Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jan. 2019, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - jan. 2019, Blaðsíða 14
14 | Eyjafréttir | Janúar 2019 Þorsteinn Sigurðsson, sviðs- stjóri uppsjávarlífríkis hjá Hafrannsóknastofnun hélt erindi í Þekkingarsetri Vest- mannaeyja í síðustu viku og bar erindið yfirskriftina: Hvað er að frétta af loðnunni? Þær umhverfisbreytingar sem orðið hafa á undanförnum áratugum hafa leitt til mikilla breytinga í útbreiðslu fiskistofna og er loðnan engin undantekning þar á. Í erindinu var þessum breytingum lýst og farið var yfir hvaða áhrif breytingarnar hafa haft á útbreiðslu loðn- unnar. Farið var yfir stöðu þekkingar og hvernig reynt hefur verið að bregðast við þeim með aukinni vöktun og nýjum rannsóknum. Eins og staðan er núna er ekki hægt að gefa út kvóta og ákveðið var að halda leitinni að loðnunni áfram. Polar Amaroq og hafrannsókna- skipið Árni Friðriksson fóru af stað að leita í síðustu viku. „Byrjað verður á að skoða útjaðra leitar- svæðisins en megintilgangurinn er að kanna hvort eitthvað hefur bæst í þau rúmlega tvö hundruð þúsund tonn sem mældust á dögunum. Það er ekki búið að ákveða hve lengi þessi skip verða við leit núna en það mun meðal annars fara eftir því hvort eitthvað hefur breyst frá fyrri leit,“ sagði Þorsteinn Það þarf að vakta hlutina í ljósi sögunnar „Allar mælingar okkar benda til þess að þetta verði aflei vertíð og engin veiði. Varnaglinn sem við setjum er fordæmi frá árinu 2017. Þá sögðum við í raun það sama og núna en svo kom síðar í ljós að það kom loðna inn þrátt fyrir að við höfðum lítið sem ekkert séð þegar við leituðum. Þar af leiðandi höfum við ekki viljað gefa það út, að þetta sé vonlaust mál og búið. Heldur erum við sammála um að það þarf að vakta hlutina í ljósi sögunnar og taka þá mælingar um leið og vísbendingar eru um að eitthvað meira sé af loðnu en við höfum séð í mælingunum hingað til.“ loðnugöngur eru að koma inn með öðrum hætti heldur en áður En getur verið að loðnuvertíðin sé að seinka? „Það eru ákveðnir hlutir sem sýna okkur að loðnugöngur eru að koma inn með öðrum hætti. Að því leiti að þetta er orðið aðeins teygðara. Menn töluðu alltaf um aðalgönguna og hún var kannski einhverjar tugi mílna á lengd og mjög þétt og svo var bara allt búið. Núna erum við að sjá frekar lítið af loðnu en hún er á talsvert stóru svæði, þannig núna er loðnan ekki að koma inn sem ein stór loðnu- ganga heldur frekar fleiri, litlar og smáar,“ sagði Þorsteinn. allt gengið vel á síðustu hrygningu Þorsteinn sagði það jákvæðar fréttir að mikið hefði sést af seiði, „Þetta eru ekki magnbundar upp- lýsingar, en við merkjum það í okkar leiðöngrum og fáum fréttir frá sjómönnum um mikið magn af seiðum. Það er ekki jákvætt fyrir veiði þessa vertíðina eða þá næstu, heldur þarnæstu. En það er jákvætt ef mikið er af seiðum, það segir okkur að hrygningin hafi gengið vel á síðustu vertíð.“ Þessir stofnar eru allir á niðurleið Hvernig metur þú stöðu og horfur í uppsjávarstofnum eins og makríl, kolmuna og í síldinni? „Þessir stofnar eru allir á niðurleið. Ef við byrjum á kolmunanum, sem menn hafa ekki aðgang að í gegnum færeysku lögsöguna núna. Þrátt fyrir að stofninn sé stór fer hann minnkandi. Ráðgjöfin fyrir árið í ár er 18% lægri en var fyrir árið 2018. Það eru vísbendingar um verri nýliðun, það er ósamkomulag um stjórn veiðanna og þar af leiðandi er veiðin umfram ráðgjöf sem gerir það að verkum að sveiflur í veiðum geta orðið mjög miklar. Í stað þess að geyma hluta af árgöngunum þá byggist veiðin að miklu leiti ungum fiski úr fáum árgöngum. Þannig að eðlilegar sveiflur í stærð árganga speglast þá beint út í veið- ina og ef að einn eða tveir árgangar eru litlir, þá getur veiðin minnkað mjög hratt. Makrílinn hefur verið að minnka frá árinu 2014 og sá stofn er of stíft veiddur. Það er ljóst á þeim vísbendingum sem við höfum að það kemur lítið af yngri fisk inn, þannig þar er fyrirséður samdráttur. Ef menn ná ekki sam- komulagi meðal veiðiþjóðanna um að trappa sig niður í veiði þá verður vandinn ennþá stærri. Eftir nokkra mjög góða árganga sem urðu til af norsk-íslensku síldinni hér á árum áður, þá höfum við varla séð alvöru árganga síðan árið 2004. En þar hefur lengst af verið mjög hófleg nýtingarstefna og þótt það hafi ekki verið einhverjir stórir árgangar í veiðistofninum, þá höfum við samt náð að halda úti veiðum. Íslenska síldin er svo því miður í miklu tjóni eins og menn vita vegna sýkingar í stofninum,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn Sigurðsson, sviðstjóri uppsjávarlífríkis hjá Hafrannsóknarstofnun: Allar mælingar benda til þess að þetta verði afleit vertíð og engin veiði Erindi Þorsteins í Þekkingasetrinu var vel sótt en það má hlýða á hér í netútgáfu blaðsins. Þorsteinn Sigurðsson, sviðstjóri uppsjávarlífríkis hjá Hafrannsóknarstofnun

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.