Morgunblaðið - 02.10.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Spretthlauparinn Shelly-
Ann Fraser-Pryce frá Jamaíka
skrifaði sig á spjöld sögunnar um
helgina þegar hún kom fyrst í
mark í 100 metra hlaupi kvenna
á heimsmeistaramótinu í frjáls-
um íþróttum sem fram fer í Doha
í Katar þessa dagana. Fraser-
Pryce er 32 ára gömul en hún var
að vinna sín áttundu gullverð-
laun á heimsmeistaramóti í
hlaupinu á sunnudaginn síðasta.
Þetta voru jafnframt fjórðu
gullverðlaun hennar í 100 metra
hlaupi en hún kom í mark á tím-
anum 10,71 sekúndu. Fraser-
Pryce var einni sekúndu frá sín-
um besta tíma í greininni en
heimsmetið í 100 metra hlaupi
kvenna er 10,49 sekúndur. Það
var hin bandaríska Florence
Griffith Joyner heitin sem setti
metið árið 1988.
Að vinna fern gullverðlaun í
sömu greininni á heimsmeist-
aramóti í frjálsum íþróttum er
ekki fyrir hvern sem er. Usain
Bolt, fljótasta manni heims,
tókst það í 200 metra hlaupi en
ekki í 100 metra hlaupi. Goð-
sögnin Michael Johnson gerði
það líka í 400 metra hlaupi en
hann er hálfgerður holdgerv-
ingur hlaupagreinanna, fyrir
mína kynslóð í það minnsta, í
gullskónum sínum, hnarreistur
eins og hani á brautinni.
Það sem mér finnst hins vegar
fáránlega merkilegt við afrek
Fraser-Price er að hún eignaðist
sitt fyrsta barn í ágúst 2017. Hún
mætti aftur til leiks á hlaupa-
brautina í ágúst 2018 og tók því
gullið í Katar rúmum tveimur ár-
um eftir að hún eignaðist sitt
fyrsta barn. Það er alvöruafrek
að mínu mati. Ég þurfti ekki einu
sinni að fæða barnið mitt í des-
ember 2018 en samt sem áður
hef ég ekki ennþá komið mér í
ræktina síðan, sökum almennrar
þreytu og leti.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Þrátt fyrir að Valskonur hafi unnið
allt sem hægt er að vinna á síðustu
körfuboltaleiktíð, með frekar örugg-
um hætti, bíður liðsins þrautin
þyngri að verða Íslandsmeistari í vor.
Reykvískur risi hefur rankað al-
mennilega við sér eftir dvala og mót-
að lið vestur af Hlíðarenda sem litlu
síður en Valur myndi sætta sig við að
landa ekki „þeim stóra“.
Keppni í úrvalsdeildinni, Dominos-
deildinni, hefst í kvöld með heilli um-
ferð. Meistarar Vals hefja titilvörn-
ina gegn nýliðum Grindavíkur suður
með sjó, KR fær Keflavík í heimsókn,
Snæfell mætir Breiðabliki og Skalla-
grímur tekur á móti Haukum.
Valur og KR, sem háðu nokkuð
spennandi einvígi í undanúrslitum Ís-
landsmótsins á síðustu leiktíð, eru
liða sigurstranglegust á mótinu nú
þegar það er að hefjast. KR kom af
fítonskrafti inn í deildina í fyrra, sem
nýliði, og var á toppnum eftir jóla-
fríið. Þó að vissulega hafi fjarað að-
eins undan á seinni hluta tímabilsins
komst KR í úrslitakeppnina og veitti
Val þar keppni eins og fyrr segir. Í
sumar má svo segja að heilt lið öfl-
ugra leikmanna hafi bæst við hópinn
hjá landsliðsþjálfaranum Benedikti
Guðmundssyni í Vesturbænum. Þar
munar miklu um komu Hildar Bjarg-
ar Kjartansdóttur, sem var í lykil-
hlutverki hjá Celta Vigo síðasta vetur
og hársbreidd frá því að komast með
liðinu upp í efstu deild Spánar. Hild-
ur, sem er 24 ára, leikur í kvöld sinn
fyrsta leik í íslensku deildinni síðan
vorið 2014 þegar hún yfirgaf Snæfell
og hélt til Bandaríkjanna. Danielle
Rodriguez og Alexandra Eva Sverr-
isdóttir komu úr Stjörnurústunum í
Garðabæ, og Sóllilja Bjarnadóttir og
Sanja Orozovic frá Breiðabliki sem
var fallið en fékk svo að taka sæti
Stjörnunnar í deildinni í sumar.
Rodriguez hefur verið einn albesti
leikmaður deildarinnar þrjú síðustu
ár og þær Sóllilja og Orozovic voru
burðarásar hjá Blikum. Þá virðist
sem svo að Margrét Kara Sturludótt-
ir taki fram skóna eftir langt hlé og
spili á ný með KR, en þessi fyrrver-
andi besti leikmaður deildarinnar lék
síðast vorið 2016, þá með Stjörnunni.
Haukar endurheimta
sterka leikmenn
Breytingarnar hafa verið minni
hjá Val, sem teflir nú Helenu Sverris-
dóttur fram frá byrjun leiktíðar. Val-
ur hefur þó misst fjóra leikmenn sem
léku nokkuð stór hlutverk fyrir liðið.
Skörðin hafa verið vel fyllt með komu
Kiönu Johnson, sem var afar öflug
með KR á síðustu leiktíð, slóvakíska
miðherjanum Reginu Palusna og
Sylvíu Rún Hálfdanardóttur, Hauka-
konunni sem leikið hefur með öllum
landsliðum Íslands og fór á kostum í
1. deild með Þór Akureyri síðasta
vetur.
Ef spádómarnir ganga eftir má því
segja að tvö sæti séu laus í úrslita-
keppninni. Keflavík, Haukar og Snæ-
fell virðast líklegust til þess að berj-
ast um þau. Lovísa Björt Hennings-
dóttir mun styrkja lið Hauka mikið
eftir fimm ára dvöl í Bandaríkjunum,
en landsliðskonan stefnir á að komast
í atvinnumennsku á meginlandi Evr-
ópu. Dýrfinna Arnardóttir er einnig
komin aftur í lið Hauka eftir að hafa
átt sinn þátt í Íslandsmeistaratitl-
inum 2018, sem og Auður Íris Ólafs-
dóttir eftir dvöl hjá Stjörnunni,
Breiðabliki og Skallagrími. Haukar
urðu í 6. sæti á síðustu leiktíð, sinni
fyrstu undir stjórn Ólafar Helgu
Pálsdóttur, en liðið lék síðustu tvo
mánuðina án bandarísks leikmanns
eftir brotthvarf LeLe Hardy.
Keflavíkurkonur komust í úrslit
síðasta vor en máttu sín lítils gegn
Val. Síðan þá hafa allir helstu burðar-
ásar liðsins stigið til hliðar, þar á
meðal Brittany Dinkins sem skilaði
hæstu framlagi allra leikmanna deild-
arinnar á síðustu leiktíð, samkvæmt
tölfræðinni. Mikið mun mæða á Dani-
elu Wallen sem er komin í hennar
stað, en stöðugt virðast þó koma fram
á sjónarsviðið nýir, ungir og öflugir
leikmenn í Keflavík.
Jón Halldór Eðvaldsson er tekinn
við þjálfun Keflavíkur og Snæfell er
einnig með nýjan þjálfara, Gunnlaug
Smárason. Eftir þrjá Íslandsmeist-
aratitla í röð og deildarmeistaratitil
2017 hafa Snæfellskonur þurft að
sætta sig við að missa með naum-
indum af úrslitakeppninni tvö síðustu
tímabil. Gunnhildur Gunnarsdóttir
verður áfram máttarstólpi í liðinu en
meiri óvissa ríkir um hvenær Berg-
lind systir hennar stimplar sig inn
eftir aðgerð vegna axlarmeiðsla í
sumar. Kristen McCarthy (stundum
kölluð Gunnarsdóttir) er einnig
áfram í hópnum, eftir að hafa skorað
flest stig að meðaltali í leik í deildinni
á síðustu leiktíð, en hún missti af lok-
um síðustu leiktíðar vegna höfuð-
meiðsla og staða hennar er óljós. Í
hennar stað er komin Chandler
Smith. Þá hefur Snæfell fengið
finnsku landsliðskonuna Veera Pirtt-
inen og hina serbnesk/ungversku
Emese Vida.
Úr leikmanni í þjálfara í sumar
Skallagrími, Grindavík og Breiða-
bliki er spáð neðstu sætunum, sem
rímar vel við gengi liðanna á síðustu
leiktíð. Síðustu ár hafa verið hálfgerð
rússíbanareið hjá Skallagrímsliðinu,
sem komst upp í úrvalsdeild 2016, lék
í úrslitakeppni og fékk silfur í bik-
arnum, en hefur síðan dalað og tapaði
tíu síðustu leikjum sínum á síðustu
leiktíð og endaði í næstneðsta sæti.
Þjálfaraskipti hafa verið tíð í Borgar-
nesi og nýverið var tilkynnt að Guð-
rún Ósk Ámundadóttir tæki við sem
aðalþjálfari, eftir að hafa lokið farsæl-
um ferli sínum sem leikmaður þegar
hún var spilandi aðstoðarþjálfari
hinnar serbnesku Biljönu Stankovic
síðasta vetur. Hún mun meðal annars
stýra systrum sínum tveimur og
hinni pólsku Maju Michalska sem
hefur komið sér vel fyrir í Borgar-
nesi.
Grindavík komst upp úr 1. deild
síðasta vor, á fyrstu leiktíðinni undir
stjórn Jóhanns Árna Ólafssonar, eftir
að hafa þar slegið Fjölni við í úrslita-
keppninni. Í bland við yngri og efni-
lega leikmenn eru í hópnum Ingi-
björg Jakobsdóttir og hin bandaríska
Kamilah Jackson, auk þess sem
landsliðskonan Bríet Sif Hinriks-
dóttir er komin til félagsins eftir gott
tímabil hjá Stjörnunni.
Breiðablik er fjórða liðið í deildinni
sem mætir til leiks með nýjan þjálf-
ara en Ívar Ásgrímsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari, er mættur í Kópa-
voginn frá Ásvöllum. Blikakonur
unnu fjóra af 28 leikjum sínum síð-
asta vetur og féllu en fengu svo sætið
sem Stjarnan skildi eftir laust þegar
Garðbæingar drógu lið sitt úr keppni.
Breiðablik hefur hins vegar misst
burðarása frá síðustu leiktíð og erfitt
að sjá að liðið mæti sterkara til leiks
nú en síðasta vetur, nema þá vegna
komu góðs þjálfara.
Tveggja Reykjavíkurturna
tal á toppnum í vetur
KR styrkst mikið fyrir baráttuna við Val Fjórir nýir þjálfarar hjá liðunum átta
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistarar Guðbjörg Sverrisdóttir og Hallveig Jónsdóttir taka við verðlaunagripnum eftir sigur Vals á Keflavík í
Meistarakeppni KKÍ á dögunum. Valskonur eru handhafar allra titlanna sem í boði eru nú þegar ný leiktíð hefst.