Fréttablaðið - 02.01.2003, Side 24

Fréttablaðið - 02.01.2003, Side 24
2. janúar 2003 FIMMTUDAGUR KÓNGAFÓLKIÐ Breska dagblaðið The Sunday Mirror sakaði á laug- ardag Karl Bretaprins um hræsni eftir að prinsinn skrifaði undir samning við þýska bifreiðafyrir- tækið Audi um kaup á nýjum bíl. Nokkrum dögum áður hafði Karl hvatt bresku þjóðina til að kaupa innlendar vörur, en fór svo sjálfur og skrifaði upp á 100.000 punda samning við Audi-verksmiðjuna. Prinsinn átti fyrir breska bifreið af gerðinni Vauxhall. „Þetta er grófasta hræsni,“ sagði þingmað- ur Verkamannaflokksins, Tom Watson, „og greinilegt að meðlim- ir krúnunnar hafa engan áhuga á verkamönnum í eigin landi.“ Talsmaður prinsins sagðist vita til þess að einn lúxusbíll hefði ver- ið keyptur af Audi til að koma í staðinn fyrir Omega-bifreið sem hann sagði reyndar ekki lengur framleidda af Vauxhall. Aðspurð- ur hvort rétt væri að sex bifreiðar frá Audi hefðu verið afhentar konungsfjölskyldunni sagðist hann ekki hafa hugmynd um það. „Ef svo er geri ég ráð fyrir að starfsmenn hirðarinnar hafi per- sónulega fest kaup á þeim bílum,“ sagði talsmaðurinn. ■ Karl Bretaprins: Sakaður um hræsni PRINSINN Í BRETLANDI Vildi frekar þýska bifreið en breska. ÁRAMÓTAHEIT Líf fólks er markað af endalausum tímamótum og ákveðnum hefðum sem hafa skapast í kringum þau. Þannig er ekki óalgengt að fólk vakni á morgnana og gangi til náða á kvöldin, drekki sig yfirum um helgar og millifæri launin sín um hver mánaðamót á reikninga hinna ýmsu lánadrottna. Öll þessi misstóru tímamót springa svo út í sjálfum áramótunum og allt er keyrt fram úr hófi, drykkjan er aukin, peningar eru sprengdir í loft upp og engum málsmetandi Íslendingi kemur til hugar að halla sér fyrr en nýr dagur er löngu risinn. Margir nota þessi tímamót einnig til þess að líta til baka og reka þá oft augun í eitt- hvað sem betur mætti fara hjá þeim. Líkamlegt ástand fólks er því jafnan ofarlega í huga og mikið er um heitstrengingar tengdar bættu líferni, auk þess sem einhverjir sverja þess dýran eið að kaupa ekkert á raðgreiðsl- um á nýja árinu, vera betri við börnin sín og fleira í þeim dúr. Bára Magnúsdóttir, hjá Dans- rækt JSB, hefur fylgst með lík- amlegu ástandi landans í um 30 ár. Hún segir alla í líkamsræktar- bransanum finna fyrir aukinni eftirspurn í kringum áramót. „Líkamsræktin er að vísu orðin mjög stöðug, enda orðin eðlilegur þáttur í lífi flestra. Það breytir því þó ekki að það koma alltaf ákveðnir toppar á haustin og í janúar.“ Bára segir þessi yfirflóð ekki vara lengi og þeir sem ákveði það nánast upp úr þurru að koma sér í form með hraði heltist fljótlega úr lestinni. „Líkamsrækt er ekk- ert sem maður skreppur í og ég hef ekki séð ástæðu til að koma með einhver gylliboð í janúar og gera út á þess flóðbylgju. Það gerist lítið í þessum málum hjá fólki fyrr en það tekur ákvörðun um að bæta sig innra með sér og er tilbúið til að gera þetta al- mennilega. Þetta er alveg eins og að hætta að reykja. Það gengur ekki fyrr en fólk vill virkilega hætta.“ Þeir eru ófáir sem ákveða að drepa í síðustu sígarettunni á gamlárskvöld en lenda svo í því að falla á næstu klukkustundum, sólarhringum eða vikum. Guðjón Bergmann hefur hjálpað fólki að hætta að reykja frá árinu 1997 og hann segir eftirspurnina eftir þjónustu sinni aldrei meiri en í janúar á hverju ári. „Fólk stend- ur þarna á ákveðnum tímamótum og tekur þessa ákvörðun. Vanda- málið er að margir gera það án þess að undirbúa sig neitt. Þeir sem hætta að reykja óundirbúnir eiga það á hættu að falla og í hvert skipti sem maður fellur vex manni þetta verkefni enn meira í augum. Ég hef bent fólki á það að það er ekkert mál að hætta en undirbúningurinn skipti öllu máli svo fólk sé ekki að búa sér til slæmar minningar sem oftar en ekki tengjast misheppn- uðum áramótaheitum. Ég legg því áherslu á að fólk hætti ekki að reykja fyrr en það byrjar á námskeiðunum hjá mér fyrstu vikuna í janúar og ræð því frá að hætta endilega 1. janúar þar sem hætt er við að það falli í millitíð- inni og mæti vonlítið til leiks.“ ■ Áramót með heilum eða hálfum hug Fjöldi fólks ákveður að takast á við veikleika sína um hver áramót. Það er þó engan veginn nóg að ákveða slíkt á síðustu mínútum ársins og hugur verður að fylgja máli eigi árangur að nást. GUÐJÓN BERGMANN Hefur hjálpað reykingafólki að hætta síðan 1997. „Ég hef verið að einbeita mér meira og meira að jóganu en ákvað að bregð- ast við mikilli eft- irspurn með því að halda eitt opið reykinganámskeið í janúar.“ BÁRA MAGNÚSDÓTTIR Segir það fasta liði í líkamsræktinni að fólk ákveði að taka sig á um áramót og streymi út á líkamsræktarstöðvarnar í janúar. Hún bendir á að það sé ekki nóg að taka þessa ákvörðun á hlaupum. Þörfin verði að koma að innan og viljinn til að breyta verði að vera sterkur. Annars sé betur heima setið en af stað farið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Glæsileg ítölsk leðursófasett stakir sófar og hornsófar Erum einnig með glæsilegar ítalskar eldhúsinnréttingar, komið og skoðið sýningar- eldhúsin á staðnum eða fáið sendan myndalista. – gæða húsgögn Bæjarhrauni 12, Hf. Sími 565-1234 Módel IS 1000 3+1+1 verð nú aðeins 198.000.- stgr. Litir: koníksbrúnt, antikbrúnt, svart, búrgundýrautt og ljóst Módel IS 200 3+1+1 3+2+1 í Bycast leðri og taui Tilboð 3+1+1 í leðri á aðeins 298.000.- stgr. Margar gerðir af borðstofuhúsgögnum frá Ambitat. Leðurhornsófar 2+H+2 og 2+H+3 verð frá 179.000.- stgr. Litir: koníaksbrúnt og antíkbrúnt. Módel King 3+1+1, fullt verð 329.000.- verð nú 298.900.- stgr. Koníaksbrúnt, rauðbrúnt og dökkbrúnt bycast leður Opið mán.–fös. 10–18 og lau. 10–16

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.