Morgunblaðið - 13.12.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.12.2019, Qupperneq 8
Sami litur en mismunandi áferðir Prófaðu að nota sama lit en með mismunandi áferðum til að skapa aukna vídd í förðunina. Til dæmis gloss- aðar varir á móti möttum augnskugga og jafnvel ljóm- andi kinnalit. Ein frægasta snyrtivara heims er líklega kinnaliturinn frá NARS í litn- um Orgasm. Þessi hlýi bleiki tónn með gylltum ljómaögn- um er sagður fara öllum vel. Vinsældir litarins hafa ekki farið framhjá NARS og hefur merkið því blessað okkur með þessum fallega lit í mismunandi formi. Förðunartíska sem allir geta leikið eftir Það besta við einlitu förðunartísk- una er að hún er sérlega einföld. Eina sem þú þarft að gera er að finna augnskugga, varalit og/eða kinnalit í svipuðum litatónum og svo byrjarðu að leika þér með vörurnar á andlitinu. Það eru engar reglur um hvaða liti eigi að nota, þó ferskjulit- aðir, beislitaðir og vínrauðir tónar hafi verið áberandi. Veldu þann lit sem þér þykir fallegastur. Förðunar- fræðingurinn sem elskar mónókróm Patrick Ta er einn vinsælasti förð- unarfræðingur heims og þekktur fyrir að skapa einlita förðun á við- skiptavinum sínum. Nýverið setti hann á markað sína fyrstu förðun- arlínu sem einfaldlega nefnist Monochrome Moment. Línan byggist á fjórum litatónum í formi kinnalita, varalita og varalita- blýanta svo það er leikur einn að nota sama litinn á mismunandi svæði. Einn litur á allt Í förðunartískunni hefur verið áberandi að nota einn lit á varir, kinnar og augu. Þessi tíska nefnist einlita förðun (e. monochrome) og er þetta einföld og skemmtileg nálgun að nýjum straumum í förðun sem allir geta leikið eftir. Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com Elsa Hosk förðuð með bleikum tónum. Förðunarfræðing- urinn Patrick Ta er þekktur fyrir einlitar farðanir sínar. ILIA Multi- Stick (All Of Me). Förðunarlína Patrick Ta nefnist Monochrome Moment. Margþættar förðunarvör- ur upphafið Sumir vilja meina að vinsældir margþættra förðunarvara hafi verið upphafið að vinsældum ein- litu förðunarinnar. Þarna komu fram formúlur í einum litatóni sem mátti nota á ýmis svæði and- litsins. Vinsælustu litatónarnir til að nota í svona förðun eru eflaust hlýir bleikir tónar en þeir virðast fara mörgum sérlega vel. Rosie Huntington- Whiteley förðuð með náttúrulegum litatónum. Bare Minerals Gen Nude Powder Blush (Beige For Days). NARS The Multiple (Or- gasm). NARS Lip Gloss (Orgasm). NARS Blush (Orgasm). FÖRÐUN SMARTLAND Náttúrulegir brúnir og bleikir tónar koma vel út á Candice Swanepoel. 8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.