Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jún. 2019, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - jún. 2019, Blaðsíða 8
8 | Eyjafréttir | Goslok 2019 laufey Jörgensdóttir fékk góða hugmynd á vormánuðum í fyrra þegar hún var eitthvað að brasa og fannst skrásetning þjóðhátíðarlaganna ekki nógu góð. Henni fannst við þurfa bæði að varðveita og lyfta betur upp þessum menningar- arfi okkar eyjamanna. Hún tók málið í sínar hendur og núna í júlí kemur út bókin Undur fagra ævintýr, bók sem fjallar um öll þjóðhátíðarlögin. „Ég hef alltaf verið áhugasöm um heimildagerð, íslenska tónlist og þar með talin þjóðhátíðarlögin og ég er mikið þjóðhátíðarbarn og langaði því einfaldlega sjálfri í svona bók. Þegar ég fór svo að skoða þetta fannst mér þetta mjög þarft verkefni, sér í lagi hve margir höfundar eru komnir vel á aldur og heimildir mögulega að glatast. Ekki síður til þess að kenna komandi kynslóðum lögin, söguna og fleira þessu tengt,“ sagði Laufey. Ákvað að elta drauminn Laufey stóð á tímamótum eftir 18 ár í starfi í upplýsingatækni og hafði því tímann og ákvað að elta þennan draum að skrásetja efnið frekar í bók. „Þegar ég svo sá að bæði Þjóðhátíð fagnaði 145 ára afmæli og Vestmanneyjakaupstaður 100 ára afmæli hugsaði ég að það væri skemmtilegt að bókin kæmi út þetta merka menningarár svo ég lagði af stað með það að markmiði. Í fyrstu ætlaði ég að gefa út sjálf en þegar lítill fugl hvíslaði að mér að Tómas Hermannsson, afabarn Árna úr Eyjum (frá Háeyri) sem samdi fyrstu þjóðhátíðartextana, ætti bókaútgáfu fór ég og heimsótti hann og með okkur tókst gott sam- starf,“ sagði Laufey. útgáfan er vegleg Bókin hefur fengið nafnið Undur- fagra ævintýr og segir Laufey það vísa í gamla tímann sem markar upphafið. „Útgáfan er vegleg og í henni er að finna öll þjóðhátíðar- lögin okkar frá 1933 í tímaröð, með textum, gítarhljómum og -gripum, ásamt viðtölum við ýmsa höfunda og flytjendur. Fjölmargt annað sögulegt efni er í bókinni ásamt ýmsu skemmti- og ítarefni. Hún er ríkulega skreytt fallegum ljósmyndum og enn fremur er hægt að hlusta á þjóðhátíðarlögin beint af síðum bókarinnar með því að skanna með síma kóða viðkomandi lags. Undurfagra ævintýr verður allt í senn fróðleg, skemmtileg og falleg. Menningargripur sem ætti að vera skyldueign á hverju einasta Eyjaheimili, í hvítu tjöldunum og hjá öllum þeim fjölmörgu sem unna Þjóðhátíð og tónlist hennar,“ sagði Laufey. Núna er hægt að hlusta á öll þjóðhátíðarlögin á netinu Aðspurð um hverni hafi gengið að safna öllu saman sagði Laufey það ekki hafa verið átakalaust. „Í heildina gekk ágætlega að safna þessu saman en vissulega ekki átaka- laust. Fyrst kortlagði ég öll lagaheiti og höfunda sem var oft misvísandi. Svo safnaði ég saman öllum textunum og gítargripum. Setja þurfti niður gítar- grip við 15 lög sem vantaði grip við. Þá tók ég 45 viðtöl við ýmist höfunda eða flytjendur. Ég lýg því ekki að þetta hafi verið auðvelt en gaman var það og búið að vera hálpartinn Þjóðhátíð hjá mér í heilt ár. Ég leitaði til Haf- steins Guðfinnssonar með lögin frá 1933-1969, sjálfsagt þekkir enginn betur þau lög en hann. Þá leitaði ég til Skapta Arnar Ólafssonar með að gera ágrip af sögu Þjóðhátíðar. Eyja-ljósmyndararnir okkar eru algjörir snillingar og voru ómetan- legir fyrir að ljá myndir í bókina, annað hefði verið ógjörningur. Samhliða bókinni ákvað ég að safna saman öllum lögunum og skrá þau á Spotify því mig langaði að hægt væri að hlusta á lögin úr bókinni. Það tókst á endanum og tel ég nú mikinn sigur unninn að hægt verði að hlusta á nær öll þjóðhátíðarlögin í réttri tímaröð en gerður verður spilunarlisti í samstarfi við Alda music á Spotify samhliða bókinni. Þar er sem dæmi að finna nýjar útgáfur af þremur lögum Geira í Hágarði sem Helgi Hermannsson tók sig til og söng í tilefni bókarinnar og lög sem bæði Björgvin Halldórs og Stefáns Hilmarsson hafa sungið en ekki verið aðgengileg til spilunar áður,“ sagði Laufey. mætir árlega á þjóðhátíð Þjóðhátíð skipar greinilega stóran sess hjá þér þar sem þú fórst í þetta verkefni? Já Þjóðhátíð skipar að sjálfsögðu stóran sess hjá mér eins og flestum okkar frá Eyjum. Ég mæti árlega að sjálfsögðu og finnst það mikilvægt uppá að viðhalda góðum kynnum með fjölskyldum og vinum. Fólkið, náttúran, tónlistin og gleðin á sama tíma á sama stað í Herjólfsdal togar alltaf hrikalega í mann. bókin kemur út fyrir Þjóðhátíð Ákveðið var að fara af stað með hollvinaskrá (tabula) og bjóða þar með öllum Eyjamönnum og unnendum Þjóðhátíðar og tónlistar hennar að fá nafn sitt í bókina og tryggja sér eintak í leiðinni. „Það er algeng leið með svona skrásettar heimildabækur og gefur einnig mynd af hve mörg eintök eigi að prenta og hjálpar að áætla kostnað. Það er gríðarlega kostnaðarsamt að gefa út bækur í dag og sjálfsagt þess vegna hefur sambærileg bók ekki komið út en með góðu sam- starfi við Sögur útgáfu og góðum viðtökum hollvina í nafnaskrá bókarinnar mun okkur takast ætlunarverkið og þannig stöndum við saman að varðveislu okkar merka menningararfs sem er það mikilvægasta af þessu öllu saman,“ sagði Laufey Útgáfuhóf verður í Safnahúsi Vestmannaeyja 6. júlí kl. 15-16 á goslokahátíðinni. Þar verður handritið til sýnis, létt þjóðhátíðar- stemmning og síðasti dagurinn til að skrá sig í hollvinaskránna. „Það eru allir hjartanlega velkomnir og bókin fer svo í prentun 7. júlí og mun koma út í Þjóðhátíðar- vikunni ef allt gengur að óskum sem það gerir vonandi. Ég óska þess að Eyjamenn taki vel á móti bókinni og um að gera að nýta sér tækifærið til að gerast hollvinir fyrir 6. Júlí. Þá vil ég að endingu þakka innilega öllum velunn- urum bókarinnar og hollvinum hennar. Án ykkar hefði þetta verið ógjörningur. Hlakka svo til að sjá ykkur í dalnum og skál í tjaldinu,“ sagði Laufey að endingu. Undurfagra ævintýr: Ætti að vera skyldueign á hverju einasta eyjaheimili :: Heimildarbók um öll þjóðhátíðarlögin allt frá árinu 1933 SARA SjöfN GREttiSdóttiR sarasjofn@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.