Fréttir - Eyjafréttir - jún. 2019, Page 13
Goslok 2019 | Eyjafréttir | 13
sýningar og
endurteknir
viðburðir:
Akóges – föstudag til
sunnudags kl. 13:00-
18:00. Sigurfinnur
SigurfinnSSon.
Café Varmó – föstudag til
sunnudags kl. 11:00-18:00.
ragnheiður hrefna
gunnarSdóttir.
Einarsstofa/Sagnheimar –
föstudag til sunnudags
kl. 10.00-17:00. hulda
hákon og Jón óSkar.
Eldheimar – föstudag til
sunnudags kl. 09:00-18:00.
Jón óSkar.
Flugstöðin – föstudag til
sunnudags kl. 09-19:00.
tolli MorthenS.
Landlyst og Stafkirkjan
– alla daga kl. 10:00-17:00.
Ókeypis aðgangur.
Safnaðarheimilið
– föstudag til sunnudags
kl. 13:00-18:00. gíSlína
dögg BJarkadóttir.
Salur Tónlistarskólans –
laugardag og sunnudag
kl. 14:00-18:00.
MyndliStarfélag
VeStMannaeyJa.
Cratious-króin á Skipasandi –
föstudag 14:00-18:00
og laugardag kl. 14:00-00:00.
Viðar BreiðfJörð.
Eymundsson – fimmtudag og
föstudag kl. 09:00-18:00,
laugardag kl. 10:00-16:00.
Sunna Spákona.
Svölukot – föstudag til
sunnudags kl. 13:00-18:00.
SVaVar SteingríMSSon.
Veituhúsið á Skansinum –
laugardag og sunnudag
kl. 14:00-18:00.
áSta VilhelMína
guðMundSdóttir
og Sung Beag.
Þekkingarsetur Vestmannaeyja
– laugardag og sunnudag
kl. 13:00-18:00. kriStinn
pálSSon.
Bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2019,
Viðar Breiðfjörð sýnir verk sín í Cratious-krónni
á Skipasandi og verður sýningin opnuð klukkan
20.00 á fimmtudagskvöldið. Verkin á sýningunni
hefur Viðar unnið á síðustu tveimur árum auk verka
sem hann hefur unnið í sumar.
„Mín myndlist eru þakkir fyrir að vera á lífi,“
sagði Viðar sem var staddur á Þórshöfn á Melrakka-
sléttu á leið sinni um landið þegar rætt var við hann.
„Ég hef lent í slysum og oftar en einu sinni verið
nálægt því að deyja. Hef sloppið og fyrir það er ég
óendanlega þakklátur. Lífsviljinn og lífsgleðin er
það sem endurspeglast í myndum mínum.“
Myndefnið sækir hann víða en þó eru þrjú stef í
sýningunni. „Það er sería af húsamyndum sem
ég kalla Í húsum hæf, nokkrar apstraktmyndir og
uglumyndir sem eru innblásnar af samskiptum
mínum við mannlífið.“
Viðar er fæddur 31. maí árið 1962 á Húsavík. Hann
fluttist til Vestmannaeyja árið 1983 og hefur búið
hér og starfað æ síðan.
„Náttúra Vestmannaeyja hefur verið honum inn-
blástur í listsköpun sinni og skildi þá engan undra.
Verk hans eru bæði olíumálverk, vatnslitaverk auk
teikninga og beitir Viðar „blandaðri tækni“. Hann
er vandvirkur, tekur sér tíma til þess að klára verk
sín og hefur mörg járn í eldinum ef svo má segja,
en hann vinnur við mörg verk samtímis,“ sagði
Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs þegar hann
tilkynnti val ráðsins á Bæjarlistamanni Vestmanna-
eyja 2019 í vor.
„Ævistarf hans er fyrir löngu orðið samofið
myndlistarlífi Vestmannaeyja og ástríða hans fyrir
myndlist er virðingarverð. Viðar auðgar menningar-
líf okkar Eyjamanna svo um munar og er því vel að
þessari viðurkenningu kominn,“ sagði Njáll einnig.
Viðar Breiðfjörð:
lífsviljinn og lífsgleðin
í myndum mínum
Gakktí Bæinn er grafísk sögusýning sem fjallar
um uppbyggingu og arkitektúr í Vestmannaeyjum
fyrir Heimaeyjargosið 1973. Í tilefni af 100 ára
kaupstaðarafmæli sveitarfélagsins verður sýning
á einföldum húsateikningum í grafískum stíl
í Fiskiðjuhúsinu að Ægisgötu 2, laugardag og
sunnudag 6.-7. júlí frá 13.00-17.00.
Sýningin verður upp sett með þeim hætti að
gestir geta gengið um götur og hverfi þar
sem fjallað er um arkitekta, byggingarstíla og
götumyndir í Vestmannaeyjum. Mikill fjöldi
veggspjalda verður til sýnis af byggðum og
óbyggðum verkum misþekktra hönnuða ásamt
einföldu og fræðandi lesefni. Sýningin er jafn-
framt hugsuð sem umræðuvettvangur þar sem
gestir geta rætt áhrif byggingarlistar á mannlegt
umhverfi og hvaða áhrif Heimaeyjargosið hefur
haft á ásýnd sveitarfélagsins. Auk þess að sýna
hve ábyrgðarmikið hlutverk það er að hanna um-
hverfi okkar.
Sýningin er hugarfóstur arkitektsins og eyja-
mannsins Kristins Pálssonar. Kristinn hefur
stundað nám í arkitektúr bæði á Íslandi og
erlendis. Hann þekkja margir sem fyrrverandi
skopteiknara Morgunblaðsins og fyrrum starfs-
mann Vestmannaeyjabæjar, þar sem hann var
meðal annars í undirbúningi Goslokahátíðar
síðastliðin ár.