Morgunblaðið - 13.12.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 13.12.2019, Síða 22
Þ egar Holmegaard kom mér í gegnum jólin „Í dag finnst mér sorglegt að lesa um ofur- konuna sem stýrir stóru fyrirtæki, á sex börn, bakar laufabrauð og gerir átta sortir fyrir jólin. Þá sem gefur út barnabók með jólabókaflóðinu, gengur á fjöll um helgar á aðventunni og vaknar til að stunda crossfit fimm daga vikunnar. Þetta er konan sem fer í messu á aðfangadagsmorgun, eldar jólamatinn og sest svo prúðbúin við matarborðið á slaginu sex þegar RÚV hringir inn jólin. Mér finnst það sorglegt því þetta er sagan af mér. Ég bjó í stóru fallegu húsi, með tveimur börnum og dásamlegum eiginmanni sem var yfirmaður hjá hinu opinbera. Það þótti mér mjög flott enda mikið fyrir öryggi og jákvætt álit annarra. Ég byrj- aði alltaf óvenjusnemma að undirbúa fyrir jólin. Við áttum mikið af jólaskrauti sem ég hafði komið vandlega fyrir úti í bílskúr. Ég man að ég átti dásamlega Holmegaard-púrtvínsdagatals- flösku sem ég pakkaði alltaf þannig að hún stæði fremst þegar ég fann skrautið. Flöskunni fylgdu agnarsmá púrtvínsglös og hefðin var síðan að fá sér eitt staup (hóst hóst) hvern dag á aðventunni. Ég veit ekki hvað það var þessi jólin, en ég hafði sjaldan eða aldr- ei verið jafn glöð að sjá Holmegaard-flöskuna. Ég fór strax inn í eld- hús og fyllti á hana, drakk eitt staup og fór síðan aftur í skúrinn. Inn á milli jólakassanna sá ég strax tvo stóra svarta ruslapoka sem ég ekki kannaðist við. Eiginmaður minn var mikið jólabarn og átti það til að sanka að sér dóti eftir jólin svo ég taldi að í pokunum væri eflaust nýtt jóla- þorp sem hann hefði fengið á afslætti eftir jólin í fyrra. Ég skildi ekki þegar ég rak höndina ofan í pokann og tók utan um eitthvað sem virkaði eins og pylsa. Undir pylsunni stóð: extra soft dildo, síðan flæddu út úr jólapokanum hælaskór númer 44, risastór- ir kjólar, brjóstahaldari og gervibrjóst – svipur og handjárn. Ef þetta var poki jólasveinsins, þá var á hreinu að hann ætlaði að koma út úr skápnum þetta árið. Ég nefndi þetta góss ekki við neinn en horfði á embættismanninn minn góða öðrum augum eftir atvikið. Hvenær fann hann tíma til að klæða sig í herlegheitin? Hann var vanur að fara aftur í vinnu strax eftir matinn og vinna fram á kvöld eins og enginn væri morgundag- urinn. Aðventan leið og ég var eins og í transi. Ég vildi ekki skemma jól- in fyrir börnunum eða aðfangadagsmatinn fyrir tengdamömmu. Hvernig gat eiginmaður minn gert mér þetta svona rétt fyrir jól- in? Á þessum tíma gerði ég allt fyrir jólin ein. Eitt af því sem við gerðum alltaf í upphafi sambúðarinnar var að skrifa kort til vina okkar með minningum um samveru það árið. Ég sat eitt kvöldið fyrir þessi jólin með bunka af jólakortum fyrir framan mig og að sjálfsögðu Holmegaard-flöskuna góðu, sem var orðin eins og minn besti vinur. Ég fékk mér þrjú staup af púrtvín- inu og lét sem ég sæi ekki að ég var komin niður að þorláksmessu í dagatalinu. Ég opnaði einnig góða hvítvín því mig langaði að hafa það virki- lega huggulegt þarna um kvöldið. Mér hefur alltaf þótt frekar erfitt að muna allar sögurnar ein en það kom eitthvað yfir mig þetta kvöldið og ég skrifaði eins og vindurinn. Þegar ég vaknaði morguninn eftir mundi ég ekki helmingin af því sem ég hafði skrifað í jólakortin. Við hlið fallegra umslaganna sem ég hafði lokað samviskusamlega stóðu tvær tómar vínflöskur. Ég fór með umslögin á pósthúsið og komst í gegnum restina af verkefnum jólanna á þremur Holmegaard-dagatölum. Þegar jólin voru hringd inn klukkan sex þetta árið var allt orðið fullkomið. Ég hafði keypt mér nýjan kjól, iitala-skálar á jólaborðið, farið í tíu verslanir til að finna réttu servíetturnar. Jólin mín í dag verða aldrei jafn fullkomin í ramma. Ég hætti að drekka eftir þessi jólin og hef haldið mig við það. Skilaði karlinum og verð nú ein erlendis á skíðum um jólin. Ég sendi í mesta lagi hug- heilar jólakveðjur í gegnum Facebook þetta árið. Ég hef á und- anförnum árum verið erlendis um jólin. Í skilnaðargjöf gaf ég eig- inmanni mínum Holmegaard-dagatalsflöskuna góðu. Ég hef ennþá Jól fyrrverandi ofurkvenna Sumir halda því fram að raunveruleikinn slái öllum ævintýrum við. Að á bak við fallega skreytt húsin okkar í landinu búi flókin verkefni sem stundum tekur ævina alla að leysa úr. Hér segja þrjár fyrrverandi ofurkonur sögu sína. Þær koma fram undir nafnleynd af virðingu við fjölskyldur sínar. Það sem sameinar þær eru að nú eiga þær jól án áfengis. Þetta eru ósköp „venjulegar“ konur. Ef slíkar konur eru til. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Það getur verið óheppilegt á fullkomnu heimili þegar karlinn er kominn í kjól! Ljósmynd/Thinkstockphotos 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.