Ýmislegt
hefur verið brallað og alltaf var
hún til í sprellið, en ekki féll
henni verk úr hendi þó að mikið
væri spjallað og hlegið. Og
dásamlegt var að fylgjast með
frænku þegar móðurhlutverkið
brast á og þau Albert ljómuðu
af gleði og stolti, og ekki var
síður fallegt að fylgjast með
elsku Óskari vaxa og dafna í
þeirra skjóli.
Kæra frænka, hafðu hjartans
þökk fyrir þína ljúfu návist og
visku á lífsins leið, alltaf svo
sterk og til staðar. Við í
„saumó“ söknum sannarlega
góðrar vinkonu en við þykjumst
vita að vel hafi verið tekið á
móti þér af þeim sem farnar er
á undan.
Elsku Albert, Óskar og fjöl-
skylda. Megi ljós lífsins lýsa
ykkur leið.
Blessuð sé minning heiðurs-
konunnar Ingibjargar Sig-
mundsdóttur.
Fyrir hönd saumaklúbbsins
„Húsóskvísur“,
Hjördís Geirsdóttir.
Ingibjörg
Sigmundsdóttir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Yoga með Grétu 60+ kl.
12.15 og 13.30. Söngstund kl. 13.45, allir velkomnir. Kaffi kl. 14.30-15.
Bókaspjall með Hrafni kl. 15.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl.12. Léttur hádegisverður á
eftir fyrir þá sem vilja, gegn vægu gjaldi. Opið hús, félagsstarf full-
orðinna í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13 til 16. Þar er boðið upp á
stólaleikfimi með Öldu Maríu íþróttafræðingi. Spjöllum, kíkjum í
blöðin og höfum gaman. Kaffi á eftir í boði kirkjunnar. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15.
Stóladans með Þóreyju kl. 10. Bridge kl. 12.15. Opið hús, t.d. vist og
bridge kl. 13-16. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. s: 535 2700.
Boðinn Handavinnustofa er opin frá kl. 9-15. Harmonikuspil og
söngur kl. 13.30. Sundleikfimi kl. 14.30.
Breiðholtskirkja Félagsstarf eldri borgara kl. 13.15. Hefst með
kyrrðarstund og léttum hádegisverði kl. 12.
Bústaðakirkja Listamánuður í Bústaðakirkju hefst miðvikudaginn 2.
október með hádegistónleikum kl 12.05. Þar verða tenórarnir Jóhann
Friðgeir Valdimarsson, Hlöðver Sigurðsson, Marteinn Snævarr og Örn
Árnason í miklu stuði við undirleik Jónasar Þóris kantors. Súpa í
safnaðarsal á eftir. Félagsstarfið heldur áfram til kl 16 með kaffinu
góða og hefðbundinni dagskrá.
Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl.
8.30-10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Framhaldssagan Bör Börson kl.
10.30. Hádegismatur alla virka daga kl. 11.30-12.20 og kaffi kl. 14.30-
15.30. Zumba með Carynu kl. 12.30. Frjáls spilamennska kl. 13.
Handavinnuhópur kl. 13-16.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Jóga kl. 9. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30.
Salatbar kl. 11.30-12.15. Zumbaleikfimi kl. 13. Kraftganga kl. 14. Tálgun
með Valdóri kl. 13.30-16. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Bókmenntahópur kl.
19.30-21. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar i síma 411-
2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9. Postulínsmálun kl. 9.
Minigolf kl. 10. Tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10.30. Bókband kl. 13.
Myndlist kl. 13.30. Dans með Vitatorgsbandinu kl. 14. Frjáls spila-
mennska kl. 13-16.30. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Verið öll hjartan-
lega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411 9450.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl.
13. Vatnsleikf. kl. 7.10/7.50/15.15. Kvennaleikf Ásg. kl. 9.30. Kvennaleikf.
Sjál. kl. 10.30. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Leir, Smiðja, Kirkjuhv. kl. 13.
Zumba salur, Strikið 8. kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16.
Útskurðurm/leiðbeinanda kl. 9-12. Qigong 10-11. Línudans kl. 11-12.
Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30. Útskurður / Pappamódel m/leiðb. kl.
13-16. Félagsvist kl. 13-16. Döff Félag heyrnalausra kl. 12.30-15. Allir
velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 Boccia-opinn tími, kl. 9.30 glerlist, kl.
13 Félagsvist FEBK, kl. 13 postulínsmálun.
Guðríðarkirkja Félagsstarf eldriborgara kl. 12. Helgistund í kirkjunni
og söngur. Sviðaveisla í safnaðarheimilinu á eftir helgistund.
Ástvaldur Traustason spilar á harmonikku undir borðhaldi. Verð kr.
1500.-. Hlökkum til að sjá ykkur. Sr. Leifur Ragnar, Hönn og Lovísa.
Gullsmára Myndlist kl 9.30. Postulínsmálun, kvennabridge, silfur-
smíði kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl 16.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr dagurinn og
allir velkomnir. Boccia kl.10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9.
og 13. Leir, Skólabraut kl. 9. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn, Valhúsaskóla kl. 13.
Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Félagsvist á morgun fimmtudag kl. 13.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði
Stangarhyl 4, kl. 10. Kaffi og rúnstykki eftir göngu.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
MinningargreinarHjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð ogvináttu við andlát og jarðsöng elskulegrar
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu
okkar,
DAGBJARTAR RAGNHILDAR
BJARNADÓTTUR
Rauðalæk 21, Reykjavík,
frá Berserkseyri, Eyrarsveit.
Innilegar þakkir færum við starfsfólki á vegum
Reykjavíkurborgar, á dvalarheimilinu Hrafnistu og á
Landspítalanum fyrir alúð og góða umönnun.
Yngvi Pétursson Marta Konráðsdóttir
Kristín Pétursdóttir
Ásta Bjarney Pétursdóttir Nicolai Jónasson
Linda Björk Pétursdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ÓLAFAR ELÍNAR DAVÍÐSDÓTTUR,
Kringlunni 43,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjartadeildar
3H Hringbraut fyrir góða umönnun.
Egill Skúli Ingibergsson
Kristjana Skúladóttir Þórólfur Óskarsson
Valgerður Skúladóttir Gunnar Helgi Sigurðsson
Inga Margrét Skúladóttir Ólafur Björnsson
Davíð Skúlason Fanney Dóra Hrafnkelsdóttir
ömmu- og langömmubörn.