Fréttablaðið - 02.01.2003, Side 6

Fréttablaðið - 02.01.2003, Side 6
6 2. janúar 2003 FIMMTUDAGURVEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Mikill styr hefur staðið í kring- um ákvörðun Ingibjargar Sól- rúnar að bjóða sig fram í landsmálapólitíkina. Í kjölfarið var ákveðið að nýr borgarstjóri tæki við af henni. Hvað heitir væntanlegur borgarstjóri? Hvern völdu hlustendur Rásar 2 sem mann ársins 2002? Hvaða hljómsveit átti mest seldu plötu ársins á Íslandi? SKATTAAFSLÁTTUR Viðskipti með hlutabréf tóku kipp síðustu við- skiptadaga ársins. Að sögn Mar- grétar Sveinsdóttur, ráðgjafa hjá Íslandsbanka, var í nógu að snú- ast síðustu viðskiptadaga ársins. Um áramótin rennur út skattaaf- sláttur vegna hlutabréfakaupa. Margrét segir þó nokkurn hóp hafa nýtt sér síðasta tækifærið til að fá skattaafslátt. Umfangið sé þó sennilega minna en undanfarin ár. Ekki sé auðvelt að átta sig á umfanginu, því margir noti Netið. Hún segir marga hafa ákveðn- ar skoðanir á því í hvaða fyrir- tækjum þeir vilji kaupa. „Sjóðir sem eru íslensk hlutafélög en eiga erlend hlutabréf hafa líka verið vinsælir. Krónan er sterk núna og erlendir markaðir hafa verið lágir.“ Hún segir þó óvissu um þróunina, en óneitanlega geti verið kauptækifæri við slíkar að- stæður. Samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Ísland var töluvert mikið um kaup í sjóðum. Þar á bæ sögðu menn erfitt að meta muninn á milli ára. Kauphöllin var aðeins opin tvo daga frá jól- um og fram að áramótum. 27. desember varð fjórði veltumesti dagurinn frá upphafi. ■ Mikil velta í Kauphöllinni: Síðasti skatta- afslátturinn nýttur ANNIR Í ÁRSLOK Margir nýttu sér síðasta tækifærið til að fá skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa. Nú um áramótin var afslátturinn aflagður. Mikill fjöldi viðskipta var í Kauphöll Íslands. SAMKEPPNISMÁL Þátttaka golf- klúbba í útboðum sveitarfélaga um garðslátt brýtur í bága við samkeppnislög. Klúbbarnir hafa meðal annars slegið fót- boltavelli á höfuðborgarsvæð- inu. Fyrirtækið Garðlist ehf., sem starfar meðal annars við garðslátt, sendi samkeppnis- yfirvöldum kvörtun í febrúar. Taldi fyrirtækið að þátttaka golfklúbbanna í útboðum sveit- arfélaga um garðslátt bryti í bága við samkeppnislög þar sem þeir greiddu ekki tekjuskatt og fengju styrki frá sveitarfélögun- um. Í niðurstöðum samkeppnisráðs segir að í ársskýrslum klúbbanna hafi ekki verið skilið á milli al- menns íþróttastarfs og sam- keppnisrekstrar. Því hafi ekki verið hægt að sjá hvort skatta- ívilnanir eða styrkir nýtist í samkeppnisrekstrinum eða ekki. Telur samkeppnisráð að þetta skapi tortryggni keppi- nauta og skekki samkeppnisað- stæður á markaðnum. Samkeppnisráð hefur mælt fyrir um fjárhagslegan að- skilnað hjá Golfklúbbi Reykja- víkur og Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Eiga klúbbarnir að skilja að fjárhag milli þeirrar starfsemi sem er í samkeppni við einkaaðila og þeirrar starfsemi sem tengist íþróttastarfsemi klúbbanna. ■ Samkeppnisráð mælir fyrir um fjárhagslegan aðskilnað: Garðsláttur golfklúbba skekkir samkeppni SLEGIST UM SLÁTTINN Fyrirtækið Garðlist ehf. sendi samkeppnisyf- irvöldum kvörtun í febrúar. Taldi fyrirtækið að þátttaka golfklúbbanna í útboðum sveit- arfélaga um garðslátt bryti í bága við sam- keppnislög. Klúbbarnir hafa meðal annars slegið fótboltavelli á höfuðborgarsvæðinu. FJÖLMIÐLAR Ísland, Noregur, Finn- land og Holland eru saman í fjór- um efstu sætunum á lista um frelsi fjölmiðla sem samtökin ‘Fréttamenn án landamæra’ hafa birt. Þetta er í fyrsta sinn sem listi af þessu tagi er tekinn saman. Samkvæmt þessum lista er frelsi fjölmiðla hvergi minna en í Norður-Kóreu. Ástandið er ein- ungis örlitlu skárra í Kína. Í þess- um ríkjum og öðrum, sem neðst eru á listanum, er tómt mál að tala um fjölmiðlafrelsi. Þar eru engir sjálfstæðir fjölmiðlar. Ástandið virðist vera verst í Asíuríkjum. Þau fimm ríki, sem neðst lentu á listanum, eru öll í Asíu og þar er meirihluti þeirra ríkja sem eru í tuttugu neðstu sætum listans. Rússland og Hvíta-Rússland eru einu Evrópulöndin sem eru í hópi þeirra tuttugu neðstu á list- anum, Rússland í 121. og Hvíta- Rússland í 124. sæti. Norðurlöndin eru hins vegar öll í efstu tíu sætunum. Bandarík- in eru í sautjánda sæti og Bret- land í 21. sæti ásamt Benín og Úr- úgvæ. Athygli vekur að Ítalía kemst ekki hærra en í fertugasta sæti á lista samtakanna, sem er verri út- koma en hjá nokkru öðru Evrópu- sambandsríki. Í greinargerð sam- takanna segir að Silvio Berlusc- oni, forsætisráðherra Ítalíu, geri engan veginn nógu skýran grein- armun á hlutverki sínu sem for- sætisráðherra og fjölmiðlakóngs. Ísrael er í 92. sæti. Þar starfa frjálsir fjölmiðlar óáreittir, en störfum blaðamanna á herteknu svæðunum hafa hins vegar verið þröngar skorður settar. Blaða- menn sem þangað hafa lagt leið sína hafa margir hverjir orðið fyrir misalvarlegu áreiti, meðal annars orðið fyrir skotum, verið handteknir eða vísað úr landi. Listinn er byggður á því hvort fjölmiðlar sæta ritskoðun eða öðr- um þrýstingi af hálfu stjórnvalda, hversu algengt sé að blaðamenn verði fyrir árásum eða öðru of- beldi og hvernig lagalegt um- hverfi fjölmiðla er í hverju landi. Listanum er því ekki ætlað að vera mælikvarði á gæði fjölmiðla í þeim löndum sem á honum eru. Hann er eingöngu hugsaður sem mælikvarði á það frelsi sem blaðamenn hafa í starfi. gudsteinn@frettabladid.is Frelsi fjölmiðla er minnst í Asíuríkjum Norðurlöndin koma vel út á lista yfir fjölmiðlafrelsi sem samtökin ‘Fréttamenn án landamæra’ hafa tekið saman. FJÖLMIÐLAKÓNGUR OG FORSÆTISRÁÐHERRA Ítalir geta þakkað forsætisráðherra sínum, Silvio Berlusconi, að frelsi fjölmiðla mælist hvergi minna í Evrópusambandinu heldur en einmitt á Ítalíu. AP /G IU SE PP E TE R R IG N O FRELSI FJÖLMIÐLA EFSTU TÍU 1 Ísland - Finnland - Noregur - Holland 5 Kanada 6 Írland 7 Þýskaland - Portúgal - Svíþjóð 10 Danmörk NEÐSTU TÍU 130 Írak 131Víetnam 132Erítrea 133Laos 134Kúba 135Bútan 136Túrkmenistan 137Búrma 138Kína 139Norður-Kórea Iceland Express: 5000 í tilboðsklúbb SAMGÖNGUR Um fimm þúsund manns hafa þegar skráð sig í til- boðsklúbb Iceland Express sem hyggur á áætlunarflug til og frá landinu í næst mánuði: „Við höfum fengið gríðarlega góðar viðtökur og getum helst hvergi farið án þess að fá klapp á bakið. Tilboðsklúbbinn okkar aug- lýstum við alls ekki neitt. Settum einfaldlega á Netið og það með þessum árangri,“ segir Ólafur Hauksson, talsmaður Iceland Ex- press. „Nú byrjum við að selja flugmiða 9. janúar og fyrsta flug- ið verður svo til Kaupmannahafn- ar að morgni 27. febrúar og síð- degis sama dag til London,“ segir Ólafur. Finna má tilboðsklúbb Iceland Express á slóðinni icelandex- press.is. ■ Neytendasamtökin: Ánægja með jólin NEYTENDUR Neytendasamtökin eru ánægð með jólin og telja að al- menningur hafi notið vel þeirrar samkeppni sem var meðal kaup- manna: „Þetta voru hagstæð jól fyrir neytendur. Grimm samkeppni um hylli neytenda skilaði sér í lágu verði á jólatrjám til þeirra sem höfðu biðlund og aldrei hefur fólk séð lægra kjötverð,“ segir Jó- hannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. „Trygg- ingafélögin og opinberir aðilar hafa hins vegar boðað hækkanir og bankarnir fylgja líklega í kjöl- farið. Á nýju ári viljum við sjá virkari samkeppni á fleiri sviðum en nú er. Þá gætu orðið jól allt árið,“ segir formaður Neytenda- samtakanna. ■ DÖKKT HÁR Ný litagen farin að hafa áhrif. Ný litagen: Þjóðin að verða dökk- hærð HÁRALITUR „Við sjáum meira af dökkhærðum börnum hér nú en áður,“ segir Guðrún Eggertsdótt- ir, yfirljósmóðir á fæðingardeild Landspítalans, um breytingar sem eru að verða á háralit ný- bura. „Skýringin er að stórum hluta sú að svo virðist sem börn asískra kvenna og evrópskra karla séu nær alltaf dökkhærð,“ segir hún. Guðrún telur þetta eðlilega þróun í blönduðu samfélagi sem hér er að verða. Inn komi ný lita- gen og merkilegt verði að sjá hvernig þeim reiðir af í öðrum og þriðja lið þeirra ættkvísla sem til verða. Guðrún kannaðist hins vegar ekki við að rauðhærðum börnum væri að fjölga. Sumir þykja merkja breytingu í þá ver- una. Til dæmis voru 8 börn af 24 í barnaklúbbi íslenskrar ferða- skrifstofu á sólarströnd í Portú- gal síðastliðið sumar rauðhærð: „Ég hef ekki séð þá breytingu hér,“ segir yfirljósmóðirin. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.