Morgunblaðið - 13.12.2019, Page 12
eftir. Í þessu húsi ákvað ég að velja ljósari við til að halda í karakterinn og hafa innrétt-
ingar í eldhúsi með „öfugum“ fulningum en að sama skapi eru línurnar „hreinar“ eins og
einkennir oft mína hönnun,“ segir hún.
Sæja segir að húsráðendur séu mikið matarfólk og því hafi verið lögð áhersla á það í
eldhúsinu að þar væri gott vinnurými.
„Húsráðendur hafa gaman af því að elda og því skipti eldhúsið miklu máli. Eldhúsið
sem var áður í húsinu var upprunalegt og ekki endilega praktískt fyrir nútímaheimili.
Annars voru þau mjög opin fyrir efnisvalinu. Við til dæmis tókum teppi á sjónvarps-
herbergið og hluta af svefnherbergjum, það er svo kósí.“
Inn af eldhúsinu er búr sem er í sama stíl og eldhúsinnréttingin sjálf. Sæja segir að það
sé ástæðan fyrir því að hún kom ekki upp tækjaskáp í eldhúsinu sjálfu.
„Búr er algerlega í anda hússins. Ég ákvað að hafa það ekki með fulningum heldur
meira bara opnar skúffur en frontarnir eru sprautaðir í sama græna tón. Það sama með
veggina, ég vildi hafa þetta allt í sama litnum. Viðarhillan á veggnum er svo í stíl við aðra
skápa í húsinu. Útkoman er mjög skemmtileg.“
Og liturinn á eldhúsinnréttingunni er grænn ekki satt? Hver er pælingin með hann?
„Þegar ég kom fyrst inn í húsið fékk ég á tilfinninguna að eldhúsið ætti að vera hjartað og
ákvað því að láta það skera sig úr frá öðrum innréttingum en samt sem áður passa vel inn í
heildarmyndina. Eigandinn er líka mikil plöntukona svo græni liturinn smellpassar inn á
heimilið. Fyrir valinu var muskulegur grænn tónn, ekki ósvipaður og eucalyptus,“ segir Sæja.
Hvaða samspili vildir þú ná fram?
„Samspili þess gamla og nýja. Að færa húsið í nútímalegra form án þess að tapa upp-
rananum með því að leika með kontrasta í efnisvali sem passar þessu húsi. Hlýjan í viðn-
um og græna tóninum kemur vel út á móti gráum veggjum og marmara.“
Þarna eru ljósir veggir, brass-blöndunartæki, gráar marmaraflísar og annar marmari
sem mætast. Það sést langar leiðir að þú ert óhrædd. Ertu að ganga lengra en áður í
þinni hönnun?
„Ég veit ekki endilega hvort ég er að ganga lengra en þetta fer oft eftir kúnnanum. Ég
vil stundum eitthvað sem kúnninn er ekki alveg til í en það er frábært þegar kúnninn
treystir þeirri sýn sem ég hef á verkið og þá verður útkoman góð. Ég hef þó alltaf verið
veik fyrir marmara og brassi svo það er ekkert nýtt.“
Hvað ertu ánægðust með á heimilinu?
„Ég er mjög ánægð með skipulagið á húsinu. Einnig litinn á eldhúsinu og hvað hann
kemur skemmtilega út á móti Viola-marmaranum.“
Og vínkjallarinn, hvað getur þú sagt mér um hann?
„Þar var takmarkið að fá „wow factor“ þegar þú gengur niður og ekki tapa þeirri litlu
birtu sem kemur frá glugganum.“
Ljósmyndir/Guðfinna Magnúsdóttir
Húsráðendur vildu frístandandi baðkar og passar það vel inn í rýmið.
„Þegar ég kom fyrst inn í húsið fékk ég á til-
finninguna að eldhúsið ætti að vera hjartað og
ákvað því að láta það skera sig úr frá öðrum
innréttingum en samt sem áður passa vel inn í
heildarmyndina. Eigandinn er líka mikil
plöntukona svo græni liturinn smellpassar inn
á heimilið. Fyrir valinu var muskulegur
grænn tónn, ekki ósvipaður og eucalyptus,“
Baðherbergið er bjart
en þar er líka nóg pláss
til að athafna sig.
SJÁ SÍÐU 14
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019