Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jan. 2019, Síða 10

Fréttir - Eyjafréttir - jan. 2019, Síða 10
10 | Eyjafréttir | Janúar 2019 Einn dag árla morguns árið 1986 var Ómar Garðason búin að mæla sér mót við Magnús Kristinsson, enda þá að róa á Berg-Huginn. Nema hvað að hann sefur yfir sig, mætir aðeins seinna og hittir þar Geir Jón sem þá var lögreglu- varðstjóri. Bæjarpólitíkin var rædd og til að gera langa sögu stutta tók Ómar þátt í bæjarstjórnar kosningunum það ár og meðfram því bauðst honum starf á Eyjafréttum. Ómar var lengi vel á sjó og starfaði í nokkur ár sem lögreglumaður, þessi starfs- reynsla átti eftir að koma sér vel í blaðamennskunni. Ómar sagði einu sinni í blaðaviðtali, „ef þú hefur ekki trúverðug- leika sem blaðamaður þarftu að fara gera eitthvað annað,“ þetta er hans, hann vill vera traustsins verður. Það er ákveðinn lífstíll sem fylgir því að vera blaðamaður, þeir þurfa oftar en ekki að hafa áhuga á mörgu, geta sett sig í spor annara og geta tekið tillit til náungans. Þetta eru kostir sem Ómar hefur og má segja að áhuginn hafi drifið hann áfram öll þessi ár í starfi þó hann sé hvergi nærri hættur. Eftir að hafa skrifað og ritstýrt Eyjafréttum í yfir 30 ár, hefur Ómar snúið sér að öðrum verkefnum, hann var fullur af þakklæti þegar hann hætti og sagði að tíminn á Eyjafréttum hafi verið góður, eða eins og hann sagði einhvern tímann; hann var stundum erfiður, en aldrei leiðilegur. Það var við hæfi að fá Gísla Valtýsson, samstarfsfélaga Ómars til 30 ára, til að skrifa nokkur orð um félaga sinn og tímann hans á Eyjafréttum, við gefum Gísla orðið: Ómar Garðarsson kom til starfa á Eyjafréttum vorið 1986. Áður hafði hann m.a. starfað m.a. sem lögreglumaður og kokkur á Vest- mannaey VE. Blaðamennsku hafði hann ekki áður kynnst. En hann var ótrúlega fljótur að ná frábærum tökum á henni; metnaðargjarn áhugasamur og duglegur. Sama uppskrift og afreksíþróttafólk notar til ná árangri. Eyjafréttir urðu lífið hans. Hann hafði aldrei haft áhuga á keppnisíþróttum, en vegna þess að Eyjafréttir fjölluðu mikið um íþróttir fannst honum hann þurfa að sinna þeim eins og öðru efni í blaðinu og það gerði hann svo kröftuglega að innan skamms var hann farinn að skrifa um íþrótta- kappleiki í blaðið og hafa skoð- anir á leikmönnum og leikkerfum. Innan fárra ára var hann orðinn formaður Íþróttabandalags Vest- mannaeyja. Nefndakóngur Menningarmál voru ekki í miklum hávegum í Eyjafréttum á þessum árum. En Ómar tók þau með trompi, fór á nánast alla menn- ingarviðburði í Eyjum og fjallaði um þau mál í blaðinu með miklum ágætum svo eftir var tekið. Áður en Ómar kom til starfa á Eyjafréttum hafði hann verið kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningum 1986. Pólitík átti því talsverð ítök í Ómari. Og hann fór í framboð fyrir flokkinn, náði ekki að verða aðal- bæjarfulltrúi en varð m.a. nefnda- kóngur flokksins um tíma. Þar kom að hann tók við ritstjórn Eyjafrétta og sinnti því starfi í yfir 20 ár. Það má því segja að allsstaðar þar sem Ómar kom að málum, tók hann þau með trukki og dýfu. Hann vildi aldrei vera meðalmaður. Hann vildi árangur og leita uppávið. Virtum sjónarmið hvors annars Við Ómar störfuðum saman á Eyjafréttum í rúm 30 ár. Þótt við félagarnir séu á margan hátt ólíkir menn, þá var samvinna okkar alla tíð með miklum ágætum. Verka- skipting okkar var skýr. Við höfðum mikinn metnað fyrir hönd Eyjafrétta og fórnuðum ýmsu fyrir blaðið. - Í stað þess að rífast og skammast, þegar við urðum ósammála, þá virtum við sjónarmið hvors annars. Komum okkar skoð- unum á framfæri og létum þar við sitja. Enda hvernig ætti samstarf í yfir 30 ár að ganga öðruvísi. bognaði stundum en brotnaði ekki Það er stundum ekki heiglum hent að stýra fréttablaði og kannski enn- frekar í litlu bæjarfélagi þar sem nándin er meiri. Einstaka sinnum fékk ritstjórinn Ómar yfir sig gusur frá óánægðum lesendum Eyjafrétta, sem fannst á sig hallað í frétta- flutningi, - af eðlilegum ástæðum en líka ósanngjörnum. Ég held að Ómar hafi stundum bognað í þeim samskiptum en aldrei brotnað. Mér fannst hann yfirleitt komast hjá miklum illdeilum við fólk og ef hvessti, þá var sæst að lokum, eða eins og hann sagði í blaðsviðtali fyrir nokkru síðan: Að hann væri frekar hrekklaus og einföld sál. Eyjamaður að austan Þótt Ómar sé ættaður frá Seyðis- firði og þyki vænt um æsku- slóðirnar; varð hann strax mikill Vestmannaeyingur, - sótti ungur í Eyjarnar; reri á ýmsum VE-bátum, kynntist blómarós af Þingholt- skyni og festi ræturnar endanlega í Eyjum eftir gos. Eða eins og hann sagði einhvern tímann; að Eyjarnar henti sér vel. Starfið hans á Eyjafréttum er að baki. Hann þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af efni í næsta blað Eyjafrétta. Fjölskyldan fær nú meira af hans tíma, tilfallandi verkefni hafa tekið við og sjötugs- afmæli hans ekki langt undan. Ómar Garðason hlaut Fréttapýramídann fyrir framlag sitt til menningarmála: Þetta var stundum erfitt, en aldrei leiðilegt

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.