Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 13
Það er gömul saga og ný að stærstu viðskiptiflestra á lífsleiðinni felast í því að fjárfesta íþaki yfir höfuðið. Það segir sig því sjálft að fólk á talsvert undir því að viðskipti með fasteignir gangi vel fyrir sig. Þannig skiptir það seljanda mestu máli að greiðslur berist í samræmi við kaupsamning, en fyrir kaupanda er mikilvægast að hann fái fasteignina af- henta á réttum tíma og að ástand eignar sé í samræmi við þær upplýsingar sem seljandi hefur veitt og sjá má við skoðun. Á aðilum hvíla jafnframt gagnkvæmar trún- aðarskyldur þannig að aðilar verði að taka eðlilegt tillit til hagsmuna gagnaðilans og koma þannig í veg fyrir óþarfa tjón ef hægt er. Í anda þessara trúnaðarskylda er að finna reglu í 48. gr. laga um fast- eignakaup nr. 40/2002, sem á að tryggja ákveðinn fyrirsjáanleika í viðskiptum aðila. Þar er sú krafa lögð á kaupanda að hann tilkynni seljanda ef sá fyrrnefndi ætlar að bera fyrir sig vanefnd, ella hættir kaupandi á að glata rétti sínum til bóta, afsláttar o.s.frv. sakir tóm- lætis. Slíka tilkynningu skal kaup- andi senda innan sanngjarns frests frá því að hann vissi eða mátti vita um eðli og umfang vanefndar. Jafnframt fellur réttur kaupanda til að bera fyrir sig vanefnd alveg niður að fimm árum liðnum frá afhend- ingu, nema seljandi hafi tekið á sig ríkari ábyrgð en al- mennt gildir. Í framkvæmd verður að telja að ákvæði 48. gr. hafi mesta þýðingu þegar fram koma gallar á fasteign að mati kaupanda. Skiptir þá máli að kaupandi bregðist rétt við og dragi of lengi að grípa til aðgerða. Þrjú stærstu álitamálin eru hvenær kaupanda má vera kunnugt um galla, hve langan tíma hann hefur til að tilkynna seljanda um hann og hvert efni tilkynning- arinnar á að vera. Fyrst ber að hafa í huga að það er skynsamlegt fyrir kaupendur að skoða fasteign vand- lega fyrir kaup og óska eftir nauðsynlegum upplýs- ingum frá seljanda. Seljanda ber að veita réttar upplýs- ingar og raunar allar þær upplýsingar er máli skipta um eignina og kunna að hafa áhrif á verðmæti hennar við tilboðsgerð. Kaupanda ber að skoða eignina vand- lega í framhaldi af afhendingu, sbr. 38. gr. fasteigna- kaupalaga. Ætla má að ef aðilar sinna skyldum sínum með full- nægjandi hætti, þ.e. upplýsinga- og skoðunarskyldu, þá fari frestur til að tilkynna galla almennt að líða fljótlega í kjölfar afhendingar. Upphaf frestsins fer þó ávallt eft- ir eðli gallans og því er misjafnt hvenær kaupanda má vera kunnugt um gallann. Ætli kaupandi að bera fyrir sig galla þarf hann að senda tilkynningu „innan sann- gjarns frests“ svo sem áður segir. Samkvæmt dómaframkvæmd hafa kaupendur ekki mikið umfram örfáa mánuði til að senda slíka tilkynningu, sbr. dóma Hæstaréttar í málum nr. 60/2007 og 170/2017, en í þeim liðu um átta og tíu mánuðir frá því kaupendum mátti vera kunnugt um galla og þar til til- kynningar voru sendar á selj- endur. Niðurstaða Hæsta- réttar í báðum málum var á þá leið að svo langur tími væri umfram það sem gæti talist sanngjarn frestur í skilningi 1. mgr. 48. gr. fasteigna- kaupalaga. Hvað framhaldið varðar þá verður að ætlast til þess af kaupanda að hann fylgi kröfu sinni eftir með aðgerðum ef seljandi bregst ekkert við tilkynningunni eða hafnar ábyrgð. Hvað efni tilkynningar varðar þá þarf þar að koma fram eðli og umfang gallans, miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir á þeim tíma er tilkynning er send, en ekki þarf að tilgreina til hvaða úrræða kaupandi hyggst grípa Framangreint á við um allar aðrar vanefndir í reynd, svo sem afhendingardrátt eða vanheimild. Í fram- kvæmd eru gallamálin þó algengust en vel má hugsa sér vanefnd sem felst í afhendingardrætti ef um kaup á eign í byggingu er að ræða. Mikilvægast er þó að vanda vel til verka við viðskipti með fasteignir og hafa hið fornkveðna í huga, að í upphafi skal endinn skoða. Tómlæti í fasteigna- viðskiptum LÖGFRÆÐI Hafsteinn Viðar Hafsteinsson, lögfræðingur hjá Íbúðalánasjóði. ” Fyrst ber að hafa í huga að það er skynsamlegt fyrir kaupendur að skoða fasteign vandlega fyrir kaup og óska eftir nauðsynlegum upplýs- ingum frá seljanda. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019 13SJÓNARHÓLL BÓKIN Það er ekki á hverjum degi sem einn af heimsins snjöllustu hagfræð- ingum og einn fremsti myndasögu- höfundur heims leiða saman hesta sína. En það hafa þeir Bryan Caplan og Zach Weiner- smith gert í nýrri bók; Open Bord- ers: The Science and Ethics of Im- migration. Caplan kennir við George Ma- son-háskóla í Virginíu, er frjáls- hyggjumaður í húð og hár, og var á sínum tíma einn af pennunum á bak við Freakanomics-bloggið fræga. Zach Weinersmith er aftur á móti höfundur vef-myndasögunnar Saturday Morning Breakfast Cereal og þykir með eindæmum frjór, snjall og fyndinn þó seint megi kalla teikningarnar hans mikil listaverk. Er óhætt að segja að bókin komi út á réttum tíma, því umræðan um innflytjendamál er fjarri því útkljáð og bæði í Evrópu og Bandaríkjun- um hefur þessi málaflokkur klofið kjósendur í tvær andstæðar fylk- ingar. Caplan gengur svo langt að full- yrða að við ættum að stefna að því að gera fólksflutn- inga frjálsa með öllu. Hann fer ítar- lega í gegnum öll helstu mótrök og leiðréttir ýmsar ranghugmyndir, samhliða því að hann færir fyrir því sterk rök að með því að leyfa fólki að setjast að þar sem það vill helst búa megi bæði uppræta fá- tækt um allan heim og auka hagsæld alls mann- kyns til muna. Þó svo efnið sé sett fram í mynda- söguformi er um vandað rit að ræða sem byggist á ítarlegum rann- sóknum. Er líka gaman að sjá einu af flóknari og umdeildari sviðum hagfræði og stjórnmálafræði gerð skil á svona aðgengilegan og skýran máta. ai@mbl.is Sterk rök fyrir gal- opnum landamærum Ert þú ísambandi? R áð gj öf ve gn a hr að hl eð sl us tö ðv a fy rir fy rir tæ ki og sv ei ta rfé lö g V E R K F RÆÐ I S T O F A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.