Fréttablaðið - 02.01.2003, Side 12
12 2. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
SKRIFSTOFUVÖRUR
Vandaður 80 gr fjölnotapappír
500 blöð í búnti
298.-
Geisladiskar CD-R 25 stk
720Mb / 80 mín / 1x - 32x
1.458.-
Bréfabindi A4 7 cm kjölur
Ýmsir litir
138.- stk
Á tilboði núna
Sjómannasambandið óttast áhrif sameiningar SR-mjöls og Síldarvinnslunnar.
Telur að slagurinn um verð muni enn harðna. Fyrirtækin eiga helming allra
loðnuverksmiðja í landinu og tengjast að auki mörgum stærri verksmiðjanna.
Samkeppnin
nánast úr sögunni
Við ætlum ekkert að rembasteins og rjúpan við staurinn
gegn sameiningum sem sagðar eru
hagkvæmar. Hins vegar höfum við
átt í stríði undan-
farinn áratug vegna
verðmyndunar á
uppsjávarfiski og
ekki dregur þetta
úr. Það segir sig
sjálft að eftir því
sem kaupendum
hráefnisins fækkar,
því meiri hætta er á
einhliða verðmyndun, það er algjör-
lega á þeirra valdi hvað fæst fyrir
hráefnið,“ sagði Sævar Gunnarsson,
formaður Sjómannasambands Ís-
lands.
Hann segist mjög uggandi um
hag sjómanna í kjölfar sameiningar
SR-Mjöls og Síldarvinnslunnar.
Stjórnir fyrirtækjanna munu
leggja til við hluthafa að SR-mjöl og
Síldarvinnslan verði sameinuð frá
og með 1. janúar 2003. Samkvæmt
samkomulagi sem stjórnir fyrir-
tækjanna hafa undirritað fá hlut-
hafar SR-mjöls 40% hlutafjár í sam-
einuðu félagi og hluthafar Síldar-
vinnslunnar 60%. Samanlögð velta
beggja fyrirtækja er nálægt 11
milljörðum króna á þessu ári og
áætlanir benda til að hagnaður
verði um 1,5 milljarðar. Samanlagð-
ur loðnukvóti SR-mjöls, Síldar-
vinnslunnar og tengdra fyrirtækja
er 180 þúsund tonn, miðað við 900
þúsund tonna heildarkvóta, eða
fimmtungur kvótans. Fyrirtækin
tvö og Samherji, sem á stóran hlut í
báðum, eiga meirihluta allra loðnu-
verksmiðja hringinn í kringum
landið. Og það er að mati Sjómanna-
sambandsins ills viti.
„Samkeppnisyfirvöld hafa svar-
að okkur vegna sambærilegra mála,
þeir segjast ekki skipta sér af því
sem lýtur að launakjörum fólks.
Þeir munu því ekki snerta við þess-
ari sameiningu. En við veltum því
fyrir okur hvort þetta standist al-
mennt siðferði, að menn geti ein-
hliða ákveðið hráefnisverðið. Það
var aðeins samkeppni í þessum
þætti en hún heyrir brátt sögunni
til. Það verða tveir til þrír kaupend-
ur á hráefni til bræðslu eftir sam-
einingu SR-mjöls og Síldarvinnsl-
unnar,“ sagði Sævar Gunnarsson.
the@frettabladid.is
Benóný Ásgrímsson, yfirflugstjóri og flugrekstrarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, segist hafa misst áhuga á stjórnunarstarfinu og vill gerast
óbreyttur flugstjóri frá áramótum. Benóný hefur ekki sagt formlega upp. Landhelgisgæslan hefur því ekki hafið leit að eftirmanni.
Yfirflugstjórinn vill
ekki pappírsvinnu
B enóný Ásgrímsson, yfirflug-stjóri og flugrekstrarstjóri
hjá Landhelgisgæslunni, hefur
óskað eftir því að verða óbreyttur
flugstjóri nú frá áramótum.
Benóný segist einfaldlega hafa
misst áhugann á stjórnunarstarf-
inu. Hann segist ekki vilja útskýra
það nánar.
Fram kom í
fréttum Stöðvar 2
á dögunum að ný-
verið var dreginn
frá launum Ben-
ónýs kostnaður
vegna kvöldverð-
arboðs fyrir er-
lendan sérfræðing
sem hélt hér nám-
skeið í meðferð
nýs nætursjónauka
Landhelgisgæsl-
unnar. Benóný,
sem efndi til boðsins fyrir hönd
Landhelgisgæslunnar en sat boðið
þó ekki sjálfur, segir aðspurður að
þetta atvik hafi engin áhrif haft á
ákvörðun sína. Aðeins hafi verið
um misskilning að ræða.
Benóný tekur heldur ekki und-
ir þá kenningu að grundvöllur
ákvörðunar sinnar sé ágreiningur
við forstjóra stofnunarinnar. Í
sama streng tekur Dagmar Sig-
urðardóttir, upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslunnar. Hún segir
Benóný hafa kynnt ákvörðun sína
þannig að hann vildi minnka við
sig ábyrgð.
„Benóný sagði að það væri
vegna þess að hann vildi hafa
meira tíma til að sinna því sem
hann hefur áhuga á. Þá geti hann
flogið meira og verið minna í
pappírsmálunum,“ segir Dagmar.
Enn hefur enginn verið ráðinn í
stöðu Benónýs enda er aðeins um
mánuður síðan hann óskaði eftir
stöðulækkuninni. Sjálfur segist
hann munu gegna starfinu þar til
eftirmaður sé fundinn.
Dagmar segir að sér vitanlega
hafi Benóný enn ekki sagt starfi
sínu formlega lausu. „Uppsagnar-
fresturinn er þrír mánuðir þannig
að þá höfum við þann tíma til að
ráða ráðum okkar,“ segir hún.
Að sögn Dagmarar munu um-
sóknir um starfið leiða í ljós þeg-
ar þar að kemur hvort hæfur eft-
irmaður Benónýs fáist: „Það er
alltaf sá möguleiki að þessi maður
sé þegar innan stofnunarinnar.
Það hefur verið litið svo á að einn
maður geti sinnt þessu og fluginu
líka en það á eftir að ákveða
hvernig við högum því.“
gar@frettabladid.is
„Það hefur
verið litið svo
á að einn
maður geti
sinnt þessu og
fluginu líka en
það á eftir að
ákveða hvern-
ig við högum
því.“
BENÓNÝ ÁSGRÍMSSON
Benóný Ásgrímsson, yfirflugstjóri og flugrekstrarstjóri, vill burt frá amstri skrifborðsins og
upp í háloftin sem fyrst. Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi segir Benóný þó ekki
enn hafa sagt starfinu lausu formlega.
SÆVAR GUNNARSSON
Segir samkeppni um hráefni til loðnuverk-
smiðja nánast úr sögunni með sameiningu
SR-mjöls og Síldarvinnslunnar. Þar með
ráði verksmiðjurnar einhliða verðinu sem
fáist fyrir hráefnið.
„Samkeppnisyf-
irvöld segjast
ekki skipta sér
af því sem lýtur
að launakjör-
um.“