Morgunblaðið - 18.10.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019
Ljótu íbúðirnar heilluðu okkur einfaldega
ekki,“ segir Sigurjón Kári og hlær. „Nýju
fínu íbúðirnar voru hins vegar allt of dýrar
og fóru fljótt. Við áttum engan séns þar.“
Síðan kom íbúðin í Túnunum á sölu. Parið
fór á opið hús og voru þau ein mætt ásamt
einu öðru pari enda voru myndirnar af íbúð-
inni á netinu, að sögn Sigurjóns Kára,
ógeðslega ljótar. „Skipulagið á íbúðinni var
gott og verðið viðráðanlegt. Ekki spillti
heldur útsýnið fyrir en af svölunum sést í
Perluna, yfir Fossvoginn og út á sjó. Við
urðum sammála um það að kaupa íbúðina,
þrátt fyrir að við hefðum upphaflega séð
fyrir okkur að kaupa stærri og fínni íbúð.
Við áttuðum okkur á því að það væri skyn-
samlegra að kaupa minni íbúð með lægri
afborgunum.“ Parið keypti íbúðina, málaði
hana og setti í leigu í eitt ár. „Á þessu ári
héldum við áfram að lifa spart og náðum
þannig að greiða upp viðbótarlánið sem við
tókum fyrir kaupunum. Núna erum við því
bara með hefðbundið húsnæðislán á íbúð-
inni,“ segir Sigurjón Kári ánægður enda er
afborgunin af láninu mun lægri en ef þau
væru að leigja sambærilega íbúð. Auk þess
hefur íbúðin nú þegar hækkað töluvert í
verði.
Magnafsláttur og tilboðsdagar
Árið sem þau leigðu íbúðina út nýttu þau
til þess að undirbúa flutningana. „Ég viður-
kenni að ég er algjör afsláttarperri,“ segir
Sóley og hlær en mikið af húsgögnunum og
húsbúnaðinum keyptu þau á útsölum og
afsláttardögum. „Sófann keyptum við til
dæmis í Ilvu löngu áður en við fluttum hing-
að inn, hann var bara geymdur í geymsl-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borðstofuborðið eru þau að passa fyrir ætt-
ingja en stólarnir eru keyptir á afsláttar-
dögum í Húsgagnahöllinni. Ljósið fyrir ofan
borðið er líka í láni frá ættingjum.
Ljósið í stofunni setti Sóley sjálf
saman með því að kaupa perustæði
og rafmagnskapla í Bauhaus.
Ég átti smá pening á lokaðri bók frá því ég var
barn og svo gátum við tekið nærri milljón út
úr séreignarsparnaðinum sem við settum upp
í íbúðina. Það hjálpaði líka til að íbúðin sem
við keyptum var ekki mjög dýr,“ segir Sóley.
Sjónvarpið er á armi sem
dreginn er út þegar horft er
á það. Stofan virkar stærri
með þessu fyrirkomulagi
því annars hefði sófinn
þurft að vera annars staðar.
Sjá síðu 10. Sex góð ráð til fyrstu
kaupenda frá Sóleyju
og Sigurjóni Kára
1. Vertu sem lengst í foreldrahúsum ef það stendur til boða og
leggðu pening til hliðar fyrir útborgun í íbúð.
2. Greiddu í séreignarsparnað og notaðu hann við kaupin.
3. Sparaðu við þig. Hættu að kaupa skyndibita og annan óþarfa.
4. Taktu aukavaktir og/eða fáðu þér aukavinnu.
5. Keyptu minni eign og stækkaðu við þig í litlum skrefum.
Einhvers staðar þarf að byrja.
6. Reyndu að gera sem mest sjálf/ur í tengslum við
framkvæmdir á húsnæðinu.