Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jun. 2019, Síða 15

Fréttir - Eyjafréttir - jun. 2019, Síða 15
Goslok 2019 | Eyjafréttir | 15 Þar sem ekkert hafði verið tekið með úr Eyjum fengu þau lánuð föt frá Rauða krossinum þar á meðal fékk Dísa náttföt sem henni fannst svo æðisleg að hún var ekki sátt við að skila þeim aftur fyrr en hún heyrði að hugsanlega þyrfti annað barn þau seinna. ,,Við vorum síðar um daginn sótt af manni frænku okkar og fórum í Gnoðarvoginn til þeirra. Þar sváfu flóttamennirnir frá Eyjum í nokkra daga á dýnum út um allt hús. Pabbi fór fljótlega til Eyja að ná í dótið okkar og vann síðan í Áhalda- húsinu fram á haust. Hann pakkaði öllu niður en henti öllu sem honum þótti óþarfi svo sem eins og frímerkja-, servíettu- og skeljasafn- inu mínu,” segir Dísa og bætir við að eftir nokkra daga hafi fjögurra manna fjölskyldan fengið eitt her- bergi í íbúð hjá frænda þeirra. ,,Við vorum ekki lengi þar, mamma ákvað að fara til Eyja að vinna við að elda ofan í björgunarliðið. Okkur systrunum var tvístrað. Ragnheiður fór til Hönnu Möllu frænku í Kópavog en ég var send til Júlíu frænku minnar í Bolungarvík. Það var gott að vera í Bolungarvík og vel komið fram við mig en ég upplifði það að vera ,,flóttamaðurinn” og saknaði fjölskyldunnar mikið,” segir Dísa sem flutti eftir mánaðardvöl aftur til Reykjavíkur þegar í ljós kom að mamma hennar var ófrísk og ekki forsvaranlegt að hún væri í þannig ástandi í Eyjum. barin fyrir að stela úr viðlagasjóði, 10 ára Mæðgurnar fluttu saman í hjóla- geymslu í Eyjabakka í Breiðholtinu sem breytt var í litla stúdíóíbúð en til þess að komast á klósett þurfti að fara fram á gang og vera snöggur því á ljósinu í ganginum var tímarofi. Dísa lenti í miklu einelti í Breiðholtsskóla fyrir það eitt að vera flóttamaður frá Eyjum. Hún segist hafa upplifað að hún ætti hvergi heima, sumir hefðu tekið vel á móti henni en aðrir sýnt mikla andúð. Hún segist hafa verið barin fyrir að stela úr Viðlagasjóði og vera Eyjamaður. Hún hafi því brugðið á það ráð að flýta sér upp á þak á skúrum á skólalóðinni í frímínútum og hlaupa eins hratt og hún gat heim. Hún var þó ekki alveg vinalaus og eignaðist góða vinkonu sem hún gat heimsótt. Um sumarið fór Dísa eins og rúmlega 900 önnur börn sem búsett voru í Vestmannaeyjum þegar gosið hófst, í tveggja vikna ferð til Noregs í boði Rauða Krossins. Dísa segist hafa farið til Gjøvik með fullt af krökkum og muni eftir því að hafa fundist trén og sjó/vatnsböðin mest spennandi. Um haustið keyptu for- eldrar Dísu íbúð á Grundarstíg og Dísa fór í Austurbæjaskóla þar sem hún fékk góðar viðtökur. ,,Þegar þarna var komið var ég komin í einhverja uppreisn og var fljót að svara fyrir mig. Ég man að ég tók upp hanskann fyrir bekkjarfélaga minn en löngu síðar varð þessi drengur mágur minn. Fyrir það var ég rekin úr skólanum en fljótt tekin inn aftur og beðin afsökunar,” segir Dísa sem harð- neitaði að búa áfram á fastalandinu þegar foreldrar hennar ræddu um það hvort þau ættu að fara aftur til Eyja eða ekki. Hefur fyrirgefið eineltið með hjálp trúarinnar ,,Við komum heim í janúar 1974, það var gott að koma heim aftur en mjög erfitt. Húsið okkar hafði verið notað sem opinber gististaður og hafði eðlilega látið á sjá. Allt var svart og drungalegt í bænum og skömmtunarmiðar í búðunum. Ég man að við fengum meiri mjólk en aðrir af því að það var ungabarn á heimilinu. Smátt og smátt lagaðist ástandið og varð betra. Ég lenti í einelti í skólanum fyrir að vera föðurlandssvikari af því að við komum ekki strax aftur heim um haustið. Eineltið jókst og mér var farið að líða verulega illa, það breyttist frá því að vera líkamlegt yfir í andlegt og útskúfun” segir Dísa sem hefur enga hugmynd um það hvers vegna hún lenti í einelti. Dísa telur að kristilegu sam- tökin, Ungt fólk með hlutverk, sem störfuðu í Eyjum hafi bjargað sér á unglingsaldrinum. ,,Með hjálp trúarinnar gat ég fyrir- gefið krökkunum þessi bernsku- brot. Ég missi ekki af fermingar- mótum og finnst frábært að hitta alla krakkanna,” segir Dísa sem ákvað að fara í framhaldsskóla eins langt í burtu og hægt var. Hún fór á náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri og átti þar dásamleg ár þar sem hún fótaði sig í lífinu og fikraði sig áfram á þroska-braut- inni. Dísa útskrifaðist 17. júní 1983 úr MA. Í byrjun menntaskólans var áhuginn aðallega á stærðfræði og vildi hún verða verkfræðingur. En þegar á leið varð áhuginn allur á líkam-ann og það sem tengdist honum. Hún ákvað því að mennta sig í hjúkrunarfræði. Eftir að hafa unnið á gjörgæslu nær 20 ár ákvað Dísa að mennta sig í svæfinga- hjúkrun sem hún segir ekki eins líkamlega erfiða. Dísa segir alltaf jafn erfitt að annast fólk sem lítið sem ekkert sé hægt að gera fyrir og erfiðast sé að hjúkra fárveikum börnum sem eiga sér jafnvel litla sem enga lífsvon. Dísa segir að fullvissa um að góður staður bíði þeirra eintaklinga sem kveðja þennan heim hjálpi til að takast á við erfiða hluti í starfinu. Á unglingsárunum vann Dísa í öllum fríum í Vestmannaeyjum. Mest í fiski hjá Ísfélaginu og þá oftast á vélunum með fínan bónus. Á 18. árinu vann hún sem þerna um borð í gamla Herjólfi sem hún segir hafa verið þroskandi og skemmtilegt starf sem hafi sjóað hana á ýmsan hátt. Dísa vann fyrsta árið eftir hjúkrun í eitt sumar á sjúkrahúsinu í Eyjum. Síðan hefur hún nánast verið á Landspítalanum. Hún prófaði að fara til Hønefoss í Noregi að vinna á gjörgæsludeild nokkrar vikur sumarið 2014. ,,Ég fékk heilmikinn pening fyrir mjög mikla vinnu. Þar var ég látin hafa fyrir hlutunum og lítið verið að aðstoða útlendinginn. Þegar ég var búin að að sanna mig var falast eftir því að ég kæmi aftur, en ég læknaðist af þessari Noregs vertíðarbakteríu eftir fyrsta sum- arið,” segir Dísa. Ákveður að dagurinn verði góður ,,Lífið hefur boðið mér upp á marga baráttu. Í þeim baráttum hefur sú persónulega trú sem ég eignaðist á unglingsárum hjálpað mér. Ég hef oft bognað en aldrei brotnað, í dag er ég á góðum stað og lífið brosir við mér. Það skiptir miklu máli að byrja hvern dag á því að ákveða að dagurinn verði góður,” segir Dísa sem spilar blak og er ný byrjuð í golfi. Hún segist ætla að vera dugleg að æfa sig í golfinu í sumar. Hún er í spilakúbbi með gömlu skólafélögum frá Menntaskólanum á Akureyri, í tveimur saumaklúbbum þar af einum með átta jafnöldrum úr Eyjum sem búsettar eru á höfuð- borgarsvæðinu. ,,Ég elska, göngur um allt frá fjörum til fjalla, finnst gott að synda í sjónum og nýti mér Yoga nidra og kyrrðarjóga til afslöppunar í amstri dagsins. Auk þess er ég virk í félagsstörfum fyrir fagdeild- ina mína. Ég hef alltaf haft gaman af því að syngja og byrjaði eftir gos í Stúlknakór Vestmannaeyja. Núna syng ég í kór hjúkrunarfræðinga sem stofnaður var í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga, í ár. Svo reyni ég að sinna ömmubörnunum og lesa og prjóna,” segir Dísa sem bætir við að með hækkandi aldri og meiri þroska sé hún víðsýnni, umburðar- lyndari og þolinmóðari. Hún segir engan komast í gegnum lífið án áfalla en það sem skipti mestu máli sé hvernig einstaklingurinn vinni úr þeim og reyni að læra af. Systurnar Emilía, Þórdís, Páley og Ragnheiður umkringja foreldra sína Borgþór og Októvíu. M yn d: G uð bj ör g G uð m an ns dó tt ir. Barnabörnin að prófa það sem amma Dísa gerir í vinnunni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.