Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jún. 2019, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - jún. 2019, Blaðsíða 11
Goslok 2019 | Eyjafréttir | 11 „Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég vaknaði upp með andfælu nóttina 23. Janúar 1973, það var lamið duglega á gluggann á svefn- herbergi hjá okkur hjónunum við Gerðisbraut fjögur,“ sagði Þórarinn sigurðsson sem alltaf er kallaður Tóti í Geisla þegar við fengum hann til að rifja upp gosið með okkur. Tóti er giftur Guðrúnu Jóhannsdóttur og stóð hús þeirra hjóna við Gerðisbrautina tveimur húsum frá húsinu sem búið er að grafa upp inní eldheimum. „Ég man að ég rauk á fætur við bankið á glugganum og hélt það væri verið að ræsa mig til vinnu. Fyrir utan gluggann stóð nágranni minn sem þá var, Óskar heitinn Björgvinsson. Ég sé hann ennþá fyrir mér í dag þar sem hann stóð fyrir utan gluggann allur eldrauður vegna bjarmans frá gosinu, kallandi “komið ykkur á fætur, það er farið að gjósa.” Ég fór fram í dyr til að tala við Óskar og þegar ég opnaði dyrnar sá ég öll herlegheitin, eld- rauður himininn fyrir austan mig og óskaplegar drunur frá gosinu. Ekki varð mikið úr okkar sam- ræðum en ég man að Óskar sagði, “Komdu þér í föt, ræstu konuna og farið vestar í bæinn og þar með var hann rokinn,“ rifjar Tóti upp. alveg dolfallinn Tóti ræsti eiginkonu sína hana Gunnu eins og hún er alltaf kölluð, náði í myndavélina og fór austast á Gerðisbrautina. „Þegar ég kom þangað sá ég hvað var að gerast, jörðin opin og eyjan rétt austan við mig logaði öll, frá sjó við Kirkju- bæina og suður fyrir Helgafell eða eins langt og ég gat séð. Ég var alveg dolfallinn, gleymdi að taka myndir, dreif mig heim og sagði við konuna að við skyldum forða okkur hið snarasta,“ sagði Tóti. Vildi fara og reyna bjarga einhverju Tóti sagði að næstu skref hjá sér og sínum þessa nótt hefði verið svipuð eins og hjá öðrum. „Við fórum með M/b Halkion til Þorlákshafnar, ætli það hafi ekki verið svona 250 til 300 mans um borð í bátnum. Leiðin lá svo til Reykjavíkur og þar fengum við athvarf hjá ætt- ingjum Gunnu, en þegar þangað var komið var ég orðinn friðlaus og vildi komast til baka til að reyna bjarga einhverju úr húsinu okkar sem stóð nánast við sprunguna.“ Tóti fór þá að athuga með ferðir til Eyja en kom allsstaðar að lokuðum dyrum. „Um kvöldið kíkti ég niður á höfn, ég hafði heyrt að M/s Hekla ætti að sigla um kvöldið til Eyja. Þegar ég reyndi að komast um borð þar að þá var mér vísað frá af því að ég var Eyjamaður. En í öllu svartmættinu þá mætti ég Ármanni Eyjólfssyni skólastjóra stýrimanna- skólans, sagði honum stöðuna og hann tók þessu með stakri ró, sagði mér að bíða aðeins rólegur, eftir tíu mínútur var ég kominn um borð og á leið til Vestmannaeyja.“ bjargaði búslóðinni Tóti kemur til Vestmannaeyja að morgni 24. janúar og fer strax í það að tæma húsið sitt við Gerðisbraut. „Ég fékk að geyma dótið okkar í kennslustofu í Barnaskólanum hjá Reyni Guðsteinssyni og var búslóðin þar í fjóra daga áður en henni var komið til Reykjavíkur. Þetta varð samt til þess að ég fór að vinna með Reyni en hann setti á laggirnar björgunarsveit sem hafði aðsetur í barnaskólanum,“ sagði Tóti sem var í þessari sveit og hjálpaði til við búslóðaflutningar. tók vertíð í gosinu Eftir að búslóðaflutningunum lauk ætlaði Tóti að fara í borgina til þess að vinna, en það átti eftir að breytast. „Ég hitti þá Viktor Helga á förnum vegi og hann spurði hvort ég hefði áhuga á að koma og vinna fyrir hann í gúanóinu sem var að fara í gang því bræða átti loðnu. Ég var meira en til í það og var þar að vinna út vertíðina,“ sagði Tóti. Við fórum að ráðum garðars veitustjóra Um vorið þegar bræðslunni var að ljúka ákvað Tóti að freista gæfunnar og reyna fá gröfu hjá Áhaldahúsinu til þess að grafa upp húsið sitt. „Húsið okkar fór undir á fyrstu viku gossins en mig langaði að freista gæfunnar og reyna grafa það upp. Ég hafði einhverja vitneskju um hvar húsið átti að vera og menn reiknuðu að það væru einhverjir tíu til tólf metrar í það. Ég var í töluverðum vandræðum með að staðsetja húsið og eftir miklar vangaveltur ákvað ég að fara til Garðars veitustjóra og athuga hvort hann gæti hjálpað mér þar sem ég hafði á tveimur stöðum þó nokkuð vestar séð ljósastaura þar sem kolurinn stóð rétt upp úr öskunni. Ég man að Garðar fór í kort hjá sér af þessu svæði, gerði nokkrar mælingar og sagði svo, “ef þú mælir 106 metra frá þessum staur hér beint í austur og 68 metra frá þessum í suður og þar sem mælingarnar krossast þá ertu um sex metra fyrir framan gaflinn á húsinu. Þú skalt byrja að grafa þar og til suður.“ Við fórum að ráðum Garðars og það passaði nákvæm- lega, við hittum á miðjan gaflinn,“ rifjar Tóti upp. aðstoð frá slökkviliðinu „Við komum að svefnherbergis- glugganum sem Óskar hafði barið hressilega á og var brotinn og því slangur af vikri inn í húsinu. Ég hreinsaði glerbrotinn úr glugganum og vippaði mér inn. En um leið og ég kom inn missti ég andann og varð snapheitur á löppum og lærum, húsið var sem sagt fullt af gasi, þannig það var ekkert annað að gera en að forða sér út,“ sagði Tóti sem ekki var tilbúin a gefast upp og var því næst á dagskrá að kíkja niður á slökkviliðsstöð og fá aðstoð. „Þar fengum við hjálp, ég fékk súrefnistæki og með mér komu tveir menn úr slökkviliðinu, Addi Bald tók það ekki í mál að ég færi einn þarna inn. Við komum okkur aftur upp eftir, settum tækin á okkur og ég ásamt einum öðrum fórum inn í húsið og einn beið úti til að fylgjast með.“ allt ónýtt á einni nóttu Það sem gerðist næst lýsir Tóti sem eitt af mögnuðustu stundum í hans lífi. „Þetta var alveg rosalega skrýtin tilfining að labba svefnher- bergisganginn og fara inn í stofu. Það er erfitt að setja svona til- finingar í orð og þegar ég staldraði við í stofunni og virti fyrir mér það sem ég sá er erfitt að útskýra. Loftið var sigið enda þurftum við að grafa tólf metra niður til þess að komast að húsinu. Ég stóð þarna og virti fyrir mér það sem ég sá með ljósgeilsanum frá vasaljósinu. Í raun var allt eins og ég hafði skilið við það þegar ég fór og hreinsaði úr því í byrjun á gosinu. Dagblöð á gólfinu sem ég hafði notað til þess að pakka glerinu, í glugganu var blómið hennar Gunnu, blöðin á blóminu löfðu aðeins niður, svona eins og það hefði gleymst að vökva þau í smá tíma. Þarna var líka heimasíminn og á eldhúsborð- inu var sultukrukka og jólakaka sem ég hafði tekið út og ætlaði að taka með mér daginn eftir, hjá jólakökunni stóð hitakanna, hálffull af kaffi. En málið var að það varð aldrei daginn eftir, því þessa nótt hvarf húsið í vikur. En þarna stóð ég í myrkrinu og þögninni, með undirspil af hvæsinu úr súrefnis- tækjunum. Ég man að það færðist yfir mig ró og hugurinn fór að reika til tímans er við byggðum húsið, þarna þekkti maður hverja skrúfu og hvern blett, en á móti kemur læddust að manni hugsanir hver tilgangurinn með öllu þessu brölti hefði eigilega verið, þegar allt verður ónýtt á einni nóttu,“ rifjar Tóti upp. aftur inn að bjarga verðmætum Þeir sneru því næst við út í dags- ljósið til þess að skipta um súrefn- iskúta. „Ekki vorum við búnir að vera lengi úti þegar efnishyggjan tók völdin og við ákváðum að drífa okkur aftur inn og reyna bjarga verðmætum. Ég man við byrjuðum á að taka skápa inni á baði og síðan var ráðist á hreinlætistækin. Þegar við vorum að bora klósettið þá kom allt í einu þessi dómdags hávaði þannig að ég missti næstum legvatnið af hræðslu og hugsaði að nú væri kofinn að leggjast saman, sem betur fer reyndist það ekki vera svo, en mælirinn á tækjunum sem við vorum með sem mældi stöðuna á loftinu sprakk af og mátti ég henda öllu frá mér og forða mér út. Við kláruðum samt að taka það sem okkur þótti slátur í úr húsinu og meiri hlutinn af því sem við björguðum var inni á heimilinu okkar sem við byggðum við Ill- ugagötu 15a. Eftir standa ennþá sterkar minn- ingar af sofandi blómi í glugganu og svo ég tali nú ekki um jólakök- una sem aldrei var borðuð,“ sagði Tóti að endingu. SARA SjöfN GREttiSdóttiR sarasjofn@eyjafrett ir. is Gunna og Tóti í fermingarveisu í Þykkvabænum árið 1973.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.