Morgunblaðið - 20.11.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 20.11.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Helgi Kolviðsson, þjálfari karla- landsliðs Liechtenstein í knatt- spyrnu, hefur lokið fyrstu undan- keppni sinni með liðið. „Fyrir mig hefur það verið frábær reynsla að koma inn í þetta hérna og fá að kynn- ast öðrum vinnuaðferðum. Ég hef kynnst því hvernig þeir hafa hagað þessu í gegnum tíðina og er búinn að mynda mér skoðun á því hvernig best sé að vinna til framtíðar. Þetta er gríðarlega spennandi verkefni,“ sagði Helgi þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gær. Helgi er með samning út næsta ár og verður því áfram við stjórnvölinn hjá Liechten- stein. Hann nær að koma heim til Ís- lands á næstunni og heilsa upp á sitt fólk en til stendur hjá honum að heimsækja Norðurlandaþjóðirnar með fulltrúum Ólympíusambandsins í Liechtenstein. Liðið tapaði á sunnudaginn 0:3 fyr- ir Bosníu. Þessi 34 þúsund manna þjóð náði í tvö stig í riðlinum með því að gera tvö jafntefli en tapaði átta leikjum. Var liðið í riðli með knatt- spyrnustórþjóðinni Ítalíu en einnig Finnlandi, sem fer nú í lokakeppni í fyrsta skipti. Lögga í miðverðinum „Það er allt annað að þjálfa Liecht- enstein heldur en Ísland enda er þjóðin tíu sinnum fámennari en Ís- lendingar. Liechtenstein var með tólf til sextán atvinnumenn í liðinu þegar það vann Ísland 3:0 í október 2007 en nú eru þeir ekki nema fjórir. Lands- liðsmennirnir eru því flestir í námi eða fullri vinnu. Miðvörðurinn hjá mér er lögreglumaður og svo er einn- ig kennari í liðinu. Þeir misstu eig- inlega úr eina kynslóð ef svo má segja. Hér er þó fullt af ungum strákum og unnið hefur verið í að móta þá sem leikmenn með yngri flokkunum og skólunum,“ útskýrði Helgi, sem er á vissan hátt að móta nýtt lið hjá Leichtenstein. Hann hef- ur gefið ungum leikmönnum tæki- færi en auk þess var leikmanna- hópurinn nokkuð þunnur vegna meiðsla á þessu ári. „Ég var með fjóra í hópnum í gær (á mánudag) sem eru gjaldgengir í 21 árs landsliðið og tveir þeirra spiluðu. Það er jákvætt upp á framtíðina að gera. Ég hef auðvitað tekið mér tíma til að kynnast leikmönnum og þeir hafa verið að kynnast mér. Þá áttaði ég mig smám saman á því hvað hent- ar liðinu. Þegar við náðum í úrslit styrkti það trú fólks á því að við vær- um á réttri leið. Við erum það á margan hátt en í sumum þáttum þurftum við að byrja frá grunni. Þeg- ar menn eru ekki atvinnumenn hafa þeir ekki þá reynslu sem atvinnu- menn hafa. Við höfum einnig verið óheppnir varðandi meiðsli því þetta árið duttu út sex leikmenn sem voru fastamenn undanfarin ár.“ Góð úrslit í Grikklandi Liechteinsteinar náðu góðum úr- slitum í keppninni þegar þeir fóru til Grikklands og gerðu þar 1:1 jafntefli gegn Evrópumeisturunum frá 2004. Grikkir eru þekktir fyrir að vera sterkir á heimavelli. Þegar upp var staðið voru Grikkir fjórum stigum á eftir Finnum, sem náðu öðru sætinu í riðlinum. Helgi og menn hans höfðu því nokkur áhrif á möguleika Grikkja með þessum úrslitum. „Það þarf allt að ganga upp hjá okkur til að ná í stig enda áhuga- menn að mæta stjörnum og topp- mönnum. Við megum ekki misstíga okkur. Í Liechtenstein búa 34 þús- und manns, sem er svipað og Kópa- vogur. Strákarnir voru mjög ham- ingjusamir með úrslitin í Grikklandi og fögnuðu því gríðarlega vel. Á þeim tíma höfðum við átt leiki þar sem við gerðum margt vel. Við vorum 1:0 undir eftir 80 mínútur gegn Bosníu á útivelli og áhorfendur voru farnir að baula á Bosníumennina. En við höf- um líka fengið á okkur mörk sem væri hægt að koma í veg fyrir, auk þess sem tankurinn tæmist hjá áhugamönnum þegar líður á leikina. Það er eitt af því sem ég sá strax að tæknilega hliðin er í góðu lagi hjá leikmönnum en þá vantar kraft og úthald. Ég fékk því Sebastian Box- leitner til að vinna með okkur í líkam- legri þjálfun. Hjá sambandinu er toppaðstaða til að æfa og þar vantar ekkert upp á, “ sagði Helgi Kol- viðsson, en knattspyrnusambandið í Liechtenstein er í samstarfi við sviss- neska knattspyrnusambandið og segir hann margt mega læra af Svisslendingum, enda hefur þeim gengið afar vel undanfarin ár. Hjá okkur þarf allt að ganga upp til að ná góðum úrslitum  Helgi Kolviðsson er ánægður í Liechtenstein að lokinni undankeppninni AFP Landsliðsþjálfari Helgi Kolviðsson á blaðamannafundi í Finnlandi á dögunum. Martin Hermannsson og samherjar hans hjá þýska körfuboltaliðinu Alba Berlín unnu annan leik sinn í röð í EuroLeague, sterkustu félags- liðakeppni Evrópu, í gærkvöld. Alba hafði þá betur gegn Rauðu stjörnunni frá Serbíu á heimavelli, 92:80. Martin átti enn og aftur góðan leik. Hann skoraði 16 stig, tók þrjú fráköst og gaf fjórar stoðsend- ingar. Alba hefur unnið þrjá leiki en tapað sex og er í 14. sæti af 18 lið- um í keppninni. sport@mbl.is. Martin var góður í sigurleik Ljósmynd/albaberlin.de Góður Martin Hermannsson lék af- ar vel í sigurleik á heimavelli. Lærisveinar Patreks Jóhannes- sonar hjá danska úrvalsdeildarlið- inu Skjern komust í gærkvöld upp í þriðja sæti dönsku úrvalsdeild- arinnar í handknattleik þegar þeir unnu Århus Håndbold, 33:29, í Ár- ósum. Elvar Örn Jónsson þótti bera af öðrum leikmönnum Skjern í leiknum. Hann skoraði sjö mörk í 11 tilraunum og átti eina stoðsend- ingu. Björgvin Páll Gústavsson stóð lengst af í marki Skjern og varði 10 af þeim 29 skotum sem bárust á markið. Þar af varði hann eitt víta- kast. iben@mbl.is Færðust upp í þriðja sæti Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sterkur Landsliðsmaðurinn Elvar Örn Jónsson, leikmaður Skjern. Fullyrt var í pólskum fjöl- miðlum í gær að handknattleiks- maðurinn Haukur Þrastarson hefði gert upp hug sinn og ákveðið að ganga til liðs við pólska meistaraliðið PGE VIVE Kielce á næsta sumri. Félagið hefur ekki staðfest komu Hauks en eigandi félagsins lét að þessu liggja í haust svo það kæmi frek- ar á óvart gengju þessi skipti ekki eftir. Óhætt er að segja að Haukur taki óvenjuleg fyrstu skref í at- vinnumennsku sinni með því að fara til Póllands og ganga til liðs við Kielce. Enda er hann óvenju- lega efnilegur handboltamaður. Hingað til hafa íslenskir hand- knattleiksmenn frekar stigið fyrstu skref sín í atvinnu- mennsku í Danmörku eða í Þýskalandi, þar sem umhverfið er að mörgu leyti líkara því sem við þekkjum, þótt ekki væri ann- að en tugumálið sem er svo gjör- ólíkt íslensku. Sannarlega hefði verið auðveldara að velja Danmörku, svo dæmi sé tekið. Haukur er hins vegar slíkt efni að hann þarf og vill örugglega takast á við enn stærri ákvörðun þegar hann stendur á krossgötum svo snemma á ferli sínum. Vaflaust vegur þungt í ákvörðun Hauks hver þjálfar lið Kielce. Þjálfarinn er ekki aðeins einn snjallasti leikstjórnandi handboltasögunnar heldur af mörgum talinn einn fremsti handknattleiksþjálfari síðari ára, Talant Dujshebaev. Maður er þeir sem þekkja best til segja að hafi einstaka sýn í íþróttina, sé um leið krefjandi en góður leiðbein- andi. Eðlilega vill efnilegasti leik- stjórnandi í handknattleik í Evr- ópu nema við fótskör eins snjallasta leikstjórnanda hand- boltasögunnar, sem hefur undanfarinn hálfan annan áratug stýrt nokkrum af bestu hand- knattleiksliðum heims. BAKVÖRÐUR Ívar Benediktsson iben@mbl.is 1. deild kvenna ÍR – Njarðvík........................................ 49:47 Hamar – Grindavík B ...... úrslit bárust ekki Staðan: Tindastóll 8 6 2 560:537 12 Keflavík b 7 5 2 503:474 10 Njarðvík 8 5 3 511:439 10 Fjölnir 7 4 3 534:482 8 ÍR 7 4 3 436:376 8 Grindavík b 5 1 4 252:359 2 Hamar 8 0 8 421:550 0 Evrópudeildin Alba Berlín – Rauða stjarnan ............ 92:80  Martin Hermannsson skoraði 16 stig, tók þrjú fráköst og átti fjórar stoðsending- ar í öðrum sigurleik Berlínarliðsins í röð. Svíþjóð Borås – Umeå....................................... 92:81  Elvar Már Friðriksson skoraði 18 stig, tók tvö fráköst, átti sjö stoðs. fyrir Borås. NBA-deildin Chicago – Milwaukee ....................... 101:115 Houston – Portland .......................... 132:108 Dallas – San Antonio ........................ 117:110 Phoenix – Boston.................................. 85:99 Utah – Minnesota ............................. 102:112 LA Clippers – Oklahoma ..................... 90:88 New Yok – Cleveland....................... 123:105 Brooklyn – Indiana............................. 86:115 Toronto – Charlotte ........................... 132:96 Staðan í austurdeild: Boston 11/2, Milwau- kee 10/3, Miami 9/3, Toronto 9/4, Phila- delphia 8/5, Indiana 8/6, Orlando 6/7, Char- lotte 6/8, Brooklyn 5/8, Atlanta 4/9, Detroit 4/9, Cleveland 4/9, Chicago 4/10, New York 4/10, Washington 3/8. Staðan í vesturdeild: LA Lakers 11/2, Hou- ston 11/3, Denver 9/3, LA Clippers 9/5, Dallas 8/5, Utah 8/5, Phoenix 7/5, Minne- sota 8/6, Sacramento 5/7, Memphis 5/8, Oklahoma 5/8, Portland 5/9, San Antonio 5/9, New Orleans 4/9, Golden State 2/12. KÖRFUBOLTI Það er til mikils að vinna fyrir Knattspyrnusamband Íslands ef karlalandsliðinu tekst að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM á næsta ári en Ísland fer í umspil um sæti í lokakeppninni í mars. Liðin 24 sem tryggja sér farseð- ilinn á EM fá sem svarar 1,3 millj- örðum íslenskra króna en greiðslur til liðanna sem komast á EM frá knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, hafa hækkað um 23% frá því á Evrópumótinu í Frakklandi fyrir þremur árum sem Ísland tók þátt í. Liðin sem komast áfram upp úr riðlinum fá til viðbótar 275 milljónir króna. Fyrir að komast í átta liða úrslitin fá liðin um 438 milljónir króna og 676 milljónir fyrir að kom- ast í undanúrslitin. Sigurliðið á EM fær 1,4 milljarða króna og silfurliðið 950 milljónir. Fyrir hvern sigur á EM fá liðin um 200 milljónir króna og fyrir jafntefli 100 milljónir. Evrópumeist- ararnir geta því fengið 4,7 milljarða króna ef þeim tekst að vinna alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni. gummih@mbl.is Eftir miklu að slægjast að komast á EM 2020 Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Peningar Lokakeppni EM 2020 getur fært KSÍ enn meiri tekjur en 2016.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.