Fréttablaðið - 02.01.2003, Side 1

Fréttablaðið - 02.01.2003, Side 1
FÁLKAORÐAN Bindur ekki Bubba bls. 30bls. 6 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 2. janúar 2003 Tónlist 18 Leikhús 18 Myndlist 18 Bíó 20 Íþróttir 10 Sjónvarp 22 KVÖLDIÐ Í KVÖLD ÍÞRÓTTIR Úrslitin í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins 2002 verða kunngerð á Grand hóteli í dag. Hófið hefst kl. 18 en bein útsending hefst á Stöð 2 um kl. 19 og í Ríkissjónvarpinu og á Sýn kl. 19.40. Kjör íþróttamanns ársins FRUMSÝNING Film-undur frumsýnir þýsku kvikmyndina Halbe Treppe kl. 22.15 í kvöld í Háskólabíói. Myndin hefur hlotið fjölda verð- launa í heimalandinu, þ.á.m. Silfur- björninn á kvikmyndahátíðinni í Berlín á síðasta ári. Þýsk kvikmynd í Háskólabíói MYNDLIST Nú stendur yfir sýningin Án samhengis - allt að klámi í Café Presto, Hlíðasmára 15, Kópavogi. Þar sýnir Birgir Rafn Friðriksson 34 þurrpastelmyndir unnar á árinu 2000. Sýningin stendur út janúar. Sýningin Án sam- hengis - allt að klámi LJÓSMYNDIR Ingólfur Júlíusson ljós- myndari stendur fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo nærri í Reykjavíkurakademíunni, 4. hæð. Sýningunni lýkur 31. janúar. Ljósmyndasýning Ingólfs Júlíussonar ÁRAMÓT Fólk tekur á FIMMTUDAGUR 1. tölublað – 3. árgangur FJÖLMIÐLAR Frelsi minnst í Asíu bls. 24 ÁRAMÓT Í REYKJAVÍK Áramótunum var fagnað í einstakri veðurblíðu. Það var ekki bara veðrið sem var gott – mannlífið var það líka, óhöpp sárafá og slys minniháttar. ÁRAMÓT Veðrið lék við landsmenn þegar árið 2003 gekk í garð. Fjöl- menni var á áramótabrennum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og annars staðar á landinu. Púður- mökkurinn lá yfir borginni þegar þrjú hundruð tonnum af flugeld- um var skotið á loft um miðnætti. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti fjórtán útköllum á gamlárs- kvöld. Þrjú voru í heimahús þar sem flugeldar höfðu ratað inn. Einhver útköll voru vegna óhappa við flugelda en ekki urðu alvarleg slys á fólki. Þá urðu engin augn- meiðsli af völdum flugelda þetta árið samkvæmt upplýsingum frá slysadeild Landspítalans í Foss- vogi. Lögreglan í Reykjavík segir áramótin hafa verið með róleg- asta móti. ■ Veðrið lék við landsmenn: Nýju ári heilsað með friði REYKJAVÍK Hæg suðlæg átt og dálítil slydda. Hiti 0 til 3 stig. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 1 Slydda 2 Akureyri 3 Skýjað 0 Egilsstaðir 3 Skýjað 3 Vestmannaeyjar 10 Skýjað 4➜ ➜➜ ➜ + - + + FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I RÓ B ER T FÓLK SÍÐA 11 Betra að kyssa konur ÍÞRÓTTIR Lamaður í andliti SÍÐA 22 INNFLYTJENDUR Lögreglan í Reykja- vík hefur nú til rannsóknar hvort hópur fólks af víetnömsku bergi brotið hafi með skipulögðum hætti efnt til hjúskapar í því skyni að út- vega löndum sínum ótímabundið atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi. Rannsókn lögreglunnar beinist að því að upplýsa hvort hópur inn- flytjenda sem kom til landsins upp úr 1990 hafi tekið upp þá iðju að ganga í hjónabönd með löndum sínum í því skyni að koma þeim til Íslands. Meðal þess sem grunur leikur á er að þeir sem þannig undirgang- ast hjúskaparsáttmála hafi gert það gegn gjaldi. Upp úr 1990 komu til Íslands í hópi annarra 18 hjón frá Norður- Víetnam sem öll fengu íslenskan ríkisborgararétt. Það hefur vakið athygli yfirvalda að 17 þeirra hafa skilið á pappír- um og gengið að eiga aðra. Dæmi eru um að sumir þeirra einstaklinga sem voru í umræddum hjóna- böndum hafi gift sig fjórum sinnum síðan en grunur leikur á að engu að síður búi viðkomandi með fyrstu mökum sínum. Talið er að gjaldið fyrir að ganga í hjónaband sé frá einni til tveimur milljónum króna, sem fólkið greiðir eftir komuna til landsins. Í einhverjum tilvikum eru grunsemdir um að fólkið sem um ræðir hafi aldrei séð hina nýju maka sína heldur hafi pappírar gengið á milli og í einhverjum til- vikum leikur grunur á að þeir séu falsaðir. Við kom- una til Íslands er talið að hjónin hafi hist í fyrsta sinn og þá til þess að ganga frá greiðslum á uppsettu gjaldi vegna hjónavígslunnar og í framhaldi þess lögskilnaði. Ávinningur þeirra sem þannig kaupa sig inn í hjónaband er ótímabundið dvalarleyfi. Eini munurinn á þeim réttindum og ríkis- borgararétti er sá að hinir nýju þegnar fá ekki að kjósa á Ís- landi og fá ekki rétt til lánasjóðs. Til þess að útlendingar fái ríkis- borgararétt í framhaldi þess að ganga í hjónaband verða þeir að sýna fram á að hjónabandið endist í það minnsta í þrjú ár. Heimildar- menn Fréttablaðsins líkja gervi- hjónaböndunum við það sem gerð- ist á árum áður þegar fólk gifti sig unnvörpum til þess að ná út spari- merkjum. Nú er tilgangurinn sá að ná í dvalarrétt og síðar ríkisborg- ararétt í landi sem býður upp á betri lífskjör en gerist í gamla landinu. „Ég get staðfest að við erum með slíkt mál til rannsóknar. Það eru nokkur dæmi um að fólk hafi skilið og gifst og við erum að skoða hvað er þar að baki,“ segir Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík. rt@frettabladid.is Lögregla rannsakar meint gervihjónabönd Af 18 hjónum sem komið hafa frá Víetnam eftir 1990 hafa 17 skilið. Sumt fólkið hefur síðan geng- ið nokkrum sinnum í hjónaband, að því að talið er til að koma fólki inn í landið. Málinu líkt við sparimerkjahjónaböndin á árum áður. NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 28% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á fimmtu- dögum? 53% 72% Meðal þess sem grunur leikur á er að þeir sem þannig undir- gangast hjú- skaparsátt- mála hafi gert það gegn gjaldi. Páfinn flytur nýársávarp: Bæn um frið VATIKANIÐ, AP Árleg nýársmessa var haldin í Péturskirkjunni í Róm á nýársdag og að henni lok- inni talaði Jóhannes Páll páfi ann- ar til mannfjöldans sem safnast hafði saman á torginu fyrir utan. Í ávarpi sínu var páfa tíðrætt um ástandið fyrir botni Miðjarðar- hafs og notaði tækifærið til að hvetja til þess að endi yrði bund- inn á átökin þar, sem og annan ófrið í heiminum. Páfinn fór ekki leynt með þá skoðun sína að átök- in væru fáránleg og tilgangslaus og lagði áherslu á að það væri bæði mögulegt og rétt að koma á friði hið snarasta. Hann hvatti alla viðstadda til þess að leggja sitt af mörkum með því að stuðla að frið- samlegum samskiptum fólks, hver á sínum heimavelli. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.