Morgunblaðið - 18.10.2019, Side 10

Morgunblaðið - 18.10.2019, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019 föt og skó. Það er gott að vita af henni þar í stað þess að þurfa að hafa allt hér uppi.“ Hættu að kaupa skyndibita Af framansögðu virðast íbúðarkaupin ekki hafa verið mikið mál hjá unga parinu og því eðlilegt að spyrja hvort það sé kannski ekk- ert mál fyrir ungt fólk að kaupa sér íbúð. „Nei, það er mjög erfitt fyrir ungt fólk að koma undir sig fótunum. Það er eiginlega ekki hægt að spara fyrir íbúð samhliða því að vera á leigumarkaðinum. Við hefðum ekki getað þetta nema af því að við vorum í fullri vinnu og meira en það, auk þess sem við höfðum þennan stuðning frá mömmu minni,“ segir Sóley en bætir jafnfram við að ungt fólk geti samt vissulega sparað meira. „Þetta ferli hefur sannarlega kennt okkur að spara og það er nokkuð sem við munum taka áfram með okkur.“ Þau nefna sem dæmi að þegar þau fóru meðvitað að safna fyrir íbúðinni sögðust þau alveg hafa tekið skyndibitamat út. „Ungt fólk eyðir oft allt að 5.000 krónum í tilbúinn mat á dag og það eru upphæðir sem munar um. Við hættum alveg að kaupa skyndibitamat og fórum að elda meira heima og taka með okkur nesti í vinnuna. Það munaði heilmikið um það í stað þess að fara alltaf út að borða í hádeg- inu eða á kvöldin.“ Og þótt íbúðin sé nú orðin þeirra og þau að verða búin að koma sér vel fyrir eru þau ekki hætt að spara né taka að sér auka- vinnu. „Planið er að safna fyrir annarri stærri íbúð en jafnframt eiga þessa íbúð áfram og setja hana í útleigu. Við sjáum fyrir okkur að við stækkum við okkur í litlum skrefum. Næst flytjum við í þriggja herbergja íbúð og svo koll af kolli,“ segir Sigurjón Kári og Sóley tekur undir það. „Þótt það sé þröngt hérna þá er alveg hægt að vera með barn hérna, barnið þarf ekkert sérherbergi strax. Það er hægt að gera þetta skynsamlega.“ unni. Heimilistækin keyptum við síðan öll á sama stað og fengum magnafslátt. Við feng- um líka tilboð í gardínurnar og tókum hag- stæðasta tilboðinu sem var frá Sólar- gluggatjöldum.“ Sigurjón Kári og Sóley unnu á tímabili bæði sem flugþjónar hjá Wowair og segist Sóley líka hafa nýtt tæki- færið og keypt smáhluti í eldhúsið erlendis á góðu verði. „Stíllinn hjá okkur er bland- aður. Við erum með nokkra hluti í láni frá ættingjum og blöndum saman gömlu og nýju.“ Geymslan framlenging af forstofunni Þegar loksins kom að því að flytja inn í íbúðina tók við þó nokkur vinna innandyra. „Við erum búin að eyða rúmlega tveimur milljónum í betrumbætur á íbúðinni. Við skiptum um innréttingu inni á baði og blöndunartæki en héldum öðrum tækjum og flísum. Eins tókum við eldhúsið alveg í gegn og parketlögðum íbúðina. Síðan skiptum við líka um innihurðir og settum nýja innrétt- ingu í þvottahúsið. Við ákváðum að halda fataskápunum en skiptum um höldur. Eins var dregið í nýtt rafmagn, “ segir Sigurjón Kári. Þau reyndu að gera sem mest sjálf, virkjuðu vini og kunningja en þurftu líka að greiða iðnaðarmönnum. „Eldhúsið auglýsti ég á netinu og það kom einhver og hirti það sem var mjög þægilegt að þurfa ekki að standa í því að koma því niður af fjórðu hæð heldur geta bara haldið áfram að vinna.“ Íbúðin er 54 fm að stærð með einu svefn- herbergi. Sóley viðurkennir að hún hefði stundum viljað hafa meira geymslupláss. „Við þurftum að grisja alveg helling þegar við fluttum en þá áttuðum við okkur á því að við áttum allt of mikið af alls konar dóti. Íbúðin er ekki stór svo það má ekki vera of mikið dót hérna.“ Það sem hefur bjargað þeim er geymslan í kjallaranum sem þau hafa nýtt sem framhald af forstofunni. „Við erum með kommóðu í geymslunni fyrir úti- Það er mjög erfitt fyrir ungt fólk að koma undir sig fótunum. Það er eigin- lega ekki hægt að spara fyrir íbúð sam- hliða því að vera á leigumarkaðinum. Móðir Sóleyjar fékk barborðið í þrítugsafmælisgjöf og sómir það sér vel í íbúð unga parsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Parið, sem hefur verið saman í 8 ár, segist hafa verið óvenju sammála með allar breytingar á íbúðinni. Þau reyndu að gera sem mest sjálf í tengslum við betrumbætur á íbúðinni en fengu líka góða hjálp frá vinum, ættingjum og iðnaðarmönnum. Hjónaherbergið er hlýlegt með rúmgafli og fullt af púðum. Þau skiptu um innrétt- ingu á baðherbergi og settu upp IKEA innrétt- ingu og speglaskáp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.