Fréttablaðið - 02.01.2003, Qupperneq 23
K
O
R
T
E
R
allt að
afsláttur
23FIMMTUDAGUR 2. janúar 2003
KVIKMYNDIR Leikararnir úr Friends
eru með kvikmynd í bígerð sem
byggð verður á samnefndum þátt-
um. Vinirnir eru allir búnir að
skrifa undir samnings þess efnis
og fær hvert þeirra sem samsvar-
ar tæpum milljarði íslenskra
króna fyrir vikið auk prósentu af
innkomu.
Kvikmyndin hefur lengi legið í
loftinu. Þegar Jennifer Aniston
samþykkti að leika í tíundu serí-
unni, sem framleidd verður eftir
áramót, var ákveðið að slá til. Ani-
ston hafði íhugað að slíta vinskapn-
um þar sem hún vildi sinna fjöl-
skyldu sinni.
Nokkur atriðið úr myndinni
hafa þegar lekið út, þar á meðal
þegar Joey, leikinn af Matt Le
Blanc, berar bossann. Samkvæmt
heimildum frá Hollywood búast
framleiðendur myndarinnar við að
kvenfólk og samkynhneigðir menn
muni flykkjast á myndina enda
nýtur Joey gríðarlegra vinsælda. ■
Þáttaskil hjá Friends:
Vinir á hvíta
tjaldið
VINIR
Vinirnir hafa allir samþykkt að leika í tíundu þáttaröðinni.
Karlskrona í Svíþjóð:
Drukkinn
elgur ræðst
á barn
ÓLÁTAELGUR Lögregla í bænum
Karlskrona í Svíþjóð var kölluð til
þegar drukkinn elgur gekk ber-
serksgang í íbúðahverfi í bænum.
Elgurinn réðst á átta ára dreng,
sem var að leik í garðinum heima
hjá sér, en lögreglan brást skjótt
við og skaut dýrið. Drengurinn
var miður sín af hræðslu en slapp
með skrámur. Elgir eru algengir í
Svíþjóð og eru yfirleitt feimnir og
friðsamir, en geta orðið árásar-
gjarnir eftir að hafa gætt sér á
uppáhalds vetrar-“snakkinu“ sem
eru gerjuð epli. ■
ZETA JONES
Catherine Zeta Jones er gift leikaranum
Michael Douglas og eiga þau eitt barn
saman. Annað barn þeirra hjóna kemur í
heiminn í mars.
Catherine Zeta Jones:
Nágrann-
arnir æva-
reiðir
KVIKMYNDIR Leikkonan Catherine
Zeta Jones hefur reitt nágranna
sína í heimabæ sínum, Swansea í
Wales, til reiði með áformum sín-
um um að stækka við glæsivillu
sína.
Hefur hún ákveðið að láta
byggja aukahæð á húsið og eru
framkvæmdir þegar hafnar. Er
frú Jones ásökuð af nágrönnum
sínum um að hafa breytt upphaf-
legum áformum sínum um hönn-
un hússins og að hafa eyðilagt um
leið nánasta umhverfi hússins
með því að höggva þar niður alda-
gömul tré. ■
NÝTT ÁR Í RÚSSLANDI
Nýja árið kemur líka í Rússlandi. Engu var
til sparað í jólaskreytingum í ár og voru
þær meðal annars hengdar utan á múra
Kremlar. Samkvæmt gregoríönsku dagatali
eru jólin 7. janúar.