Morgunblaðið - 02.10.2019, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2019
Þægileg leið fyrir viðskiptavininn. Kemur honum í
beint samband við réttan starfsmann sem klárar
málið. Góð yfirsýn og gegnsæi með verkefnunum.
Kynntu þér málið á www.eignarekstur.is
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Þjónustugátt Eignareksturs
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
Fyrstu tónleikar Kammer-músíkklúbbsins veturinn2019-20 hófust í einmunahaustblíðu sl. sunnudag
við hefðbundna hámarkssætanýt-
ingu. Að vísu var meðalaldur hlust-
enda að vanda með hærra móti – en
svo kvað reyndar hafa verið allt frá
upphafi KMK 1957!
En þó að netframboð seinni ára
hafi snaraukið nálgunarmöguleika
almennings að perlum vestrænnar
tónsköpunar helzt áfram í fullu
gildi lögmálið um að aðeins lang-
tíma reynsla geri mönnum kleift að
greina kjarna frá hismi. Til að flýta
því ferli væri kannski athugandi að
setja nokkrar örvandi ,tónbeitur‘
inn á vef klúbbsins og koma þannig
yngri hlustendum á bragðið.
Kammerviðfangsefni síðdegisins
fengust varla klassískari. Tveir
píanókvintettar (v.a.m. ekki fyrir
fimm píanó heldur slaghörpu og
strengjakvartett; hljóðfæraáhöfn
sem staðlaðist snemma sunnar í
Evrópu á 19. öld).
Fyrra verkið var löngu alþekkt,
enda meðal fremstu tónsögudæma
þeirrar greinar: æskuverk Johann-
esar Brahms, er hafði áður ratað í
fjölmargar útgáfur. Fyrst sem
píanókonsert (Op. 15), svo sinfóníu,
síðan strengjakvintett frá 1862 (f.
pnó/f/vla/selló/kb) , þarnæst píanó-
dúó (Op. 34b) – en loks eftirverandi
Píanókvintett í f-moll frá 1864.
Kannski dæmigert um eitt sjálfs-
gagnrýnasta tónskáld 19. aldar sem
grunað er um að hafa fargað jafnvel
fleiri tónverkum en það skildi eftir.
Meistaratilþrif Brahms komu vel
fram í fágaðri túlkun fimmmenn-
inganna, þrátt fyrir full hófstillta
ástríðu í I. Annar þáttur naut hins
vegar syngjandi móðurlegrar
flauelsblíðu, og hott-hottandi grað-
hestascherzóið (III.) hressilegrar
hrynsnerpu. Þá var né heldur til
ama skopstælandi puntudúkku-
kímnin í einum kafla Fínalsins,
áður en allt færðist á funheitt loka-
flug.
Seinna verk dagskrár vakti að
líkindum mesta eftirvæntingu fyrir
orðsporið af sennilega fyrsta flutn-
ingi þess hér á landi, þ.e.a.s. á tón-
leikum KMK 25. nóvember 2007 er
kvað hafa vakið mikla hrifningu.
Enda væri synd að segja að Sergei
Ivanovitsj Tanejev (1856-1915)
standi jafnfætis Brahms að heims-
frægð.
Við nánari skoðun kom hins veg-
ar í ljós að þessi hálfgleymdi læri-
sveinn Tsjækovskíjs var ekki aðeins
bráðger píanósnillingur (frumflutti
t.d. 1. konsert Pjotrs) heldur einn
fremsti raddfærslufræðingur Rússa
og ætti því a.m.k. að vera girnilegur
unnendum vandaðrar pólýfóníu.
Upphaf hins fjórþætta Píanó-
kvintetts í g-moll frá 1911 vakti þó
blendnar tilfinningar. Þrátt fyrir
víða spennuþrungin tjábrigði þótti
manni vanta létta andstæðufleti,
ekki sízt vegna lengdar (18 mín.!).
Urðu heildaráhrifin að sama skapi
frekar knúsuð.
Innþættirnir voru hins vegar
bráðskemmtilegir í vestrænni síð-
rómantík Tanejevs með litbrigðum
frá bæði imp- og expressjónisma.
Scherzóið (II.) dansaði spriklandi
sprækt á tá og fingri, og Largóið
næst á eftir var með frumlegustu
passacaglíum sem maður hafði eyr-
um barið; tignarlegt en með gáska-
fulla óþekkt undir niðri. Hvort
tveggja í frábærri hrynsnarpri túlk-
un þeirra fimmenninga með sænsku
Monu Kontra fremsta meðal jafn-
ingja fyrir sveigjanlegan og hárná-
kvæman píanóleik.
Síðasti þáttur var að nokkru
sama marki brenndur og sá fyrsti;
boldangsþétt dramatík með full-
fáum kontröstum. Gerði þó gæfu-
muninn að hann var helmingi
styttri (9 mín.) og ofbauð því síður
þolinmæði hlustenda. Og auðvitað
sakaði ekki heldur innlifuð spila-
mennska hópsins. Þar var ekkert
gefið eftir, og voru undirtektir tón-
leikagesta eftir því hlýjar.
Alþekkt og óþekkt
Fáguð „Meistaratilþrif Brahms komu vel fram í fágaðri túlkun fimmmenninganna,“ segir í rýni.
Norðurljósum Hörpu
Kammertónleikar bbbbn
Brahms: Píanókvintett í f, Op. 34.
Tanejev: Píanókvintett g, Op. 30. Trio
Nordica (Auður Hafsteinsdóttir fiðla,
Bryndís Halla Gylfadóttir selló, Mona
Kontra píanó), Helga Þóra Björgvins-
dóttir fiðla og Þórunn Marinósdóttir
víóla. Sunnudaginn 29. september
2019 kl. 16.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Bókaforlagið Salka gefur út fjöl-
breyttar bækur fyrir börn og full-
orðna, en flestar bókanna eru ýmist
fyrir yngstu kynslóðina og eða alla
fjölskylduna.
Útivera heitir bók Sabínu Stein-
unnar Halldórsdóttur sem hefur að
geyma hugmyndir til að fjölga gæða-
stundum fjölskyldunnar úti í náttúr-
unni á öllum árstímum. Sabína hefur
sérhæft sig í hreyfifærni barna með
áherslu á útivist í námi og starfi. Hún
hefur haldið fjölda námskeiða og
skrifað kennslubækur um efnið sem
er henni afar hugleikið.
Spennubókin Fjötrar eftir Sól-
veigu Pálsdóttur segir frá því er kona
finnst látin í klefa sínum í fangelsinu
á Hólmsheiði. Guðgeir og félagar
hans rannsaka málið sem reynist
hafa ótal þræði og teygja anga sína
víða, alla leið til stóra skjálftans um
aldamótin þar sem ungur maður
hvarf sporlaust.
Salka gefur einnig út fyrstu skáld-
sögu Díönu Sjafnar Jóhannsdóttur
sem nefnist Ólyfjan og tekst meðal
annars á við eitraða karlmennsku.
Nína óskastjarna og ævintýrið á
Álfhóli eftir Helgu Arnardóttur er
einnig fyrsta bók höfundar. Bókin
segir frá Nínu sem er dugleg að
heimsækja ömmu Grímeyju í sveitina
og hjálpa henni með bústörfin. Einn
daginn breytist allt þegar ömmu er
tilkynnt að það eigi að byggja stórt
lúxushótel á lóðinni hennar og Nína
ákveður að taka málin í sínar hendur.
Ylfa Rún Jörundsdóttir mynd-
skreytir bókina.
Ný matreiðslubók Evu Laufeyjar
Kjaran Hermannsdóttur heitir Í eld-
húsi Evu og hefur að geyma eftirlæt-
isuppskriftir Evu.
Blesa og leitin að grænna grasi
heitir barnabók eftir Láru Garðars-
dóttur sem segir frá Blesu, hryssu í
haga sem leiðist ógurlega mikið. Týri,
vinur hennar, rekur hana af stað í
leiðangur um allt land.
Einnig er væntanleg ný bók Iðunn-
ar Steinsdóttur um Snuðru og Tuðru,
Snuðra og Tuðra taka til, sem Lóa
Hlín Hjálmtýsdóttir myndskreytir.
Kormákur leikur sér er fjórða bók-
in um snáðann Kormák eftir Jónu
Valborgu Árnadóttur og Elsu Niel-
sen og segir frá því er Finna frænka
kemur í heimsókn með óvæntan
glaðning.
Einnig er vænt-
anleg íslensk þýð-
ing á Becoming,
bók Michelle
Obama, fyrrum
forsetafrúar
Bandaríkjanna,
og mun heita
Verðandi á ís-
lensku. Katrín
Harðardóttir þýð-
ir.
Á árinu hefur Salka gefið út nokkr-
ar bækur, þar a meðal Vökukonuna í
Hólavallagarði eftir Guðrúnu Rann-
veigu Stefánsdóttur, Snuðru og
Tuðru í sólarlöndum eftir þær Iðunni
Steinsdóttur og Lóu Hlín Hjálmtýs-
dóttur, Kormák dýravin eftir Jónu
Valborgu Árnadóttur og Elsu Niel-
sen og Krakkajóga - einfaldar jóga-
stöður fyrir hressa krakka á öllum
aldri eftir Lorena Pajalunga.
arnim@mbl.is
Fjölbreyttar bækur fyrir börn og fullorðna
Jóna Valborg
Árnadóttir
Díana Sjöfn
Jóhannsdóttir
Helga
Arnardóttir
Sabína Steinunn
Halldórsdóttir
Salka gefur meðal annars út barnabækur, reyfara, matreiðslubók og bækur fyrir alla fjölskylduna
Lára
Garðarsdóttir
Sólveig
Pálsdóttir
Iðunn
Steinsdóttir