Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
V
ið hefðum aldrei getað keypt þessa
íbúð nema vegna þess að við feng-
um tækifæri á að búa lengur
heima hjá tengdamömmu sem
hvatti okkur til þess að spara fyrir
íbúð. Ég verð henni ævinlega þakklátur
fyrir það,“ segir Sigurjón Kári aðspurður
hvernig hann og kærastan Sóley Ósk náðu
að kaupa sér sína eigin íbúð árið 2018, þá 23
og 24 ára gömul.
„Við erum hvorugt háskólagengin heldur
fórum beint að vinna eftir framhaldsskól-
ann. Við vorum óákveðin varðandi það í
hvaða nám við vildum fara og í stað þess að
velja bara eitthvað fórum við frekar að
vinna,“ segir Sóley. Hún ítrekar að ef þau
hefðu farið beint í háskólanám eins og
margir jafnaldrar þeirra hefðu þau ekki náð
að safna fyrir íbúðinni, hvað þá ef þau hefðu
þurft að vera á leigumarkaðinum samhliða
námi.
Notuðu séreignarsparnaðinn
Sóley og Sigurjón Kári höfðu verið par í
sex ár þegar þau festu kaup á íbúðinni sem
er á efstu hæð í blokk í Túnahverfinu í
Kópavogi. Eftir framhaldsskólann segjast
þau hafa boðist til þess að borga heim þar
sem þau bjuggu hjá móður Sóleyjar en hún
hafi frekar viljað að þau nýttu peningana
sem þau hefðu annars greitt henni upp í
íbúð. „Við unnum mikið og lögðum fyrir. Á
tímabili vorum við í mörgum vinnum. Við
lifðum spart og drógum úr alls konar
neyslu. Við erum til dæmis bara á einum bíl.
Ég átti smá pening á lokaðri bók frá því ég
var barn og svo gátum við tekið nærri millj-
ón út úr séreignarsparnaðinum sem við
settum upp í íbúðina. Það hjálpaði líka til að
íbúðin sem við keyptum var ekki mjög dýr,“
segir Sóley.
Keyptu og settu í leigu
„Í upphafi vorum við ekki spennt fyrir því
að kaupa íbúð sem þurfti að gera mikið fyr-
ir og vorum því alltaf að skoða nýjar eignir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Húsgögnin í íbúðinni eru annað-
hvort keypt á útsölum eða hafa
verið fengið að láni hjá ætt-
ingjum. Sófinn var til að mynda
keyptur á útsölu hjá Ilvu.
Sóley Ósk og Sigurjón Kári eru ungt par í Kópavogi sem keypti sér sína
fyrstu íbúð árið 2018. Þau byrjuðu á því að leigja hana út í eitt ár og
bjuggu áfram í foreldrahúsum til að ná að greiða niður viðbótarlánið.
Íbúðarkaupin kenndu
þeim að spara
Parið Sigurjón Kári Sigurjónsson og Sóley Ósk Erlingsdóttir er að
koma sér fyrir í sinni fyrstu íbúð. Þau náðu að safna fyrir útborgun
með því að búa lengur í foreldrahúsum, lifa spart og leigja íbúð-
ina út í ár eftir að þau keyptu hana. Hér segja þau frá fleiri ráðum
sem hjálpuðu þeim við að koma undir sig fótunum.
Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com
Sjá síðu 8.