Morgunblaðið - 02.10.2019, Page 32

Morgunblaðið - 02.10.2019, Page 32
Guðrún Eva Mínervudóttir og Frið- geir Einarsson koma saman til að ræða ný og eldri verk, framtíðar- drauma og hversdagsvenjur í Borgarbókasafninu í Gerðubergi í kvöld kl. 20. Bókakaffi í Gerðubergi er hluti svokallaðra Kaffistunda sem boðið er upp á reglulega í menningarhúsum Borgarbóka- safnsins. Þar koma bókunnendur, lestrarhestar, rithöfundar og skáld saman og deila ást sinni á bók- menntum. Framtíðardraumar og hversdagsvenjur MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 275. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Þrátt fyrir að Valskonur hafi unnið allt sem hægt er að vinna á síðustu körfuboltaleiktíð, með frekar öruggum hætti, bíður liðsins þraut- in þyngri að verða Íslandsmeistari í vor. Reykvískur risi hefur rankað al- mennilega við sér eftir dvala,“ segir meðal annars í umfjöllun um Ís- landsmót kvenna í körfuknatt- leik í blaðinu í dag. »25 Valur og KR líkleg til að berjast um sigurinn ÍÞRÓTTIR MENNING Haukur Óskarsson, lykilmaður í körfuboltaliði Hauka í Hafnarfirði, segir að mun bjartara sé yfir kom- andi keppnistímabili hjá Haukunum en síðasta vetur þegar þeir enduðu í tíunda sæti. „Það er kominn nýr þjálfari, við höfum bætt við okkur sterkum leikmönnum og svo hafa lykilmenn snúið aftur,“ segir Haukur, sem telur að Hafnarfjarðarliðið geti hæglega verið með í baráttunni um titlana í vetur. »24 Haukar tilbúnir að berjast um titlana Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Flugumferðarstjórinn Guðmundur Karl Einarsson heldur úti vefsíðunni kirkjuklukkur.is þar sem hann skrá- ir upplýsingar um kirkjuklukkur á Íslandi og heldur ómi þeirra til haga. Verkefnið er unnið í samráði við Biskupsstofu og með samþykki bisk- ups Íslands. Frá 2013 hefur hann skrifað um klukkur í 65 af 377 kirkjum landsins. Eftir fermingu sinnti Guðmundur æskulýðsstarfi við Digraneskirkju í Kópavogi. Þar eru engar klukkur og hann fékk þá hugmynd að fá upp- töku Ríkisútvarpsins af klukkna- hljómi Dómkirkjunnar og hringja þannig inn jólin í Digraneskirkju. „Við gerðum þetta nokkur jól í röð, settum upp hátalara úti og inni í kirkjunni, og í kjölfarið kviknaði þessi hugmynd að safna saman klukknahljómi í kirkjum landsins.“ Agnes Sigurðardóttir, biskup Ís- lands, veitti samþykki sitt fyrir verk- efninu. Í fyrstu fékk Guðmundur upptökur, sem Ríkisútvarpið átti, og síðan hefur hann notað hvert tæki- færi til þess að taka upp óminn í kirkjum landsins og skrá upplýs- ingar um klukkurnar. „Ég nýti fjöl- skyldufríin til þess að heimsækja kirkjur þar sem ég er hverju sinni.“ Hringing og athafnir Upphaflega hugmyndin var að safna upplýsingum um hvernig hringt væri við mismunandi athafn- ir. „Í grunninn eru hringingarnar svipaðar en það er blæbrigðamunur, til dæmis fyrir og eftir útfarir,“ segir Guðmundur. Hann tekur myndir af klukkunum, stundum einnig vídeó- myndir, auk þess sem hann skráir sögu þeirra. Hann bendir á að klukk- urnar séu oft eldri en kirkjurnar og sagan sé gjarnan merkileg. „Elstu klukkur sem ég hef séð eru frá því um 1200.“ Engar tvær klukkur hljóma eins. Málmblöndunin er misjöfn sem og stærðin. Guðmundur segir að nýrri klukkur, 40 til 50 ára gamlar, hafi verið stilltar eftir fyrirmælum, en í eldri klukkum sé tónninn óhreinni enda tæknin, þegar þær voru steypt- ar, ekki eins mikil og nú. Hringibún- aðurinn sé líka mismunandi. Í flest- um gömlu kirkjunum sé handhringt og þá séu klukkurnar yfirleitt minni og ekki eins hljómmiklar. Klukkum með rafmagnshringingu sé misjafn- lega stillt upp, ekki síst vegna íbúða- byggðar í grennd, og þá er hring- ingin gjarnan hæg og róleg. „Hringingin í Guðríðar- og Vída- línskirkju er þannig en þó tignarleg og falleg.“ Guðmundur bætir við að gaman sé að koma í kirkju þar sem sé góður hringjari eins og í Hjarðar- holtskirkju rétt utan við Búðardal. „Reyndir hringjarar þekkja klukk- una sína út og inn og það er eftir- minnilegt að hlusta á þær í vönum höndum.“ Guðmundur segir að söfnunin og skrásetningin sé mjög gefandi áhugamál. „Það var til dæmis sér- stök upplifun að skoða klukkurnar í Dómkirkjunni og þegar ég var uppi í turninum fannst mér eins og ég væri kominn aftur í fornöld.“ Ljósmynd/Helga Jónsdóttir Vídalínskirkja Guðmundur Karl Einarsson segir að ómurinn í klukkunum sé tignarlegur og fallegur. Safnar ómi klukkna  Flugumferðarstjórinn Guðmundur Karl Einarsson skráir upplýsingar um kirkjuklukkur á samnefnda vefsíðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.