Fréttir - Eyjafréttir - jan. 2019, Síða 19
Janúar 2019 | Eyjafréttir | 19
Eins ótrúlega og það hljómar
þá eru samin eru til fleiri
lög en Eyjalög. Það sem er
enn ótrúlegra þá eru meira
að segja Eyjamenn líka að
semja slík lög til að mynda
Eurovision lög. Síðast liðinn
laugardag kynnti RÚV lögin
sem taka þátt í undankeppni
Eurovision á Íslandi. Þar
mátti sjá kunnuglegt andlit
meðal höfundanna en þar er á
ferðinni Eyjamaðurinn Stefán
Steindórsson. Við tókum
aðeins púlsinn á okkar manni.
„Það má kannski segja að þetta
sé einhverskonar Country popp.
Textinn fjallar um þessa tilfinningu
að horfa til annars einstaklings sem
bætir þig að einhverju leiti,“ sagði
Stefán um lagið ‚Þú bætir mig‘
sem hann samdi ásamt Richard
Micallef. Textann samdi Stefán
einnig ásamt Nikos Sofis. „Það
þurfa allir einhvern, því í eðli sínu
er maðurinn ekki einfari.”
Lagið verður flutt af Ívari Daníels-
syni í Söngvakeppninni 2019 og er
eitt þeirra 10 laga sem keppa um
að vera framlag Íslands í forkeppni
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva 2019. Fyrirkomulaginu við
valið á lögum í undankeppnina var
með breyttu sniði í ár. Reyndir og
vinsælir lagahöfundar voru ráðnir
til að semja hluta laganna en auk
þess var valið úr innsendum lögum
líkt síðustu ár.
„Á haustin kallar RÚV eftir
lögum í keppnina og var skilafrest-
ur í lok október. Svo í nóvember
mánuði fer maður að horfa á sím-
ann og bíða eftir símtalinu góða.
Fljótlega eftir að tilkynning hefur
borist fer allt í fullt. Það eru fundir
með starfsmönnum Rúv, vinna
við útsetningu lagsins og undir-
búningur um atriðið sjálft. Svo í
byrjun janúar er skilað fullkláruðu
lagi í öllum hugsanlegum útgáfum.
Ensku, íslensku, karókí útgáfa og
hreint undirspil, sem er sú útgáfa
sem notuð er farið lagið alla leið.
Því er það lag sem heyrist á sviði í
keppninni hér heima það sem koma
skal í stóru keppninni í Ísrael.
Æfingar eru svo allan janúarmánuð
sem og viðtöl, myndatökur og
annað skemmtilegt umstang sem
fylgir þessu,“ sagði Stefán sem
nokkru sinnum áður hefur sent lag
inn í keppnina.
Ekki í fyrsta skiptið
í Eurovision
Þó hann hafi ekki áður átt lag í
keppninni er þetta ekki í fyrsta
skipti sem hann tekur þátt. „Ég
kom fyrst að keppninni árið 2007
þegar ég var með í flutningi á lagi
sem Eiríkur Hauksson flutti eftir
Svein Rúnar félaga minn. Það lag
sigraði og fórum við fyrir hönd
Íslands til Helsinki í Finnlandi. 5
árum síðar var ég aftur mættur
með gítarinn á svið í forkeppninni
hér heima og í þetta skiptið með
Magna í laginu Hugarró einnig
eftir Svein Rúnar. Það má segja að
árið 2007 hafi söngvakeppnisbakt-
ería mín náð nýjum hæðum. Ég
hef sent inn nokkur lög í keppnina
síðan þá,“ sagði Stefán sem hefur
fylgst vel með keppninni síðan
hann var aðeins þriggja ára. „Fyrsta
minning mín tengd keppninni er
sú að fjölskyldan safnaðist alltaf
saman í sjónvarpsherberginu á
Höfðaveginum til að horfa saman
á Eurovision. Steríótækið var
flutt úr stofunni til að fá sem best
hljómgæði og svo var hækkað. Ég
gæti trúað að ég hafi verið jafn-
vel fyrir framan sjónvarpið 3 ára
gamall, árið 1981 þegar ‚Making
your mind up‘ sigraði keppnina
og ég hef ekki misst af Eurovision
keppninni síðan. Ég þakka for-
eldrum mínum fyrir þetta tónlistar-
uppeldi.”
Einn af skúffuskáldunum
Þú bætir mig, er langt frá því að
vera fyrsta lagið sem Stefán semur.
„Ég sem talsvert af lögum. Þau rata
flest í skúffuna góðu sem allir laga-
höfundar eiga og safna þar saman
bæði laglínum og textabrotum sem
svo koma að góðum notum seinna.
Ótal ‚skúffuskáld‘ eins og það oft
er kallað, sem liggja á perlum í
þannig skúffum. Einhver lög eftir
mig hafa þó fengið að sjá dags-
ljósið. Draumurinn um að koma
lagi í Eurovision hefur oft knúið
mig áfram eða áhugi minn til að
fá að semja Þjóðhátíðarlag, en
þar tel ég halla óþarflega á okkur
Eyjamenn. Þrátt fyrir mörg stórgóð
þjóðhátíðarlög sem komið hafa
undanfarin ár er hálfgerð synd að
ekki sé litið til Eyjamanna í leit af
þjóðhátíðarlögum og textum og
þætti mér mikill sómi að Eyjamenn
fengju tækifæri þar. Við eigum
að standa teinrétt í þeim efnum
og bjóði gestum hátíðarinnar á
heimagerð lög eins og við gerðum
svo vel á árum áður og þar urðu til
ódauðlegar perlur sem t.d. flutt eru
í fullum sal í Hörpu ár hvert,“ sagði
Stefán en hann samdi sitt fyrsta
lag 14 ára gamall. „Ég samdi mitt
fyrsta lag þegar ég var 14 ára. Ég
og Egill æskuvinur minn dældum
út lögum á þessum árum og síðan
hef ég ekki hætt.“
Ekki vinsældarkeppni
Undanúrslitakvöldin verða tvö og
fara fram í Háskólabíói 9. og 16.
febrúar. Úrslitakeppnin verður
svo haldin með pomp og prakt í
Laugardalshöll 2. mars. „Ívar Daní-
els stígur á svið laugardaginn 16.
febrúar og flytur lagið í undan-
úrslitum. Ásamt því verða fjögur
önnur lög sem keppa um að komast
áfram. Tvö komast svo í úrslit frá
hvoru kvöldi og því gríðarlega
mikilvægt að allt gangi vel fyrir
sig því baráttan er gríðarleg. Þar
verður hart barist um hvert at-
kvæði,“ sagði Stefán að lokum og
hvatti Eyjamenn til að taka þátt í
kosningunni og velja með hjartanu.
„Ég skora á Eyjamenn að hlusta
á öll lögin sem í boði eru og velja
með hjartanu þegar opnað verður
fyrir atkvæði. Söngvakeppnin
er lagakeppni fyrst og fremst en
ekki vinsældakeppni og snýst um
að gera góða skemmtidagskrá.
Gleðin er við völd hjá öllum sem
að keppninni standa og vona ég að
sú gleði skili sér alla leið inní stofu
til Eyjamanna sem vonandi safnast
saman með vinum og ættingjum til
að eiga huggulega kvöldstund.“
Hvet Eyjamenn til að
kjósa með hjartanu
:: segir Eyjamaðurinn Stefán Steindórsson sem tekur þátt
í Söngvakeppni Sjónvarpsins
SæþóR Vídó
þoRbjARNARSoN
sathor@eyjafrett ir. is
Ívar Daníelsson flytur lagið
sem heitir Þú bætir mig.
Ég skora á Eyjamenn
að hlusta á öll lögin
sem í boði eru og velja
með hjartanu þegar
opnað verður fyrir
atkvæði. Söngvakeppn-
in er lagakeppni fyrst
og fremst en ekki
vinsældakeppni og
snýst um að gera góða
skemmtidagskrá.
”