Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2003, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 02.01.2003, Qupperneq 30
30 2. janúar 2003 FIMMTUDAGUR HVAR Verður ekki múlbundinn Bubbi Morthens er þakklátur fyrir þann heiður sem honum hefur verið sýndur með hinni íslensku fálkaorðu. Hann segir viðurkenning- una þó ekki múlbinda sig. Hann muni ekki liggja á skoðunum sínum fremur en endranær og halda áfram að fara sínu fram. „Þetta er fyrst og fremst mikill heiður enda er þetta æðsta viður- kenning sem þjóðin veitir lista- mönnum sínum og þeim sem hafa lagt eitthvað til málanna,“ segir Bubbi Morthens en forseti Íslands sæmdi hann riddara- krossi fyrir framlag sitt til ís- lenskrar tónlistar. „Þar fyrir utan finnst mér þetta vera heiður fyrir þann geira tónlistar sem ég tilheyri en ég er auðvitað ekki hefðbundinn dægurtónlistarmað- ur. Ég er umdeildur og hef farið mínu fram þannig að það má kannski segja að einhverju leyti að þarna hafi verið brotið blað í sögu orðuveitinga,“ bætir Bubbi við og hlær. Bubbi segir það alls ekki frá- leitt að gamall gúanórokkari sé sæmdur fálkaorðunni á Bessa- stöðum og í raun sé orðan ekki fjarlæg frystihúsunum. „Skip- stjórar og aflaklær og fleiri sem tengjast sjávarútvegi hafa fengið orður þannig að það er ekki svo langt á milli gúanórokksins og fálkaorðunnar. Það eru svo auð- vitað 23 ár síðan ég steig út úr gúanóinu og gerðist tónlistar- maður þannig að ef árin eru talin gengur þetta ágætlega upp.“ Bubbi segir þennan heiður ekki múlbinda sig á nokkurn hátt. „Ég fer ekkert að þegja og hætta að segja það sem mér finnst enda lít ég frekar á þetta sem viðurkenningu á því að það sem ég hef verið að gera hafi fengið hljómgrunn hjá orðu- veitinganefnd.“ Síðasta ár var býsna gott hjá Bubba. „Þetta var frábært ár. Minn mælikvarði á það liggur í því hvernig börnin mín og konan hafa það. Ef þeim líður vel þá er það æðislegt og allt annað er bara viðbót við það. En árið var vissulega mjög gott, nýja platan seldist vel, ég var gerður bæjar- listamaður á Seltjarnarnesi og svo framvegis og svo fæ ég orðu núna. Þetta er búið að vera fer- lega gaman.“ ■ FÓLK Í FRÉTTUM ÁFANGI FORMAÐUR „Ég er nú í þannig vinnu að hún hirðir mest af þrek- inu,“ segir Helgi Laxdal, formað- ur Vélstjórafélags Íslands. En Helgi er nú ekki aldeilis þreklaus því hann vaknar klukkan sex á hverjum morgni og fer í ræktina. „Ég byrja á að hjóla í 20 mínútur, fer svo í nokkur tæki og er yfir- leitt kominn í vinnuna korter fyr- ir átta. Svo fer ég býsna oft í göngutúr á kvöldin og geng þá allt upp í klukkutíma.“ Helgi verður 62 ára 9. janúar, er í steingeitarmerkinu og afar stoltur af. „Ef geiturnar lenda í að taka skref afturábak taka þær umsvifalaust tvö áfram. Svo eru þær íhaldssamar, það sést nú til dæmis best á því að ég hef átt sömu konuna í 40 ár,“ segir Helgi, en eiginkona hans er Guðrún Jó- hannsdóttir framkvæmdastjóri. „Hún rekur verslun, en ég kem ekkert nálægt því nema auðvitað með því að gefa holl ráð.“ Hann segist gjarnan fara utan í sumarfríum og þá helst í Móseldalinn. „Ég hef verið þar 15 til 20 sinnum,“ segir hann og staðfestir enn og aftur íhalds- semi steingeitarinnar. „Svo er ég haldin einni ákveð- inni sérvisku. Ég set undantekn- ingarlaust niður kartöflur 1. maí. Ég hef stundum sagt að ég færi með útsæðið í hitakönnu ef frost væri í jörðu, frekar en að sleppa því að setja niður. Meðan aðrir verkalýðsleiðtogar þramma um göturnar með fána set ég niður kartöflur,“ segir Helgi og skelli- hlær. Nýja árið leggst vel í Helga og hann strengir engin áramótaheit. „Ég er hættur að reykja og drek- ka kaffi og búinn að losa mig við tíu kíló. Það var erfiðara að hætta í kaffinu en tóbakinu, en ég er öfgamaður í öllu sem ég geri og sömuleiðis nógu viljasterkur til að gera það sem ég ætla mér,“ segir verkalýðskempan að lok- um. ■ Helgi Laxdal er formaður Vélstjórafé- lags Íslands. Hann er giftur Guðrúnu Jóhannsdóttur og á fjögur uppkomin börn, tíu afabörn og eitt langafabarn. Sérvitur dugnaðarforkur í steingeitarmerkinu JARÐARFARIR 13.30 Auður Brynþóra Böðvarsdóttir verður jarðsungin frá Háteigs- kirkju. TÍMAMÓT BUBBI MORTHENS „Ég er umdeildur og hef farið mínu fram þannig að það má kannski segja að einhverju leyti að þarna hafi verið brotið blað í sögu orðuveitinga.“ Þrátt fyrir að viðskilnaður Dav-íðs Oddssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr stóli borg- arstjóra með rúmra ellefu ára millibili sé með ólíkum hætti er margt svipað á ferli þeirra sem borgarstjóri. Bæði völdust þau til forystu til að vinna borgina úr höndum pólitískra andstæðinga sinna, bæði leiddu þau lista sína til þriggja sigra í kosningum áður en þau létu af völdum í upphafi þriðja kjörtímabils síns og bæði urðu þau stærri en listarnir sem þau leiddu. Hins vegar á eftir að koma í ljós hvort vinstrimanna bíði sömu örlög eftir brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar og sjálfstæð- ismanna eftir brotthvarf Davíðs, að tapa næstu borgarstjórnar- kosningum og sætta sig við að vera í minnihluta næsta áratuginn eða svo. Ástæður fyrir uppþoti því semvarð í herbúðum Reykjavíkur- listans um liðna helgi eru nú óðum að skýrast. Skrifast uppþotið að stórum hluta á Stefán Jón Haf- stein, sem mun hafa aftekið með öllu að utanaðkomandi aðili settist í stól Ingibjargar Sólrúnar þegar hún neyddist til að víkja. Stefán Jón mun sjálfur hafa ætlað sér stólinn og því verið þver fyrir. Þegar samherjar höfðu snúið upp á handlegginn á honum gaf hann andstöðu sína eftir og lýsti því yfir að hann væri sáttur við niður- stöðuna. Tók þetta allt sinn tíma. Samfylkingin er í ágætum mál-um ef marka má stuðið sem var á Össuri Skarhéðinssyni í þáttum ljósvakamiðlanna á gaml- MEÐ SÚRMJÓLKINNI Að gefnu tilefni skal tekið fram að Ingibjörg Sólrún ætlaði í landsmálin - ekki í slagsmálin. Leiðrétting ÞESSI HLUTU HEIÐURSMERKI HINNAR ÍSLENSKU FÁLKAORÐU Ásbjörn K. Morthens, tónlistarmaður Berglind Ásgeirsdóttir, aðst.frkstj. OECD Elín Rósa Finnbogadóttir, Samhjálp kvenna Grímur Gíslason, fréttaritari Guðmundur H. Garðarson, fv. alþingismaður Hólmfríður Pétursdóttir, húsfreyja Hulda Jensdóttir, ljósmóðir Jón Björnsson frá Bólstaðarhlíð Oddgeir Guðjónsson, fv. bóndi Sigrún Júlíusdóttir, prófessor Sigrún Klara Hannesdóttir, landsbókavörður Sigurður Dementz Franzson, tónlistarmaður Stefán Aðalsteinsson, búfjárfræðingur Steinar Berg Björnsson, fv. framkvæmdastjóri Svend Aage Malmberg, haffræðingur FORMAÐUR VÉLSTJÓRAFÉLAGSINS Lætur sig ekki muna um að lyfta lóðum og gera æfingar fyrir allar aldir á morgnana. ársdag. Í Kryddsíld Stöðvar tvö tókst honum að setja Davíð Odds- son úr jafnvægi í harðri orðasennu þar sem kapparnir kölluðu hvorn annan dóna. Ekki hlýnaði þegar Össur náði að gera Falun Gong og svörtu listana að umræðuefni í næstum þriðjungi þáttarins. Þeim lenti saman út af Ingibjörgu Sól- rúnu, þar sem Davíð spurði hvaða máli það skipti þó hún færi í fram- boð. Össur átti þá mergjuð lokaorð þáttarins þegar hann hallaði sér fram og sagði: Það getur meðal annars skipt því að þú verður ekki ráðherra eftir kosningarnar! LÓÐRÉTT: 1 auðvelt, 2 sefar, 3 malbik, 4 mat, 5 borða, 6 pár, 7 bolta, 8 batt, 11 aumingi, 14 teygjanleg, 16 féð, 18 flatfiskur, 20 snjallast, 21 leiðslur, 23 band, 26 trufla, 28 flennu, 30 illgresi, 31 etja, 33 málmur. LÁRÉTT: 1 mynt, 4 sársauki, 9 samfelld, 10 bindi, 12 æða, 13 eyðast, 15 gláp, 17 ólærð, 19 nöldur, 20 fann, 22 kúgaði, 24 spýja, 25 ýlfra, 27 svif, 29 seðilsins, 32 þraut, 34 eldstæði, 35 eldisdýr, 36 ljósið, 37 bæta. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 hrós, 4 næstum, 9 skjatta, 10 sóar, 12 stör, 13 skrifa, 15 míla, 17 karp, 19 nið, 20 króar, 22 rauða, 24 urt, 25 gróf, 27 rita, 29 aftans, 32 aumu, 34 runu, 35 skelkað, 36 mótaði, 37 rist. Lóðrétt: 1 hass, 2 ósar, 3 skrika, 4 nasar, 5 ætt, 6 stöm, 7 tarínu, 8 mótaða, 11 ókyrri, 14 farg, 16 liðinn, 18 próf, 20 kurfum, 21 óttast, 23 aftrar, 26 rauli, 28 aka, 30 auði, 31 sult, 33 me. KROSSGÁTA Ég er að vinna á Landspítalan-um við meðferðarstörf á geðsviði og við kynlífsráðgjöf á eigin stofu,“ segir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kyn- fræðingur. Jóna Ingibjörg var í sviðsljós- inu árið 1987 þegar hún bar hinn nýstárlega titil kynfræðingur og bauð upp á námskeið fyrir konur sem vildu læra að fá kynferðis- lega fullnægingu. Hún fluttist til Danmerkur árið 1996 þar sem hún lærði þerapíu og segir kynlífsum- ræðuna hér á landi ekki hafa breyst mikið á þeim fimm árum sem hún var þar. „Það er sama ófaglega umræðan í gangi hér á landi. Það sárvantar vettvang fyr- ir faglega umræðu. Allt annað er óbreytt.“ Þórólfur Árnason. Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Hljómsveitin Írafár. 1. 2. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 3. Einu sinni voru tvær golfkylfur á bar og barþjónninn spurði hvað mætti færa þeim. Þá sagði önnur: „Einn bjór takk“. Svo spurði bar- þjónninn hina kylfuna og hún sagði: „Ekkert, ég er dræver.“ OG SVO EINN ÓÞÝÐANLEGUR...

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.