Morgunblaðið - 02.10.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Þorskhnakkar
Glæný lúða
Klausturbleikja
Glæný línuýsa
Nýlöguð
humarsúpa
vopnabúr en á síðasta tímabili. Það
gefur liðinu líka mikið að fá Kára og
Emil aftur. Við höfum spilað lengi
saman, ég, Hjálmar, Kári og Emil og
það er mjög góð tenging á milli okk-
ar allra. Við þekkjum hver annan
mjög vel og það er líka frábært að fá
þá aftur í klefann enda uppaldir
Haukamenn.“
Ívar Ásgrímsson lét af störfum
sem þjálfari Hauka í sumar eftir sex
ár í Hafnarfirðinum en Israel Mart-
ín, fyrrverandi þjálfari Tindastóls,
tók við liðinu af Ívari.
„Það hafa allir gott af smá breyt-
ingu og það er kannski aðeins erf-
iðara að rýna í liðið eftir þjálfara-
breytingarnar. Ívar gerði frábæra
hluti á þeim sex tímabilum sem hann
var hérna og það voru kannski kom-
in ákveðin takmörk fyrir því hvað
hann gat kreist meira út úr hópnum.
Þótt það sé söknuður að Ívari þá
hefur Israel Martín komið inn með
alveg nýja hugmyndafræði og það
verður spennandi að prófa eitthvað
alveg nýtt í vetur.“
Haukur ítrekar að það séu bjartir
tímar framundan í Hafnarfirði eftir
erfitt síðasta tímabil.
„Haukar hafa lagt mikið í að halda
sínum leikmönnum í félaginu í gegn-
um tíðina og ég held að framtíðin hjá
félaginu sé mjög björt. Að mínu mati
eigum við að vera ofarlega í töflunni
og fyrsta markmið vetrarins er að
berjast um heimavallarréttinn í úr-
slitakeppninni. Við erum ekki að
horfa of mikið á einhver ákveðin
sæti en heimavöllurinn hefur gert
mikið fyrir okkur á undanförnum ár-
um og markmið er að sjálfsögðu að
halda því áfram því ég tel okkur vera
með lið sem getur barist um titla.“
Hópur sem
getur barist
um alla titla
Morgunblaðið/Hari
Heimkoma Kári Jónsson er kominn aftur í Hauka eftir einn vetur í Barce-
lona þar sem hann lék með B-liði félagsins en var lengi frá vegna meiðsla.
Haukur segir að það sé erfiðara að
rýna í liðið eftir þjálfarabreytingarnar
HAUKAR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Haukur Óskarsson, leikmaður
Hauka í körfuknattleik, er spenntur
að hefja leik í úrvalsdeild karla.
Stemningin fyrir komandi tímabili
er góð í Hafnarfirði að sögn Hauks
en liðið endaði í tíunda sæti deild-
arinnar á síðustu leiktíð eftir að liðið
varð deildarmeistari vorið 2018.
„Það er mjög góð stemning í
Hafnarfirðinum og við erum allir
spenntir að hefja leik. Það er orðið
ansi langt síðan það urðu stórar
breytingar hjá Haukum þar til í
sumar. Það er kominn nýr þjálfari,
við höfum bætt við okkur sterkum
leikmönnum og svo hafa lykilmenn
snúið aftur. Það er þess vegna bjart-
ara yfir þessu núna en á síðasta
tímabili þar sem við misstum marga
leikmenn. Þá er leikmannakjarninn
frá síðustu leiktíð staðráðinn í að
gera betur en í fyrra og við erum í
raun bara búnir að bíða frekar lengi
eftir því að byrja þetta.“
Þeir uppöldu komnir aftur
Haukar hafa styrkt sig vel í sumar
en þar ber helst að nefna endur-
komu Emils Barja frá KR og Kára
Jónssonar sem voru báðir lykilmenn
þegar Haukar fóru í úrslit Íslands-
mótsins árið 2016.
„Þeir leikmenn sem við höfum
bætt við okkur styrkja allir hópinn.
Ef við horfum á liðið okkar á síðustu
leiktíð þá vorum við með marga
svipaða leikmenn á meðan við erum
með mun meiri breidd núna. Við er-
um þess vegna með mun öflugra
MIÐHERJAR:
Flenard Whitfield
Yngvi Freyr Óskarsson
Þjálfari: Israel Martin.
Aðstoðarþjálfari: Vilhjálmur
Steinarsson.
Árangur 2018-19: 10. sæti.
Íslandsmeistarar: 1988.
Bikarmeistarar: 1985, 1986, 1996.
Haukar taka á móti Þór frá Ak-
ureyri í fyrstu umferð deildar-
innar annað kvöld og sækja síðan
KR-inga heim í 2. umferðinni
fimmtudaginn 10. október.
BAKVERÐIR:
Aron Ás Kjartansson
Arnór Bjarki Ívarsson
Emil Barja
Gunnar Ingi Harðarson
Haukur Óskarsson
Ívar Alexander Barja
Kári Jónsson
FRAMHERJAR:
Alex Rafn Guðlaugsson
Gerald Robinson
Hjálmar Stefánsson
Kristinn Marinósson
Kjartan Steinþórsson
Þorkell Jónsson
Lið Hauka 2019-20
KOMNIR
Emil Barja frá KR
Flenard Whitfield frá KW Titans
(Kanada)
Gerald Robinson frá ÍR
Gunnar Ingi Harðarson frá Val
Kári Jónsson frá Barcelona (Spáni)
Yngvi Óskarsson frá Holbæk-
Stenhus (Danmörku)
FARNIR
Daði Lár Jónsson, í fríi
Hamid Dicko, óvíst
Hilmar Smári Henningsson í
Valencia (Spáni)
Kristján Leifur Sverrisson, í fríi
Magni Marelsson, meiddur
Óskar Már Óskarsson, hættur
Russell Woods, óvíst
Sigurður Ægir Brynjólfsson í
Leikni R. (lán)
Breytingar á liði Hauka
Haukar verða í toppbaráttu í vetur eins og van-
inn er þegar Kári Jónsson spilar með þeim.
Þeir eru aftur komnir með kjarnann sem varð
deildarmeistari fyrir rúmu ári.
Þeir eru líka með þekktar stærðir í útlendingum
í þeim Gerald Robinson, sem fór með ÍR í loka-
úrslit síðasta vetur, og Flenard Whitfield.
Whitfield er mikill skorari en mér sýnist að hann
þurfi smá tíma til að komast í sitt allra besta
form, þar sem hann virkar nokkrum kílóum of þungur.
Benedikt Guðmundsson
um Hauka
Landsleikjatörnin á dögunum sat
ekki í Andreu Jacobsen þegar hún
mætti aftur til leiks hjá félagsliði sínu,
Kristianstad, í sænsku úrvalsdeildinni
í handknattleik í gær. Andrea skoraði 8
mörk þegar Kristianstad vann Skånela
30:23 á útivelli.
Þrír Íslendingar eru í liði 11. umferð-
ar í rússnesku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu sem fram fór um nýliðna helgi
hjá rússneska netmiðlinum news.ru.
Hörður Björgvin Magnússon og Arnór
Sigurðsson sem leika með CSKA
Moskva eru í liði umferðarinnar en þeir
skoruðu hvor sitt markið í 3:0 sigri
liðsins á útivelli gegn Ural. Þá er Jón
Guðni Fjóluson einnig í liði umferð-
arinnar en hann lék allan tímann í
hjarta varnarinnar hjá Krasnodar sem
vann 2:0 sigur á móti Arsenal Tula.
Helgi Sigurðsson, fráfarandi þjálf-
ari Fylkis, mun stýra ÍBV í næstefstu
deild karla á Íslandsmótinu í knatt-
spyrnu næsta sumar. Helgi skrifaði í
gær undir þriggja ára samning við ÍBV.
Ian Jeffs og
Andri Ólafsson
stýrðu liðinu út
tímabilið en
Pedro Hipólito
hóf leiktíðina sem
þjálfari ÍBV. Hann
var látinn fara í lok
júní en ÍBV féll úr
úrvalsdeildinni
í sumar. Helgi
var áður að-
stoðarþjálfari
hjá Víkingi.
Eitt
ogannað