Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2003, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 02.01.2003, Qupperneq 10
10 2. janúar 2003 FIMMTUDAGURSKÍÐI Á SKÍÐUM SKEMMTI ÉG MÉR... Þjóðverjinn Kati Wilhelm hitar hér upp fyrir keppni í skíðaskotfimi sem fram fór innan- dyra í bænum Gelsenkirchen í Þýskalandi. Hringurinn sem keppendur fóru er 968 metra langur og þakinn gervisnjó. Glenn Hoddle, knattspyrnu-stjóri Tottenham, segir að þýski varnarmaðurinn Christian Ziege gæti verið frá knattiðkun út þetta tímabil eftir aðgerð sem hann gekkst undir. Ziege gekkst undir aðgerð á fæti fyrir skömmu sem tókst ekki sem skyldi, fóturinn greri illa og varð tvisvar sinnum stærri en eðlilegt þykir. Hann þurfti því að gangast undir bráðaaðgerð og líklegt þyk- ir að það taki hann nokkra mán- uði að jafna sig. Henning Berg, norski varnar-maðurinn hjá Blackburn, segist ætla að halda heim á leið í lok þessa tímabils. „Þetta er síð- asta tímabil mitt áður en ég sný aftur heim,“ sagði Berg, sem er að jafna sig af ökklameiðslum. „Ég hlakka til að spila aftur á nýju ári og því fyrr, því betra.“ Samningur Bergs var framlengd- ur um eitt ár í fyrra þar sem hann þótti standa fyrir sínu. Hann er fyrrum leikmaður Manchester United. Tenniskonan Monica Seles seg-ist búast við því að leggja spaðann á hilluna eftir tvö ár. Þessi ummæli lét hún falla eftir tíunda sigur sinn á Opna ástr- alska mótinu. Seles, sem er 29 ára, segist ætla að spila eins lengi og líkami hennar leyfi meðan hún hafi gaman af íþrótt- inni. „Það er erfitt að gefa upp nákvæma dagsetningu en ég býst ekki við að spila lengur en til 31 árs,“ sagði tenniskonan snjalla. STUTT ÍÞRÓTTIR Í DAG 18.00 Sýn Heimsfótbolti með West Union 18.30 Sýn Heimsfótbolti með West Union 19.00 Sýn, Stöð 2, RÚV Íþróttamaður ársins 2002 23.15 Sýn HM 2002 (Þýskaland - Írland) Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is www.mulalundur.is Alla daga við hendina TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003 Kjölmiðar með ártali Spyrjið um bréfabindi í næstu bókaverslun. Við starfsfólk Múlalundar viljum þakka starfsfólki bókaverslana hve vel það hefur tekið bréfabindunum frá okkur og ekki sýst þeim sem kaupa þau því það tryggir betri framtíð margra einstaklinga. ,FÓTBOLTI Roy Keane, fyrirliði Manchester United, segist vera á góðri leið með að ná aftur fyrra formi. Kappinn er að koma aftur inn í lið United eftir að hafa verið frá í fjóra mánuði vegna meiðsla. „Það er erfitt fyrir alla leikmenn að koma til baka eftir að hafa ver- ið svona lengi í burtu. Mér líður vel bæði andlega og líkamlega. Þrátt fyrir að ég þurfi að vera þol- inmóður þá verð ég betri eftir því sem ég spila fleiri leiki,“ sagði Keane. ■ Roy Keane: Að ná fyrra formi KEANE Roy Keane er á leiðinni aftur í byrjunarlið Manchester United. Íþróttamaður ársins verður valinn af samtökum íþróttafréttamanna í kvöld. Aðeins þrjár konur hafa verið valdar íþróttamenn ársins í þau 46 skipti sem valið hefur farið fram. Einar Vilhjálmsson, fyrrverandi spjótkastari, sem þrívegis hefur verið kjörinn íþróttamaður ársins, og Vala Flosadóttir stangarstökkvari, sem kjörin var íþróttamaður ársins árið 2000, voru spurð hvort þeim fyndist réttmætt að breyta núverandi fyrirkomulagi og velja íþróttamann og íþróttakonu ársins. Íþróttamaður og -kona ársins? Mér finnst að það megi alvegvelja karl og konu. Það er alltaf gaman að margir fái athygli og verðskuldaða viðurkenningu fyrir góða hluti sem þeir eru að gera. Þau eru með svona stór íþróttaverðlaun hérna í Svíþjóð. Þar eru ýmsir flokkar og meðal annars eru íþróttamaður og -kona ársins valin. Þetta hefur verið aðeins strembnara fyrir konur af því að þær fá ekki eins mikla athygli, til dæmis í fótbolta og handbolta. Það er ekki hægt að bera það sam- an við tímann sem mennirnir fá þar í fjölmiðlum. Ég held að það sé erfiðara að velja í hópíþróttum heldur en í frjálsum íþróttum. Hvað varðar aðrar íþróttir en frjálsar væri ekkert vitlaust að hafa íþróttamann og -konu ársins. Það væri eflaust bara mjög gam- an.“ Vala telur að þau Ólafur Stef- ánsson handboltamaður og Krist- ín Rós Hákonardóttir sundkona eigi helst skilið að verða fyrir val- inu sem íþróttamaður og -kona ársins. ■ Vala Flosadóttir: Erfiðara að velja í hópíþróttum Ég skil fordæmi Norðurlandannaum að hafa þetta aðskilið. Rökin eru hins vegar þau að maður er maður. Þá hangir á spýtunni að af- rek kvenna verði metin á forsend- um rétts samanburðar. Meðan tæki- færin eru jafn mismunandi og þau eru á alþjóðlegum vettvangi, ef við skoðum til dæmis hópíþróttir, þá er það svo að huglægt fær afburða- kona í sinni íþróttagrein sem hefur ekki fengið sama fjölmiðlavægi og sama íþrótt í karlaflokki, léttvæg- ara mat en íþróttamaðurinn verð- skuldar. Ég hefði farið bil beggja og er stuðningsmaður þess að útnefna íþróttakonu og -mann ársins. Ég er einnig á því að útnefna afreksmann ársins sem myndi ná yfir bæði kyn- in. Mér fyndist heldur ekkert að því að útnefna lið ársins. Það lið gæti verið hvað sem er, til dæmis lands- lið, efstudeildarlið í knattspyrnu, sundlið, frjálsíþróttalið eða skák- sveit.“ Einar vildi ekki gera upp á milli þeirra íþróttamanna sem væru tilnefndir í kvöld en sagði að allir ættu þeir heiður skilinn. ■ Einar Vilhjálmsson: Afreksmaður ársins ÍÞRÓTTIR Þrjár konur hafa hlotið nafnbótina Íþróttamaður ársins, sem Samtök íþróttafréttamanna veita, í þau 46 skipti sem verð- launin hafa verið veitt. Þrjár kon- ur eru tilnefndar til nafnbótarinn- ar fyrir árið 2002 en verðlaunin verða veitt í kvöld. Adolf Ingi Erlingsson, formað- ur Samtaka íþróttafréttamanna, segir engar hugmyndir uppi um að breyta fyrirkomulaginu, til dæmis með kynjaskiptingu. „Þetta hefur verið rætt nokkrum sinnum innan samtak- anna en engan hljómgrunn hlot- ið,“ segir Adolf Ingi. „Ég er á því að íþróttakonur skapi sína eigin umræðu eða athygli í fjölmiðlum. Ég fæ ekki séð að Vala Flosadótt- ir, Þórey Edda Elísdóttir, Kristín Rós Hákonardóttir eða fleiri af- burða íþróttakonur hafi fengið eitthvað minni athygli í fjölmiðl- um en karlar þegar vel gengur hjá þeim. Sama má segja með ís- lenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu á árinu. Eftirspurnin eftir fréttum er til staðar ef árangur- inn er góður. Ég fæ ekki séð að íþróttafréttamenn búi neitt til í sambandi við karlaíþróttir. Auð- vitað er þetta svolítið misskipt með íþróttamann ársins en þegar yfirburða konur hafa komið fram hafa þær fengið athygli.“ Þess ber að geta að engin kona er skráð í Samtök íþróttafrétta- manna. Adolf Ingi segist ekki kunna neina skýringu á því en bendir á að þegar laus störf hafi verið auglýst á íþróttadeild RÚV hafi engar konur sótt um. ■ Íþróttamaður ársins: Þrjár konur hlotið nafnbótina ÍÞRÓTTAMENN EÐA -KONUR ÁRSINS? Sigríður Sigurðardóttir handknattleiks- kona varð fyrst kvenna til að hljóta nafn- bótina Íþróttamaður ársins árið 1964. Ragnheiður Runólfsdóttir sundkona hlaut hana árið 1991 og Vala Flosadóttir árið 2000. Í ár eru þrjár konur tilnefndar, þær Ásthildur Helgadóttir, knattspyrnukona úr KR, Ólöf María Jónsdóttir úr Golfklúbbn- um Keili og Kristín Rós Hákonardóttir, sundkona úr Fjölni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.