Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - Jan 2019, Page 16

Fréttir - Eyjafréttir - Jan 2019, Page 16
16 | Eyjafréttir | Janúar 2019 Á bæjarráðsfundi í byrjun janúar kom fram að fundar- menn hefðu verið sammála um að stjórnun ferðamála Vestmannaeyjabæjar væri best borgið í höndum hags- munaaðila í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Jafn- framt kom fram tillaga um að fulltrúar ferðaþjónustunnar taki að sér umsjón ferða- og markaðsmála á vegum bæjar- ins. Berglind Sigmarsdóttir formaður ferðamálasamtakan sagði í samtali við Eyjafréttir að þetta væri jákvæð þróun. „Við teljum þetta vera mjög jákvæða þróun, ég held að flestir geri sér grein fyrir mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir bæinn og það hefur vantað aðstoð til þess að koma okkur aðeins á kortið. Það fer mikil umferð af ferðamönnum meðfram suðurlandinu sem við höfum ekki náð að klukka, það eru uppi ýmsar hugmyndir hjá Ferða- málasamtökunum um hvað má gera betur og við teljum að það sé best að hagsmunaaðilar muni drífa það áfram, það er mikið í húfi og þarf að byrja á einhverju sem allra fyrst,“ sagði Berglind. Peningunum betur varið Berglind sagði að með þessu yrði umsvifin hjá samtökunum talsvert meiri. „.Þetta þýðir meiri vinna hjá okkur en það er það sem þarf, við vitum hvað þarf að gera en við munum ráða líklega verkefnastjóra í ákveðin verkefni sem þarf að gera. Þannig teljum við að þetta verði mun markvissara en áður og peningunum betur varið. Gott samstarf við fram- kvæmdastjóra Herjólfs Berglind sagði að samtökin væru búin að vera í góðu sambandi við Guðbjart Ellertsson nýjan fram- kvæmdastjóra Herjólfs, „við höfum verið að koma með tillögur til hans er varðar þjónustu skipsins og gefa honum upplýsingar sem við teljum að þurfi að gera vel til þess að auðvelda ferðamönnum aðgang að skipinu. Það hefur verið smá gjá á milli ferðamannsins og skipsins, það hefur verið lokað fyrir bókanir og það hefur verið erfitt fyrir ferða- manninn að átta sig á hvernig hann kemst í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn og allt sem tengist skipinu, rútuferðum og fleira. Það er mjög mikilvægt að þetta sé allt mjög skýrt í nýju bókunarkerfi og nýrri heimasíðu. Að allar upp- lýsingar séu á hreinu og auðvitað á að minnsta kosti ensku og íslensku. Guðbjartur hefur tekið okkur vel, og nú hefur verið opnað fyrir bókanir mun fyrr en áður og það hrúgast inn bókanir til Eyja.“ Hlið uppá veg Ferðamálasamtökin hafa verið að forgangsraða verkefnum og vilja fá hlið upp á gatnamótin við Landeyjarhafnarveg sem fyrst. „Við erum að skipuleggja hvaða verkefni er mikilvægast að fara í sem fyrst, það þarf að ákveða hvað verður með Tourist info sem hefur verið í Eymundsson í nokkurn tíma. Við viljum merkingu uppá veg sem allra fyrst og hafa það hliðið að Vestmannnaeyjum. Það á að sína hversu margar mínútur er í næstu ferð og aðrar upplýsingar sem nýtast ferðamanninum. Síðar vonum við að þarna verði þjónustu- miðstöð þar sem við getum byrjað að bjóða fólki velkomið til Eyja, upplýst ferðamanninn, selt aðgang í skipið og margt fleira. Erfitt að vita af þúsundum ferðamanna hinu megin við sjóinn Aðspurð sagði Berglind að sumarið leggist vel í ferðaþjónustuaðila. „Það er spenningur fyrir nýja skipinu, við erum að vonast til þess að skipið lengi ferðaþjónustu- tímabilið í báða enda, það væri gríðarlega mikilvægt fyrir okkur. Eins og ég hef sagt áður er erfitt að reka fyrirtæki sem þarf að búa við svona miklar sveiflur í rekstri. Það er erfitt að vita af þúsundum ferðamanna hér hinu megin við sjóinn sem koma ekki til okkar því það er nóg af ferðamönnum yfir veturinn á Íslandi en á meðan við er bara að fara í Þorlákshöfn kemur enginn. Þetta finna allir bæjarbúar, þegar ferðaþjónustu fyrirtækin verða að stytta opnunartíma til að koma í veg fyrir meira tap yfir þessa "lokuðu" mánuði. Eins er að koma nýtt hvalasafn sem verður enn ein perlan í fjölbreytt úrval af afþreyingu í Eyjum. Við finnum mikinn áhuga fyrir því, þannig við teljum að það sé bjart framundan enda Eyjarnar náttúruperla með mikið að bjóða. Fólk áttar sig oft ekki á því fyrr en það er komið og hefði viljað vera lengur til þess að ná öllu. Eins er áhugi fyrir því að skoða flugsamgöngur betur, hvað það er sem hægt er að gera í því. Hagsmunaaðilar ferðaþjónustunnar í Eyjum taka yfir markaðsmál sem tengjast iðnaðinum: Það er mikið í húfi og þarf að byrja á einhverju sem allra fyrst :: Munu ráða verkefnastjóra í ákveðin verkefni :: Finna fyrir miklum áhuga og eru bjartsýn SARA SjöfN GREttiSdóttiR sarasjofn@eyjafrett ir. is Berglind ásamt eiginmanninnum Sigurði Gíslasyni, Gunnar Ingi Gíslason, Eyþór Þórðarson og Helga Björk Georgsdóttir á Mannamótum 2019.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.