Morgunblaðið - 20.11.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.11.2019, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 ✝ María Gísla-dóttir fæddist á Gamla Bjargi í Norðfirði 3. maí 1927 og lést á heimili sínu, Ísa- fold í Garðabæ, 6. nóvember 2019. Foreldrar henn- ar voru Gísli Hjálmarsson Kristjánsson, f. 12.12. 1893, d. 6.7. 1989, og Fanny Kristín Ingv- arsdóttir, f. 17.12. 1904, d. 9.8. 1997. Systkini Maríu eru Margrjet, f. 6.8. 1924, d. 25.2. 2018, Ingvar, f. 28.3. 1926, Kristján, f. 30.11. 1930, d. 26.6. 2005, Ásdís, f. 8.7. 1935, og Tryggvi, f. 11.6. 1938. Fjölskyldan bjó í Norðfirði til sumars 1945 en flutti þá til Akureyrar. Veturinn áður bjó María hjá Margrjeti systur sinni og fjölskyldu á Akureyri, gekk þar í Gagnfræðaskóla og lauk gagnfræðaprófi vorið 1945. Hún var í Húsmæðra- skólanum í Reykjavík 1948- 1949. Hinn 24.9. 1949 giftist María Heimi Bjarnasyni, f. 2.9. 1923, d. 17.9. 2014. Móðir hans var Helga Bjarnadóttir Maul en fósturforeldrar Birna Bjarnadóttir, móðursystir, og Pétur Sigfússon. þeirra börn: Astrid Ísafold og nýfæddur sonur, Ragnar og kærasta hans er Erna Mark- úsdóttir. 3) Fanný Kristín, f. 1956, gift Breka Karlssyni, á dótturina Guðrúnu Maríu sem er gift Stefan Sundberg, synir þeirra Viktor og Óskar. Frá fyrra hjónabandi á Guðrún María Fannýju Ölvu Forsman. Fanný og Breki eiga synina Högna, giftan Þóru Kolbrúnu Þórarinsdóttur, dóttir þeirra er Camilla Sif, Atla sem lést 2015, og Kára, hans sambýlis- kona Helga Valgerður Snorra- dóttir og eiga þau Freyju Mar- íu. 4) Gísli Kr., f. 1957, d. 2019, eftirlifandi eiginkona hans er Þorgerður Ragnars- dóttir, börn þeirra María, sambýlismaður Símon Ágúst Steinsson, Grímur og Ragnar. 5) Birna, f. 1959. 6) Heimir, f. 1960, giftur Elínu Sigríði Óla- dóttur, f. 1959. Sonur Heimis er Gunnar Cortes, sambýlis- kona hans er Thereza Pet- kova. Börn Heimis og Elínar: Mardís gift Viðari Jónssyni, Heimir Óli, sambýliskona Kristín Ósk Óskarsdóttir, og börn þeirra eru Martin Gauti og Emilía Kara. Dóttir Elínar er Ásta Steinunn, gift Olav Torekoven. 7) María, f. 1964, gift Ófeigi Tryggva Þorgeirs- syni, þau eiga synina Tryggva og Gísla. Útför Maríu fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 20. nóvember 2019, klukkan 11. María og Heim- ir bjuggu fyrst í Reykjavík, þá á Hvolsvelli 1957- 1958, á Djúpavogi 1959-1968, á Hellu á Rangárvöllum 1968-1977, síðan aftur í Reykjavík þar til nokkru áð- ur en Heimir lést, að þau fluttu á Ísafold í Garðabæ þar sem María bjó síðan. María var húsmóðir, kven- félagskona, handavinnukenn- ari, umboðsmaður Happ- drættis HÍ, SÍBS og DAS, sjálfboðaliði Rauða kross Ís- lands og alla tíð blómarækt- andi af lífi og sál. Börn Maríu og Heimis: 1) Helga, f. 1949, áður gift Ólafi Stefáni Sveinssyni. Börn þeirra: Ásdís, gift Frosta Ólafssyni, eiga börnin Iðunni Jóhönnu og Baldur Hrafn, Sveinn og Ari. Ari er í sambúð með Eddu Guðrúnu Sverr- isdóttur og eiga þau Auði Helgu og nýfædda dóttur. 2) Pétur, f. 1954, giftur Ólöfu S. Ragnarsdóttur, f. 1956, börn þeirra: Þóra, gift Tryggva Hallgrímssyni, dóttir þeirra er Katla, Heimir á dótturina Vig- dísi Sofie Skov, Birna, gift Árna Þór Theódórssyni, Mamma var náttúrubarn, alin upp í einstakri fegurð Norð- fjarðar og Mjóafjarðar. Blár lit- ur hafs, himins og fjalla var hennar uppáhaldslitur. Eldhúsið var verkstæði mömmu og hún málaði það blátt. Útsýnið úr eld- húsglugganum var henni mik- ilvægt, í Hlymsdölum, yfir þorp- ið, út á sjó og yfir á Beru- fjarðarströnd og úr eldhús- glugganum á Hellu sást í Heklu sjálfa. Á Hellu gaf mamma smá- fuglunum út um gluggann og horfði á þá kroppa meðan hún vann eldhússtörfin. Það var gaman að horfa á mömmu matbúa, ég held að við höfum öll systkinin einhvern tíma setið á eldhúsbekknum og horft á hana og spjallað á með- an hún vann. Hún hafði örugg handtök, mundaði hnífa og önn- ur tól, flakaði fisk, skar ýsuna þvert, hreinsaði kjöt og innmat. Hún kunni skil á því hvenær árs hver fisktegund er best til átu út frá hrygningartíma. Hún sagði mér að mamma hennar hefði kunnað þetta enn betur. Ég sakna þess að geta ekki spurt þær, við erum fátækari þegar svona þekking hverfur okkur. Mamma var handlagin og flink handavinnukona og saum- aði auðvitað á okkur fötin þegar hún var ung móðir. Hún átti stórbróderí frá fyrri tíð og seinna hafði hún yndi af því að setja upp handavinnu á nýstár- legan hátt. Mamma hafði ekki bara ánægju af því að hugsa út fyrir rammann í þessum efnum heldur hafði hún gaman af því að vera í samskiptum við smiði og uppsetjara til að fá það fólk í verk með sér. Rétt fyrir andlát sitt lét hún gera upp húsgögn sem henni fannst mikilvægt að yrðu áfram í efnisheiminum þegar hún færi. Hún hafði hæfi- leika til að stjórna fyrirtæki, hún hafði orku og sköpunarkraft sem nýttist í öllum störfum sem hún tók að sér og auðvitað er stór fjölskylda líka fyrirtæki á ákveðinn hátt. Í stórum systkinahópi, eins og mamma ólst upp í, var í þá daga sjálfsagt að drengirnir gengju menntaveginn en stúlk- urnar lærðu að halda heimili og það var krafa um að vera falleg og siðprúð. Eðlilega tók hún síð- ar þátt í baráttu fyrir jafnrétti og m.a. settu kvenfélagskonur á Hellu fram kröfur um barna- gæslu til að tryggja velferð sína og ungra barna sinna. Hún var réttsýn og vildi ekki að verk kvenna væru minnkuð eða lítils- virt í nýju ljósi um kynjahlut- verk. Þegar mamma vann síðar með Rauða krossinum í Reykja- vík gaf það nýja merkingu og lit í líf hennar. Um tíma vann hún einnig sem læknaritari og gerði það eins og annað af samvisku- semi og natni. Í næsta lífi held ég að skyldurækni hennar muni nýtast henni vel í langskóla- námi. Hún getur valið sér hvaða nám sem er því hún er klár og iðin, fylgin sér og þrautseig og þegar fólk býr við jafnrétti fær það sprengikraft eins og maís í heitri olíu. Eins og blóm næturdrottn- ingarinnar standa stutt er hver ævi einnig stutt. Það er ótal- margt sem ég hefði getað rætt betur við mömmu þó að hún hafi líka sagt okkur frá mörgu, því hún var minnug. Ekki löngu áð- ur en hún dó sagði hún við mig „bíddu, ég þarf aðeins að vinna í heilanum á mér“ þegar ég spurði hana um tiltekinn löngu liðinn atburð. Skipulögð og snjöll fram í andlátið, blessuð sé minning þín. Fanný Kristín Maríu og Heimisdóttir. „Er hún úr stáli?“ spurði barnabarnið þegar amman hélt ró sinni þó að sitthvað dyndi yf- ir á langri ævi. Mín fyrsta minning af mömmu er af höndunum á henni: vel snyrtar, nokkuð stór- ar, æðaberar, vinnulúnar. Mér þóttu þær fallegar. Þessar hend- ur voru á mínum uppvaxtarár- um alltaf að; þær sinntu börn- um, matreiddu, saumuðu, gerðu við húsgögn, hlúðu að blómum. Mamma var afskaplega stolt af sinni húsmæðramenntun og nýtti hana til hins ýtrasta við rekstur stórs heimilis. Hún eignaðist sjö börn, þar af fimm fædd á sex árum. Læknisstofa föður okkar var nánast inni á heimilinu í áratugi; á Stórólfs- hvoli, Djúpavogi og Hellu. Mamma aðstoðaði hann iðulega við ýmis verk þar og það má segja að þau hafi verið saman á vakt árum saman. Það þurfti mikla vinnu, skipulag og já, aga, til að ala upp þennan stóra barnahóp, reka gestkvæmt heimili og styðja pabba í lækn- isstarfinu – í raun rak hún lítið fyrirtæki í öll þessi ár og gerði það með glæsibrag. Eitt af því sem hún lagði sérstaka áherslu á var að við systkinum létum vita af ferðum okkar, hvert við ætluðum, með hverjum og hve- nær við kæmum til baka. Okkur þótti þetta auðvitað hallærislegt, kölluðum þetta „tilkynningar- skylduna“ og æskuheimilið gjarnan „höfuðstöðvar“. Og mamma var stöðvarstjóri þar. Hún hafði áhuga á landsmál- um og fylgdist vel með pólitík. Mjög praktísk í öllu – fljót að sjá aðalatriði hvers máls. Fljót til svars og orðheppin. Að þessu leyti, eins og svo mörgu, var Gísli bróðir minn, sem lést í sumar langt fyrir aldur fram, mjög líkur henni. Veikindi hans voru henni mikil áfall en á þess- um erfiðu mánuðum þegar hann háði sitt stríð kom styrkur hennar kannski best í ljós. Kona á tíræðisaldri, bundin við hjóla- stól, heimsótti drenginn sinn á sjúkrabeðinn fram á síðasta dag. Samband þeirra var ein- stakt og eftir að hann kvaddi breyttist allt; lífsviljinn dvínaði smátt og smátt. Ef til vill langaði hana til að gera annað í lífinu en að sinna börnum og búi. Hún hefði getað lært hvað sem var og leitt hvaða fyrirtæki sem er. Ég held samt að hún hafi verið mjög sátt við ævistarfið og stolt var hún af sínum afkomendum öllum. Þegar kom að útför náinnar vinkonu fyrir nokkrum misser- um treysti hún sér illa til að fylgja enn einum samferða- manni til grafar. Við sátum og spjölluðum, svo reyndi ég að fá hana til að slaka á með öndunar- æfingum og taldi það ganga nokkuð vel. Allt í einu réttir hún úr sér í stólnum og segir: „Maja mín, ég má nú ekki vera að svona dundi, ég þarf að fara í jarðarför.“ Og þar með var slök- uninni lokið og hún farin að kveðja kæra vinkonu. Barnabarnið spurði: „Er hún úr stáli?“ Nei, svo var ekki, en kannski þurfti hún að virðast úr stáli svo aðrir gætu leyft sér að vera brothættir og úr viðkvæm- ari efnum. Ég er ævinlega þakklát móð- ur minni. Ástarkveðja María Heimisdóttir (Maja). Kær tengdamóðir mín, María Gísladóttir, hefur kvatt þessa jarðvist, 92 ára. Ég kynntist heiðurshjónunum Maríu og Heimi Bjarnasyni, tengdaföður mínum fyrir rúmum 30 árum. Við María, dóttir þeirra og nafna móður sinnar, vorum að draga okkur saman á þessum tíma. María og Heimir buðu til kvöldverðar eitt kvöldið til að líta á piltinn sem dóttir þeirra var að slá sér upp með. Man ég þetta kvöld sem gerst hefði í gær og hve spenntur ég var fyr- ir þennan fund. Dulítið á nál- unum eins og gefur að skilja. Það varð mikið spennufall þegar við heilsuðumst, svo vel tóku þau á móti mér. Fátt fólk var betra heim að sækja og hélt svo áfram alla tíð síðan. Það var alltaf svo gaman að spjalla við Maríu, sem var bráð- greind eins og hún átti kyn til. Við áttum bæði rætur fyrir austan, hún úr Norðfirði og Mjóafirði og ég úr Reyðarfirði og af Héraði. Kannski útskýrði það hve auðvelt við áttum með að ræða saman. María hafði frá mörgu að segja, hafði reynt margt. Hún kom sjö börnum á legg og til manns svo ekki sé meira sagt. María stýrði því um- fangsmiklum heimilisrekstri, fyrst á Djúpavogi, seinna Hellu og síðast í Reykjavík frá miðjum áttunda áratugnum. Hún var eiginkona héraðslæknis og deildi þeirri ábyrgð með honum eins og gefur að skilja. Slíkt var gert af hinum mikla myndar- skap og reisn sem var svo ein- kennandi fyrir Maríu. Hún var höfðingi og kletturinn sem hélt utan um sitt og sína þó að ekki verði hallað á Heimi í þeim efn- um. Fyrir allmörgum árum færði María mér í afmælisgjöf hlyn- stré. Vex það og dafnar nú í garðinum mínum. Slíkt tré, hlynurinn, verður krónumikið, eðallauftré með styrkan stofn. Svipmikið og tignarlegt. Segja má að sú ímynd sé um margt lík Maríu sem nú hefur kvatt þessa tilvist eftir langt og gæfuríkt lífshlaup. Ég vil þakka Maríu, kærri tengdamóður minni, góð kynni, skemmtileg samtöl og allar góðu samverustundirnar frá því hún bauð mig velkominn í fjölskyldu sína fyrir rúmum þremur ára- tugum. Fyrir þau kynni verð ég ævinlega þakklátur. Góður Guð varðveiti og blessi minningu Maríu Gísladóttur og María Gísladóttir HINSTA KVEÐJA Morgunstund í Vatns- holti 1991. Orkídeurnar þínar standa blómstrandi í eld- húsglugganum og stinga í stúf við snjóinn sem kyngir niður fyrir utan. Þær slúta yfir borðið þar sem ég fletti albúmi með svart-hvítum myndum og þú segir mér frá leikfimisýningum sem fóru fram úti í sólinni. Við sötrum saman heitt súkku- laði áður en ég fer í skól- ann. Við höfum nógan tíma. Hvíl í friði elsku amma. María Gísladóttir. Til Maju systur: Ótal kostum áttu að skarta, einurð tær sem gæðastál. Þá var Drottni þægð í hjarta, þegar hann gaf þér vit og mál. Göfgi hinna góðu arta gæddi heiðri þína sál. Ingvar bróðir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar Við þökkum auðsýnda samúð vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, KRISTRÚNAR KJARTANSDÓTTUR frá Haga, Grímsnesi, Fossheiði 58, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvalla, Eyrarbakka, og séra Arnaldar Bárðarsonar fyrir einstaka hlýju og umhyggju. Ragnhildur Helgadóttir Hafliði S. Sveinsson Kjartan Helgason Áslaug Harðardóttir og fjölskyldur Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BÁRU SIGFÚSDÓTTUR, Austurvegi 10, Þórshöfn. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn. Erla, Sigríður, Sigfús , Helgi, Oddur, Ellý, Kristín og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET JÓNSSON, Fjarðargötu 19, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, föstudaginn 15. nóvember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 26. nóvember klukkan 16. Lovísa Guðmundsdóttir Åge Driveklepp Guðmundur R. Guðmundss. Hrafnhildur Ingibergsdóttir Stefán P. Guðmundsson Sólrún Ragnarsdóttir Berglind Ósk Guðmundsd. Oddur Þ. Þorkelsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma og langalangamma, HALLFRÍÐUR BÁRA JÓNSDÓTTIR, Víðimel, sem lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki mánudaginn 11. nóvember, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 23. nóvember klukkan 13. Nonni, Magga, Svenni, Amý, Steina og fjölskyldur þeirra Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BERGÞÓRA ÓLAFSDÓTTIR frá Háteigi, Garði, lést á Hrafnistu, Nesvöllum, sunnudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Útskálakirkju mánudaginn 25. nóvember klukkan 15. Anna M. Björgvinsdóttir Jósep Benediktsson Ólafur Björgvinsson Magnús Björgvinsson Hulda Matthíasdóttir Inga Jóna Björgvinsdóttir Freymóður Jensson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.