Fréttablaðið - 02.01.2003, Side 21
21FIMMTUDAGUR 2. janúar 2003
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 2.15, 3.30, 5.40, 7, 9 og 10.30
GULLPLÁNETAN kl. 2, 4 og 6 ísl. tal
Sýnd kl. 4. 8 og 11.30 VIT 482 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 5, 7, 9, 10, 11 og 12
HARRY POTTER m/ísl. tali kl. 2 og 5 VIT493
TREASURE PLANET kl. 8 VIT487
GULLPLÁNETAN kl. 2 og 3 VIT498
KNOCKAROUND GUYS kl. 2
EN SANG FOR MARTIN kl. 2
JAMES BOND kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 2.30, 4.30, 6.30, 8.30 og 10.30
JAMES BOND kl. 8 og 11
Allt í gildi!
La
n
d
lis
t/
E
R
A
N
Allar búðir opnar í dag
Opið til hálf sjö í kvöld
ekkert
brudl-
Við óskum viðskiptavinum okkar svo og landsmönnum
öllum árs og friðar og þökkum gott samstarf,
góð samskipti og öll elskulegheit á liðnu ári
Opnum klukkan tólf
Aðstandendur leikkonunnarWinonu Ryder hafa miklar
áhyggjur af andlegri heilsu henn-
ar. Hún hefur nú
verið sett á sjálfs-
morðsvakt á Ced-
ars Sinai-spítalan-
um eftir að hafa
viðurkennt að
hafa verið að
íhuga sjálfsmorð.
Stúlkan hefur
grennst mikið síð-
ustu daga og átt í miklum deilum
við móður sína, sem krefst þess
að dóttir sín leiti sér aðstoðar
vegna lyfjafíknar sinnar. Sjálfsá-
lit hennar á að vera afar lítið
þessa dagana og henni finnst sem
allur kvikmyndaiðnaðurinn sé
hlæjandi að óförum hennar.
Leikarinn George Clooney seg-ist hættur að leika í popp-
kornssmellum. Hann segir upp-
hæðirnar sem
hann fær borgað
fyrir að gera slík-
ar myndir vera út
í hött. Clooney
segist vera í
þannig stöðu að
hann geti valið á
milli hlutverka
sem henti honum
vel þar sem hann vilji taka
áhættusamari og meira krefjandi
hlutverk. Hann tekur ekki fyrir
það að vinna með Coen-bræðrun-
um í komandi framtíð.
Rapparinn Eminem óttast nú aðhann sé orðinn of frægur til
þess að vera tekinn alvarlegur.
Hann segist nær
fullviss um að vin-
sældir sínar þessa
dagana séu slíkar
að almenningur
hljóti að snúast
gegn honum bráð-
um. Eftir að síð-
asta smáskífa
hans seldist í yfir
7,5 milljónum eintaka í Banda-
ríkjunum spyr pilturinn: „Ef allir
elska þig, hver er þá eftir til þess
að hata þig? Þetta gengur ekki
upp, krakkar vilja bara hlusta á
það sem foreldrar þeirra hata. Ef
þeir eru byrjaðir að hafa gaman
að tónlist minni líka er ég dauða-
dæmdur.“
Michael Jackson er ævareiðureftir að tölvuleikur var gerð-
ur í hans nafni. Leikurinn gerir
stólpagrín að
barnasveiflu hans
í Þýskalandi í síð-
asta mánuði.
Áhugasamir geta
farið á vefsvæðið
madblast.com og
prófað leikinn.
Notendur stjórna
körfu til þess að
grípa börn er Jackson fleygir í sí-
fellu af svölum hótels. Lagið er
heyrist leikið undir er afar líkt
„Smooth Criminal“ og annað slag-
ið skríkir poppkóngurinn með sín-
um alkunna hætti. Að sjálfsögðu
íhugar Jackson nú að lögsækja
fyrirtækið eUniverse Inc., sem
framleiddi netleikinn.
HARRISON OG CALISTA
Hafa verið par í tæpt ár og ætla nú að
ganga í það heilaga.
Harrison Ford trúlofaður:
Calista
Ford?
FÓLK Mesti töffari geimþokunnar,
Harrison Ford, féll niður á hné á
jóladag og bað kærustu sína,
Calistu Flockhart, um að giftast
sér. Maðurinn með svipuna og hatt-
inn, sem nú er 60 ára, var ekkert að
spara í trúlofunarhringinn því
hann kostaði 300 þúsund dollara
(rúmlega 24 milljónir íslenskra
króna). Hringurinn var svo falinn í
jólagjöf hennar, sem var Gucci
handtaska upp á litlar 1200 dollara.
Flockhart, sem er þekktust fyrir
að leika lögfræðingin þvengmjóa
Ally McBeal, féll nærri því í yfirlið
og sagði „já“ undir eins. ■
TÓNLIST Rafhljómsveitin múm fékk
riftun á plötusamningi sínum við
Thule Musik staðfestan með dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur á mánu-
dag. Hljómplötufyrirtækið hafði
þótt fara verulega út fyrir efni
samningsins og brotið gegn mikil-
vægum réttindunum stefnenda sem
listamanna.
Múm lagði fram kæru á hendur
Thule síðasta sumar eftir að hafa
frétt af því að lag þeirra „I’m 9
Today“ væri notað í auglýsingu fyr-
ir Sony í Bandaríkjunum. Útgáfan
hafði þá gefið fyrirtækinu leyfi fyr-
ir notkun lagsins án samþykkis liðs-
manna múm.
Samningurinn sem múm gerði
við Thule á sínum tíma var gerður
fyrir útgáfu fyrstu plötu sveitarinn-
ar, „Yesterday Was Dramatic, Today
Is Ok“, og gaf fyrirtækinu einkarétt
á útgáfu hennar um allan heim til
fimm ára. Það gaf fyrirtækinu þó
ekki leyfi til þess að versla með höf-
undarétt sveitarinnar án samþykkis
meðlima hennar. Sala lagsins í aug-
lýsinguna var þannig, samkvæmt
dómi Héraðsdóms, klárt brot á rétti
liðsmanna, sem eiga höfundaréttinn
af tónsmíðum sínum.
Héraðsdómur heimilaði múm að
rifta plötusamningi sínum við Thule
um útgáfu fyrstu plötunnar. Einnig
var fyrirtækinu skipað að greiða
liðsmönnum 300 þúsund krónur í
málskostnað.
Múm gerði í fyrra nýjan plötu-
samning við bresku útgáfuna Fat
Cat og gaf út aðra skífu sína,
„Finally We Are No One“, út á
heimsvísu í gegnum hana. ■
MÚM
Samkvæmt dómi Héraðsdóms á múm nú útgáfuréttinn af fyrstu breiðskífu sinni, „Yester-
day Was Dramatic, Today Is Ok“. Sveitin gefur nú út plötur hjá bresku útgáfunni Fat Cat.
Múm vinnur mál sitt gegn Thule Musik:
Seldu lag
í auglýsingu
í leyfisleysi