Morgunblaðið - 02.10.2019, Side 27

Morgunblaðið - 02.10.2019, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: HANDBOLTI Grill 66 deild karla Valur U – Þróttur ................................. 27:35 Staða efstu liða: KA U 2 2 0 0 70:43 4 Þróttur 2 2 0 0 71:56 4 Þór Ak. 2 2 0 0 59:49 4 Haukar U 2 1 0 1 48:49 2 Valur U 2 1 0 1 58:56 2 Grill 66 deild kvenna Selfoss – Fylkir..................................... 22:17 Staða efstu liða: Selfoss 3 3 0 0 73:57 6 Fram U 2 2 0 0 62:47 4 ÍR 2 2 0 0 57:46 4 HK U 2 2 0 0 54:46 4 Grótta 2 1 0 1 51:54 2 FH 2 1 0 1 48:54 2 Fylkir 3 1 0 2 58:65 2 Þýskaland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Leipzig – Melsungen ........................... 27:30  Viggó Kristjánsson skoraði ekki fyrir Leipzig. Spánn Barcelona – Granollers....................... 38:24  Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk fyrir Barcelona. Svíþjóð Alingsås – Guif..................................... 29:26  Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir Alingsås. Skånela – Kristianstad ....................... 23:30  Andrea Jacobsen skoraði 8 mörk fyrir Kristianstad. Evrópubikar FIBA Undankeppni, fyrri leikur: Borås – Pinar Karsiyaka.................... 70:77  Elvar Már Friðriksson skoraði 7 stig, tók 5 fráköst og gaf 4 stoðsendingar fyrir Borås. KÖRFUBOLTI KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Borgarnes: Skallagrímur – Haukar ... 19.15 Mustad-höll: Grindavík – Valur .......... 19.15 Stykkishólmur: Snæfell – Breiðablik . 19.15 DHL-höllin: KR – Keflavík ................. 19.15 KNATTSPYRNA Undankeppni EM U19 kvenna: Víkingsvöllur: Ísland – Grikkland ........... 17 Origo-völlur: Kasakstan – Spánn............. 17 Unglingadeild UEFA, fyrri leikur: Norðurálsvöllur: ÍA – Levadia Tallinn.... 16 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: TM-höllin: Stjarnan U – Fram U........ 19.45 Í KVÖLD! HM Í DOHA Bjarni Heglason bjarnih@mbl.is Hlauparinn Donavan Brazier frá Bandaríkjunum varð heims- meistari í fyrsta sinn í gær þegar hann kom í mark á tímanum 1:42,34 í 800 metra hlaupi karla á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Doha í Katar. Brazier, sem er 22 ára gamall, sló mótsmet Keníumannsins Billy Konchellah frá 1987 um tæplega eina og hálfa sekúndu en sá tími var 1:43,60. Amel Tuka frá Bosníu varð annar á tím- anum 1:43,47 og Ferguson Cheruiyot Rotich frá Keníu varð þriðji á tímanum 1:48,82.. Spretthlauparinn Noah Lyles frá Bandaríkjunum kom fyrstur í mark í 200 metra hlaupi karla en Lyles kom í mark á tímanum 19,83 sekúndur og var tólf hundraðshlutum úr sek- úndu á undan næsta manni. Andre De Grasse frá Kanada sem varð annar á tímanum 19,95 sekúndum og Alex Quinónez frá Ekvador kom þriðji í mark á tímanum 19,98 sekúndur. Þetta voru fyrstu verðlaun Lyles á heimsmeistaramóti en hann er einungis 22 ára gamall. Kelsey-Lee Barber frá Ástralíu bar sigur úr býtum í spjót- kasti kvenna en þetta var fyrsti heimsmeistaratitill Barber í spjótkasti. Hún var fjórða fyrir lokakast sitt þar sem hún hafði lengst kastað 63,65 metra. Hún kastaði spjótinu 66,56 metra í lokakastinu og fór þar með fram úr þeim Shiying Liu og Huihui Lyu frá Kína. Besti árangur Barber á heimsmeistaramóti var tíunda sætið í Lund- únum árið 2017 en hún er 28 ára gömul. Þá fagnaði Sam Kendrick frá Bandaríkjunum sigri í stang- arstökku karla en hann stökk hæst 5,97 metra. Svíinn Armand Duplantis hafnaði í öðru sæti og Pólverjinn Piotr Lisek í þriðja sæti. Sló 32 ára gamalt mótsmet  Fyrstu gullverðlaun bandarísku hlauparanna  Tryggði sér gull í lokakastinu AFP Fljótastur Donavan Brazier kom fyrstur í mark í 800 metra hlaupi karla og bætti 32 ára gamalt mótsmet í leiðinni. Þetta voru hans fyrstu gullverðlaun á HM. Elvar Már Friðriksson, landsliðs- maður í körfuknattleik, lék í gær Evrópuleik með sænska liðinu Bo- rås. Elvar skoraði sjö stig en mátti sætta sig við tap gegn tyrkneska liðinu Pinar Karsiyaka á heimavelli 70:77 í undankeppni Evrópubikars FIBA í körfuknattleik. Liðin eiga eftir að mætast í Tyrklandi og tyrk- neska liðið á því alla möguleika á að komast áfram í riðlakeppnina. Elvar lék í tæpar 24 mínútur í og tók fimm fráköst auk þess að gefa fjórar stoðsendingar á samherja sína. sport@mbl.is Tap hjá Borås í Evrópukeppninni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Evrópuleikur Elvar Már skoraði 7 stig gegn Tyrkjunum. Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði fjögur mörk þegar lið hans Barcelona vann fjór- tán marka sigur gegn Granollers í spænsku 1. deildinni í handknatt- leik í gærkvöldi. Leiknum lauk með 38:24-sigri Barcelona en sigur spænsku meistaranna var aldrei í hættu. Barcelona er í efsta sæti deild- arinnar með 10 stig eftir fyrstu fimm leiki sína, tveimur stigum meira en Cuenca, sem er í öðru sæt- inu. Er liðið langsigurstranglegast eins og undanfarin ár. Barcelona með fullt hús stiga Ljósmynd/IHF 4 mörk Aron Pálmarsson er á toppnum með Barcelona. Bjarki Már Elísson, hornamaðurinn knái í íslenska landsliðinu í hand- knattleik sem leikur með Lemgo, er í úrvalsliði 7. umferðar í þýsku Bundesligunni. Bjarki Már fór mikinn með liði Lemgo á sunnudaginn þegar lið hans tapaði fyrir Minden. Bjarki skoraði 12 mörk í leiknum og er annar markahæsti leikmaður deild- arinnar með 51 mark. Hefur hann skorað þremur mörkum minna en hinn hálfíslenski Hans Óttar Lind- berg, leikmaður Füchse Berlin. Lindberg er einnig í liði vikunnar en hann skoraði 9 mörk í sigri Berl- ínarliðsins á móti Ludwigshafen. Voru þeir einmitt samherjar hjá Füsche Berlín í fyrra. Bjarki tók þá ákvörðun að skipta yfir til Lemgo eftir nokkur ár í Berlín og sagði meðal annars í samtali við Morgun- blaðið að hann myndi eiga tækifæri á því að skora fleiri mörk í liði Lemgo. Virðist það nú vera að ganga eftir í ljósi þess að Bjarki er næstmarkahæstur í deildinni að svo stöddu. sport@mbl.is Lemgo Hraðaupphlaup Bjarki Már Elísson raðar inn mörkunum hjá nýju liði. Bjarki Már valinn í lið umferðarinnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.