Morgunblaðið - 02.10.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 02.10.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Spretthlauparinn Shelly- Ann Fraser-Pryce frá Jamaíka skrifaði sig á spjöld sögunnar um helgina þegar hún kom fyrst í mark í 100 metra hlaupi kvenna á heimsmeistaramótinu í frjáls- um íþróttum sem fram fer í Doha í Katar þessa dagana. Fraser- Pryce er 32 ára gömul en hún var að vinna sín áttundu gullverð- laun á heimsmeistaramóti í hlaupinu á sunnudaginn síðasta. Þetta voru jafnframt fjórðu gullverðlaun hennar í 100 metra hlaupi en hún kom í mark á tím- anum 10,71 sekúndu. Fraser- Pryce var einni sekúndu frá sín- um besta tíma í greininni en heimsmetið í 100 metra hlaupi kvenna er 10,49 sekúndur. Það var hin bandaríska Florence Griffith Joyner heitin sem setti metið árið 1988. Að vinna fern gullverðlaun í sömu greininni á heimsmeist- aramóti í frjálsum íþróttum er ekki fyrir hvern sem er. Usain Bolt, fljótasta manni heims, tókst það í 200 metra hlaupi en ekki í 100 metra hlaupi. Goð- sögnin Michael Johnson gerði það líka í 400 metra hlaupi en hann er hálfgerður holdgerv- ingur hlaupagreinanna, fyrir mína kynslóð í það minnsta, í gullskónum sínum, hnarreistur eins og hani á brautinni. Það sem mér finnst hins vegar fáránlega merkilegt við afrek Fraser-Price er að hún eignaðist sitt fyrsta barn í ágúst 2017. Hún mætti aftur til leiks á hlaupa- brautina í ágúst 2018 og tók því gullið í Katar rúmum tveimur ár- um eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn. Það er alvöruafrek að mínu mati. Ég þurfti ekki einu sinni að fæða barnið mitt í des- ember 2018 en samt sem áður hef ég ekki ennþá komið mér í ræktina síðan, sökum almennrar þreytu og leti. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is KÖRFUBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Þrátt fyrir að Valskonur hafi unnið allt sem hægt er að vinna á síðustu körfuboltaleiktíð, með frekar örugg- um hætti, bíður liðsins þrautin þyngri að verða Íslandsmeistari í vor. Reykvískur risi hefur rankað al- mennilega við sér eftir dvala og mót- að lið vestur af Hlíðarenda sem litlu síður en Valur myndi sætta sig við að landa ekki „þeim stóra“. Keppni í úrvalsdeildinni, Dominos- deildinni, hefst í kvöld með heilli um- ferð. Meistarar Vals hefja titilvörn- ina gegn nýliðum Grindavíkur suður með sjó, KR fær Keflavík í heimsókn, Snæfell mætir Breiðabliki og Skalla- grímur tekur á móti Haukum. Valur og KR, sem háðu nokkuð spennandi einvígi í undanúrslitum Ís- landsmótsins á síðustu leiktíð, eru liða sigurstranglegust á mótinu nú þegar það er að hefjast. KR kom af fítonskrafti inn í deildina í fyrra, sem nýliði, og var á toppnum eftir jóla- fríið. Þó að vissulega hafi fjarað að- eins undan á seinni hluta tímabilsins komst KR í úrslitakeppnina og veitti Val þar keppni eins og fyrr segir. Í sumar má svo segja að heilt lið öfl- ugra leikmanna hafi bæst við hópinn hjá landsliðsþjálfaranum Benedikti Guðmundssyni í Vesturbænum. Þar munar miklu um komu Hildar Bjarg- ar Kjartansdóttur, sem var í lykil- hlutverki hjá Celta Vigo síðasta vetur og hársbreidd frá því að komast með liðinu upp í efstu deild Spánar. Hild- ur, sem er 24 ára, leikur í kvöld sinn fyrsta leik í íslensku deildinni síðan vorið 2014 þegar hún yfirgaf Snæfell og hélt til Bandaríkjanna. Danielle Rodriguez og Alexandra Eva Sverr- isdóttir komu úr Stjörnurústunum í Garðabæ, og Sóllilja Bjarnadóttir og Sanja Orozovic frá Breiðabliki sem var fallið en fékk svo að taka sæti Stjörnunnar í deildinni í sumar. Rodriguez hefur verið einn albesti leikmaður deildarinnar þrjú síðustu ár og þær Sóllilja og Orozovic voru burðarásar hjá Blikum. Þá virðist sem svo að Margrét Kara Sturludótt- ir taki fram skóna eftir langt hlé og spili á ný með KR, en þessi fyrrver- andi besti leikmaður deildarinnar lék síðast vorið 2016, þá með Stjörnunni. Haukar endurheimta sterka leikmenn Breytingarnar hafa verið minni hjá Val, sem teflir nú Helenu Sverris- dóttur fram frá byrjun leiktíðar. Val- ur hefur þó misst fjóra leikmenn sem léku nokkuð stór hlutverk fyrir liðið. Skörðin hafa verið vel fyllt með komu Kiönu Johnson, sem var afar öflug með KR á síðustu leiktíð, slóvakíska miðherjanum Reginu Palusna og Sylvíu Rún Hálfdanardóttur, Hauka- konunni sem leikið hefur með öllum landsliðum Íslands og fór á kostum í 1. deild með Þór Akureyri síðasta vetur. Ef spádómarnir ganga eftir má því segja að tvö sæti séu laus í úrslita- keppninni. Keflavík, Haukar og Snæ- fell virðast líklegust til þess að berj- ast um þau. Lovísa Björt Hennings- dóttir mun styrkja lið Hauka mikið eftir fimm ára dvöl í Bandaríkjunum, en landsliðskonan stefnir á að komast í atvinnumennsku á meginlandi Evr- ópu. Dýrfinna Arnardóttir er einnig komin aftur í lið Hauka eftir að hafa átt sinn þátt í Íslandsmeistaratitl- inum 2018, sem og Auður Íris Ólafs- dóttir eftir dvöl hjá Stjörnunni, Breiðabliki og Skallagrími. Haukar urðu í 6. sæti á síðustu leiktíð, sinni fyrstu undir stjórn Ólafar Helgu Pálsdóttur, en liðið lék síðustu tvo mánuðina án bandarísks leikmanns eftir brotthvarf LeLe Hardy. Keflavíkurkonur komust í úrslit síðasta vor en máttu sín lítils gegn Val. Síðan þá hafa allir helstu burðar- ásar liðsins stigið til hliðar, þar á meðal Brittany Dinkins sem skilaði hæstu framlagi allra leikmanna deild- arinnar á síðustu leiktíð, samkvæmt tölfræðinni. Mikið mun mæða á Dani- elu Wallen sem er komin í hennar stað, en stöðugt virðast þó koma fram á sjónarsviðið nýir, ungir og öflugir leikmenn í Keflavík. Jón Halldór Eðvaldsson er tekinn við þjálfun Keflavíkur og Snæfell er einnig með nýjan þjálfara, Gunnlaug Smárason. Eftir þrjá Íslandsmeist- aratitla í röð og deildarmeistaratitil 2017 hafa Snæfellskonur þurft að sætta sig við að missa með naum- indum af úrslitakeppninni tvö síðustu tímabil. Gunnhildur Gunnarsdóttir verður áfram máttarstólpi í liðinu en meiri óvissa ríkir um hvenær Berg- lind systir hennar stimplar sig inn eftir aðgerð vegna axlarmeiðsla í sumar. Kristen McCarthy (stundum kölluð Gunnarsdóttir) er einnig áfram í hópnum, eftir að hafa skorað flest stig að meðaltali í leik í deildinni á síðustu leiktíð, en hún missti af lok- um síðustu leiktíðar vegna höfuð- meiðsla og staða hennar er óljós. Í hennar stað er komin Chandler Smith. Þá hefur Snæfell fengið finnsku landsliðskonuna Veera Pirtt- inen og hina serbnesk/ungversku Emese Vida. Úr leikmanni í þjálfara í sumar Skallagrími, Grindavík og Breiða- bliki er spáð neðstu sætunum, sem rímar vel við gengi liðanna á síðustu leiktíð. Síðustu ár hafa verið hálfgerð rússíbanareið hjá Skallagrímsliðinu, sem komst upp í úrvalsdeild 2016, lék í úrslitakeppni og fékk silfur í bik- arnum, en hefur síðan dalað og tapaði tíu síðustu leikjum sínum á síðustu leiktíð og endaði í næstneðsta sæti. Þjálfaraskipti hafa verið tíð í Borgar- nesi og nýverið var tilkynnt að Guð- rún Ósk Ámundadóttir tæki við sem aðalþjálfari, eftir að hafa lokið farsæl- um ferli sínum sem leikmaður þegar hún var spilandi aðstoðarþjálfari hinnar serbnesku Biljönu Stankovic síðasta vetur. Hún mun meðal annars stýra systrum sínum tveimur og hinni pólsku Maju Michalska sem hefur komið sér vel fyrir í Borgar- nesi. Grindavík komst upp úr 1. deild síðasta vor, á fyrstu leiktíðinni undir stjórn Jóhanns Árna Ólafssonar, eftir að hafa þar slegið Fjölni við í úrslita- keppninni. Í bland við yngri og efni- lega leikmenn eru í hópnum Ingi- björg Jakobsdóttir og hin bandaríska Kamilah Jackson, auk þess sem landsliðskonan Bríet Sif Hinriks- dóttir er komin til félagsins eftir gott tímabil hjá Stjörnunni. Breiðablik er fjórða liðið í deildinni sem mætir til leiks með nýjan þjálf- ara en Ívar Ásgrímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, er mættur í Kópa- voginn frá Ásvöllum. Blikakonur unnu fjóra af 28 leikjum sínum síð- asta vetur og féllu en fengu svo sætið sem Stjarnan skildi eftir laust þegar Garðbæingar drógu lið sitt úr keppni. Breiðablik hefur hins vegar misst burðarása frá síðustu leiktíð og erfitt að sjá að liðið mæti sterkara til leiks nú en síðasta vetur, nema þá vegna komu góðs þjálfara. Tveggja Reykjavíkurturna tal á toppnum í vetur  KR styrkst mikið fyrir baráttuna við Val  Fjórir nýir þjálfarar hjá liðunum átta Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Meistarar Guðbjörg Sverrisdóttir og Hallveig Jónsdóttir taka við verðlaunagripnum eftir sigur Vals á Keflavík í Meistarakeppni KKÍ á dögunum. Valskonur eru handhafar allra titlanna sem í boði eru nú þegar ný leiktíð hefst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.