Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jun 2019, Side 16

Fréttir - Eyjafréttir - jun 2019, Side 16
16 | Eyjafréttir | Goslok 2019 listakonan Gíslína Dögg Bjarkadóttir hefur ekki slegið slöku við síðustu misserin eins og blaðamaður fékk að sjá þegar hann kíkti við á heimili hennar á dögunum, en vinnustofan hennar er í risinu á húsinu og þar mátti sjá ótal falleg verk, tilbúin og í vinnslu. Hluta af vinnunni ætlar hún að sýna um helgina í safnaðarheimilinu þegar hún opnar sýninguna mitt á milli. „Núna hef ég aðeins verið að hvíla mig frá málverkinu og er í raun að skapa eitthvað allt annað en ég hef verið að gera. Ég hef verið að kynna mér margar aðferðir og er að blanda ýmsu saman. Ég tók þá ákvörðun í janúar að einbeita mér algjörlega að listinni og sinna henni að fullu. Það var svolítið erfið ákvörðun sérstaklega vegna þeirrar togstreitu við að sinna heimili, börnum og einhverri hefðbundinni launavinnu,“ sagði Gíslína. konurnar enn meðal viðfangsefna Síðustu ár hefur Gíslína verið að fást við málverkið og þar hefur viðfangsefnið hennar verið kon- ur, „ ég hef eiginlega alltaf verið með konurnar í fókus og fyrir fjórum árum var ég með sýninguna „Konur í þátíð“. Ég er ekki hætt með konurnar sem viðfangsefni og má sjá þær í verkum mínum í dag, eins munstrin hans Sigurðar Guðmundssonar málara, þetta hafa verið mín einkenni. Ég leik mér reyndar svolítið með munstrin, breyti þeim og fer með þau lengra og í aðrar áttir. Svo hef ég verið að koma meira með náttúruna inní verkin núna og þróa það sjálfsagt eitthvað meira áfram,“ sagði Gíslína Núna er það grafík Á sýningunni um helgina verður aðallega um grafík að ræða hjá Gíslínu en það hefur verið draumur hjá henni lengi að vinna meira við slíkt. „Það hefur verið draumur hjá mér í mörg ár að vinna meira í grafík og síðan árið 2016 hef ég farið á sjö námskeið í grafík hjá Íslenska grafík félaginu, en ég var samþykkt inní félagið árið 2018. Á þessu ári hef ég farið fjórum sinnum á námskeið og í vinnutarnir hjá Grafík félaginu. Því miður þá stendur félagið frammi fyrir því að missa húsnæðið sem það er í. Reykjavíkurborg hefur stutt við félagið með því að leyfa félaginu að leiga húsnæði í Hafnarhúsinu. Og staðan er sem sagt sú að nú stendur yfir mikil leit að nýju hús- næði sem hentar félaginu, en útlitið er ekkert sérstaklega bjart varðandi þau mál. Þess má auðvitað geta að verkstæðið sem Grafík félagði er nú með er afar hentugt og gott, og hafa þeir fjölmörgu listamenn sem komið hafa til landsins og haldið námskeið þar eða verið í vinnutörnum hælt aðstöðunni á hvert reipi og talað um að aðstaðan sé einhver sú besta sem þeir hafa komist í tæri við,“ sagði Gíslína sem gengur með þann draum að opna vinnustofu í Vestmannaeyjum þar sem listamenn allsstaðar að úr heiminum gætu komið og unnið. komin langt frá uppruna- legum hugmyndum En hvað er grafík fyrir þá sem ekki vita?„Grafík er ekki bara einhver ein þrykk aðferð, heldur er um margar aðferðir í þrykki að ræða. Í grafíkinni eru þrjár megin aðferðir notaðar: háþrykk, djúpþrykk og flatþrykk. Ég nota allar þessar aðferðir. Í háþrykkinu nota ég tréristur, dúkristur, plexigler og solarplate. Í Djúpþrykkinu notast ég einnig við plexigler og solar- plate. Svo er það flatþrykk sem ég nota aðferð sem kallast image transfer og „gum bichromate“ sem er gömul ljósmyndaaðferð. Einnig blanda ég þessum aðferðum eitt- hvað saman og útkoman getur oft verið annsi forvitnileg og þegar maður heldur sig svona vel að við- fangsefninu þá er óhjákvæmilegt að maður þróast sem listamaður og miðað við þær hugmyndir sem ég hafði í upphafi, þá er ég komin nokkuð langt frá upprunalegum hugmyndum. Ég hef þó ekki alveg sagt skilið við málverkið, en það er alveg ljóst að það mun þróast hjá mér og verða eitthvað annað en verið hefur,“ sagði Gíslína. gamalt og nýtt „Í þessu ferli var mjög gaman að blanda saman gömlum aðferðum við nýja tækni, en ég átti þó nokkrar stundir hérna upp í Fablab þar sem ég skar út munstur í leiser sem ég hannaði með dyggri hjálp Frosta Gíslasonar en ég á honum miklar þakkir fyrir hjálpina, og það er algjörlega frábært að hafa að- stöðu eins og í Fablab hér í Eyjum og ég mun pottþétt fá að vinna þar meira,“ sagði Gíslína. spennandi tímar Í gegnum grafíkvinnuna hefur Gíslína kynnst mörgum öðrum listamönnum héðan og þaðan úr heiminum. „Þetta hefur verið frá- bær tími og þær stundir sem ég hef farið í vinnutarnir í Grafík félagið hafa gefið mér mikið. Þá hugsa ég ekki um neitt annað, er bara að vinna, tíminn gleymist og vinnu- dagarnir eru langir en skemmtilegir. Ég hef einnig komið mér í samtarf við annað listafólk og hef ég mest unnið með Hildi Björnsdóttur listakonu, sem býr í Noregi en er líka með vinnustofu í Svíþjóð. Ég á von á því að við munum starfa saman áfram og við stefnum á að fara til San Francisco í febrúar á vinnustofu Robynn Smith, sem er Bandarísk grafík listakona og hefur verið að kenna hjá Íslenska grafíkfélaginu,“ sagði Gíslína sem er spennt fyrir framhaldinu. Gíslína Dögg Bjarkadóttir listakona: Búið að vera draumur hjá mér lengi að vinna meira með grafík :: Sýningin “Mitt á milli” í Safnaðarheimilinu um helgina SARA SjöfN GREttiSdóttiR sarasjofn@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.