Fréttablaðið - 02.01.2003, Síða 2
2 2. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sigurður Kári Kristjánsson, frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins í alþingiskosningum í vor.
Davíð Oddsson kallaði Össur Skarphéðinsson dóna
í Kryddsíldarþætti Stöðvar tvö á gamlársdag. Össur
svaraði að hann væri sjálfur dóni.
Nei, Davíð er ekki dóni. Hann er vel upp al-
inn séntilmaður.
SPURNING DAGSINS
Er Davíð Oddsson dóni?
PETRONAS-TURNARNIR
Ofurhugar stökkva ofan af turnunum
skömmu fyrir miðnætti á nýársnótt.
Áramót í Kuala Lumpur:
Svifið inn í
nýtt ár
MALASÍA, AP Í Kuala Lumpur, höf-
uðborg Malasíu, var hápunktur
hátíðarhaldanna á nýársnótt rétt
fyrir miðnætti þegar tíu fallhlífa-
stökkvarar stukku niður af Petr-
onas-tvíburaturnunum og lentu
mjúklega í nálægum garði. ■
EINKAVÆÐING „Þetta er stórmerkur
áfangi, enda stærsta einkavæðing
Íslandssögunnar,“ sagði Valgerð-
ur Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, þegar samkomu-
lag hafði tekist um
kaup Samson á
45,8% hlut ríkisins
í Landsbankanum.
Samningur um
kaupin var undir-
ritaður síðdegis á
gamlársdag en hann grundvallast
á samkomulagi sem gert var í
október síðastliðnum. Meðalgengi
í viðskiptunum er 3,91 og heildar-
kaupverðið 12,3 milljarðar króna.
Það verður að fullu greitt í Banda-
ríkjadölum. 33,3% hlutafjár verða
afhent strax að lokinni athugun
Fjármálaeftirlitsins á Samson.
12,5% verða svo afhent í desem-
ber 2003. Eftir þessi viðskipti
verður eignarhlutur ríkisins í
Landsbankanum 2,5%. Á loka-
spretti viðræðna Samson og
einkavæðingarnefndar var deilt
um verðmæti tiltekinna eigna
Landsbankans og bar töluvert í
milli. Samsonar höfðu að lokum
betur og fengu ákvæði um trygg-
ingar sem þeir töldu nauðsynleg-
ar. Viðskiptaráðherra hafnar því
hins vegar að Samsonar hafi
beygt ríkið.
„Ég vil nú alls ekki orða það
þannig en við urðum sammála um
að hafa inni í samningnum ákveð-
ið leiðréttingarákvæði. Tilteknar
eignir verða metnar seinni hluta
ársins. Það ræðst svo af því mati
hvort kaupverðið stendur eða
lækkar. Verðið gæti lækkað um
allt að 700 milljónir króna,“ sagði
Valgerður Sverrisdóttir.
Samkomulag varð um að taka
út ákveðin fyrirtæki og verður
fylgst náið með innheimtu lána
viðkomandi. Þessi fyrir-
tækjakarfa myndar nokkurs kon-
ar vísitölu sem stuðst verður við
þegar eignir bankans verða end-
urmetnar síðar á árinu.
Í tilkynningu frá Samson segir
að ríkið hafi ábyrgst farsæla
lausn þeirra mála sem óvissa ríkti
um. Þá hafi Samson lýst því yfir
að andvirði vafasamra krafna
verði endurfjárfest í bankanum í
formi hlutafjár og verði það öll-
um hluthöfum Landsbankans til
hagsbóta, en um 14.500 einstak-
lingar og fyrirtæki eru í hópi
þeirra.
Þá vill Samson taka fram að í
samningum sé skýrt ákvæði um
að nái S-hópurinn, eða annar aðili
í hans stað, hagstæðari greiðslu-
kjörum um kaup á hlut ríkisins í
Búnaðarbanka Íslands hf. áskilji
Samson sér rétt til að endurskoða
kaupsamninginn um hlut ríkisins
í Landsbankanum.
the@frettabladid.is
Fjórir handteknir á
Blönduósi:
Fíkniefni
og stolnir
skartgripir
FÍKNIEFNI Nokkurt magn fíkniefna
fannst við leit í bíl sem lögreglan
á Blönduósi stöðvaði í umferðar-
eftirliti á mánudag. Í bílnum voru
tvö pör, annað á þrítugsaldri en
hitt um tvítugt. Við leit í bílnum
fundust 100 grömm af fíkniefnum
af ýmsum gerðum. Viðurkenndi
fólkið að hafa ætlað sér að selja
efnin á helstu þéttbýlisstöðum
Norðurlands. Einnig fundust
skartgripir sem grunur leikur á
að sé þýfi úr innbroti í skartgripa-
verslun í Grindavík.
Að loknum yfirheyrslum var
öðru parinu sleppt en hitt parið
var flutt til Keflavíkur vegna inn-
brotsins. Gerði lögreglan þar hús-
leit hjá fólkinu í Grindavík. Þar
voru hundrað kannabisplöntur og
nokkurt magn af kannabis. Þá
fundust fleiri skartgripir sem
talið er að séu úr fyrrgreindu inn-
broti. Fólkinu var sleppt að lokn-
um yfirheyrslum. ■
PRÓFLAUS Á STOLNUM BÍL Lög-
reglan í Kópavogi stöðvaði bíl um
kl. 9 í gærmorgun. Ökumaður hans
reyndist próflaus og á stolnum bíl.
Hann hafði aðeins ekið nokkur
hundruð metra þegar lögreglan
stöðvaði hann. Maðurinn, sem er á
þrítugsaldri, hefur aldrei tekið
ökuprófið og er talinn til góðkunn-
ingja lögreglunnar. Hann var
handtekinn á staðnum og var yfir-
heyrður á nýársdag. Lögreglan í
Kópavogi tók svo þrjá ökumenn
grunaða um ölvun við akstur.
BANDARÍKIN, AP Áramótin í Banda-
ríkjunum fóru að mestu fram með
hefðbundnum hætti þrátt fyrir að
slæmt efnahagsástand í landinu
og óttinn við hryðjuverk hafi orð-
ið til þess að draga nokkuð úr há-
tíðarstemningunni. Áætlað er að
um 750.000 manns hafi safnast
saman á Times Square í New York
í kringum miðnætti á nýársnótt til
þess að fylgjast með niðurtalning-
unni að áramótunum og voru ör-
yggisráðstafanir vegna hátíðar-
haldanna með mesta móti. Yfir
2000 lögreglumenn og markskytt-
ur höfðu auga með mannfjöldan-
um og gættu þess að allt færi vel
fram. Leitað var á fólki með
málmleitartækjum auk þess sem
holræsaopum á torginu var lokað
og póstkassar fjarlægðir.
Í Las Vegas fylgdust tugir þús-
unda áhorfenda með því þegar
flugeldum var skotið samtímis af
þökum 10 spilavíta. Mikill fjöldi
lögreglumanna var á vakt um
nóttina en hátíðarhöldin í borginni
fóru að mestu leyti friðsamlega
fram eins og víðast hvar annars
staðar í Bandaríkjunum. ■
Fyrsta barn ársins:
Myndarleg
Eyjastúlka
NÝÁRSBARN Fyrsta barn ársins 2003
kom í heiminn klukkan 9.42 á
nýársmorgun í Vestmannaeyjum.
Þetta var myndarleg stúlka, 4776
grömm og 56 sentímetrar. Stúlkan
er annað barn ungra hjóna og að
sögn ljósmóður gekk fæðingin vel,
stelpan mjög flott og mikil ham-
ingja í Eyjum.
Engin nýársbörn höfðu látið á
sér kræla í Reykjavík og á Akur-
eyri fyrir hádegi í gær og að sögn
ljósmóður í Reykjavík eru slík ró-
legheit á gamlárskvöld óvenjuleg.
„Það er hins vegar fullt af börnum
á leiðinni og þau koma nokkur á
eftir.“ ■
TIMES SQUARE
Íbúar og gestir í New York fögnuðu árinu
með hefðbundnum hætti og streymdu í
hundraða þúsunda tali á Times Square.
Óttinn við hryðjuverk setti svip sinn á áramótin í
Bandaríkjunum:
Miklar öryggisráð-
stafanir í stórborgum
SAMSON
Eftir nokkurt þref höfðu Samsonar sitt fram, ríkið ábyrgist tiltekin lán sem talin eru lítt traust.
Samson knúði
fram tryggingar
Samningar um kaup Samson á 45,8% hlut í Landsbankanum fela í sér
ábyrgð ríkisins á tilteknum eignum Landsbankans. Kaupverð bankans
gæti lækkað um allt að 700 milljónir króna. Greiðslukjör verða endur-
skoðuð nái kaupandi Búnaðarbankans betri kjörum en Samson.
„Verðið gæti
lækkað um allt
að 700 millj-
ónir króna.“
BJÖRGUN Þyrluáhöfn Landhelgis-
gæslunnar bjargaði sex mönnum
af norska flutningaskipinu Ice-
bear að morgni gamlársdags en
þá var skipið að sökkva 73 sjómíl-
ur suðaustur af Dalatanga. Skipið
var á leiðinni frá Neskaupstað til
Finnlands með sex þúsund tunnur
af saltsíld þegar slagsíða kom á
það og sjór fór að leka inn. Skip-
stjóri á Icebear er íslenskur en
áhöfnin frá Litháen.
Það var um miðnætti að neyð-
arkall barst Loftskeytastöðinni í
Reykjavík í gegnum strandstöðina
í Bodö í Noregi. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var þegar kölluð út og
var henni flogið til Hafnar í
Hornafirði. Þar var tekið elds-
neyti og Björgunarfélag Horna-
fjarðar útvegaði sjódælur til að
taka með á vettvang. Þyrlan flaug
frá Höfn klukkan
fjögur. Einum og
hálfum tíma síðar
barst tilkynning
um að sex manna
áhöfn flutninga-
skipsins væri
komin um borð í
þyrluna. Sam-
kvæmt upplýsing-
um frá stýrimanni
TF-Líf var ástand
áhafnarinnar gott.
Hafði mennina
rekið eina sjómílu
frá skipinu og var
kominn 40 til 50
gráðu halli á skipið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni fengu eig-
endur skipsins færeyskt dráttar-
skip til að fara á vettvang. Bár-
ust þær upplýsingar að skipið
væri ekki sokkið. Taka á ákvörð-
un í dag um hvert næsta skref
verður en sú ákvörðun er á
ábyrgð eigenda. ■
FLUTNINGASKIPIÐ ICEBEAR SUÐAUSTUR AF DALATANGA
Áhöfnin á TF-Líf tók þessa mynd, sem sýnir skipið þegar komið
var á vettvang á gamlársdagsmorgun.
Norskt flutningaskip í vandræðum:
Sex manna áhöfn bjargað
ÁHÖFNINNI BJARGAÐ
Myndin var tekin þegar búið var að koma
sjómönnunum um borð í þyrluna.
Lögreglan í Reykjavík:
Lýsir eftir
ungri konu
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
lýsir eftir Guðrúnu Björgu Svan-
björnsdóttur. Hún er 32 ára, um
172 sentímetrar á hæð, með stutt
dökkbrúnt hár og mjög grönn. Síð-
ast er vitað um ferðir Guðrúnar
Bjargar þann 29. desember. Þá
var hún klædd í svartan, síðan,
vatteraðan jakka með hettu og
loðkanti, bláar gallabuxur og vín-
rauða uppháa skó. Guðrún Björg
var með bláan bakpoka.
Þeir sem geta gefið upplýsing-
ar um ferðir hennar eru beðnir að
hafa samband við lögregluna í
Reykjavík í síma 569 9012. ■
GUÐRÚN
BJÖRG
SVAN-
BJÖRNS-
DÓTTIR
Forseti Íslands:
Þversögn að
fátækt aukist
NÝÁRSÁVARP „Aldrei fyrr hafa Ís-
lendingar haft jafn mikla fjár-
muni milli handa. Tækifærin til
góðra verka eru fleiri en nokkru
sinni í sögu þjóðar. Það er því
óneitanlega þversögn að einmitt í
slíkri gósentíð skuli fátækt aukast
ár frá ári,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, í
nýársávarpi sínu.
Hann sagði að æ fleiri festust í
fátæktargildru. Forsetinn benti á
að verkalýðsheyfing, ríki og sveit-
arfélög hefðu tekið höndum sam-
an í baráttu gegn verðbólgu og
náð einstæðum árangri. Átak
þyrfti til að vinna bug á fátækt.
„Ég heiti á forystusveit launa-
fólksins, sem á liðnu ári var í far-
arbroddi andófsins gegn verð-
bólgunni, að veita nú sams konar
leiðsögn í glímunni við fátæktina,
að tengja saman ríkisvald og
sveitarstjórnir, áhrifafólk í at-
vinnulífi og liðssveitir í hjálpar-
starfi og festa í sessi endurbætur
sem tryggi að Ísland sé ekki leng-
ur eftirbátur annarra á Norður-
löndum.“