Fréttir - Eyjafréttir - jan. 2019, Síða 17
Janúar 2019 | Eyjafréttir | 17
PÓLEY | BÁRUSTÍG 8 | S. 481-1155
PÓLEY GJAFAVÖRUVERZLUN | #POLEYVERSLUN
ÚTSALA
ÚTSALA
10-70%
AFSLÁTTUR
www.heimilislif.is
Leturstofan // Strandvegur 47
www.facebook.com/heimilislif
Núna er hægt að fá
vörurnar okkar hjá
Tyrknesk
handklæði,
ilmstangir
og
ilmkerti
Flug til Eyja er í algjöru lágmarki
og eins og nýjustu fréttir herma
með Erni að það verði jafnvel enn
minna er alls ekki gott, þetta þarf
að athuga vel,“ sagði Berglind.
Það er mikilvægt að
vera sýnilegur
Markaðsstofur landshlutanna, í
samstarfi við flugfélagið Erni og
Isavia, halda árlega ferðasýningu/
kaupstefnu á höfuðborgarsvæðinu,
þar sem landsbyggðarfyrirtæki í
ferðaþjónustu fá tækifæri til að
kynna sína þjónustu og vörufram-
boð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem
staðsettir eru á höfuðborgarsvæð-
inu. Mörg ferðaþjónustufyrirtæki
frá Vestmannaeyjum mættu þangað
til að kynna sig og sín fyrirtæki.
„Mannamót er fínn vettvangur til
þess að láta vita af sér og ná spjalli
við ferðaþjónustuaðila. Það er alltaf
þannig að manni finnst eins og
allir eigi bara að vita hvað allt er
frábært hér en það er nauðsynlegt
að mæta og kynna hvað við erum
að gera. Margir hverjir vita ekki
að við séum að fá fá nýtt skip sem
á að ganga oftar í Landeyjahöfn,
margir vita ekki af hvalasafninu
sem er að koma, að það sé hægt að
spila golf hér næstum því allt árið,
margir vita ekki af fjölbreyttri flóru
veitingastaða eða af brugghúsinu.
Það er mikilvægt að vera sýnilegur
og ná tali af þeim sem eru að selja
ferðir til Eyja og líka bara að sjá
hvað aðrir eru að gera. Lykilatriðið
mun þó alltaf vera það að það sé
einfalt og þæginlegt að komast til
Eyja, allar samgöngur þurfa að vera
þjónustumiðaðar og fólk þarf að
vita af okkur. Það er kominn tími á
þessar breytingar og við erum mjög
spennt,“ sagði Berglind að endingu.
Frá Mannamótum 2019 sem haldin var 17. janúar sl. Mannamót
er árleg ferðasýning/kaupstefna sem haldinn er af Markaðsstofum
landshlutanna.