Morgunblaðið - 20.11.2019, Page 16

Morgunblaðið - 20.11.2019, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 Börn alkóhólista eru hópur barna sem hvorki heyrist hátt í né mikið er rætt um. Ótal margar breytur skjóta upp kollinum þegar kemur að þess- um hópi. Hvað er þetta stór hópur? Hvernig gengur að ná til hans og hver er þörfin? Hver eru helstu einkennin og hverjir sjá þessi einkenni helst? Enda þótt mikið vatn hafi runnið til sjávar hvað varðar fræðslu og þekkingu um alkóhólisma er enn þöggun og fordómar í garð foreldra sem eru alkóhólistar og barna þeirra. Börnin reyna því oft að leyna vandanum eða afneita honum. Hvað er alkóhólismi? Áfengi er löglegur vímugjafi fyrir fullorðna einstaklinga sem aðskilur það frá ólöglegum vímugjöfum. Sjúkdómurinn alkóhólismi er þrí- skiptur, hefur áhrif á vitsmuni, lík- ama og sál. Eitt af einkennum sjúk- dómsins er stjórnlaus löngun í áfengi. Læknavísindin segja alkó- hólisma vera sjúkdóm sem hægt er að halda í skefjum með bindindi en ekki lækna. Alkóhólismi er stigvax- andi sjúkdómur. Það bjóðast mörg meðferðarúrræði fyrir alkóhólista í dag. Alkóhólismi er ekki lengur vonlaust ástand ef sjúkdómurinn er viðurkenndur og meðhöndlaður. Áhrif og afleiðingar Börn foreldra sem eru ánetjuð vímuefnum af hvers lags tagi búa við viðvarandi óöryggi, ótta og álag og axla ábyrgð langt umfram aldur og þroska. Áhrif og afleiðingar eru bæði skammtíma og langtíma. Sködduð sjálfsmynd og meðvirkni eru meðal alvarlegustu afleiðing- anna. Meðvirkni er sjúkdómur sem herjar á aðstandendur alkóhólista og eru börn þar engin undantekn- ing. Meðvirkni getur leitt til þess að barn á í erfiðleikum með að bregðast við áreiti samkvæmt innstu sannfæringu. Dæmi um meðvirkni í fjölskyldu alkóhólist- ans er þörfin að láta allt líta vel út á yfir- borðinu og þegja yfir hinum raunverulega vanda. Barn sem elst upp við alkóhólisma foreldris/foreldra get- ur átt erfitt með að meta og lesa í sam- skipti og aðstæður og hefur færri bjargráð til að grípa í. Gott stuðningsnet barns, ráðgjöf og fræðsla getur skipt sköpum þegar kemur að neikvæðum áhrifum og afleiðingum þess að alast upp eða umgangast foreldri sem glímir við alkóhólisma. Sérhæft stuðningsúrræði fyrir börn alkóhólista Ég hef lagt fram tillögu í borg- arstjórn þess efnis að borgarstjórn samþykki að setja á stofn stuðn- ingsþjónustu eyrnamerkta börnum foreldra í neyslu. Mikilvægt er að öll börn í þessum aðstæðum hafi aðgang að stuðningsþjónustunni án tillits til hvort barnið sjálft sé metið í áhættuhópi, hvort það búi hjá for- eldrinu sem glímir við áfengisvanda eða sé í umgengni við það. Ekki á að vera þörf á sérstakri tilvísun í úrræðið heldur sé látið nægja að forsjáraðili óski eftir stuðningi og meðferð fyrir barn sitt eins lengi og það þarf og vill þiggja. Stuðning- urinn myndi vera í formi sálfræði- þjónustu, persónulegrar ráðgjafar, hópastarfs og fræðslu. Markmiðið væri m.a. að hjálpa börnum alkó- hólista að hlúa að eigin sjálfsmynd, rækta félagslega færni og fræðast. Markmiðið væri einnig að hjálpa börnunum að greina á milli fíkni- sjúkdómsins og persónunnar sem glímir við hann. Stuðningsþjónust- unni er ætlað að veita börnunum viðurkenningu á stöðu sinni og að- stæðum í fjölskyldum þar sem áfengi- og almennur neysluvandi er til staðar. Foreldrar ættu einnig að geta fengið ráðgjöf og fræðslu eftir atvikum. Sérhæft stuðningsúrræði fyrir börn alkóhólista skilar sér marg- falt. Barn sem fær tækifæri við öruggar aðstæður til að tjá sig um neysluvandamál foreldris getur los- að um djúpstæða vanlíðan og áhyggjur. Börn sem alast upp við þessar aðstæður trúa því stundum að þau beri ábyrgð á neyslu for- eldris með einhverjum hætti. Fræðslan skiptir barn miklu máli og sú vitneskja að neysluvandi for- eldrisins sé ekki á ábyrgð þess að neinu leyti. Samtal um áfengis- vanda foreldrisins getur stuðlað að því að barn losni við tilfinningar á borð við skömm og sektarkennd. Slík leiðrétting á íþyngjandi tilfinn- ingum og hugsunum er börnum mikill léttir og markar jafnvel nýtt upphaf í lífi þeirra. Sambærileg þjónusta sem hér er lagt til að Reykjavík stofnsetji er veitt af SÁÁ. SÁÁ hefur unnið gott starf með börnum alkóhólista í mörg ár en árangursmat liggur þó ekki fyrir. Vinna SÁÁ fríar ekki Reykjavíkurborg við skyldum sín- um gagnvart börnum alkóhólista. Vissulega hefur þessum börnum verið hjálpað í Reykjavík. Það hef- ur samt ekki komið fram hvað hef- ur verið gert nákvæmlega fyrir þennan hóp og hversu mikið. Reykjavíkurborg hefur alla burði til að stofna eigið úrræði fyrir börn alkóhólista og skipuleggja metn- aðarfullt stuðningsúrræði þeim til hjálpar. Börn alkóhólista, sérstakur stuðningur Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur » Börn foreldra sem eru ánetjaðir vímu- efnum af hvers lags tagi búa við viðvarandi óör- yggi, ótta og álag og axla ábyrgð langt um- fram aldur og þroska. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins. Alþingi hefur nú til meðferðar stjórnar- tillögu til þingsálykt- unar um stefnumót- andi áætlun í málefnum sveitarfé- laga og aðgerðaáætlun til að fylgja henni eftir. Í henni er meðal ann- ars gert ráð fyrir því að setja á ný ákvæði um lágmarks- íbúafjölda í sveitarfélögum þannig að frá almennum sveitarstjórnar- kosningum árið 2022 verði hann 250 íbúar og 1.000 fjórum árum síðar. Á sveitarfélögunum hvíla marg- háttaðar skyldur sem krefjast fag- legrar þekkingar og hæfni og það er erfitt eða jafnvel ómögulegt að upp- fylla þær kröfur sem til þeirra eru gerðar ef íbúar eru fáir. Fámenn sveitarfélög hafa þurft að grípa til samvinnu til að geta sinnt lögmælt- um verkefnum og sumum skyldum er illa sinnt eða jafnvel ekki. Á hinn bóginn gætu fjölmenn sveitarfélög sinnt verkefnum sem betra er að séu á ábyrgð staðbundins stjórnvalds með lýðræðislegt umboð en að þjón- ustan sé veitt af ríkisvaldinu eða með samvinnu sveitarfélaga sem takmarkar aðkomu og aðhald kjós- enda að ákvarðanatöku. Á landinu eru nú 13 sveitarfélög þar sem búa færri en 250 manns og íbúar þeirra eru samtals innan við 1.500. Sameining við önnur sveit- arfélög hefur verið samþykkt í íbúa- kosningu í einu þeirra, Borgarfjarð- arhreppi. Eftir stendur að ef tillaga samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra um lágmarksíbúafjölda verður lögfest þurfa 12 sveitarfélög að sam- einast öðrum í fyrri áfanga. Í sumum tilvikum er alveg augljóst hverjum þessi fámennu sveitarfélög þurfa að sameinast en í öðrum er svo ekki. Sums staðar ná samliggjandi sveit- arfélög ekki einu sinni að komast yfir 250 íbúa markið með samein- ingu, hvað þá heldur 1.000. Víða geta fámenn sveitarfélög gengið inn í fjölmenn og öflug sveit- arfélög. Í átta af 12 sveitarfélögum þar sem nú eru færri en 250 íbúar er einboðið að sameinast sveitarfélagi sem er með fleiri en 1.000 íbúa fyrir. Staðan er hins vegar mun viðkvæm- ari þar sem byggðin er dreifðust og þar hefur íbúum víða fækkað á undanförnum árum. Í 26 sveitarfélögum eru íbúar fleiri en 250 en færri en 1.000. Í þessum sveitarfélögum búa nú tæp- lega 16.000 manns. Í tveimur þeirra hefur sameining þegar verið sam- þykkt í íbúakosningu og því mun nýtt lágmark íbúafjölda væntanlega snerta 24 sveitarfélög. Ég sé tvo kosti í sameiningarmálum þessara sveitarfélaga. Annar er sá að sam- einast einungis þannig að íbúafjöld- inn fari yfir lágmarkið 1.000. Hinn er sá að sveitarfélög sameinist til að mynda stærri heildir, jafnvel þótt þau séu ekki knúin til þess af lág- marksíbúafjölda. Taka má Eyjafjörð sem dæmi. Í Svalbarðsstrandarhreppi búa innan við 500 manns og svæðið hefur að mörgu leyti á sér yfirbragð úthverfis frá Akureyri. Í Grýtubakkahreppi búa innan við 400 og hafa takmarkaðan áhuga á sameiningu eins og komið hefur fram að undanförnu. Í Hörgársveit búa rúm- lega 600 en íbúar Eyja- fjarðarsveitar losa þús- undið. Í Dalvíkurbyggð annars vegar og Fjalla- byggð hins vegar búa tæplega og rúmlega tvö þúsund íbúar í hvoru sveitarfélagi. Sú spurn- ing sem íbúar Eyjafjarðar standa frammi fyrir er hvort þeir telja hag sínum betur borgið til framtíðar með því að sameinast eins lítið og mögu- legt er til að uppfylla væntanleg skil- yrði um lágmarksíbúafjölda í sveit- arfélagi eða hvort vænlegra sé að búa til eina 25.000 íbúa stjórnsýslu- einingu. Frá Siglufirði til Grenivíkur eru innan við 120 km meðan vega- lengdin milli Djúpavogs og Borg- arfjarðar eystri um Öxi er 155 km. Þeir tveir staðir verða fljótlega í sama sveitarfélagi. Sambærilegar eða líkar aðstæður eru víðar á land- inu. Ef svo færi að sameining sveitar- félaga horfði ekki einungis til þess að komast upp fyrir þau lágmörk sem boðuð hafa verið, heldur frekar til þeirra tækifæra sem í því felast að gera sveitarfélögin almennt að mun öflugra stjórnsýslustigi en nú er, verða engu að síður eftir land- svæði þar sem byggð er mjög dreifð og íbúar fáir. Þau landsvæði sem hér um ræðir eru Dalabyggð, Reykhóla- sveit og það sem áður var Stranda- sýsla; norðausturhorn landsins frá Þistilfirði í Vopnafjörð og svo Suður- landsundirlendið austanvert. Hér þarf samfélagið í heild að styðja sér- staklega við íbúana til þess að tryggja að þeir njóti nauðsynlegrar grunnþjónustu og nýta til þess þá möguleika sem nýjasta tækni býður upp á. Víða á landinu eru tækifæri til þess að sameina þjónustusvæði í mun öflugri stjórnsýslueiningar en sveitarfélögin eru nú. Ríkisvaldið er tilbúið til þess að styðja við samein- ingu þannig að staðbundið stjórn- vald geti sinnt grunnþjónustu við íbúana af fagmennsku og metnaði og jafnvel bætt við hana málaflokkum sem betra væri að sinna nálægt íbú- unum og á þeirra forsendum. Hvað sem öðru líður er það ljóst að mikil tækifæri liggja í faglegri og öflugari stjórnsýslu í fjölmennari og færri sveitarfélögum. Það er nauðsynlegt að vanda vel til verka við undirbún- ing og framkvæmd sameiningar og nota tækifærið til að móta sameig- inlega framtíðarsýn. Eftir Sigurð Guðmundsson Sigurður Guðmundsson » Fjölmenn sveitar- félög geta sinnt verkefnum sem betra er að séu á ábyrgð stað- bundins stjórnvalds með lýðræðislegt umboð. Höfundur er skipulagsfræðingur og starfar hjá Capacent. Verður til nýtt landslag sveitar- stjórnarstigsins? Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.