Morgunblaðið - 02.10.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
50 ára Jónas er Hver-
gerðingur í húð og hár.
Hann er bílstjóri og lag-
ermaður hjá heildsölu-
fyrirtækinu NPK sem
er staðsett á Flúðum.
Fyrirtækið flytur inn
vörur fyrir garðyrkju-
stöðvar.
Maki: Hugrún Ólafsdóttir, f. 1971, bókari
hjá Truenorth.
Börn: Arnar Már, f. 1991, Dagný Alma, f.
1993, og Elvar Elí, f. 1995. Barnabarn er
Díana Ýr Arnarsdóttir, f. 2018.
Foreldrar: Birgir Hafsteinn Oddsteins-
son, f. 1941, fyrrverandi verktaki, og Guð-
rún Erna Jónsdóttir, f. 1942, vann lengst
á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. Þau
eru búsett í Hveragerði.
Jónas Páll
Birgisson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fáðu aðra í lið með þér til þess að
ná markmiði þínu. Nú er rétta tímasetn-
ingin til þess að kaupa eitthvað sem þú ert
stoltur af.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur haft í mörgu að snúast og
þarft eiginlega að læra að verja sjálfan þig
betur. Dreifðu áhættunni þannig að þú
þurfir ekki að sitja uppi með sárt ennið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Forðastu rifrildi um peninga eða
átök um sameiginlegar eignir. Gættu þess
að afla nákvæmra upplýsinga áður en þú
grípur til aðgerða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Eitthvað á eftir að koma þér svo á
óvart að þú munt undrast þín eigin við-
brögð. Þú getur mætt hvaða áskorun sem
er ef þú nýtir hæfileika þína til fulls.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Kröfurnar í vinnunni standa í vegi
fyrir því að þú getir sinnt heimilinu sem
skyldi. Gefðu þér tíma til að sinna sjálfum
þér þótt aðrir kalli á athygli þína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú stendur frammi fyrir viðamikilli
ákvörðun og verður að gefa þér góðan
tíma til þess að kanna allar hliðar mála.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gætir fundið fyrir tilfinningum í
garð einhverrar manneskju sem er mjög
ólík þér. Fólk er móttækilegt fyrir við-
ræðum um langtímalausnir á vanda-
málum augnabliksins.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það eru allir hlutir á fleygiferð
í kringum þig og þér finnst erfitt að hafa
hendur á því sem þú vilt fá.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú vilt bara leika þér og njóta
lífsins en þarft að beina huganum að al-
varlegri málum. Fljótt skipast ský á lofti,
og í kvöld hefurðu ná verulegum árangri.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu ekki of mikið mark á
hugsunum þínum í dag því þær markast af
skorti á sjálfstrausti. Fólk sem er að kynn-
ast þér á það til að opna sig fyrir þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ást og daður sveipa daginn
rómantískum blæ. Njóttu góðrar vináttu
og taktu öllum heimboðum fagnandi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér finnast sumar persónulegar
skoðanir starfsfélaga þinna út í hött.
Stundum er nauðsynlegt að halda fólki í
ákveðinni fjarlægð.
miltisbruna um allt land í 14 ár
ásamt Ólöfu Erlu konu minni og
fljótlega er von á skýrslu frá
okkur.
Á næstunni eru að koma út tveir
hljómdiskar með 60 sönglögum eft-
ir mig og þar af eru 40 með textum
eftir mig. Elsta lagið á disknum er
58 ára og yngsta lagið er samið á
þessu ári. Ég er svo heppinn að
vera með 28 úrvals einsöngvara á
plötunni og þrjá kóra sem flytja
lögin. Betri er enginn hefur verið
Guðmundur Eiríksson, söngstjóri
Hörpukórsins, sem hefur aðstoðað
margháttað við útgáfuna, og Karl
Þór Þorvaldsson sá um upptöku
flestra laganna og margir þeirra
komu að því líka.
Ég hef verið heilsuhraustur en
fékk gáttaflökt sem læknaðist ekki
með vélum svo ég ákvað að reyna
að gleðja a.m.k. einn á dag með
gamansögum, og þá læknaðist
þetta, en starf mitt hefur orðið til
þess að ég þekki fólk um allt land.“
Hólar hafa gefið út bækurnar Sig-
urður dýralæknir I og II og Sig-
urðar sögur dýralæknis. Sigurður
fagnar afmælinu á bökkum Dónár.
Fjölskylda
Sambýliskona Sigurðar er Ólöf
Erla Halldórsdóttir, f. 11.10. 1940,
frá Búrfelli í Grímsnesi, fyrrver-
andi bankastarfsmaður. Eiginkona
verndar íslenska fínullarfénu frá
Skriðuklaustri, hefur beitt sér gegn
innflutningi fósturvísa úr norskum
kúm og fyrir varðveislu íslenska
kúakynsins. Hann er virkur félagi í
Kvæðamannafélaginu Iðunni og
Kvæðamannafélaginu Árgala á Sel-
fossi og kom að stofnun Kvæða-
mannafélagsins Snorra í Reykholti.
„Ég hef aldrei hætt að vinna. Ég
hef verið að leita að og staðsetja
S
igurður Sigurðarson
fæddist 2. október 1939
á Sigurðarstöðum í
Bárðardal og ólst þar
upp til þriggja ára ald-
urs. Hann átti heima að Keldum á
Rangárvöllum til sjö ára aldurs,
síðan á Selalæk í sömu sveit en
flutti þaðan á tíunda ári að Hemlu í
Vestur-Landeyjum og átti þar
heima fram yfir tvítugt.
Sigurður gekk í Skógaskóla, lauk
stúdentsprófi frá MA 1961, dýra-
læknisprófi frá Norges Veterinær-
högskole í Ósló 1967, M.Sc.-prófi í
meinafræði búfjár við Dýralækna-
skólann í London 1970, og sér-
fræðiprófi í sjúkdómum sauðfjár og
nautgripa í Ósló 1995. Þá var hann
við framhaldsnám og fór í náms- og
fyrirlestraferðir í dýralæknis-
fræðum á Suður-Grænlandi og í
ýmsum fleiri löndum.
Sigurður var rannsóknarmaður
hjá Sauðfjárveikivörnum sumrin
1963-67, gegndi embætti héraðs-
dýralæknis hér á landi og í Dram-
men í Noregi meðfram námi,
kenndi við Bændaskólann á Hvann-
eyri 1968 og 1975-2000, sinnti rann-
sóknum við Tilraunastöðina á Keld-
um 1968, var sérfræðingur
sauðfjársjúkdómanefndar 1969-73
og framkvæmdastjóri hennar 1976-
78, sérfræðingur hjá embætti yfir-
dýralæknis frá 1973, var settur
yfirdýralæknir 1987, var forstöðu-
maður rannsóknardeildar Sauð-
fjárveikivarna á Keldum 1969 og
1970-93 og síðan hjá yfirdýralækni,
sérfræðingur í sauðfjár- og naut-
gripasjúkdómum á Keldum frá
1995 og var fenginn út að til vinna
baráttu gegn gin- og klaufaveiki í
Englandi og Wales 2001. „Það
vantaði dýralækna með reynslu af
sjúkdómum í jórturdýrum.“ Sig-
urður var einnig í Finnmörku í
Noregi til að kynna sér sjúkdóma í
hreindýrum 2003-2004. „Mig grun-
aði að riðuveiki gæti fundist í
hreindýrum og það reyndist vera
rétt síðar.“ Sigurður hefur verið
sérfræðingur við Matvælastofn-
unina á Selfossi frá 2006.
Sigurður sat í dýraverndarnefnd,
í Tilraunaráði landbúnaðarins, í
fóðurnefnd, í stjórn félags til
Sigurðar var Halldóra Einarsdóttir,
f. 21.3. 1942, d. 26.9. 2000, hand-
íðakona og hönnuður. „Lífsham-
ingja mín hefur falist í því að ég
hef verið einstaklega kvenheppinn.“
Börn Sigurðar og Halldóru eru
1) Sigurður Sigurðarson f. 1.6.
1969, tamningamaður, reiðkennari
og hrossaræktarbóndi á Fosshólum
í Holtum, giftur Sigríði Arndísi
Þórðardóttur talmeinafræðingi, f.
3.12. 1977, börn þeirra eru Vilborg
María, f. 1999, Sigurður Matthías,
f. 2004, og Dagur, f. 2008. Börn
Sigurðar með fv. sambýliskonu,
Anítu Pálsdóttur, eru Róbert, f.
1992, og Rakel Dóra, f. 1998; 2)
Ragnhildur Sigurðardóttir, f. 21.6.
1970, grunnskólakennari og golf-
kennari á Íslandi og Spáni, búsett í
Mosfellsbæ ásamt sambýlismanni
sínum, Jóni Andra Finnssyni smið,
f. 11.3. 1973, börn hennar með fv.
sambýlismanni, Þorvarði Frið-
björnssyni, eru Hildur Kristín, f.
1992 og Lilja, f. 1994. Dætur Jóns
Andra eru Alexandra, f. 1995, og
Sara Sif, f. 2001; 3) Einar Sverrir
Sigurðarson, f. 3.9. 1973, bifvéla-
virkjameistari og rekur Bifreiða-
verkstæði Reykjavíkur, giftur
Steingerði Ingvarsdóttur, líffræð-
ingi og fjármálastjóra, f. 15.1. 1974.
Börn þeirra eru Daníel Freyr, f.
1994, Elísabet Líf, f. 1999, Ingvar
Sverrir, f. 2005, og Halldór Sverrir,
f. 2013; 4) Sölvi Sigurðarson, f.
12.1. 1978, reiðkennari og
tamningamaður, nýfluttur heim frá
Danmörku. Sambýliskona Sölva var
Álfhildur Leifsdóttir og börn þeirra
eru Halldóra, f. 2006, Sindri, f.
2007, og Katla, f. 2013.
Bróðir Sigurðar er Skúli Jón Sig-
urðarson, f. 20.2. 1938, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn
og fyrrv. formaður Rannsóknar-
nefndar flugslysa, kvæntur Sjöfn
Friðriksdóttur kennara.
Foreldrar Sigurðar voru hjónin
Sigurður Jónsson, f. 8.1. 1909, d.
24.10. 1939, bóndi og smiður á Sig-
urðarstöðum i Bárðardal, og Krist-
ín Skúladóttir, f. 30.3. 1905, d. 13.6.
1995, farkennari í Landeyjum og
Flóa og síðast í Hemlu. Síðari mað-
ur Kristínar var Ágúst Andrésson,
bóndi í Hemlu.
Sigurður Sigurðarson dýralæknir – 80 ára
Á dansleik Ólöf Erla Halldórsdóttir
og Sigurður Sigurðarson.
Leitar að miltisbruna um allt land
Börnin Sölvi, Einar Sverrir, Ragnhildur og Sigurður.
40 ára Gunnlaugur er
Akureyringur og er raf-
magnsverkfræðingur
frá tækniháskólanum
Chalmers í Gautaborg.
Hann er sviðsstjóri iðn-
aðarsviðs hjá verk-
fræðistofunni Raftákn.
Gunnlaugur er formaður Súlna, björg-
unarsveitarinnar á Akureyri.
Maki: Eydís Unnur Jóhannsdóttir, f. 1980,
hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri.
Börn: Arna Sigríður, f. 2007, Karen Lilja, f.
2010, og Elvar Búi, f. 2016.
Foreldrar: Ólafur Búi Gunnlaugsson f.
1953, fv. starfsmaður Háskólans á Akur-
eyri, og Agnes Jónsdóttir, f. 1959, skólaliði
í Lundarskóla. Þau eru búsett á Akureyri.
Gunnlaugur Búi
Ólafsson
Til hamingju með daginn
Akureyri Ísak Atli Heið-
dísarson fæddist 2.
október 2018 kl. 3.36.
Hann á því eins árs af-
mæli í dag. Ísak Atli vó
16,5 merkur og var 54
cm langur. Móðir hans
er Heiðdís Dröfn
Bjarkadóttir.
Nýr borgari