Fréttir - Eyjafréttir - jan. 2019, Blaðsíða 4
4 | Eyjafréttir | Janúar 2019
Fjölmörg félög og samtök reiða sig á þátt-
töku sjálfboðaliða í starfi sínu. Fólk fer
í sjálfboðaliðastörf af ýmsum ástæðum.
Mörgum finnst störfin áhugaverð og gefandi,
aðrir vilja láta gott af sér leiða og enn aðrir
kjósa frekar að vinna ólaunaða vinnu en að
sitja heima iðjulausir og sjálfboðaliðastarf
getur verið mjög lærdómsríkt og þroskandi.
Ætla má að margir Eyjamenn hafi einhvern tímann
tekið þátt í sjálfboðaliðastarfi. Fólk á öllum aldri ver
þannig hluta frítíma síns í þágu mannbætandi starfs
af ýmsu tagi.
Vel má líta á sjálfboðaliðasamtök sem þriðja geira
þjóðfélagsins, eða sem mikilvæga viðbót við
einkageirann og hinn opinbera.
Alþjóðlegar rannsóknir sýna að eftir því sem
sjálfboðaliðastarf í frjálsum félögum er öflugra,
þeim mun traustari eru innviðir viðkomandi
samfélaga. Þjóðhagslegur ávinningur af starfi sjálf-
boðaliða er því mikill.
Þetta þekkjum við í Vestmannaeyjum og er það
víst að samfélagið okkar væri ansi fátækt ef það
væri ekki fyrir vilja Eyjamanna að taka að sér hin
ýmsu sjálfboðaliðastörf. Verðmæti hvers samfélags
er nefnilega mannauðurinn og í Vestmannaeyjum er
fullt af fólki sem sinnir hinum ýmsu störfum, sum
þeirra mjög óeigingjörn og allt í þágu samfélagsins.
Eyjamaður ársins að mati ritstjórnar Eyjafrétta er
því Sjálfboðaliðinn, í hvaða mynd sem hann birtist.
Hin árleg afhending Frétta-
pýramída Eyjafrétta fór fram
í Eldheimum síðastliðinn
mánudaginn fyrir fullum sal af
fólki. Þetta var í 28. skipti sem
Fréttapýramídinn er veittur.
Þeir sem Eyjafréttir völdu
að þessu sinni hafa allir tekið
þátt í að stimpla Vestmann-
eyjar frekar inn á kortið og
auðga okkar samfélag, hver á
sinn hátt.
Starfsemi Björgunarfélagsins og Rauða krossins miðar að því að koma í veg fyrir slys og
bjarga mannslífum og verðmætum. Í þeim tilgangi er öflugur hópur sjálfboðaliða til taks
ef eitthvað út af bregður, á nóttu sem degi, allt árið um kring. Eyjafréttir fengu því fulltrúa
Björgunarfélagsins og Rauða krossins í Vestmannaeyjum til að taka við viðurkenningunni
fyrir hönd þeir ótal sjálfboðaliða sem leggja hönd á plóginn við að auðga okkar samfélag.
Eyjamaður ársins er
Sjálfboðaliðinn
:: í hvaða mynd sem hann birtist
Fréttapýramídinn 2018
SARA SjöfN GREttiSdóttiR
sarasjofn@eyjafrett ir. is
Sjáðu fleiri myndir
á Eyjafrettir.is