Morgunblaðið - 13.12.2019, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2019
Enn þá reiður út í Votta Jehóva
Í síðustu þremur bókum hefur Mikael skrifað
um fjölskyldu sína. Þegar hann er spurður að
því hvort dagskráin sé tæmd segist hann halda
það. Hann er þó ekki alveg viss.
„Ég læt auðvitað allt flakka en það er eflaust
margt ósagt enn þá. Þegar ég lauk við þessa
bók sagði ég við Elmu að nú væri ég hættur að
skrifa um okkur fjölskylduna. Þetta væri orðið
gott og ég uppurinn. Hún hugsaði sig um í smá-
stund og minnti mig svo á að hálfur dagur með
mömmu eða systur minni væri efni í heila bók.
Þannig að hver veit?“
Foreldrar Mikaels voru í Vottum Jehóva sem
er sértrúarsöfnuður sem heldur hvorki jól né
páska og harðbannar að haldið sé upp á afmæli.
Tilvist þessa sértrúarsafnaðar hafði mikil áhrif
á uppeldi Mikaels og hefði hann líklega ekki lif-
að veikindi af sem barn ef hann hefði ekki feng-
ið blóðgjöf en samkvæmt sértrúarsöfnuðinum
má ekki þiggja slíkar gjafir. Það er svo ekki
fyrr en móðir hans yfirgaf Votta Jehóva að fjöl-
skyldan fór að ná saman á nýjan leik. Þegar
Mikael er spurður út í það hvort hann sé reiður
út í þetta samfélag er hann ekki alveg viss.
„Já og nei. Mig langar að segja nei því ég finn
ekki fyrir reiði í garð þeirra einstaklinga sem
eru Vottar Jehóva. En það væri óheiðarlegt af
mér að segja alveg hreint og klárt nei við þess-
ari spurningu því ég er ósáttur við Votta Je-
hóva og hef á þeim sterkar skoðanir. Þá hef ég
líka sterkar skoðanir á því
hvernig við komum fram við
Votta Jehóva sem samfélag. Þá
við Íslendingar. Við látum þá
hafa peninga þrátt fyrir að þetta
sé samfélag sem mismunar kon-
um og körlum og útskúfar sam-
kynhneigðu fólki. Ég efast um
að knattspyrnufélagið Valur
kæmist upp með að banna
hommum og lesbíum að æfa hjá
félaginu. Reyndar kæmist Valur
upp með að mismuna konum og
körlum sem þeir gera eins og
nær öll íslensk íþróttafélög. Já,
nei, ég er ekki reiður en ég hef
sterkar skoðanir eins og þú
heyrir, á bæði Vottum Jehóva og
Val.“
Það er auðvelt að fá öran hjartslátt við lestur bókarinnar
því sumar lýsingarnar eru sjokkerandi. Þegar ég spyr Mika-
el hvort hann hafi aldrei verið hræddur við að opna líf sitt
upp á gátt játar hann því.
„Jú, biddu fyrir þér. Mér finnst bara svo mikilvægt að við
reynum að skilja hvert annað og okkur sjálf að ég læt allt
flakka. Kannski gerði ég það stundum í gamla daga til að
sjokkera og hrista upp í hlutunum en nú er ég miklu yfirveg-
aðri og er að reyna að skilja samfélagið sem við búum í
þannig að tilgangurinn helgar meðalið í mínum huga.“
Hann segir að hann hafi öðlast meiri skilning á tilvist
sinni þegar hann skrifaði fyrstu bókina í þessum þríleik,
Týnd í Paradís.
„Ég fékk botn í fyrstu ár ævi minnar og skildi foreldra
mína þótt ég hafi verið ósammála þeim. Þetta var erfið bók
að skrifa og mikil rannsóknarvinna lá að baki henni. Ég lá
yfir eigin sjúkraskýrslum og tímaritum Votta Jehóva og tók
viðtöl við foreldra mína, systkini, aðra ættingja og vini til að
reyna að setja mig í spor þessa unga fólks sem lét skírast
inn í söfnuð Votta Jehóva og varð svo heittrúað að það var
tilbúið að fórna lífi sonar síns svo hann myndi öðlast eilíft líf
í Paradís,“ segir hann.
Harður heimur DV
Mikael var ritstjóri DV á árunum 2003-2006. Í bókinni
Bréf til mömmu talar hann um þennan tíma og hvað hafi
vakað fyrir honum þegar hann sat í ritstjórastóli DV. Árið
2006 sagði hann upp störfum eftir að barnaníðingur á Ísa-
firði fyrirfór sér vegna væntanlegra umfjöllunar DV um
málið. Þegar Mikael er spurður að því hvort hægt hefði ver-
ið að tækla þessi mál öðruvísi segist hann ekki halda það.
„DV féll vegna umfjöllunar um barnaníðing sem nauðgaði
drengjum. Við eigum enn erfitt með slíkar fréttir og ekki er
langt síðan ríkisstjórn féll á Íslandi vegna barnaníðings.
Auðvitað erum við komin lengra en lengi höfum við á Íslandi
tekið afstöðu með barnaníðingum þrátt fyrir yfirlýsingar um
annað í fjölskylduboðum. Sjáðu bara þennan prins þarna á
Englandi og vin hans sem drap sig í fangaklefa í New York.
Meira að segja Ríkisútvarpið á erfitt með að fjalla um málið og
leitar í álitsgjafa sem eiga að gefa prinsinum og hans fólki ráð
um hvernig hann hefði getað komið betur út úr einhverju viðtali
á BBC,“ segir hann.
Í bókinni lýsir Mikael því hvernig það hafi verið að hafa verið
hataður af stórum hópi fólks eftir uppsögnina á DV. Hann hafi
varla getað pantað sér leigubíl og hafi lokað sig af.
„Það var erfitt að segja upp á DV eftir að tugþúsundir Ís-
lendinga skrifuðu undir lista sem kröfðust breytinga á
ritstjórnarstefnu DV vegna þess að alræmdur barnaníðingur
hengdi sig. Ég náttúrlega var vel undir þetta búinn af lífinu því
ég hafði verið útskúfaður ásamt fjölskyldu minni úr samfélagi
Votta Jehóva. Þannig að ég þekkti þetta að einhverju leyti og
svo leystust þessi mál af sjálfu sér því þjóðin sá á endanum að
við á DV á sínum tíma höfðum ekki rangt við í málefnum barna-
níðingsins Gísla Hjartarsonar.“
Það hefur margt gerst í íslenskum fjölmiðlaheimi síðan ég
sat á móti Mikael þar sem hann var að bjóða mér vinnu veifandi
leikfangabyssu. Þegar ég spyr hann hvað honum finnist vera
mesta breytingin nefnir hann samfélagsmiðla.
„Facebook, Facebook, Facebook. Það eru allir á Fa-
cebook og fá flestar fréttir sínar þaðan og ég veit að allir
fjölmiðlar á Íslandi berjast í bökkum og blaðamönnum
fækkar. Það er skelfilegt ástand á fjölmiðlamarkaði og í
raun með ólíkindum hversu góðir miðlarnir eru ennþá.
Og það sér ekki fyrir endann á þessum breytingum öll-
um og við vitum enn ekki alveg hvernig við eigum að
bregðast við breyttu landslagi. Ég er auðvitað róm-
antíker þegar kemur að dagblöðum og keypti strax
áskrift að blaði þegar ég kom hingað til Vínar. Ég kaupi
líka áskrift að blöðum og tímaritum í gegnum app í sím-
anum mínum og á Ipad en það jafnast ekkert á við að
halda á dagblaði og lesa yfir kaffibolla.“
Það er náttúrlega bara fólk sem lifir heiðarlegu lífi
sem getur slakað á með dagblað og kaffibolla. Þeir sem
þekkja Mikael og hafa fylgst með honum vita að hann er
að lifa drauminn sinn í Vín. Sjálfur segist hann ekki geta
verið ánægðari með tilveruna eins og hún er í dag.
„Þetta er draumalífið. Lífið sem ég veit ekki alveg
hvort ég þorði að láta mig dreyma um að ég myndi nokk-
urn tíma lifa. Ég er rithöfundur og get séð fyrir mér sem
slíkur. Er að skrifa leikrit fyrir stærstu leikhús Evrópu
með besta vini mínum, honum Þorleifi Erni Arnarssyni,
og bækurnar mínar eru að koma út bæði heima og er-
lendis. Þá tók ég þátt í því að skrifa Brot, eða Valhalla
Murders, sem verður í Ríkissjónvarpinu og á Netflix á
næstunni. Ég á æðisleg börn og bý í geggjaðri íbúð mið-
svæðis í Vínarborg. Þetta er ótrúleg menningarborg og
stutt fyrir okkur að fara í leikhús og á óperu. Ég þarf að
klípa mig til að athuga hvort mig sé nokkuð að dreyma!“
Maður sem er kominn á þennan stað er ekkert reiður
út í fortíðina, er það nokkuð?
„Nei, en ég var alltof lengi þessi ungi reiði maður. Það
fór mér kannski ágætlega þegar ég var enn á þrítugs-
aldri en súrnaði svolítið á fertugsaldri og nú þegar ég er
hálffimmtugur væri ég nú frekar hlægilegur ef ég væri reiður
út í fortíð mína.“
Spurður um næstu verkefni segist hann vera byrjaður á
næstu bók.
„Ég sit hérna sveittur og skrifa leikrit með Þorleifi yfir netið.
Við erum að hamast þetta fyrir Burgtheater hér í Vín en auðvit-
að reyni ég að gefa mér tíma fyrir bók og önnur verkefni. Ég
var að skrifa lítið verk fyrir listasafnið hér í Vínarborg. Mjög
stoltur af því verki, sem ég kalla Pinot Noir. Og bókin, næsta
bók, jú hún er í kollinum og ég er búinn að skrifa nokkra kafla í
leit að rétta tóninum. Þetta er skáldsaga. Stóra skáldsagan. Vil
ekki segja meira,“ segir hann.
Mynd úr sýningunni
Die Edda sem nú
gengur fyrir fullu húsi í
Burgtheater.
Frá vinstri: Mikael, Jóhannes Geir Númason, Ingvi Reynir Berndsen, bróðir
Mikaels, og Finnur Númason. Númasynir eru frændur hans.
Hér er Mikael tvítugur að aldri og orðinn pabbi. Hann hafði alltaf dreymt um að
eiga sína eigin fjölskyldu.
’96-’97 bjó Mikael á Hellu,
nýorðinn tveggja barna faðir
og vann í kjúklingasláturhús-
inu og kláraði Falskan fugl
eins og segir frá í bókinni.
Mikael hefur lagt mikið á sig til að sættast við fortíðina.
Matthias Horn/Burgtheater