Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 18.10.2019, Qupperneq 18
F yrir örfáum árum fletti ég bókinni „Íslenzk íbúðarhús“ frá árinu 1959 þar sem sýnt var frá nokkrum ís- lenskum heimilum þess tíma og skipulega farið yfir sögu húss og inn- bús. Vakti það strax áhuga minn að heimilin voru ekki svo ólík þeim sem ég rekst á á Pinte- rest í dag, sextíu árum síðar. Pinterest, sem má telja eina helstu innblástursveitu fólks af minni kynslóð þegar kemur að innanhúss- hönnun, og raunar fólks á öllum aldri, sýnir ótal heimili af svipuðum toga líkt og til voru ár- ið 1959. Þetta ætti svo sem ekki að koma á óvart, en í dágóðan tíma núna hafa tekk- húsgögn frá þeim tíma verið eftirsótt meðal þeirra yngri og prýtt ótal forsíður Húsa og hí- býla. Allir stílar virðast ganga hringinn en þessi virðist einhvern veginn eilífari en aðrir. Það er því ekki úr vegi að spyra sig hvað það er sem gerir þessa hönnun tímalausa. Eða alla- vega ennþá kúl. Ný samfélagsgerð, ný hönnun Fyrsta augljósa ástæðan er mögulega sú að það að nota aftur gömul húsgögn þykir virð- ingarvert í dag og yngri kynslóðir munu að öll- um líkindum sækja mikið í skiptihagkerfi eða versla með notuð húsgögn. Það er því kúl að eiga gamalt. Það var alls ekki raunin á þeim tíma sem bókin var gefin út. Ekki svo mörgum árum áður en Íslenzk híbýli kemur út hafði hagkvæmni og skynsemi einkennt heimili fólks, þar sem allflestir höfðu lítið milli hand- anna. Upp úr seinna stríði varð lífið auðveld- ara. Aukinn kaupmáttur leiddi til rýmri húsa- kynna og breytti því hvernig ungt fólk hugsaði um heimili. Hönnunin á þessum nýju heimilum þurfti að vera þægileg fyrir búsetu í minni rýmum í borgum sem þá uxu hratt. Rétt eins og í dag. Blokkir voru nýjar af nálinni og hús- gögnin, létt og einföld, hafa vafalaust þótt kærkomin breyting frá þyngri stíl fyrri kyn- slóða. Á þessu tímabili varð til áðurnefndur hönnunarstíll sem kenndur hefur verið við nú- tímann (Modern eða Mid-Century-Modern). Náði hann hámarki á 6. og 7. áratugnum og gaf þér að öllum líkindum hansahillur eða tekk- sófaborðið í stofunni. Menningarsérfræðingar hafa einnig bent á að sjónvarpsþættirnir Mad Men, sem sýna frá heimi auglýsingasölumanna upp úr 1960 og voru fyrst sýndir árið 2007, hafi átt sinn þátt í því að endurvekja áhuga á stíln- um. Stutt leit á netinu skilar þér t.a.m. grein- um á við: „Svona stíliserar þú heimili þitt í Mad Men-stíl.“ Þessi borðstofa er í anda stílsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Innanhússhönnun og tískan sem gengur í hringi á netinu Innanhússhönnun hefur líklegast aldrei verið vinsælli eða um- talaðri. Hún er sannarlega orðin hluti af meginstraumnum og sérstakt áhugamál margra. Facebook-hópar, innanhúss- ráðgjöf í gegnum netið, ódýrar vefverslanir, Instagram og Pinterest eru bara einn hluti af þeirri flóru sem myndar lífkerfi heimilishönnunar í símanum eða tölvunni þinni. Fjöldi fólks á netinu er boðinn og búinn að hjálpa þér að gera heimilið þitt fágað, fallegt og kæruleysislega sett saman. Innblásturinn er að finna alls staðar, segir það. Í ferlinu tökum við upp stefnur og strauma héðan og þaðan og þróum okkar eigin stíl. Nína Guðrún Geirsdóttir | ninagudrun@gmail.com Hansahillur lýsa þessu tímabili vel en þær hafa notið mikilla vinsælda hjá ungu fólki síðasta áratuginn. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.